Þjóðviljinn - 04.11.1980, Qupperneq 7
. Þriöjudagur 4. nóvember 1980 ÞJÖÐVILJINN — StÐA 7
bækur
Dóra í
Álfheimum
í nýrri
útgáfu
Út er komin á vegum
IÐUNNAR unglingasagan Dóra I
Alfheimum eftir Ragnheiði Jóns-
dóttur. Þetta er önnur útgáfa sög-
unnar sem fyrst var prentuð árið
1945 og segir frá lifi Reykjavikur
unglinga á þeim tima. Bók þessi
er önnur i röð hinna svonefndu
Dórubóka Ragnheiöar sem voru
aö birtast á fimmta og sjötta ára-
tugnum. IÐUNN gefur nú bóka-
flokk þennan út að nýju og kom
fyrsta bókin, Dóra, út i fyrra.
Um efni Dóru I Alfheimum
segirsvoá kápubaki: „Alfheimar
eru sumarbústaður þar sem Dóra
dvelst með vinum sinum meöan
foreldrar hennar eru vestan hafs.
Þetta er sumariö sem lýðveldið er
stofnað. Nýjar persónur koma til
sögunnar og Dóra á sinn þátt i að
bregða birtu á daga þeirra. Sjálf
nýtur hún lifsins I rikum mæli
þetta sumar, enda er bjart yfir is-
lensku þjóðlifi þótt skelfingar
striðsins séu ekki fjarri ...”
Ragnheiður Gestsdóttir gerði
myndir i Dóru i Alfheimum og
teiknaöi kápu. Bókin er 132 blað-
siður. Prenttækni prentaði.
Ný bók um
Frakkland
Komin er út hjá bókaútgáfunni
Bjöllunni bókin Frakkland, land
og þjóð. Hún er fjóröa bókin i
flokknum Landabækur Bjöllunn-
ar. Aður eru komnar út Stóra
Bretiand, Sovétrikin og Spánn.
1 landabókum Bjöllunnar er
m.a. rakinn uppruni þjóða,
stofnun rikja, saga þeirra og
siðir, iþróttir og fristundaiðkan,
atvinnuhættir og áhrif þeirra á
samfélag þjóða. Frásagnir og
lýsingar eru knappar, en þó yfir-
gripsmiklar og styðjast mjög viö
myndir, þ.á m. fjölda litmynda.
Mörg kort og töflur eru i hverri
bók lesanda til frekari glöggv-
unar.
Landafræðibækurnar eru mjög
hentugar sem viðaukaefni (itar-
efni) i landafræöi og samfélags-
fræöikennslu. Þær geta einnig
talist til menningarauka á hverju
heimili.
Höfundur Frakklands er Dani-
elle Lifshitz, en Friörik Páll Jóns-
son hefur þýtt bókina á islensku.
Hún er 64 blaðsíöur i allstóru
broti. Bókin er prentuö I Bret-
landi, en Prentstofa G. Bene-
diktssonar annaðist setningu,
umbrot og filmuvinnu.
Næsta bók i flokknum Landa-
bækur Bjöllunnar verður
Holland, og kemur hún út fljót-
lega.
Fjóröungsþing fískideilda á Vestfjörðum um stjórnun fiskveiða:
Of mikid veitt fyrstu
fimm mánuði ársins
Þann 25. október var haldið á
Flateyri 40. Fjóröungsþing
fiskideiidanna á Vestfjörðum.
Mikil umræða fer nú fram um
stjórnun fiskveiöa á komandi
árum og birtum við hér sam-
þykktir þings fiskideildanna á
Vestfjörðum um þessi efni hvað
varðar veiðar á næsta ári,
ásamt greinargerö fyrir sam-
þykktunum.
1. Takmarkanir á
þorskveiðum
Takmarkanir þorskveiða á
árinu verði með nokkuð öðrum
hætti en verið hefir undanfarin
ár. Þingið getur fallist á kvóta-
skiptingu á skip, hafnir eða
landshluta og leggur þvi til
eftirfarandi breytingar á stjórn-
un fiskveiðanna:
2. Skipting heildarafl-
ans á timabil
Þegar stjómvöld hafa ákveöiö
hámarksþorskafla ársins, veröi
þvi magni skipt á þrjú veiöi-
timabil i eftirfarandi hlutföll-
um:
1. janúar til 31. mai..50%
1. júni til 30. september .... 30%
1. október til 31. desember .20%
Til að ná þeim markmiðum,
sem sett eru fyrir hvert timabil,
verði beitt veiðitakmörkunum,
eins og gert hefur verið á
undanförnum árum. Veröi sýnt,
að þær veiðitakmarkanir, sem
kunngeröar eru i' upphafi fyrir
hvert timabil, nægi ekki til að ná
settum markmiöum veröi heim-
ilt aö gripa til enn frekari tak-
markana.
