Þjóðviljinn - 01.10.1980, Blaðsíða 16
UOOVIUINN
Miövikudagur 1. október 1980.
Aöalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-30 mánudag til föstudaga.
Utan þess tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn
blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot
81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aö
ná i afgreiöslu blaösin^i sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348
og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld.
Aðalsími
81333
KvöLdsími
81348
Helgarsími
aigreiðslu
81663
Reglum um rikisábyrgðarsjéð breytt fyrir Flugleiðir?
Reglur sjóðsins leyfa
ekki frekarí ábyrgðir
Ljóst er að atbeina
alþingis þarf til að veita
Flugleiðum rikisábyrgð
á 12 miljón doliara láni
sem fyrirtækið hyggst
taka þar sem athugun i
fjármálaráðuneytinu
hefur leitt i ljós að
miðað við þær reglur
sem gilda um veðhæfni
eigna og rikisábyrgðar-
sjóð er litið svigrúm til
frekari veðsetninga, að
sögn Höskuldar Jóns-
sonar, ráðuneytisstjóra.
Höskuldur sagöi aö reglur
rikisábyrgöarsjóös um veömörk
kynnu aö vera umdeilanlegar en
ljóst væri aö breyta þyrfti reglu-
geröum eöa lögum til þess aö unnt
væri aö veita umbeðna rikis-
ábyrgö. Rikisábyrgðarsjóöur
hefur nó mál þetta til athugunar
en samkvæmt reglum sjóösins er
fasteign talin fullveösett þegar
60% af matsveröi er veösett og
flugvélar þegar 80% af matsverði
er veösett. Hér er um að ræöa
sérstakt mat rikisábyrgöarsjóðs
en ekki fasteignamat. Hinir ýmsu
sjóöir setja aö sögn Höskuldar
misjöfn skilyröi fyrir veöhæfni
eigna, t.d. munu lifeyrissjóöirnir
telja fasteign fullveösetta ef hún
er veðsett fyrir skuldum sem
nema 50% af matsveröi.
r
Ovíst um sölu
Boeing-vélanna
Forráöamenn Flugleiöa hafa
lagt á það áherslu að lániö sé
þeim nauösynlegt nú strax næstu
vikur til þess aö standa undir
rekstri fyrirtækisins öörum en
N-Atlantshafsfluginu en fjár-
hagur fyrirtækisins hefur sam-
kvæmt fréttum enn þrengst þar,
sem óvissa rikir um fyrirhugaöa
sölu tveggja Boeing-flugvéla til
Júgóslaviu en söluandviröiö nem-
ur 3 miljörðum króna.
—AI
DAGBLAÐSKÖNNUN:
161.4% eru ánœgðir \
j með ríkisstjórnina j
• Dagblaöið birti I gær niöurstööur skoöanakönnunar um afstöðu ■
| manna til ríkisstjórnarinnar. Alls voru 600 manns spuröir álits. I
IAf þeim voru 41,2 af hundraöi fylgjandi stjórninni, 25,8% voru
henni andvigir, en 33 af hundraði höföu enga skoöun á málinu.
Ef tekiö er miö af þeim sem svöruöu af eöa á, þá voru 61,4 af
, hundraöi ánægöir með stjórnina en 38,6% á mótihenni.
Ilsamanburöi viðkönnunsem gerövar I febrúar, skömmu eftir
aö rikisstjórn Gunnars Thoroddsen tók viö völdum, kemur I ljós
aö vinsældir hennar hafa heldur minnkað. Þá voru rúmlega 70 af
, hundraöi fylgjandi stjórninni, aöeins 8% voru henni andvigir, en ,
■ 21 af hundraöi haföi enga skoöun. _ltá
Ríkissaksóknari um mál fyrrverandi
Fatlaðir komast auöveldlega leiöar sinnar I Seljaskóla. Ljósm.
L áfanga Seljaskóla lokið
— gel.
Tekid tillit
til fatlaðra
t haust var I. áfanga Seljaskóla
I Breiöholti lokiö. Um hönnun
byggingarinnar sáu Arkhönnun
s.f. og ttak h.f., auk þe^s sem
samráö var haft viö danskt verk-
fræöifyrirtæki.
Skólinn verður fullby-ggöur
átta, sjálfstæö hús, tengd meö
göngum, og iþróttahús, sem
stendur eitt sér. Nú eru risin fjög-
ur hús, samtals 3664 fermetrar.
Þarfir fatlaöra voru sérstak-
lega hafðar I huga við hönnun
skólans. Húsin eru þvi samtengd
meö hjólastólabrautum auk
trappa. í hverju húsi er aö finna
salerni fyrir fatlaöa.
