Þjóðviljinn - 19.12.1980, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 19.12.1980, Blaðsíða 1
MOÐVIUINN Föstudagur 19. desember 1980. — 288. tbl. —45. árg. Hjörleifur Gutt- ormsson, iðn- aðarráðherra um súrálsviðskiptin: Hjörleifur Gutt- Nú þarf þjóðar- samstöðu ormsson. 40% hærra verð en frá óskyldum aðila Hjörleifur Guttormsson, iönaöarráöherra sendi I gær til fjölmiöla nýja greinargerö um súrálsmáliö. Þar seeir: Ég tel ástæðu til að fagna þeim jákvæðu undirtektum sem fram hafa komið frá talsmönnum úr öllum stjórn- málaflokkum og i fjölmiðlum i framhaldi af frásögn iðn- aðarráðuneytisinsum athugun á verðlagningu á súráli frá Alusuisse til tslenska álfélagsins og ákvörðun rikis- stjórnarinnar um að taka upp viðræður við Alusuisse varðandi það mál og endurskoðun á núverandi samning- um um álverið i Straumsvik. Nokkrar aðfinnslur hafa hins vegar komið fram um það, hvernig að málinu hefur verið staðið af minni hálfu. Get- sakir um pólitiskar árásir i þessu sambandi eru ekki svaraverðar, en varðandi málsmeðferðina að þvi er varðarupplýsingar vil ég benda sérstaklega á þrjú atriði: Fyrsta: Rétt fob. verð ekki gefið upp. Ráðuneytið hafði aflað upplýsinga sem gáfu visbend- ingu um, að mjög mikill hagnaður sé tekinn af móður- félaginu Alusuisse út úr súrálsviðskiptum þess við dóttur- fyrirtæki sin i Astraliu og á Islandi, og þau rekin að mestu án hagnaðar, eða með reikningslegu tapi i þeim löndum þar sem þau eru skattlögð. Þessi hagnaður Alusuisse er m.a. tekinn með þeim hætti,að sú venja er sniðgengin, að innflytjandinn til Islands gefi upp rétt fob-verð uppruna- iandsins i aðflutningsskjölum sinum. Annað: Verð frá óskyldum aðila hækkað um 40%. Ráðuneytið hefur i höndum upplýsingar um, að súrálið til Isals er að hluta til keypt af óskyldum áströlskum aðila með langtimasamningi til 20 ára, en samkvæmt ákvæðum álsamningsins ber að miða við súrálsverð i viðskiptum óskyldra aðila i útreikningi á arði og sköttum tsal. Ofan á þetta súrálsverð hins óskylda aðila virðist Alusuisse leggja að meðaltali um 40% i uppgjöri til Isals. Ráðu- neytið hefur i höndum tölur úr reikningum þessa óskylda aðila, Gove Alumina Ltd., sem sýna umtalsverðan gróða fyrirtækisins þau ár, sem hér eru til skoðunar. Þriðja: 1974 var verðið 30—40% of hátt. Skýrsla Coopers & Lybrand um súrálsviðskipti Alusu- isse og tsal reikningsárið 1974 sýnir, að Alusuisse seldi Isal árið 1974 súrál á verði sem var milli 30—40% yfir verðum óskyldra aðila á þvi ári, að mati endurskoðunar- skrifstofunnar. Niðurstöður þessarar skýrslu höfðu ekki verið birtar, og i skjóli þess héldu forráðamenn Alusuisse og tsal þvi fram, ma. framkvæmdastjóri tsals i fjölmiðl- um, að reikningar hafi verið skoðaðir af erlendum aðilum og ekkert fundist athugavert við þá, og að súrálsverð til tsals hafi ávallt verið i samræmi við verð milli óskyldra aðila. ótvíræð upplýsingaskylda. Með þessi þrjú efnisatriði sérstaklega i huga og þá stað- reynd að ýmsir efnisþættir málsins voru þegar á all- margra vitorði^taldi ég mér skylt sem ráðherra að upp- lýsa þing og þjóð um stöðu málsins, nokkru eftir að um það hafði verið fjailað i rikisstjórn og hlutaðeigandi fengið málsgögn i hendur og gefist kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Auk þess sem ég tel, að rik upplýsingaskylda hvili á stjórnvöldum i máli sem hér er á ferðinni, tel ég að þessi fráskýrsla styrki samningsstöðu Islendinga nú þegar ákveðið hefur verið að hefja viðræður um endurskoðun samninga við Alusuisse. Rétt er að benda á, að meðferð mála af þessu tagi getur tekið alllangan tima, áður en niðurstaða liggur fyrir og að minu mati er óeðlilegt, aö gerð sé tilraun til að leyna efnis- atriðum og standa að samningum að tjaldabaki um jafn þýðingarmikið mál. Þvert á móti tel ég, að á stjórnvöldum hvili rik skylda um upplýsingar gagnvart almenningi i stórmáli af þessu tagi, þar sem um mikla hagsmuni getur-verið að ræöa og á reynir um mótun eðlilegra viðskiptahátta. Hér er um að ræða upphaf að viðtækri skoöun þessa máls og iumsögn iðnaðarráðuneytisins felst engin fullyrð- ing um endanlega niðurstöðu. Rétt er að benda á, að fyrir utan könnun á súrálsviö- skiptunum hafði ráðuneytið til athugunar að óska eftir samningaviðræðum við Alusuisse um orkuverð til ál- bræðslunnar i Straumsvik með tilliti til gjörbreyttra við- horfa i orkumálum i heiminum. Ég tel að raddir i þá átt, að samningsstaða tslendinga varðandi endurskoðun á orkuverðinu sé veikari nú en áður vegna vitneskju al- mennings um vissa þætti i viðskiptum Alusuisse og Isal hafi við engin rök að styðjast. 