3. Hlutdeild þorsks i
afla i þorskveiðibönn-
um
Meö hliðsjón af reynslu
undanfarinna ára, telur þingið
eðlilegt, að hlutdeild þorsks I
afla veiðiskipa sé breytileg eftir
árstimum. Verði miðað viö 15%
þorsks I afla á 1. og 2. veiðitíma-
bili, en 25% á 3. veiðitimabili
4. Ákvörðun veiðitak-
markana
Veiðitakmarkanir séu ávallt
kunngerðar með góöum fyrir-
vara, svo að takmarkanirnar
valdi sem minnstum truflunum
i útgerð og fiskvinnslu og leiöi
ekki til atvinnuleysis á ákveðn-
um árstimum.
5. Verðbætur á fisk
Greiddar verði veröbætur úr
Aflajöfnunardeild Aflatrygg-
ingasjóðs á grálúðu á timabilinu
1/6—31/12.
Veiðar á úthafsrækju
Teknar veröi upp viöræöur viö
Efnahagsbandalagið um veiöi-
heimildir fyrir Islensk skip til
veiða á úthafsrækju viö Græn-
land.
Greinargerð
A árinu 1979 voru 56% þorsk-
aflans veidd á timabilinu jan-
úar/mai. 1 ljósi þessarar
reynslu lagði slðasta Fiskiþing
til, aö ekki yrði leyfð meiri
þorskveiöi timabilið 1/1—31/5
1980 en 50% af þvi heildar-
magni, sem áætlað yrði fyrir á r-
ið. Allt bendir nú hins vegar til,
að þorskaflinn fyrstu fimm
mánuði ársins verði 63—65%
ársaflans.
Það má öllum ljóst vera,
hvaða afleiðingar þaö hefir fyrir
fiskveiöar, fiskvinnslu og fisk-
markaöi okkar, þegar nálega
2/3 hlutar heildarþorskaflans
eru veiddir fyrstu fimm mánuði
ársins, til að ná settum mark-
miðum. Þessu fyrirkomulagi
verður að vara alvarlega við,
þar sem það leiöir til öngþveitis
á öllum sviðum, eins og berlega .
hefir komið i ljós á þess ári.
Nægir þar aö benda á eftirfar-
andi:
1. Nauösynlegt hefir reynst að
takmarka þorskveiöar togar-
anna i vaxandi mæli siöari
hluta ársins, þrátt fyrir veru-
lega aukningu á leyfðu heild-
armagni.
2. Mikið framboð hráefnis
fyrstu fimm mánuðina leiddi
óhjákvæmilega viða til
framleiöslu verðminni
afurða, lakari nýtingar og
mikillar birgöasöfnunar hjá
frystihúsunum, sem mörg
hver voru ekki i stakk búin til
að mæta þessu aukna hrá-
efnisframboöi. Siöari hluta
ársins hefir svo viða reynst
örðugt aö halda uppi stöðugri
vinnu vegna aukinna veiði-
takmarkana togaranna.
3. A miðju þessu ári þurftu sölu-
samtökin að gripa til tak-
markana á framleiöslu þorsk
afla, til aö koma I veg fyrir
veröfall á þýöingarmesta
freðfiskmarkaðiokkar, vegna
mikillar framleiðsluaukning-
ar fyrri hluta ársins.
Takmarkalitil sókn I þorsk-
stofninn fyrstu fimm mánuði
ársins hefir þannig reynst
óheppileg fyrir allar greinar
sjávarútvegsins, veiðar, vinnslu
og sölukerfi. Til að koma I veg
fyrir, að slikt endurtaki sig, er
lagt til, aö skipta þorskaflanum
niður á ákveöin veiðitimabil
strax I byrjun ársins.
Ekki eru gerðar tillögur um
stjómun humar-, loðnu- og sild-
veiöa, þar sem þessar veiðar
eru nær alfarið stundaðar af
veiðiskipum úr öðrum lands-
hlutum. Veiöar og vinnsla þess-
ara fiskstofna fer nær alfarið
fram á 2. og 3. veiðitimabilinu.
Gerir það enn nauösynlegra, að
þorskaflinn sé ekki að miklu
leyti veiddur á 1. veiöitimabil-
inu, eins og gerst hefir á þessu
ári, svo að tryggt sé, að þau
veiðiskip, sem ekki sækja i áöur
nefnda stofna, séu ekki verk-
efnalaus sföari hluta ársins.
