Þjóðviljinn - 19.12.1980, Page 13
Föstudagur 19. desember 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 '
40 miljarðar til Byggingarsjóðs verkamanna 1981:
Ctlán Byggingarsjóös
ríkisins 22 miljaröar
Útián Byggingarsjoðs
rikisins á þessu ári munu
nema nærri 22 miljörðum
króna. Samkvæmt því
f járlagafrumvarpi sem
liggur fyrir alþingi er gert
ráð fyrir að byggingar-
sjóðurinn hafi 30 miljarða
til ráðstöfunar i útlán á
næsta ári.
Byggingarsjóður verkamanna
mun hafa um 40 miljarða til hús-
næðislána á næsta ári, en i ár er
upphæðin um 24 miljarðar króna.
bessar upplýsingar komu fram i
svari Svavars Gestssonar félags-
málaráðherra við fyrirspurn frá
borvaldi Garðari Kristjánssyni
um húsnæðismál á alþingi i gær.
borvaldur Garðar spurði m.a.
hvort aflað hefði verið aukins f jár
i Byggingarsjóð rikisins á þessu
ári til að mæta þörfum nýrra út-
lánaflokka sjóðsins, án þess að
dregið væri úr fjárstreymi til al-
mennra ibúðalána.
1 svari félagsmálaráðherra
kom m.a. fram að allvel hefur
verið séð fyrir fjárþörf sjóðsins á
árinu og lán veriö veitt til um-
sækjenda i hinum hefðbundnu
lánaflokkum með sama hætti og á
siðustu árum. brir nýir lána-
flokkar voru opnaðir til útlána i
október sl., þ.e. til hjúkrunar-
heimila og dagvistunarstofnana,
til útrýmingar á heilsuspiliandi
ibúðum og til orkusparandi
endurbóta á eldra húsnæði.
bá kom fram i svari félags-
málaráðherra að samkvæmt
hækkun byggingarvisitölunnar og
venju undanfarinna ára ættu lán
til ibúða að hækka um næstu ára-
mót úr 8 miljónum á hverja nýja
ibúð i 12.1 miljón. Hins vegar
verður veruleg breyting á þessu
ákvæði vegna tilkomu nýju hús-
næðismálalöggjafarinnar.
tbúöarlán verða nú visst hlutfal!
af byggingarkostnaði svonefndr-
ar staðalibúðar. Lánin verða mið-
uð við fjölskyldustærö umsækj-
enda og þau munu hækka fjórum
sinnum á ári samkvæmt breyt-
ingum sem verða á visitölu
byggingarkostnaðar. Tillögur um
framkvæmd þessara ákvæða eru
nú i mótun hjá húsnæöismála
stjórn og koma til ákvörðunar i
félagsmálaráöuneytinu nú i des
embermánuði.
Eimsikpafélag Islands tók ný-
lega i notkun Oddeyrarskála, sem
er vörugeymsluhús félagsins á
Akureyri. Er nú öll aðstaða
félagsins á Akureyri á einum stað
á Oddeyri, en áður hafði skipa- og
vöruafgreiðsla félagsins verið
dreifð og búið við erfið skilyrði.
Oddeyrarskáli er 3.200 fer-
metrar að grunnfleti. Byggingin
var fokheld siðari hluta árs 1978
Oddeyrarskáli Eimskipa-
félagsins tekinn í notkun
og var fljótlega eftir það byrjað
að nota vörugeymsluna að hluta.
Auk Oddeyrarskála hefur Eim-
skip nú fengið til afnota 13,874 fer-
metra athafnasvæði við hafnar-
mannvirkin á Oddeyrartanga.
13 manns starfa hjá Eimskip á
Akureyri. Kristinn Jónsson er
skrifstofustjóri og afgreiðslu-
stjóri er Helgi Sigfússon. i
LÖGTÖK
Eftir kröfu tollstjórans i Reykjavik og að
undangengnum úrskurði verða lögtök lát-
in fram fara án frekari fyrirvara, á kostn-
að gjaldenda en ábyrgð rikissjóðs, að átta
dögum liðnum frá birtingu þessarar
auglýsingar, fyrir eftirtöldum gjöldum:'
Áföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti
og miðagjaldi, svo og söluskatti af
skemmtunum, vörugjaldi af innlendri
framleiðslu, vörugjaldi, skipulagsgjaldi
af nýbyggingum, söluskatti fyrir júli,
ágúst og september 1980, svo og nýálögð-
um viðbótum við söluskatt, lesta-, vita og
skoðunargjöldum af skipum fyrir árið
1980, gjaldiöllnum þungaskatti af disilbif-
reiðum og skatti samkvæmt ökumælum,
almennum og sérstökum útflutningsgjöld-
um, svo og tryggingaiðgjöldum af skips-
höfnum ásamt skráningargjöldum.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik
15. desember 1980
Símlmi er 81333
DJOBVIum
.'díír&TSf/a
Frank Ponzi
ísland á 18. öld
tsland á 18. öld er lislaverkabók meö gtimlum lslandsmyndum. Þær eru allar úr
tveimur visindaleiðöngrum sem hingab voru tarnir (rá Breúandi á 18. öld —
leitiangrí Banks 1772 og leitiangri Stanleys 1789.
