Þjóðviljinn - 19.12.1980, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 19.12.1980, Blaðsíða 7
Köstudagur 19. desember 1980 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 7 Amnesty Inter- national: Skýrð afstaða til máls Patricks Gervasonis Þar sem islandsdeild alþjóöa- samtakanna Amnesty Inter- national hefur itrekaö orðið vör bæði misskilnings og mistúlkunar á afstöðu þeirra til máls Patricks Gervasonis, þykir rétt að skýra hana ögn nánar. Þegar Patrick Gervasoni kom til íslands höfðu stuðningsmenn hans samband við stjórnarmenn tslandsdeildar Amnesty Inter- national og spurðust fyrir um "það, hvort samtökin gætu með einhverju móti lagt honum lið. Mjörg strangar reglur gilda um afskipti landsdeilda Amnesty International af málum einstak- linga i eigin landi, en með hliðsjón af nýjum reglum um afstöðu samtakanna til þeirra sem neita að gegna herþjónustu, sem sam- þykktar voru á ársþinginu i Vinarborg 11.—14. september 1980, tók stjórn Islandsdeildar málið til umræðu og ákvað að visa þvi til aðalskrifstofunnar i London. Voru henni sendar allar þær upplýsingar, sem Islands- deild A.I. hafði fengið um mál Gervasonis. Þar var það tekið til sjálfstæðrar könnunar og niður- staðan varð sú, sem frá var skýrt á blaðamannafundi Islandsdeild- ar samtakanna 19. nóv. sl., þ.e., að yrði Gervasoni fangelsaður fyrir að neita að gegna herþjón- ustu af pólitiskum ástæðum myndu samtökin taka upp mál hans sem samviskufanga, og með hliðsjón af þvi gæti tslandsdeildin mælt með þvi við islensk stjórn- völd, að þau sendu Gervasoni ekki úr landi, nema tryggt væri að hann lenti ekki i fangelsi. I a-lið 1. gr. laga alþjóðasam- takanna Amnesty International, segir um hlutverk þeirra, að þau skuli vinna að þvi, að leystir verði úr haldi allir þeir, sem i bága við Mannréttindayfiríýsingu Sam- einuðu þjóðanna eru fangelsaðir, hafðir i haldi eða beittir annars- konar likamlegum þvingunum vegna stjórnmálaskoðana, trúar- skoðana eða annarra samvisku- bundinna skoðana, eða vegna þjóðernis, kynferðis, litarháttar eða tungu, svo framarlega sem þeir hafi ekki beitt valdi né hvatt til valdbeitingar. Þeir sem falla undir þessa skilgreiningu eru nefndir samviskufangar. 1. b- og c-liðum 1. gr. laganna er kveðið á um önnur meginmark- mið samtakanna, þ.e. baráttuna fyrir þvi að mál pólitiskra fanga fái viðunandi réttarmeðferð og baráttuna gegn pyntingum og dauðarefsingu Nær til þeirra sem neita herþjónustu Svo sem a-liður 1. gr. ber með sér, er starfi samtakanna fyrir samviskufanga þar markaður til- tekinn rammi, en ekki nánar kveðið á um hvað innan hans skuli rúmast. Þa ð getur verið og hefur reynst umdeilanlegt. Hafa farið fram umræður um það inn- an vébanda samtakanna árum saman og verið markvisst að þvi unnið að skilgreina hvern ein- stakan þátt a-liðs 1. gr. Ljóát er þó, að slikar skilgreiningar þurfa ekki að vera eilifar og óum- breytanlegar; nýjar og breyttar aöstæður kunna að kalla á endur- skoðun þeirra. Meðal hinna mörgu atriða, sem rædd hafa ver- ið á þingum Amnesty Inter- national undanfarin ár, er afstaða samtakanna til þeirra, sem neita að gegna herþjónustu. Fékkst niðurstaða þeirrar rökræðu ein- mitt á siðasta ársþingi, sem fyrr er getið, en þá var samþykkt, aö a-liður 1. gr. laga samtakanna skuli ná til þeirra, sem fangelsað- ir eru fyrir að neita að gegna herþjónustu á grundvelli trúarskoðana, siðfræði- og sið- ferðisskoðana, eða af mannúðar-, heimspekilegum, pólitiskum eða öðrum ámóta ástæðum. Enn- fremur, þegar lagareglur i við- komandi landi eru með þeim hætti (sem nánar er tiltekið i reglum A.I., en verður ekki farið út i hér) að torveldi mönnum að koma mótmælum sinum á fram- færi svo og, þegar menn eru fangelsaðir fyrir að neita að gegna öðrum störfum i herþjón- ustu stað, þegar lita má á þau störf sem refsingu (svo sem þeg- ar afplánunartíminn er tvöfalt lengri en herskyldutiminn). i mun að hindra fangelsun Afskipti af máli Patricks Gervasonis byggjast á sömu hugsun, að hvetja rikisstjórn þess lands, sem hann hefur leitað skjóls I, til að reka hann ekki burt þannig, að hann eigi yfir höföi fangelsisvist. Þar með er alls engin afstaða tekin til annarra þátta málsins, hvorki til skoöana Gervasonis né þess, hvernig hann er til landsins kominn. Samtökin Amnesty International vinna að frelsi einstaklinganna, hvar sem er i heiminum, til að halda fram hvaða skoðunum sem er, og gjaldi menn skoðana sinna með fangavist, þótt þeir hafi ekki beitt