Þjóðviljinn - 04.11.1980, Side 3
Þriöjudagur 4. nóvember 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Stormasömu krataþingi lokiö:
Flestir kusu
Kjartan Jóh.
Vilmundur féll fyrir Magnúsi H.
Átökin um varaformennskuna i
Alþýöuflokknum og afstööuna til
stjórnarslitanna haustiö 1979
settu mestan svip á flokksþingiö
sem lauk á sunnudag. Vilmundur
Gylfason tapaöi fyrir Magnúsi H.
Magnússyni i kjöri um varafor-
mann, en Magnús hlaut 110 at-
kvæöi og Vilmundur 68. Kjartan
Jóhannsson var kjörinn formaöur
til næstu tveggja ára án mót-
framboös. lflaut hann 166atkvæöi
en þingfulltrúar voru 180. Karl
Steinar Guönason var endurkjör-
inn ritari meö 116 atkvæöum og
Ágúst Einarsson var kjörinn
gjaldkeri meö 169 atkvæöum.
Vilmundur Gylfason var harö-
orður i garð flokksfélaga sinna
eftir að ljóst var að hann haföi
tapaö kosningunni. Sagði hann
hina nýkjörnu stjórn flokksins
veikari en þá sem áður sat með
Benedikts Gröndal sem formanni
og Kjartani sem varaformanni.
Likti Vilmundur ósgri sinum m.a.
við ósigur Kennedyes i keppni um
útnefningu sem varaforsetaefni
Stevensons 1956 og sagðist hefðu
gjörsigrað ef þingfulltrúar hefðu
verið 600 eins og tillögur um
breyttskipulag flokksins gera ráð
fyrir. Kvað hann þingfulltrúa
hafa hafnað „nýja stflnum” og
hvatti stuðningsmenn sina til að
'sýna stillingu!
Þá réðst Vilmundur að þing-
flokki Alþýðuflokksins og Sig-
hvati Björgvinssyni formanni
hans. Sagði hann að þingflokkur-
inn heföi aldrei getað fyrirgefið
sér þá sterku stöðu sem hann
hafði eftir kosningasigur flokks-
ins 1978 og hefði hann verið
keyrður niður i þingflokknum
hvað eftir annað. Kvaðst Vil-
mundur aö lokum ætla að snúa sér
aö pólitisku starfi úti á meðal
kjósenda sinna eftir þennan ósgir
en láta starf innan flokksins sig
minna varða en hingað til.
— AI
Alþýöublaöiö og Helgarpósturinn:
Hvorugt getur
án híns verið
„Menn hafa velt þeirri spurn-
ingu fyrir sér hvort þaö er Al-
þýöublaöiö sem ber uppi Helgar-
póstinn, eöa öfugt”, sagöi Bjarni
P. Magnússon, formaöur fram-
kvæmdastjórnar Alþýöuflokksins
m.a. á flokksþinginu á föstudag.
„Svariö er einfalt: Hvorugt blaö-
anna getur án hins vcriö”.
Bjarni sagði að fastur
kostnaður við rekstur skrifstofu
og útbreiðslu létti báðum blööun-
um róöurinn og eins væri gjald-
Forsetínn
heimsækir
Danadrottningu
Forseti tslands Vigdis
Finnbogadóttir, mun fara i
opinbera heimsókn til Dan-
merkur i boði Margrethe II
Danadrottningar og Prins
Henrik dagana 25. til 27.
febrúar 1981.
Sauðárkrókur:
skrá Blaðaprents þannig upp
byggö að blöðin kæmu betur út
saman en sitt i hvoru lagi. „Ef til
skilnaðar kæmi er ljóst að veru-
lega myndi halla á Alþýðublaðiö
og ef rekstri Helgarpóstsins yrði
hætt myndi ekki vera hægt aö
reka Alþýðublaðið. Hins vegar
yröi hægt aö reka Helgarpóstinn
einan”, sagöi Bjarni ennfremur. I
máli hans kom fram aö tilkoma
Helgarpóstsins heföi ekki orðið til
þess að fjölga áskrifendum aö Al-
þýöublaðinu eins og vonast hefði
verið, eftir, en áskrifendum
blaðsins hefði hins vegar ekki
fækkað. Hann sagöi Helgarpóst-
inn þriðja stærsta blað landsins,
reksturinn skilaði hagnaði þannig
að búið væri með honum að borga
skuldir fyrri útgáfu Alþýðublaös-
ins en hins vegar háði rekstrar-
fjárskortur verulega.