Húsin ofan botnplötu voru gerö
úr forsteyptum einingum og var
byggingartimi mun skemmri en
tiökast við hús af þessari stærö. I.
áfanganum tókst aö ljúka á 18
mánuöum aö frátalinni jarö-
vinnu, en fyrsta húsiö var tekiö I
notkun sex mánuöum eftir aö
byggingarframkvæmdir hófust.
—gb.
skólastjóra í Grindavík:
Ekkí ástæða
til aðgerða
Lokiö er opinberri rannsókn á
ástæöum þess aö Friöbjörn Gunn-
laugsson, fyrrverandi skólastjóri
i Grindavfk,sá sig knúinn til þess
aö segja embætti sinu lausu og er
aö mati rikissaksóknara ekki
ástæöa til frekari aögeröa I mál-
inu. Arnmundur Backmann, lög-
maöur Friöbjörns, sem fór fram
á rannsóknina, hefur mótmælt
þvi aö rannsókninni sé lokiö og
krafist frekari rannsóknar á ein-
stökum þáttum málsins.
Þjóöviljanum barst i gær ljósrit
af tilkynningu rikissaksóknara
um aö rannsókninni væri lokið
ásamt bréfi frá Boga G. Hall-
grimssyni, sem gegndi störfum
skólastjóra meöan Friöbjörn var
i leyfi. Segir i bréfi Boga aö yfir-
heyrslur og skjöl rannsóknarinn-
Framhald á bls. 13
Lögmaður skólastjórans:
Hefur óskad eftir
rannsókn áfram
„Bréf rikissaksóknara um aö
rannsókn málsins var iokiö kom
mér I opna skjöldu og ég hef
óskaö eftir þvi aö fram veröi
haldiö rannsókn einstakra þátta
þessa máls, — m.a. hvort skipt
hafi vériö um skrá I húsnæöinu,
en þar stendur staöhæfing gegn
staöhæfingu,” sagöi Arnmundur
Backmann, lögmaöur Friöbjörns
Gunnlaugssonar i gær, en hann
fór á sbium tima fram á opinbera
rannsókn ,,á þeim ástæöum og at-
buröum sem ollu þvi aö opin-
berum starfsmanni var meinaö
aö rækja starf sitt og flæmist aö
lokum á brott og sér sig knúinn til
þess aö segja af sérembætti.”
Arnmundur sagðist hafa ýmis-
legt viö rannsóknina aö athuga og
þegar hann haföi lokið lestri
hinna yfirgripsmiklu skjala heföi
hann haft samband viö rikissak-
sóknara og óskaö eftir þvi að
rannsókninni yröi ekki lokið fyrr
en hann heföi komið athuga-
semdum sinum á framfæri. Fékk
hann loforö um þaö simleiöis og
hefur nú hermt þaö upp á emb-
ættiö, sem fyrr segir.
Aö ööru leyti sagist Arnmundur
vilja benda á aö þó rikissaksókn-
ara sýnist aö ekki sé tilefni til
frekari aðgerða af hálfu rikis-
valdsins að lokinni rannsókn, þá
væri þar um aö ræöa mat á þvi
hvort knýjandi nauðsyn væri talin
á aö sækja einhvern til saka fyrir
brot á landslögum af hálfu rikis-
ins. ,,Þó svo sé ekki, getur til-
gangi rannsóknarinnar veriö náö
á þann hátt aö i henni komi fram
sannanir fyrir þvi aö menn hafi
meö óheiöarlegum hætti i sam-
einingu valdiö Friöbirni verulegu
fjárhagstjóni. Þannig getur rann-
sóknin veriö grundvöllur stór-
felldrar skaöabótakröfu á grund-
velli einkamálaréttarins,” sagöi
Arnmundur.
Um bréf Boga Hallgrimssonar,
sem fylgdi ljósriti af bréfi sak-
sóknara til Þjóðviljans vildi Arn-
mundur ekki tjá sig. —ai
50***
ALKYO
LAKK
i / /'i'1 'I
f/i/J
og tuni
HÖRPU þakmálning hefur þá
eiginleika að standast óvæga
veðráttu annari málningu betur.
— Að þola vel þá geysilegu þenslu sem hita-
mismunur t.d. frá ^-3 — 36 C. á klst. veldur á
þaki móti sól.
— Að þola vel álag seltubruna og slagveðurs.
— Að varna ryðmyndun.
HÖRPU LAKK ÞAKMÁLNING er afar ódýr
málning, sem sérhæfð er hinni umhleypinga-
sömu íslensku veðráttu. Hún hefurfrábært
veðrunarþol og ver bárujárn gegn veðri og vatni.
HÖRPU LAKK ÞAKMÁLNING er rétt málníng
gegn frosti og funa.