Þjóðviljinn - 21.11.1980, Page 15
Föstúdágur 21. nóvember 1980 ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 15
■ Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla virka
I daga, eða skrifið Þjóðviljanum,
fra
lesendum
Opnunartími verslana
Þjóöviljinn er kannski ekki
rétti vettvangurinn fyrir þær
hugleiðingar minar sem fara
hér á eftir, enda á svo aö heita
aö hann sé ekki málsvari
verslunarauövalds og kaup-
manna. Hvað um þaö, ég verö
að íáta frá mér heyra i von um
aö fleiri taki undir.
Þannig er mál meö vexti aö ég
vinn á nokkuö afbrigöilegum
vinnutimaeinsog reyndar fjöldi
manns. Iöulega vinn ég fram til
8 á kvöldin og á morgnana þarf
ég ýmist aö annast krakkana
eöa sinna erindum út um borg
og bý. bó aö við séum tvö þá
vinnur maöurinn minn álika
lengi og afleiðingin er sú að öll
innkaup og þar af leiðandi mats-
eld fer hreinlega i vaskinn
vegna hins fáránlega opnunar-
tima matvöruverslana. Þegar
ég og hundruð annarra koma
loksins út af vinnustað hafa
verslanir verið lokaðar i tvo
tima og hvergi er neitt að fá
nema maður leggi land undir fót
út i Kópavog eða út á
Seltjamarnes, þar sem hægt er
að versla.
Mér er það óskiljanlegt að
kaupmenn skuli ekkert gera til
að sinna þessum hópi viðskipta-
vina sem vinnur fram yfir lokun
(og öllum þeim sem vinna i
verslunum!) Hvernig væri að
■hafa t.d. opið til kl. 8? Það er nú
til nokkuð sem heitir vakta-
.vinna, sveigjanlegur vinnutimi
og 1/2 dags vinna, sem hægt er
að bjóða verslunarfólki.
Þar sem ég þekki til bæði i
Sviþjóð og Danmörku eru
verslanir opnar nokkuð lengur
en hér. í Danmörku er opið til
kl. 7 á föstudögum, sumar stór-
verslanir hafa opið til 7 á
fimmtudögum og á laugardög-
um er opið til 2. I Sviþjóð eru
allar stærstu verslanir opnar til
8 á hverju kvöldi og til 5 á
laugardögum,enda aldrei vand-
ræði að ná sér i matarbita.
Þó aö þvi se svarað að hægt sé
að skipuleggja innkaupin,
kaupa í stórum skömmtum
o.s.frv., þá þarf til þess bæöi bil
og góðan frysti. Það eiga bara
ekki allir bil eða frysti. Þegar
kaupmenn og yfirvöld ræða um
opnunartima verslana þá
gleyma þeir þvi að það eru ekki
allir eins rikir og þeir eða vinna
eins reglulega og opinberir
starfsmenn. bað er það fólk sem
þarf á lengri opnunartima að
halda og það væri mikil úrbót ef
aðeins ein matvöruverslun i
miðborg Reykjavikur heföi opiö
fram á kvöld. Er þaö til of mik-
ils mælst?
Útivinnandi móðir.
I Alltaf fullt hjá
Sinfóníunni
Það rifjaðist upp fyrir mér
um daginn þegar ég sat i
i Háskólabió og beið þess að tón-
| leikar sinfóniuhljómsveit-
arinnar hæfust, að í fyrra fór
fram umræða á siðum Þjóðvilj-
ans um klassiska tónlist I út-
j varpinu, sinfóniuna og fleira
| slikt.
| Mér datt i hug að það væri
i fróðlegt fyrir þá sem ekki geta
I unnt öðrum þess að hlusta á
i ljúfa tónlist og vilja skera hana
! niður (gottef ekki banna) að lita
I inn á tónleika sinfóniunnar á
! fimmtudagskvöldum. bar er
alltaf troðfullt hús og verða
menn stundum frá að hverfa.
Það er algjör misskilningur að
unnendur tónlistar séu einhver
fámenn snobbuð klika, það má
gjörla sjá af áheyrendaskara
sinfóniunnar, þar er fólk á öllum
aldri.
Siðan langar mig að koma á
framfæri þökkum til Leifs
Þórarinssonar fyrir siöuna hans
i Sunnudagsblaði Þjóðviljans,
svona á að fjalla um tónlist,
gera hana aðgengilega og
spennandi.
Tónlistarunnandi
í veislu hjá
keisaranum
Nú ætlum við að kenna
ykkur leik, sem er fólginn
í því að muna nöf n. Þetta
getur stundum verið tals-
vert erf itt en það er bara
skemmtilegra. Þið byrjið
á þvi að láta alla þátttak-
endur setjast í hring.
Einn byrjar og segir:
— Ég var í veislu hjá
keisaranum og þar hitti
ég Chaplin. (Hann má
auðvitað nota hvaða nafn
sem hann vill, þetta er
bara dæmi).
Sá næsti segir: — Ég
var í veislu hjá keisaran-
um og þar hitti ég Chaplin
og Súpermann.
Svona gengur þetta koll
af kolli, og hver þatttak-
andi bætir einu nafni við.