Blaðstjórn Alþýðublaðsins sem
ritstjórar Helgarpóstsins eiga
sæti I að sögn Bjarna, komst að
þeirri niöurstöðu að ekki væri
unnt að veröa við samþykktum
Framhald á bls. 13
V erkamanna-
íbúðir afhentar
Nú um sföustu helgi voru af-
lientar átta fbúöir i verkamanna-
ibúöablokk við Viðigrund á
Sauöárkróki, aö þvi er Snorri
Björn Sigurösson, bæjarritari á
Sauðárkróki tjáöi okkur. Alls eru
14 ibúðir i blokkinni en 6 af þeim
höföu veriö afhentar. Þaö er
stjórn Verkamannabústaöa, sem
stendur fyrir þessari byggingu.
Trésmiöjan Borg á Sauðárkróki
tók að sér byggingu blokkarinnar
og hófst verkið i okt. 1978 en veru-
legur skriður komst þó ekki á þaö
fyrr en vorið 1979.
Af þessum Ibúðum eru 4 fjög-
urra herbergja, hver þeirra um
100 ferm., 4 eru tveggja her-
bergja, um 70 ferm, og tveggja
herbergja, 52-57 ferm. Alls mun
blokkarbyggingin koma til með
aö kosta 340-350 milj. kr. en upp-
hafleg áætlun var rúmlega 180
milj.
Othlutun ibúðanna fór fram
veturinn 1978-1979 og voru um-
sóknir helmingi fleiri en
ibúöirnar. I ráði er að kanna
möguleika á nýrri blokkarbygg-
ingu á Sauöárkróki og mun vist
ekki af veita.
Verið er nú að steypa grunninn
aö leikskóla, sem á að risá uppi i
Hliöarhverfinu. Byrjað er og á
byggingu iþróttahúss og verða
sökklarnir steyptir svona I fyrstu
atrennu, sagði Snorri Björn.
Verið er og að innrétta herbergi i
kjallara heimavistarhússins og
ráö fyrir þvi gert, aö taka þau i
notkun um áramótin. Aösókn að
fjölbrautaskólanum reyndist
mun meiri en búist var við. Varð
þvi að bæta einum nemanda i
hvert heimavistarherbergi um-
fram þaö, sem hugmyndin var að
hafa þar, auk þess sem nokkrum
nemendum var komið fyrir á
einkaheimilum og i ibúöum, sem
bærinn á.
38. þing Iönnemasambands
islands var háöum siöustu helgi
i Reykjavik. Rétt til þingsetu
áttu 93 fulltrúar víösvegar aö af
landinu. 1 smá-hléi sem varö á
þinghaldinu náöi Þjóöviljinn tali
af þremur iönnemum frá Akur
eyri og ræddi við þá um kjör
þeirra og fleira viökomandi iön-
námi þar nyrðra Þetta eru þeir
Lúövik Áskelsson, blikksmiöa-
nemi. Stefán Sigurbjörnsson,
blikksmiöanemi og Pálmi
Hannesson bifvélavirkjanemi.
Verkleg kennsla i lág-
marki
Þeir félagar voru fyrst
spurðir um iðnfræðsluna á
Akureyri og bar þeim saman
um að Iönskólinn á Akureyri
væri i sjálfu sér ágætur hvað
bóknámi viðkæmi, en aftur á
Frá vinstri: Stefán Sigurbjörnsson, Pálmi Hannesson og Lúövik
Áskelsson. (Ljósm. gei).
Frá 38. þingi Iðnnemasambands Islands:
Léleg aðstaöa er til
verklegrar kennslu
móti væri verkleg kennsla i al-
geru lágmarki.
Pálmi sagði að húsnæði það
sem ætlað væri fyrir verklega
kennslu væri svo litið og lélegt
aö i raun og væru alls ekki hægt
að tala um verklega kennslu,
það væri einginlega aðeins
nafnið tómt. Þá benti hanná að I
bifvélavirkjun væri mönnum
ætlað aö læra mótorfræði, en
bækur til þeirrar kennslu væru
ekki fáanlegar. Þeir Lúðvik og
Stefán tóku mjög I sama streng
og Pálmi hvað verklegu kennsl-
unni viökom.
