Þjóðviljinn - 01.10.1980, Blaðsíða 15
M
frá Að ©
„þyrla” upp
moldviðri í
Westan-
Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla virka
daga, eða skrifið Þjóðviljanum,
Siðumúla 6.
lesendum
Myndin er tekin af ASB um borö í varöskipi sl. júli.
Varðandi níðingsverk
Stundum koma þeir dagar
aö maður skammast sin fyrir
að vera islendingur. Einn
þeirra vaf sá dagur þegar
dómsmálaráðuneytið úthýsti
manni er leitað hafði á náðir
okkar, þar sem hann kærði sig
ekki um sveinspróf i
manndrápum.
Við islendingar, (sem eigum
ekki fyrir stórum staf þessa
dagana), grobbum okkur af
þvi i þjóðhátiðarræðum og á
tyllidögum, að við séum vopn-
laus og friðsöm þjóð. En hvað
geristþegar á reynir? Um það
vitnar ameriski herinn, þátt-
taka okkar i morðbandalagi
vestrænna lýðræðisþjóða og,
þótt að visu sé smátt móti þvi
sem fyrr er talið, mál Patricks
Gervasoni. Við styðjumnefni-
lega vestrænan og lýðræöis-
legan skepnuskap hvar sem
við getum og með þessu
siðasta afreki erum við komin
i flokk þeirrar dýrategundar
sem áður visaði gyðingum
heim i faðm Hitlers og sovésk-
um flóttamönnum undir
algóða vernd Stalins sáluga.
Þeir voru nefnilega lika brot-
legir við „lög” sins heima-
lands. Og skitt veri svo með
mannúð, náunganskærleika
og önnur ópraktisk fyrir-
brigði.
Að endingu vil ég gera það
að tillögu minni að lagagránar
i dómsmálaráðuneyti islend-
inga fari að bursta rykið aí
þeim góða sálmi Heims um
ból. Varla myndi saka að þeir
syngju hann á írönsku um
næstu jól, um leib og þeir rifja
upp hvað þeir hafa vel gert á
árinu, öðrum til blessunar og
sér til sóma.
— 4226-5950
Kostar ekkert að borða heima?
blænum
Loksins náðu þeir saman i
einingu andans og bandi
friðarins, pabbadrengirnir tveir
og fyrrverartdi sjónvarps-
stjarna, sem rekið hafa á f jörur
islenskra stjórnmála fyrir
Westanblænum, sem hér hefur
ráðið rikjum, siðan landið var
hernumið hérna um árið, frá
Guðs eigin landi.
Sameiningartákn þessara
pilta er að stærri glæpur gegn
þjóðinni en kaup á
margumræddri þrylu, sé ekki
til, eins og málin standa i dag,
og er þó liklega úr ýmsu að
moða á kærleiksheimilinu.
Þessir sjálfskipuðu siða-
postular með geislabaug um
höfuðið telja sig þvi þess
umkomna að kasta fyrsta stein-
inum. (Góði Guð, við þökkum
þér að við erum ekki eins og
aðrir menn.)
Það er aftur á móti von min og
trú að þessi steinn hitti ekki i
mark og að svo mikið sé lán
þessara drengja þrátt fyrir allt,
að þeir snúi við blaðinu og leggi
þessu máli lið. Af þvi munu þeir
meiri menn kallaðir verða.
Landhelgisgæslan undir
leiðsögn Péturs Sigurðssonar i
liðnum þorskastriðum á annað
skilið af þjóðinni en að vera
stillt upp við vegg i fjölmiðlum,
eins og ótindum glæpamönn-
um.
Ef það er glæpur dagsins að
keypt er fullkomin, velbúin
þyrla til gæslu og björgunar-
starfa, þá vil ég heldur teljast til
þeirra, sem fremja ódæðið, en
hinna, sem fordæma það.
AsgrimurS. Björnsson.
Mislukkuð
berjaferð
Einn laugardag í miðj-
um september langaði
mig þessi ósköp í berja-
mó. svo ég bað pabba og
mömmu að fara með
mér eitthvað að tína ber.
Upp úr hádeginu lögðum
við af stað. Og í skottinu á
bílnum var fullt af doll-
um sem við ætluðum að
tína berin i. Við ætluðum
suður á Reykjanes og ók-
um því að Kleifarvatni.
En þar fundum við ekki
nein ber. Pabbi vildi að
við athuguðum hvort ekki
væru ber i hrauninu milli
Kleifarvatns og Grinda-
víkur en þar voru heldur
engin ber. Og nú vorum
við búin að vera í þrjá
tíma svo við gáf umst upp
við að tína ber og f órum í
kaffi hjá frænku minni í
Grindavík.
DÝö.
Og mislukkuð
bíóferð
Einu sinni var maður
sem ætlaði í bíó. Hann
keypti sér miða og ætlaði
svo inn í salinn. En í dyr-
í umræöum um kjör farand-
verkafólks er krafan um frltt
fæðiofarlega á blaöi. Er iöulega
á það bent að þaö sé óréttlátt aö
farandverkafólk sem vinnur
fjarri heimilum sinum þurfi aö
borga fyrir mat sinn i mötuneyti
meöan heimafólk geti bara
skroppið yfir götuna og heim i
inat.
unum stóð maður sem tók
miðann af honum og reif
hann. Maðurinn fór í fýlu
og fór aftur að miðasöl-
unni og keypti sér annan
miða. Allt fór á sömu leið
fimm sinnum. Þá fór
miðasalinn að undrast og
spurði: /,Af hverju kaup-
irðu þér alltaf nýjan og
nýjan miða?" Þá svaraði
maðurinn: „Nú, þessi
asni þarna við dyrnar ríf-
ur hann alltaf fyrir mér."
