Þjóðviljinn - 19.12.1980, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 19.12.1980, Blaðsíða 20
MOÐVIUINN Föstudagur 19. desember 1980 Aðalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná I blaðamenn og aðra starfsmenn blaösins Iþessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663 8i285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af- greiðslu blaðsins i slma 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 Dánargjöf Helgu og Sigurliöa í Grimsnesi: Hreppurinn ætlar ad neyta forkaupsréttar vefengt af tveimur gjafaþegum Eignarnámsmatið Hreppsnefnd Grímsneshrepps hefur ákveöiö aö neyta forkaups- réttar skv. jaröalögum á jöröinni Asgaröi i Grimsnesi, sem hjönin Sigurliöi Kristjánsson og Helga Jónsdóttir ánöfnuöu Hjartavernd, Skógrækt rikisins og Reykja- vikurborg eftir sinn dag. Niöur- staöa matsnefndar um eignar- námsbætur þykir mjög lág og I gær var á Selfossi þingfest krafa dánarbúsins um nýtt mat á jörö- dánarbúsins I gær aö ekkert vit væri i þvi mati. Vegna brýnna beiöna tveggja gjafþega, Hjarta- verndar og Skógræktar rfkisins var þvi ákveöiö aö fara meö máliö til dómstóla en afstaða Reykjavikurborgar og þriðja gjafþegans, liggur ekki fyrir. 1 erföaskrá þeirra hjóna var Hjartavernd ánafnaö sumarhíisiö ásamt um 80 ha landi umhverfis þaö, Reykjavikurborg veiðirétt- inum og um 50 ha landsvæði og Skógrækt rikisins tæplega 800 ha lands. — AI Stereóútvarpið hefst á morgun: mni. Samkvæmt mati nefndarinnar er jörðin sem er 8—900 ha, með veiöirétti og sumarhúsi jafnvirði um 105 miljóna króna og sagði Sveinn Snorrason lögmaöur Friðjón Guð- röðarson form. Sýslu- mannafél. Friöjón Guörööarson sýslu- maöur Höfn Hornafiröi var kjör- inn formaður Sýslumannafélags íslands á aðalfundi þess i fyrra mánuði. Aðrir i stjórn eru Böðvar Bragason, sýslumaður, Hvols- velli, Pétur Þorsteinsson, sýslu- maöur, Búöardal, Jón Eysteins- son bæjarfógeti Keflavik og Kristján Torfason bæjarfógeti Vestmannaey jum. Nær til Vestfjarða og Hornafjarðar Klukkan 4 síðdegis á morgun er stór stund í sögu útvarpsins. Þá hefjast formlega tilraunaútsend- ingar í stereo og ná þær til meira en 80% þjóðarinnar eða svæðis frá (saf jarðar- djúpi og suður um til Hornaf jarðar. Þó ná þeir, sem ekki eiga stereomót- tökutæki, þessum útsend- ingum og hætt er við að skilyrðin verði léleg hjá ýmsum þar sem koma Útiloftnet eru nauðsynleg verður upp útiloftnetum til þess að þau verði fullkom- in. Útsendingin kl. 4 á morgun verður frá afmælishátiö úr Þjóð- leikhúsinu og verður hún ein- göngu bundin við FM-dreifikerfið eins og allt stereoútvarp i fram- tiðinni. Það sem veröur aðallega i stereo til að byrja með er tónlist af hljómplötum, segulböndum og beinar útsendingar, og siðar eitt- hvað af leikritum og öðrum þátt- um. Annað efni eins og t.d. fréttir og viðtöl verður að visu sent út á tveimur rásum á FM-bylgjunni en sama hljóð á báðum og kemur það þvi út eins og mono. Undirbúningsvinna og könnun á þvi hvernig best verður að koma tveggjarása-dagskrárefni til FM- senda á Norður og Austurlandi er þegar hafin og stefnt að koma slikri sendingu á fyrir næsta haust. — GFr Hörður Frimannsson yfirverk- fræðingur útvarpsins: Fólk þarf að fikra sig áfram til að byrja með. Reglur um stjórnun þorskveiða Leift að veiða 400 þús. lestir Kikisstjórnin samþykkti á fundi sinum i gær að fara að tillögum fiskifræðinga um stjórnun þorsk- veiða á næsta ári. Verð ur leyft að veiða 400 þús. lestir og verður aflanum skipt jafnt milli báta- og togaraflotans. Steingrimur Hermannsson sjávarútvegsráðherra boðaði fréttamenn á sinn fund i gær til að skýra tilhögun þorskveiðanna á næsta ári. Hann sagði að mark- miðað væri að aflinn yrði sem næst þvi er stjórnvöld hafa ákveðið, en á þessu ári fer hann allnokkuð fram úr áætlun. Þá verður stefnt að þvi að bæta gæði aflans, og að ná sem mestri hagkvæmni. Árinu verður skipt i þrjú fjög- urra mánaða viðmiðunartimabil. Sérstakar reglur gilda um báta- flotann og eru takmarkanir á veiðum sem hér segir: Á tima- bilinu 11. april til 21. april eru allar þorskveiðar bannaðar svo og frá 25. júni til 3. ágúst (versl- unarmannahelgin). Hið siðar talda timabil nær ekki til báta sem eru 12 lestir og minni og stunda linu- eða handfæraveiðar. Sagði Steingrimur að mikill þrýstingur hefði verið frá báta- eigendum fyrir norðan og austan sem stunda sinar veiðar að mestu á þessum tima og hefði þvi verið gefin þessi undanþága. Þriðja banntimabilið er frá 20. des. til 1. jan. Hið fjórða nær yfir togveiðar og er frá 1.