Kjörin þurfa að batna
Lúðvik og Stefán vinna á
sama stað og sögðust þeir hafa
1900 kr. i kaup á timann, sem
væru heldur bág kjör. Ef þeir
væru við vinnu utan verkstæðis-
ins hefðu þeir 10% hærra kaup.
Siðan kemur skólatiminn, sem
er fjórir mánuðir á vetri og á
meðan eru þeir kauplausir.
Rœtt viö þrjá
iönnema frá
Akureyri
Það er svo til þess að við
neyðumst til að vinna með skól-
anum eins mikið og við mögu-
lega getum, sem aftur kemur
niður á náminu, sagði Lúðvik.
Aðspurðir hvort þessi kjör
væri almennt i iðnnámi áAkur-
eyri, töldu þeir að menn i
sumum öðrum greinum járn-
iðnaöarnáms hefðu betri kjör en
þetta og einssögðust þéir vita’til
þess, að matreiðslunemar á
Akureyri hafi mun betri kjör.
Dauft félagslif
A Akureyri er aðeins eitt
iönnemafélag, og sögðu þeir
félagar að því miður væri
félagslifið innan þess dauft.
Þeir sögðu að alltaf væri opið
hús hjá félaginu á fimmtudags-
kvöldum og væri reynt að fá
iðnnema til að mæta, en það
gengi erfiðlega.
Það er eins og menn hafi
engan áhuga fyrir félagi sinu,
hvaö sem reynt er að gera,
sagði Stefán.
Aðspurðir um hvað þeir teldu
vera brýnustu málin hjá iðn-
nemum um þessar mundir voru
þeir sammála um að það væru
kjaramál iðnnema og að iðn-
nemar fái fullan samningsrétt.
Það færi ekkert á milli mála aö
þessi mál væri brynast að leysa
nú. Sú barátta sem iðnnemar
hafa háö fyrir samningsrétti
hefði leitt til þess, aö þeir fá
aðild að samninganefnd ASt en
það teldu þeir ekki nóg: ekkert
minna en fullur samningsréttur
komi til greina.
—S.dór
Efla ber tengsl sveina
og iðnnemafélaganna
frá 38. þingi INSÍ
segir í ályktun
Á þingi Iðnnemasambands Is-
lands, sem haldið var um sið-
ustu helgi voru nokkrar álykt-
anir samþykktar. Þar á meöal
var ályktað að fela nýkjörinni
stjórn sambandsins að vinna að
þvi að efla svo sem frekast er
kostur samskiptin milli sveina-
félaganna og iðnnemafélaganna
f landinu. Var það vilji þingsins
að sambandsstjórnin tæki upp
viðræður sem allra fyrst við
sveinafélögin um þetta mál.
t ályktun um kjaramál kemur
fram mjög hörð gagnrýni á
vinnubrögð vinnuveitendasam-
bandsins i þeim samningavið-
ræðum sem átt hafa sér stað
siöustu mánuðina. Þá segir enn-
fremur i ályktuninni að breyta
þurfi vinnubrögðum innan
Fulltrúar á 38. þingi INSt. (Ljósm. —gel—).
verkalýðshreyfingarinnar með
það að markmiði að efla stöðu
hennar frá því sem nú er og
skorar þingið á alla iðnnema að
þjappa sér saman i kjaramál-
unum.
1 ályktun um iðnfræðslumálin
?egir ma. að rétta þurfi hlut
starfsþjálfunarnema, þ.e.
þeirra sem fá starfsþjálfun i
verknámsdeildum en fara svo
Framhald á bls. 13
Alþýöubandalagiö
Ársliátíð á Austurlandi
Álþýðubandalagið á Héraði
heldur árshátið sina á laugar-
dagskvöld 8. nóvember kl. 21.
Hún verður i Valaskjálf og verður
að vanda margt til skemmtunar.
Gestir verða þeir Einar
Kristjánsson frá Hermundarfelli,
Jóhannes Stefánsson frá Norð-
firði og Dagný Kristjánsdóttir frá
Egilsstöðum. Stella Hauksdóttir.
Guömundur Hallvarösson og
Kristján Jónsson flytja eldhressa
baráttusöngva. A boðstólum
verða kaffiveitingar og ljúfar
veigar eins og hver vill.
Austur á Héraði þykja sam-
komur Alþýðubandalagsins þær
albestu þar um slóðir og þess er
vænst að fólk láti sig ekki vanta
nú, að lokinni sláturtið og sfldar-
hrotum á fjöröum þar eystra.