Verða þessi rök ekki skilin
öðruvisien svo, að það kosti lítið
eða ekkert að borða heima hjá
sér. Ég er siður en svo á móti
þvi að farandverkafólk fái fritt
fæði hjá atvinnurekendum, en
mig langar mikið til að vita
hvernig hægt er að borða fritt
heima hjá sér.
Ein sem þarf aö elda.
Svör við gátum
Asninn sefur þangað til
hann vaknar.
Skólataskan fer í skólann
en lærir aldrei neitt.
Kílóin eru alltaf jafn-
þung.
Bókstafurinn e er bara í
sekúndu!
Umsjón: Sigga og Pýrleif
Dýrleif teiknaöi þessa mynd af stelpu i berjamó.
barnahornid
Miövikudagur 1. október 1980. ÞJÓÐVILJINN — StDA 15
V aldaránið
í Tyrklandi
Skálmöld hefur rikt i Tyrk-
landi um alllanga hriö, og ekki
batnaöi hún þegar herinn tók
völdin á dögunum. Þetta
bandalagsriki okkar i Nató er
alllangt frá því aö vera eitt-
hvert dýröarinnar lýöræöis-
riki.
Sjónvarpið sýnir i kvöld
stutta fréttamynd breska um
valdaránið i Tyrklandi, ,,og
alla þessa elskulegu menn
sem aö þvi stóöu” einsog
Baldur Hermannsson hjá
Sjónvarpinu orðaði það. Og
þaö verður að viðurkennast,
að aðalmaðurinn i valdarán-
inu, Kenan Evren hers-
höfðingi, hefur útlitið með sér.
Hann er öllu geðslegri að sjá,
en t.d. valdaræningjarnir i
Chile og Bóliviu. En menn
skyldu ekki láta blekkjast af
afalegu útliti og kimnis-
glampa i augum.
— ih
Sjónvarp
kl. 22.40
Kenan Evren, maöurinn á
bakviðvaldarán tyrkneska
hersins.
V etrar-
dagskrá
barnanna
Október er gcnginn i garö
með tilheyrandi haustskógar-
sinfóni, rigningu og barnatim-
um kl. 6 á miðvikudögum.
Tveir myndaflokkar, sem
hafa verið á sunnudögum að
undanförnu, færast nú yfir á
miðvikudaga. 1 dag er fjallað
um fljótfærni i stuttu finnsku
þáttunum Fyrirmyndarfram-
koma. Siðan kemur tiundi
þátturinn um óvænta gestinn,
litlu geimstelpuna sem kom til
Tékkóslóvakiu og gerði allt
vitlaust. Þetta eru skemmti-
legir þættir og hæfilega spenn-
andi til að halda ungum
áhorfendum við efnið.
Ekki vantar heldur dýralif á
skjáinn i dag. Sýndur verður
fyrsti þátturinn i flokki frá
Kanda, Maöur norðurhjarans,
sem fjallar um dýravininn A1
Oeming. Hann kom á fót
griðastað villtra dýra i
Kanada, og þessi þáttur er um
hvitabirni.
A laugardögum verða
áfram sýndar myndir kl.
18.30, og á sunnudögum verður
Stundin okkar i umsjá
Bryndisar Schram, einsog i
fyrra.
Tommi og Jenni eru enn á
mánudögum og þriðjudögum
eftir auglýsingar. Þeir
O Sjónvarp
^ kl. 18.00
sjónvarpsmenn ættu að taka
til nánari athugunar þá gagn-
rýni sem hefur margoít komið
fram, t.d. i lesendabréíum frá
foreldum, að þetta efni, sem
höfðar mest til yngstu
barnanna, sé of seint á
ferðinni. 1 þvi sambandi
dettur manni i hug hvort ekki
væri réttara að nota miðviku-
dags- og helgartimana meira
fyrir smábarnaefni, en sýna
fremur efni við hæfi eldri
barna og unglinga eftir fréttir.
— ih
Slökun
gegn
streitu
Þeir sem verða orönir
þrcyttir og slæptir uppúr
ellefu i kvöld ættu aö kveikja á
útvarpinu og slappa af meö
Geir Viðari Vilhjálmssyni.
Hann ætlar aö leika rólega
tónlist og gefa leiðbeiningar
sem eiga aö duga i baráttunni
gegn streitu.
Eitt ráð vil ég þó gefa mönn-
um: háttið fyrst, og komið
ykkur i rúmið. Annars fer
kannski fyrir ykkur einsog
kunningja minum sem var að
hlusta á Geir og steinsofnaði i
stofustólnum sinum. Þar
vaknaöi hann um mprguninn i
heldur aumu ásigkomulagi og
var lengi aö ná sér eftir harð-
sperrurnar. — ih.
Geir Viöar; róleg tónlist og
slökun.
Utvarp
kl. 23.15