1 þvi efni setjum við fram sanngirniskröfur, þrátt fyrir litið svigrúm i gildandi samningum og niðurstaðan mun ekki sist ráöast af þvi, að góð samstaða takist meðal þjóðarinnar um málið. Vandi útgerðarinnar: Lausaskuldum breytt í lán t gær var gefin út reglugerð í Sjávarútvegsráðuneytinu sem heimilar Fiskveiðasjdði að breyta lausaskuldum útgerðarinnar við Óskalisti Rafmagnsveitunnar og Hitaveitunnar: 30% verð- hækkun 1. febrúar? Borgarstjórn staðfesti i gærkvöldi með 8 atkvæðum meirihlutans hækkunarbeiðni Rafmagnsveitu Reykjavikur og verður hún nú send til verðlags- ráðs. Miðar hækkunarbeiðnin viö 1. febrúar 1981. Hitaveita Reykjavíkur fer fram á 33% hækkun og ef það verður samþykkt hækkar heimilistaxti hitaveitunnar úr 203 krónúm tonnið i 270. Ekki fengust nánari upplýsingar um þessa beiðni i gær, enda hefur borgarráð ekki fjallað um hana. Rafmagnsveita Reykjavikur fer hins vegar fram á 28.6% hækkun á heildsöluverði frá Landsvirkjun. Ennfremur er óskað eftir heimildum til áfram- haldandi einföldunar á töxtum Rafmagnsveitunnar sem felur i sér 4,6% lækkun á raforkuveröi til lýsingar og smærri véla og 3,2% i hækkun á heimilistaxta. Beiðni Rafmagnsveitunnar byggist á þvi að þessi eina hækkun muni duga út árið, miöað við 54% verðlagshækkun 1981. ai sjOOinn f 5 ára lán. Jafnframt er lokið athugun á þvi hvernig hægt verði að breyta skuldum sjávarútvegsins við oliufélögin og bankana og byggöasjóö. A fundi meö Steingrimi Hermannssyni sjávarútvegsráð- herra i gær kom fram, að stærstu skuldunautar útgerðarinnar voru beönir að taka saman skuldayfir- lit en þeir voru auk Kiskvéiða- sjóðs, bankarnir, oliufélögin og Byggðasjóður. Niðurstöður könnunar á mögu- legum skuldabreytingum eru þær, að 10.510 miljón kr, skuldum við Fiskveiðasjóð verður breytt i 5 ára lán. Á móti er sjóðnum heimilt að setja skilyrði um að hægt verði að taka fé inn i stofn- lánasjóð. Skuldir við olíufélögin nema 12 1/2—13 miljörðum kr. og taka bankarnirá sig 7,6 miljarða, sem breytt verður i vaxtaaukalán og verðtryggð lán. Skiptast þau milli Seðlabankans sem yfirtekur helminginn, en viðskiptabank- arnir sjá um hinn helminginn. Þetta þýöir aö útistandandi skuldir við oliufélögin minnka úr 145 daga úttekt I 60 daga. Steingrimursagðiaö stefntyrði að svipuðum aögerðum hjá Byggðasjóði en skuldir viö hann nema 3,2 miljörðum kr. Steingrimur kvaðst ánægður meöþessarniöurstöður, það væri ljóst að miklar lausaskuldir hvildu á útgerðinni, en þaö væri ekki hægt að breyta skuldunum bara einhvern veginn. Það yrði að borga þær og það væri ekki ætlunin að verölauna þá sem steypa sér i skuldir. Vandi útgerðarinnar i Vest- mannaeyjum var sérstaklega kannaöur og mun Seðlabankinn lána Útvegsbankanum þar 1500 miljónir kr. til aö kom» málum i viðunandi horf. EL J Stefán Jón Hafstein fréttamaður var einn leiösögumanna þeirra fjölmörgu gesta sem komu til aö skoða útvarpiöigær. Hér er hann með einn hópinn á heimavígstöðvum, fréttastofunni. (Mynd: — gel.) Örtröð hjjá útvarpinu í gær: „Já, svo þetta er þá fréttastofan” Það var mikil örtröð að Skúlagötu 4 i gær. Starfsmanna- félag útvarpsins bauö mönnum að koma og skoða húsnæði þess- arar fimmtugu stofnunar og það leyndi sér ekki að mörgum lék forvitni á að kynnast innviðum hennar. Flestir hlusta meira cða minna á útvarpið þá 17—18 tima á dag scm útvarpað er, en fæstir hafa átt þess kost að skoða sig um á Skúlagötunni og standa augliti til auglitis við fólkiö á bak við raddirnar, svo og annað starfsfólk, sem aldrei lætur i sér heyra á öldum Ijósvakans. Menn streymdu hópum sam- an um ganga útvarpsins undir leiðsögn starfsmanna stofn- unarinnar. Ekkert lát var á aösókninni allan daginn. Fyrsti gesturinn mætti timanlega, eða klukkan niu um morguninn, en fyrsti hópurinn hélt af stað i skoðunarferö um útvarpshúsiö klukkan tiu. Og kl. 17.15 sáum við Stefán Jón Hafstein frétta- mann á þönum með siðasta hóp- inn. Eins og flestum er kunnugt, eru þrengsli mikil hjá útvarpinu og meðal þeirra deilda sem kvartað hafa undan lélegri áðstöðu og litlu plássi er frétta- stofan. Einn gestanna kom i gættina á 6 fermetra kompunni sem innrétttuð hefur verið á einum ganginum og hýsir 5 starfsmenn Morgunpóstsins og þáttarins A viðavangi. Hann heilsaði Sigmari B. Haukssyni kumpánlega og sagöi: ,,Já, svo þetta er þá fréttastofan!” — eös.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.