—7. mai og hið fimmta gildir um þorsknetaveiðar frá 15. júli til 15. ágúst. Stefnt skal að þvi að á fyrsta timabilinu frá jan.-april veiði bátaflotinn 65% af þeim afla sem leyfður verður, eða 130 þús. lestir, 45 þús. lestir á öðru tímabili og 25 þús. á hinu þriðja. A grundvelli þess afla Sem verður kominn á land i lok mars verður lengd neta- vertiðar ákveðin. Eftirlit með netaveiðum verður stórhert m.a. með fjölgun fastra eftirlitsmanna. Verði fastar reglur brotnar eða komið með lé- legan afla i land verða bátarnir þegar sviptir veiðileyfum. Þá hefur nefnd verið skipuð til að fjalla um bætta stjórnun neta- veiða og er henni ætlað að finna leiðir til að bæta gæði aflans. Svipaðar reglur gilda um togaraflotann. A fyrsta tima- bilinu er þeim ætlað að veiða um 70 þús. lestir sem er nokkuð minna en verið hefur á undan- förnum árum og er það gert til að jafna birgðastöðu frystihúsanna. A þessu ári lætur nærri að aflinn frá janúar til april sé um 2/3 af heildaraflanum. A öðru timabili skal stefnt að 64 þús. lesta veiði og 66 þús. lestum á hinu þriðja. Gert er ráð fyrir að þorskveiðar togara verði takmarkaðar við 15% af afla, minnst 4 daga i senn, 45 daga á fyrsta timabilinu, 65 á öðru og 40 daga á hinu þriðja. Skrapdögum fjölgar þannig um 17 daga og verða alls 150. Steingrimur tók skýrt fram að reglurnar verða endurskoðaðar i lok hvers timabils. Verði aflinn t.d. meiri en viðmiðunarmörkin segja til um verður þorskveiði- banndögum fjölgað. Þá er von á tillögum frá nefnd sem skipuð var til að fjalla um togveiðar, þess efnis hvernig unnt verði að bæta meðferð aflans. Loðnuflotinn kemur einnig inn i dæmið og sagði Steingrimur að ef svo héldi áfram sem horfði að loðnuaflinn yrði heldur lélegur gæti svo farið að loðnuflotanum yrði leyft að veiða þorsk eða honum beint á kolmunnaveiðar. Vandamál loðnuflotans verða tekin sérstaklega fyrir þegar endanlegar aflatölur liggja fyrir. Af almennum aðgerðum sem fyrirhugaðar eru til að bæta stjórn fiskveiða nefndi Stein- grimur að spornað verði við nýsmiði fiskiskipa, endurskoðun fari fram á starfsemi Fram- leiðslueftirlits sjávarafurða og að komið verði á betri samræmingu veiða og vinnslu en nú er. Steingrimur sagði að sú stefna hefði verið tekin að endurbæta fyrri leiðir, það yrði hert á gæða- kröfum, og þannig næðist vonandi upp það sem tapast með minni afla. Hagsmunaaðilar i sjávarútvegi hafa að mestu lýst blessun sinni yfir tillögunum og sagði sjávarút- vegsráðherra að góð samstaða rikti um það að reyna að stuðla áfram að þeirri þróun sem þegar er hafin, styrkingu hrygningar- stofnsins og þroskstofnsins i heild. —ká Ullariðnadurinn: Skatta- misrétti veröi aflétt A haustfundi ullariðnaðarins, sem haldinn var 12. desember sl., var samþykkt ályktun, þar sem lögð er þung áhersla á, ,,að nú þegar verði aflétt þvi skattamis- rétti, sem islenskur iðnaður verður að þola samanborið við sjávarútveg og fiskiðnað. Þannig verði iðnaðurinn ekki látinn greiða hærra aðstöðugjald en sjávarútvegur og launaskatts- greiðslur verði jafnaðar,” eins og segir i samþykktinni. Jafnframt skoraði fundurinn á stjórnvöld að hlutast til um að lánskjörum rekstrarlána til ullariðnaðarins verði breytt þannig, að sá hluti fram- leiðslunnar, sem ekki nýtur fullrar gengistryggingar við sölu, t.d. framleiðsla á prjónabandi og prjónavoð, fái ógengistryggð rekstrarlán. — eös. Munum Happdrætti Þjódviljans 1980 Vinningsnúmer verða birt á Þorláksmessu Þeir sem hafa fengið heimsenda miða geta enn gert skil á skrifstofu happdrættis- ins á Grettisgötu 3, eða greitt gíróseðla á næsta pósthúsi eða banka. Þeir fáu umboðsmenn/ sem enn hafa ekki sent upp- gjör, eru vinsamlega beðnir að gera skil sem allra fyrst. Skrifstofan á Grettisgötu 3 verður opin á laugardag kl. 10—18 og á sunnudag kl. 13—16. Gerum lokaátakið glæsilegt.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.