Þjóðviljinn - 04.11.1980, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þribjudagur 4. nóvember 1980
Höföingleg dánargjöf Sigurliða
Kristjánssonar og Helgu Jónsdóttur:
„Gjöf aldarinnar ef ekki allra
alda” segir um dánargjöf hjón-
anna Sigurliða Kristjánssonar og
Helgu Jónsdóttur i fréttatilkynn-
ingu frá skiutaforstiórum biis
þeirra þar sem greint er frá því
hvernig þau hjónin ráðstöfuðu að
sér látnum öllum eignum sfnum
til eflingar menningar, vfsinda og
lista, en þau voru stórauðug og
barnlaus.
Fjórðungi eignanna sem nema
um fjórum miljörðum króna er
varið til Listasafns Islands sem
sex fasteignir i Reykjavik i hlut
Helgu. Samanlagt fasteignarmat
þeirra pr. 1. des. 1979’ nam 2.2
miljöröum króna og brunabdta-
mat 3.5 miljörðum. Það er þetta
fé sem ofangreindir aðilar fá, en
Ibúðarhúsi sínu ráöstöfuöu þau
hjónin til rikissjóðs og eignarjörð
þeirra i Grimsnesi Asgarður
rennur til þriggja aöila, Hjarta-
verndar, Reykjavikurborgar og
Skógræktar rlkisins. Hrepps-
nefnd Grtmsneshrepps kannar nti
hvort hún neytir forkaupsréttar
Sigurliöi Kristjánsson
Helga Jónsdóttir
Nær 4 miljarðar til eflingar
lista vísinda og menningar
nú er aö byggja yfir safnið, fjórð-
ungi til íslensku óperunnar, sem
varið skal til aö koma upp söng-
leikahúsi til flutnings á óperu-
verkum, fjórðungi til Leikfélags
Reykjavlkur, sem variö skal til
byggingar leikhúss en þau 25%
sem eftir eru ganga til tveggja
sjóða: Minningarsjóös Helgu
Jónsdóttur og Sigurliöa
Kristjánssónar til styrktar
stúdentum I raunvisindanámi og
sins að jörðinni, og er það þvi enn
háð óvissu hvort framangreindir
gjafþegar fá að njóta Ásgarðs-
gjafar.
Gjöfin speglar fágæta rausn
þeirra hjónanna og varpar ljósi á
áhugamál þeirra. Er ekki að efa
aðalltþetta fémun verða leiklist,
málaralistog óperuflutningihér á
landi geysileg lyftistöng og
kemuráreiöanlega I góðar þarfir.
Málverkasafn þeirra hjóna, nær
600 málverk sem þau ánöfnuöu
Listasafni tslands, hefur hins
vegarekki hlotið náð fyrir augum
safnsins og var sú gjöf afþökkuð.
Stærsti hluti safnsins voru
myndir eftir Sigurliða sjálfan svo
og eftir Matthlas Frlmannsson.
—AI
Miljarður til byggingar Borgarleikhúss:
Minningarsjóðs Helgu Jónsdóttur
og Sigurliöa Kristjánssonar til
stuðnings nýjungum I læknis-
fræði.
Sigurliöi Kristjánsson var sem
kunnugt er kaupmaður og annar
eigandi fyrirtækisins Silla og
Valda. Hann lést i Reykjavlk 8.
nóvember 1972 en kona hans og
einkaerfingi, Helga Jónsdóttir
lést 3. júni' 1978. Þorri eigna
þeirra hjóna var bundið I fyrir-
tækinu Silla og Valda og var það
vilji þeirra hjóna að þeim eignar-
hluta skyldi varið til menningar-
mála á sviöi leiklistar, málara-
listar, sönglistar og raunvisinda
með beinum fjárframlögum.
Viðskiptingu fyrirtækisins Silla
og Valda, sem fram fór 1977 komu
Skellíkan
atómkjarna
Prófessor Ove Nathan frá Nlels
Bohr stofnuninni I Kaupmanna-
höfn flytur almennan fyrirlestur
á vegum verkfræöi- og raunvls-
indadeildar Háskóla fslands,
miðvikudaginn 5. nóvember 1980,
kl. 17:15 f stofu 158 I húsi verk-
fræði- og raunvísindadeildar,
Hjaröarhaga 2—6.
Fyrirlesturinn nefnist Rann-
sóknir á skellfkani atómkjarna,
og er hann öllum opinn.