Lagt er til, aö greiddar verði
verðbætur á grálúöu, sem veidd
er eftir 1. júni 1981, eins og lagt
var til i ályktun Fiskiþings 1979.
Lýsir þingiö furöu sinni á þeirri
ákvörðun Yfirnefndar Verð-
lagsráðs sjávarútvegsins, aö
greiöa engar verðbætur á grá-
lúöu, sem veidd var eftir 1. júni
á þessu ári, en verja öllu þvi
fjármagni, sem greitt er úr
sjóðnum á árinu, til að verðbæta
karfa, ufsa, skarkola, spærling
og kolmunna.
Átta bækur frá Ægisútgáfunni:
Skipstjórar, bústólpar
og athafnamenn
Fyrst eraö telja viðbótarbindi
af „Skipstjóra og stýrimanna-
talinu”. Það er getið liðlega 700
skipstjórnarmanna, meö
myndum af flestum. Þetta fyllir
nokkuð f þau skörö, sem voru i
fyrri bindunum, en þó vantar
enn mikið á að öllu sé til skila
haldið. Alls eru þá æviskránar
orönar liölega 2600. Guömundur
Jakobsson sá um þessa útgáfu
einsog hin bindin.
Guðmundur Jónsson, fyrr-
verandi skólastjóri á Hvann-
eyri, sér um útgáfu á bók sem
nefnist , .Bondi er bústólpi”.
Ýmsir höfundar hafa skráö
þessa bók en þar eru skráöir
æviþættír 12 látinna góðbænda.
Væntanlega allforvitnileg bdk.
Um 40 myndir eru i bókinni.
tslenskir afhafnamenn”
nefnist bók sem Þorsteinn Matt-
hiasson hefur skráö. Það er at-
hafnasaga nokkurra manna,
sem öllum er þaö sameiginlegt,
að þeir fæddust ekki „með gull-
skeiö I munninum” en hafa
brotist áfram af dugnaöi, bjart-
sýni og framkvæmdavilja og
komiö upp myndarlegum fyrir-
tækjum. „Vilji er allt sem þarf”
sagði skáldið og báðar þessar
bækur sanna þaö ljóslega.
Margar myndir eru i þessari
bók.
Jóhann Kúld hefur skrifað
nýabók, „Stillist úfinnsær”.Þar
segir frá lokaþætti1 ævintýralegs
æviferils Jóhanns og kennir
margra grasa, einsog I fyrri
bókum hans, „A hættusvæöinu”
og „Um heljarslóð”. Hefur þá
verið lokið við að gefa út verk
Jóhanns i heild, samtals 5 bindi,
að undanteknum ljóðum hans.
„1 dagsins önn”er þriðja bók
Þorsteins Matthiassonar af þvi
tagi. Þar segir frá lifsbaráttu
alþýöufólks til sjávar og sveita
og þar er ýmislegt að f inna sem
nútímafólki er framandi og
vekur upp minningar hínna
eldri um liðna tlð.
„Gullkistan”,endurminningar
Arna Gislasonar, hefur nú verið
endurprentuö. Sú bók kom út
1944 og hefur ekki verið fáanleg
i áratugi. Hún er stórfróöleg
um siöasta timabil áraskipanna
vestra og einnig segir frá þvi er
fyrst var latin vél i fiskibát á
Islandi. Arngrlmur Fr. Bjama-
son bjó þessa bók til prentunar
á sinum tima og skrifaði itar-
legan formála.
Af þýddum bókum er fátt að
segja. Ný bók eftir Sven Hazel
Herréttur nefnist hún Hazel er i
algerum sérflokki striðsbóka-
höfunda, enda nýtur hann si-
vaxandi vinsælda. Alls hafa
komið eftir hann á islensku 11
bækur, en aöeins nokkrar þeirra
eru fáaniegar.
Eftir Denise Robins kemur út
bók sem hlotið hefur heitið
„Saklausa stúlkan”. öþarft er
að fjölyrða um þann vinsæla
höfund, því Denise þekkja allir
sem á annaö borö lesa róman-
tiskar bækur. Nokkrar þýddar
bækur hafa verið endur-
prentaöar.
Vináttufélag
✓
Islands og Kúbu
Aðalfundiir
verður haldinn laugardaginn 8. nóvember
kl. 14 i Sóknarsalnum, Freyjugötu 27.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Brynjar Brjánsson segir frá ferðalagi
um Mið-Ameriku i sumar og sýnir
myndir þaðan.
3. Sagt frá væntanlegri vinnuferð til Kúbu.
4. önnur mál.
Stjórn VÍK
Blikkiðjart
Asgaröi 7, Garöabæ
onnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiöi.
Gerum föst verötilboö
SÍMI53468