ofbeldi, lita samtökin á þá sem samviskufanga og reyna að vinna fyrirþá eftir megni. Jafnframt er samtökunum að sjálfstöðu I mun að hindra.að menn séu fangels- aðir vegna skoðana sinna og vinna að þvl með margvislegu móti. , m Lagatæknileg atriði á borð við gildi skilrikja telja samtökin hinsvegar mál út af fyrir sig sem hvert riki hljóti að leysa meö þeim hætti, sem það telur réttast. Eftir könnun á máli Patricks Gervasoni var hann talinn falla undir a-lið 1. gr. — ef hann yrði fangelsaður. I Frakklandi er ekki viöur- kenndur réttur manna til að neita að gegna herþjónustu af pólitisk- um ástæðum heldur aðeins þeirra, (skv. 41. gr. Code du Ser- vicenational) sem eru „skilyrðis- laust andvigir persónulegri beit- ingu vopna vegna trúarlegrar eða heimspekilegrar sannfæringar.” Sá frestur, sem mönnum er veitt- ur til að leita réttar sina I þessum efnum er mjög skammur. Alþjóðasamtökin Amnesty Inter- national hafa itrekað farið fram á það við Frakka (og fleiri 'þjóöir sem aðila eiga að Evrópuráðinu), að sett verði lög þar i landi i sam- ræmi við ályktun þings Evrópu- ráðsins (nr.337frá I967),þarsem segir, að með tilliti til 9. gr. Mannréttindasamþykktar Evrópuráðsins ætti aö losa ein- staklinga undan herskyldu ef þeir neiti að gegna henni af trúarleg- um, siðfræðilegum, siðferðileg- um, heimspekilegum.— mannúð- ar eða öðrum ámóta ástæðum. Yfir 30 fangelsaðir Þegar beiðni manns i Frakk- landi um aö losna undan her- skyldu er synjað, á sá hinn sami tvo kosti, að hlýða og fara i herinn eða koma fyrir herdómstól þar sem hann á yfir höfði sér allt aö tveggja ára fangelsi. I nýútkom- inni ársskýrslu Amnesty Inter- nationalsegir, að á timabilinu frá okt. 1979 til mars 1980 hafi yfir 30 manns verið fangelsaðir skv. dómi herréttar og hafi það veriö fjölgun frá fyrri árum. Þar segir og, að nefnd sú, sem fjalli um undanþágubeiðnir frá herþjón- ustu hafi á árabilinu 1975—78 veitt um 500 manns undanþágu á grundvelli heimspekilegrar sann- færingar, en siðan 1978 hafi undanþágubeiðnum á þeim grundvelli i vaxandi mæli verið synjað. Ein röksemdin gegn afskiptum Amnesty International af máli Patricks Gervasonis er sú, aö hann sé ekki oröinn fangi og komi samtökunum ekki viö fyrr en hann sékominn bak við lás og slá. Þetta er eðlilegur misskilningur, þvi að til skamms tima bundu samtökin starf sitt mjög af- dráttarlaust við að menn væru orðnir fangar. Sú afstaða reyndist hinsvegar i mörgum tilvikum af- ar erfið og geysilega umdeild. Það kom fyrir að samtökin héldu að sér höndum og horfðu aðgerð- arlaust á að menn væru sendir þaðan, sem þeir höfðu leitað at- hvarfs, til sinna heima eða ann- arra staða, þar sem þeir ýmist lentu beint i fangelsi eða hurfu sporlaust eftir handtöku við heimkomuna. Þegar flóttamannastraumur- inn frá Vietnam var sem mestur og unnið var að þvi að fá þjóðir heims til að taka við hinu bjargarlausa bátafólki var fyrri afstaða Amnesty International tekin til endurskoðunar. Amnesty gat að visu ekkert fyrir einstaka flóttamenn gert, þar sem þeir voru ekki pólitiskir fangar en á grundvelli þess, að þetta fólk hafði ástæðu til þess að ætla að svo yrði, færi það aftur heim, var farið inn á þá braut að hvetja rikisstjórnir heims til að veita þvi skjól. Skelfing er heimurinn skrítinn Hrífandi bók fyrir börn á öllum aldri Þetta er tuttugasta og áttunda bókin sem skáldkonan Hugrún sendir frá sér. Hún túlkar hér í þessari bók hiö viökvæma og frjóa tilfinningalíf barna á öllum aldri. 8Ími 13510. HiN SM 225. 2x25 watta RMS/8 ohm magnari útvarp meO 3 bylgjum. LB.MB, og FM. Sjálfvirkur spilari meö stilli- hnöppum aö framan. Cassettu segulbandstæki meö Dolby. Tvískiptar hillur úr viö. Verö meö öllu kr. 835.100. Hifi SM 335 Há gæða FET útvarpstæki með FM og miðbylgju. Sérbyggður for- magnari með blöndunarmögu- lelkum á hljóði. 2x40 watta RMS/8 ohm magnari. Beindrifin plötu- spilari meö innbyggöu minni. Cassettu tæki meö vökvadempuöu loki og Dolby. Tvískipfar hillur Verð með öllu kr. 998.900.- Hifi SM 330 Há gæða FET útvarpstæki með FM og miöbylgju. Sérbyggöur kraft magnari 2x40 wött RMS/8 ohm Sjálvirkur plötuspilari. Cassettu- segulband meö Dolby. Tvískipar hillur. Verð með öllu kr. 1.059.700. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. Bergstaðastræti 10 A Sími 16995 Sérstök kjör til jóla: Utborgun kr. 250.000.- eftirstöðvar á 4 mánuðum utborgun kr. 400.000,- eftirstöðvar á 6 mánuðum

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.