Gerir
segir Þorsteinn
Gunnarsson,
leikhusstjóri í lönó
Fyrir Leikfélag Reykjavlkur er
þetta mikið fagnaðarefni og þessi
höföinglega gjöf gerir gæfuinuninn
hvaö varðar byggingu Borgar-
leikhúss, sagöi Þorsteinn
Gunnarsson, leikhússtjóri Iðnós I
gær.
Hann sagði að þá væri þetta
ekki slður fagnaðarefni fyrir leik-
listina I heild þvl brýnt væri að
auka húsnæði fyrir sivaxandi
leiklistarstarfsemi I borginni.
Undanfarin tvö ár hefur ekkert
verið aðhafst I grunni Borgarleik-
hússins, en s.l. vetur var tekin I
borgarstjórn ákvörðun um að
halda byggingunni áfram og nú er
nýbúið að bjóða út uppsteypu
kjallarans. Er áætlað að því verki
verði lokið 1. nóvember 1981. Þor-
steinn sagði að leikfélagsmenn
hefðu enn ekki reiknað dæmið upp
á nýtt með tilliti til þessarar
Símiirn er 81333
DJOÐVIUINN
\ Nóvemberkvöld MÍR
63 ára afmælis Októberbyltingarinnar
verður minnst i veitingahúsinu Snorrabæ
(Austurbæjarbiói, uppi) miðvikudaginn 5.
nóvember kl. 20.30. Ávörp flytja Mikhail
Streltsov sendiherra og Eyjólfur Frið-
geirsson fiskifræðingur, Einar Einarsson
og Hróðmar Sigurbjörnsson flytja tónlist
og Baldvin Halldórsson ieikari les upp.
Minnst verður 100 ára afmælis rússneska
skáldsins Alexanders Blok. Happdrætti.
Kaffiveitingar. Aðgangur öllum heimill
meðan húsrúm leyfir.
Stjórn MIR
gæfumunínn
Llkan af Borgarleikhúsinu sem risa á i Kringlumýrinni.
miklu gjafar, en það yrði gert
innan tlðar.
Stefán Benediktsson, arkitekt,
formaður bygginganefndar
Borgarleikhússins, sagði I gær, aö
áætlaður byggingakostnaður léti
nærri að vera fimm miljarðar
króna, en hins vegar hefði hann
ekki veriö tekinn út nýlega. 1
fyrra ákvað bygginganefndin að
skipta byggingunni I ákveðna
áfanga en hún hefur ekki endur-
metið stöðuna með tilliti til
dánargjafarinnar. Stefán sagði
að nýting miljarösins sneri fyrst
og fremst að Leikfélaginu sjálfu,
sem handhafa gjafarinnar, og
spurning væri hvort þar yrði tekin
ákvörðun um að nýta peningana
beint eða rentur af þeim til bygg-
ingarinnar. Þegar sú ákvörðun
lægi fyrir myndi bygginganefndin
gera nýja áætlun i samræmi við
hana.
Árið 1976 var gerð á vegum
Reykjavikurborgar áætlun um
byggingu Borgarleikhúss. Var
byggingakostnaðurinn þá áætl-
aður 980 miljónir króna og gert
ráð fyrir að verkinu yrði lokið
árið 1980. Þegar botnplata, jarð-
vinna og sökklar voru frágengnir
var verkið stöðvaö, en síðan tekin
ákvörðun um framhald þess s.l.
vetur. Gera menn sér vonir um
að dánargjöfin þýði að hægt veröi
að ljúka byggingunni á sex árum.
— AI
Skólakrakkar heim
sækja mjólkurbúin
Mjólkurdagsnefnd hefur
ákveöið aö efna til sérstakrar
mjólkurviku. Verður hún dagana
3.-9. nóvember. A mjólkurvik-
unni mun fara fram viðtæk kynn-
ing á helstu mjólkurafuröum.
Dagana 3.-7. nóv. verður nem-
endum I grunnskólum utan höfuð-
borgarsvæöisins gefinn kostur á
að heimsækja mjólkurbúin. 1
Reykjavik og nágrannabyggðum
hafa, á vegum Mjólkursamsöl-
unnar, verið skipulagðar heim-
sóknir ákveðinna bekkja i grunn-
skólunum. Þessar kynnisferðir i
Mjólkursamsöluna veröa flesta
virka daga I vetur. Nemendurnir
fá nokkra fræöslu um vinnslu
mjólkurinnar og starfsemi
Mjólkurstöðvarinnar, þeini
verður sýnd kvikmynd og boðið
upp á mjólkurdrykk.