Leikurinn er erf iðari (og
skemmtilegri!) eftir þvf
af kolli, og hver þátttak-
fleiri. Sá sem gleymir
nafni er úr leik, og þá
vandast málið, þvi að um
leið er nafnið sem hann
nef ndi f yrst úr leik, og ef
einhver gleymir að
sleppa því er hann líka úr
leik!
Þátttakendum fækkar
smátt og smátt, og sá
vinnur sem aldrei gleym-
ir nafni eða ruglast í röð-
inni. Góða skemmtun!
Svör við gátum
1. Riddari á hestbaki. 2.
Bergmálið. 3. Egg. 4.
Stafurinn H. 5. Frímerki.
Þessa hafmey teiknaði Hilmar, 5 ára. Hún er tals-
vertólík haf meynni hennar Karólínu, sem við birtum í
gær, finnst ykkur ekki? Hilmar er svolítið óvanur að
teikna ennþá, en þetta kemur allt með tímanum og
æfingunni. Hafmærin hans er svolítið sérstök að því
leyti að hún hef ur átta f ingur á hægri hendi, og sporð-
urinn á henni er kannski ekki alveg eins og sporðar
eiga að vera. En kannski eru hafmeyjar svona, hver
veit?
Barnahornid
Hester-stræti
1 kvöld kemur á skjáinn at-
hyglisverð bandarisk kvik-
mynd frá árinu 1975: Hester
Street, eftir Joan Micklin
Silver.
Hester Streetvar sýnd sem
mánudagsmynd I Háskólabiói
fyrir örfáum árum og vakti
hrifningu þdrra sem sáu. Hún
fjallar um innflytjendur i
Bandarikjunum um siðustu
aldamót. Fólk þetta er af Gyð-
ingaættum og kemur frá
Austur-Evrópu i von um betra
lif. Mörgum gengur þó illa að
aðlaga sig vestrænum hugs-
unarhætti og lifsvenjum.
Aöalpersónurnar eru ung
hjón, Jankoog Gitl.sem leikin
eru af Steven Keats og Carol
Tónaflóð
frá morgni
til kvölds
Tónlist af öllum hugsan
iegum gerðum og gæðaflokk-
um dynur yfir landsmenn i
dag. t morgunútvarpinu eru
tvö tónskáld á dagskra: Jo-
hann Strauss og Fritz
Kreisler. Skömmu siðar, eða
kl. 11.30, fáum við að heyra I
þeirri skemmtilegu hljóm-
sveit Diabolus in Musica, sem
sendi nýlega frá sér plötu eins
og kunnugt er.
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna eftir
hádegi og Kristín B. Þor-
steinsdóttir kynnir óskalög
barna kl. 17.20. Inn á milli eru
svo hátfðlegir siðdegistón-
leikar fyrir þetta eina prósent
sem hlustar á „æðri tónlist”.
Gunnar Salvarsson kynnir
popp kl. 8.05 I kvöld og kl. 21
verður flutt tónlist sem tekin
var upp á tónleikum i Norræna
húsinu f febrúar s.l..Þar leika
finnsku listamennirnir Seppo
Tukiainnen og Tapani Valsta á
fiðlu og pianó.
4-b Sjónvarp
kl. 22.45
Kane. Janko fer á undan konu
sinni véstur, tekur upp nafnið
Jake og semur sig að breyttu
umhverfi. Þremur árum siðar
kemur Gitl til hans, en henni
gengur ekki eins vel að að-
lagast.
Dregin er upp sannfærandi
mynd af Gyðingasamfélagi
við Hester Street í New York
og mannlegum samskiptum i
gleði og sorg. Sérstaka athygli
vekur leikkonan Carol Kane,
sem fékk mjög lofsamlega
dóma fyrir túlkun sina á Gitl.
— ih
Djassþáttur Jóns Múla er rús-
inan i pylsuendanum.
jÉjH. Útvarp
föstudag
Rúsinan i pyisuendanum er
svo Jón MUli sem verður með
sinn ómissandi djassþátt kl.
23.00 — ih
Dagur
/
í
lífi
forseta
1 Fréttaspegli f kvöld verður
fylgst með starfsdegi Vigdfsar
Finnbogadóttur forseta, bæði
að Bessastöðum og I stjórnar-
ráðinu, og rætt við Vigdisi um
starfið og áhrif þess á hagi
hennar. Það er Ingvi Hrafn
Jónsson sem sér um þennan
innlenda þátt spegilsins.
Af erlendum vettvangi
verða tekin fyrir ýmis mál.
Ogmundur Jónasson sér um
þá hlið þáttarins, og sagöi
hann, að fjallað yrði um jarð-
skjálftana i Kaliforniu og
borgarastriðið i Mið-Ameriku-
rikinu E1 Salvador.
— Auk þess hef ég bætt inn I
þáttinn viðtali við Hjalta
Sjónvarp
kl. 21.30
Kristgeirsson hagfræöing um
atburðina I Póllandi og
hugsanleg áhrif þeirra á gang
mála annarsstaöar i Austur-
Evrópu, — sagði ögmundur.
— ih
Fylgst verður með starfsdegi
Vigdísar.