Þjóðviljinn - 04.11.1980, Page 15
tfrá
El
Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla virka
daga, eða skrifið Þjóðviljanum,
lesendum
Af hverju mótmælir enginn?
Hvernig stendur á þvi aö eng-
inn mótmælir þessu leikriti,
Vandarhögg, sem sýnt var i
sjónvarpinu um siöustu helgi?
Ég hef talað viö margt fólk um
þetta leikrit og þaö eru allir
jafnhneykslaöir og ég, enda er
þetta geðbilun frá byrjun til
enda og andleg misþyrming aö
bjóöa manni upp á þetta.
Mér finnst oft hafa venö mót-
mælt af minna tilefni. Tugum
miljóna hefur veriö eytt i þetta,
og þaö eru peningar sem viö
borgum. Þaö ætti aö smala
saman æskulýö landsins og
mótmæla kröftuglega fyrir utan
sjónvarpshúsiö.
H.Þ.
Foreldrar
í fleirtölu
Fyrirsögnin á leiöara Þjóö-
viljans s.l. fimmtudag olli mér
nokkru þunglyndi. Ekki vegna
innihaldsins, heldur vegna
formsins. Þar stóö:
Fæöingarorlof fyrir öll for-
eldri.
Oröiö foreldrihélt ég aö væri i
fleirtölu foreldrar. Nú mun
fyrirsögnin vera tekin orörétt úr
yfirlýsingu rikisstjórnarinnar
um félagslegar úrbætur, og er
þvi leiðarahöfundurinn ekki
einn um sökina. Þaö hefur færst
i vöxt aö undanförnu aö nota
þessa röngu fleirtölu af oröinu
foreldri, og mun óhætt aö skrifa
þaö á reikning stofnanaislensk-
unnar svonefndu, sem þvi miöur
er farin að tröllriöa fjölmiðlum.
Ég skora á blaöamenn aö
sofna ekki á veröinum gagnvart
stofnanaislenskunni. Þýöiö
plöggin á islensku áöur en þiö
birtiö þau i blööunum, kæru
blaðamenn!
Imba
Heim til föðurhúsanna
t lesendadálki Þjööviljans á
fimmtudag sl. fettir einhver
„la” fingur út i túlkun mina á
hugtakinu „redbrick” sem kom
fyrir i fyrsta þætti mynda-
flokksins „Blindskák” og full-
yrðir „la” að um „vitlausan
skilning” sé að ræða á oröi
þessu. Ég visa þeirri fullyröingu
rakleitt heim til föðurhúsanna.
I „Encyclopedic World
Dictionary” er orðið „redbrick”
þannig skýrt að þaö sé haft um
breska háskóla frá siöari timum
og siðan segir þar orðrétt:
„those which emphasize
technical subjects as opposed to
Oxford and Cambridge” — þ.e.
þá háskóla sem leggja einkum
áherslu á tæknigreinar andstætt
Oxford og Cambridge. 1 um-
ræddum texta var auk þess fólg-
in litt dulin fyrirlitning á þeim
sem sækja menntun sina i slíka
skóla.
Til skamms tima þótti iðn- og
tækninám hér á landi „óæðra”
nám i margra augum, andstætt
menntaskóla- og háskólanámi.
Með þaö i huga held ég að flestir
geti skilið rétt textann sem átti
aö undirstrika slikan hugsunar-
hátt: Ég kalla þaö
■iönaöarháskóla þótt æöri
menntun fáist á sömu slóðum -
þ.e. i Oxford.
„La” klykkir út með þeim
orðum að kalla slika nútimahá-
skóla „almúgaháskóla”. Trú-
lega þætti flestum málvönduð-
um illa hafa til tekist ef til aö
mynda Alþýðubandalag og Al-
þýðuflokkur heföu hlotið heitin
Almúgabandalag og Almúga-
flokkur en sinum augum litur
hver á silfriö.
Kristmann Eiðsson.