Dagana 6.-9. nóv. verður sýn-
ing og markaður i húsi Osta- og
smjörsölunnar að Bitruhálsi 2 I
Reykjavik. Framleiðsluvörur
einstakra mjólkursamlaga verða
sýndar og gefnar verð bragð-
prufur af nýjum og gömlum teg-
undum af ostum, jafnframt sem
þessir ostar verða seldir á staðn-
um. Sýnikennsla verður alla dag-
ana þar sem leiöbeint verður um
tilbúning ýmissa mjólkurrétta.
Sýnikennslan verður á vegum
Osta- og smjörsölunnar og
Mjólkursamsölunnar.
Kvikmyndasýningar verða alla
dagana. Veröa þar sýndar stuttar
fræðslumyndir um framleiðslu og
vinnslu mjólkur. — Aögangur
verður ókeypis.
— mhg
Bókmennta-
kynning BSRB
Fræöslunefnd BSRB hefur
tekið upp þann ágæta sið að
halda bókmenntakynningar
fyrir félagsmenn og gesti
þeirra I húsakynnum fe'lags-
ins að Grettisgötu 89, og
verður siðasta kynning árs-
ins haldin þar i kvöld.
Kynnt veröa verk ólafs
Hauks Simonarsonar.
Sjálfur les hann upp ljóð og
kafla úr óprentaðri skáid-
sögu, Þurlður Baxter flytur
erindi um skáldið og Erl-
ingur Glslason leikari les
upp ljóð og kafla úr skáld-
sögunni Vatn á myllu kölska.
Olafur Haukur mun svo
svara fyrirspurnum.
Bókmenntakynningin
hefst kl. 20.30. — ih
Austfirðingamót
á föstudaginn
Austf irðingafélagiö f
Reykjavik heldur sitt árlega
Austfirðingamót aö Hdtel
Sögu föstudaginn 7. nóvem-
ber.
Heiðursgestir véröa Bjarni
Þórðarson, fyrrv. bæjar-
stjóri I Neskaupstaö og kona
hans Hlif Bjarnadóttir.
Einar Rafn Haraldsson og
Gunnlaugur ólafsson, Egils-
stöðum, flytja gamanmál að
austan. Sigurður 0. Pálsson
skólastjóri á Eiöum verður
veislustjóri.
Að þessu sinni verður það
fé sem afgangs veröur eftir
mótiö látið ganga til sjóö-
stofnunar viö Menntaskól-
ann á Egilsstöðum. Or þeim
sjóði skal veita viðurkenn-
ingu þeim nemendum, sem
leggja mest af mörkum I
félags- og menningarmálum
innan skólans.
Leika á píanó
Annað kvöld kl. 20:30
halda tveir sænskir tón-
listarmenn þau Nils-Erik
Sparf, fiðluleikari, og Mari-
anne Jacobs, planóleikari,
tónleika I Norræna húsinu.
Nils-Erik Sparf er af gam-
alli spilaraætt i Dölunum I
Sviþjóð. Hann stundaði nám
bæði I Stokkhólmi og Prag,
var ráðinn I konunglegu
sænsku hirðhljómsveitina
1973 en frá 1979 hefur hann
veriö 2. konsertmeistari viö
Stokkhólmsfllharmonluna. —
Hann hefur oft komið fram
ásamt Marianne Jacobs,
sem hefur farið margar tón-
leikaferðir,- má þar nefna
Skandinaviu, Bandariki N.
Ameriku, Mexikó og Rúss-
land.
Á tónleikunum I Norræna
húsinu leika þau verk eftir
Bartok, Sarasate, Prokoffi-
eff, Roman og Emil Sjögren.
Nóvember-
kvöld MÍR
Nóvember-kvöld Menningar-
tengsla íslands og Ráðstjórnar-
rlkjanna verður I veitingahúsinu
Snorrabæ annað kvöld, miðviku-
dagkl. 20.30. Veöur þar minnst 63
ára afmælis Októberbyltingar-
innar I Rússlandi og 100 ára af-
mælis rússneska byltingarskálds-
ins Alexanders Blok.
Avörp flytja Mikhail Streltsov,
sendiherra Sovétrikjanna á Is-
landi, og Eyjólfur Friðgeirsson
fiskifræðingur. Tvier ungir tón-
listarmenn, Einar Einarsson og
Hróömar Sigurbjörnsson, flytja
gitartónlist, og Baldvin Halldórs-
son leikari les upp úr þýöingu
Magnúsar Asgeirssonar á kvæð-
inu „Tólfmenningarnir” eftir
Aiexander Blok, sem talinn er I
hópi bestu ljóðskálda Rússa.
Auglýsingaspjöld eftir eist-
neska listamenn verða til sýnis,
efnt verður til skyndihappdrættis
og kaffiveitingar verða aö dag-
skráratriðum loknum.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.