—1
Brandarar Kennari: Hvers vegna sagði Jósúa sólinni að standa kyrri? Oli: Ég hugsa að hún hafi ekki gengið rétt eftir klukkunni hans. Það var einu sinni mús sem fór inn í kartöflu- garð. Þá varð hún að kartöf lumús. Það voru einu sinni 100 maurar sem voru á baki á fII. Fíllinn hristi sig og allir duttuaf baki, nema einn. Þá kölluðu hinir til hans: — Kyrktu hann, Palli, kyrktu hann! AAamma: Hvernig stendur á því að allur rjóminn er horfinn úr skálinni? Mummi: É-é-é-ég veit það ekki, mamma, en ég sá að hún kisa alveg kaf- i roðnaði þegarég kom inn. dmsjón: Jónas og Birgir. Þ l ^ FJÖi.- SK-yuÞ- UKh VOFJR D CK&'lR p
• S K Æ R I
Skóú M y J M T fi R
W H W I J J T U R
\00 *l '*0 L D ¥~ T J S 1 G R
STEl-PO- NRFN KflPp- RKSTOk^ %B'\Lt- D 1 J W fi R
V- V R R R R 1
Felunöfn karla Setjið rétta stafi i stað- N S inn fyrir strikin ,ogþá — K— R fáið þið út 11 karlmanns- N nöfn. Rétt svör birtast á B K morgun! — ^ R Ð — J G V
Barnahornið b i — J N — — L — E
Þriöjudagur 4. nóvember 1980 þjóÐVILJINN — StÐA 15
Síðast þegar viö sögöum frá Austf jaröaþokunni varö okkur þaö á
aö birta mynd af Agli Jónssyni og héldum hann vera Vilhjáim
Einarsson. Þessi mynd er hinsvegar af Vilhjálmi, tekin fyrir
utan Menntaskólann aö Egilsstööum i fyrrahaust. — Ljósm.:
Leifur.
Austfj arðaþokan
Vilhjálmur Einarsson
skólameistari á Egilsstööum'
kemur enn einu sinni út úr
Austfjaröaþokunni i kvöld, og
ræöir i þetta sinn viö Þórarin
Pálsson, sem rekur Plast-
iöjuna viö Lagarfljótsbrú.
— Þórarinn missti sjónina
fyrir 15 árum, — sagöi Vil-
hjálmur, — og ég ræöi m.a.
um þaö viö hann, hvernig sé
aö lifa viö slikar aöstæöur. Svo
éjSk Útvarp
ki. 22.35
förum viö svolitiö út i spirit-
isma. En aöallega ræöum viö
um þaö, sem hefur veriö uppi-
staöan i þessum þáttum
minum héöan aö austan, þ.e.
byggöaþróunina og byggöa-
röskunina. — ih
Fjölskyldu-
pólitík
— tískufyrirbæri
eða þörf?
— Undanfarin ár hefur mik-
iö veriö rætt um fjölskyldu-
pólitik, og nú er fariö aö ræöa
hana i öiium stjórnmálaflokk-
unum, en þetta er I fyrsta sinn
sem hún er tekin fyrir i opin-
berum fjölmiöliá þennan hátt,
—-sagöi Vilborg Haröardóttir,
sem stjórnar i kvöld umræöu-
þætti i beinni útsendingu sem
ber heitið „Fjölskytdupólitik
— tiskufyrirbæri eöa þörf?”
— Ætlunin er að gera sér
grein fyrir ástæöunum fyrir
þessum umræöum, og hvaö sé
yfirleitt fjölskyldupólitik. Þeir
sem taka þátt i umræöuþætt-
inum eru ekki þessir venju-
legu pólitikusar, þótt leitaö sé
eftir áliti þeirra og þvi skotiö
inn i þáttinn. En i umræöunni
sjálfri taka þátt Guöný
Guömundsdóttir prófessor I
uppeldisfræöum, Ásthildur
Sjónvarp
O kl. 22.4S
ólafsdóttir, húsmóöir, Ingi-
björg Rafnar lögfræöingur og
dr. Björn Björnsson guöfræöi-
prófessor. Þau hafa öll hugsaö
um þessi mál, hvert frá sinu
sjónarhorni.
— ih
Konimgurinn hraut
Kvöldvakan i útvarpinu er
nú hætt aö heita sumarivaka,
sem vonlegt er. A dagskrá
hennar i kvöld er fjölbreytt
efni aö venju.
Þuriöur Pálsdóttir syngur
islensk lög viö undirleik Jór-
unnar Viöar. Hallgrimur
Jónasson rithöfundur flytur
þriöja og siöasta hluta feröa-
sögu sinnar frá liönu sumri:
„A Sprengisandi”. Siöan les
Anna Sæmundsdóttir kvæöi
eftir Daviö Stefánsson frá
*Útvarp
kl. 20.20
Fagraskógi og loks les Þor-
steinn Matthiasson minn-
ingarþátt sem hann skráöi eft-
ir Lovisu ólafsdóttur frá
Arnarbæli, og nefnist þátt-
urinn „Konugurinn hraut
einsog gamall Olfusingur”.
— ih
Egils-
saga
Þaö hefur væntanlega ekki
fariö framhjá mönnum aö
Stefán Karlsson handritafræö-
ingur les nú I útvarp Egils
sögu Skalla-Grimssonar,
Stefán les fimmta lestur I
kvöld. Egils saga er einsog
allir vita ein skemmtilegasta
saga sem um getur, og er
vissulega mikill fengur aö fá
hann I áheyrilegum upplestri
Stefáns.
—ih