Fiestar þessara mynda eru nú i fyrsta sinn prentatiar beint eftir frummyndunum.
Sumar hafa aldrei birst ábur i neinni bók.
Þessar gömlu lslandsmyndir eru merkileg listaverk. En þær eru einnig ómetanleg-
ar heimildir um löngu horfna tið.sem ris ijóslifandi upp af siðum bókarinnar.
Frank Ponzi listfræðingur hefur haft allan veg og vanda af bókinni og ritar formála
um þessa tvo lslandsleiðangra og þá listamenn sem myndirnar gerðu.
ALMENNA
BÓKAFÉLAGIÐ
Skemmuvegi 36
Kóp. Sími 73055
Dags hriðar spor
Leikrit — Valgarður Egilsson
Dags hriðar spor er íyrsta skáldverk Valgarðs
sem birtist á prenti og er gefið Ut samhliða þvi að
verkið er tekið til sýningar i Þjóðleikhúsinu.
Helgi fer i göngur
Svend Otto S.
Svend Otto S. er viökunnur danskur teiknari og
barnabókahöfundur. Siöastliöiö sumar dvaldist
Svend Otto S. um tima á Islandi og birtist nú sú
barnabók sem til varö i þeirri ferö.
Nýjasta bók Grahams Greens
Sprengjuveislan
eða Dr. Fisher i Genf
Dr. Fisher er kaldhæöinn og tilfinningalaus
margmilljónari. Mesta lifsyndi hans er að
auðmýkja hina auðugu „vini" sina. Hann býður
þeim reglulega i glæsilegar veislur og þar
skemmtir hann sér við að hæða þá og niðurlægja.
íslenskt orðtakasafn 2. bindi
eftir Halldór Halldórsson. önnur útgáfa aukin
I ritinu er aö finna meginhluta íslenskra orötaka,
frá gömlum tima og nýjum, og er ferill þeirra rak-
inn til upprunalegrar merkingar. tslenskt orötaka-
safn er ómissandi uppsláttarrit.
Ný skáldsaga eftir Jón Dan
Stjörnuglópar
Jón Dan er sérstæöur höfundur og alltaf nýr. Nú
verður honum sagnaminnið um vitringana þrjá að
viöfangsefni — fært i islenskt umhverfi bænda og
sjómanna á Suðurnesjum.
Jónas Hallgrímsson og Fjölnir
eftir Vilhjálm Þ. Gislason
Ýtarlegasta ævisaga Jónasar Haligrimssonar
sem viö hingaö til höfum eignast. Sýnir skáldiö í
nýju og miklu skýrara ljósi en viö höfum átt aö
venjast.
Liðsforingjanum berst aldrei bréf
skáldsaga eftir Gabriel Garcia Marques
i þýöingu Guöbergs Bergssonar.
Liösforinginn hefur i 15 ár beöiö eftirlaunanna
sem stjórnin haföi heitiö honum, en þau berast ekki
og til stjórnarinnar nær enginn, og ails staöar, þar
sem liösforinginn knýr á, ermúrveggurfyrir.
Veiðar og veiðarfæri
eftir Guðna Þorsteinsson fiskifræðing
Bókin lýsir i rækilegum texta veiöiaðferðum og
veiðarfærum sem tiökast hafa og tfðkast nú viö
veiði sjávardýra hvarsem er i heiminum. Bókin er
með fjölda mynda og nákvæmum skrám yfir
vciðarfæri, nöfn þeirra bæði á ensku og islensku.
HUn er 186 bls. að stærð og i sama bókaflokki og
Fiskabók AB og Jurtabók AB.
tsland f sfðari heimsstyrjöld
ófriður i aðsigi
eftir Þór Whitehead
Ofriður i aösigi er fyrsta bindi þessa ritverks.
Meginefni þess er samskipti tsiands við stórveldin á
timabilinu frá þvi Hitler komst til valda 1
Þýskalandi (1933) og þangaö til styrjöld braust út
(1939). Þjóöverjar gáfu okkur þvi nánari gaum sem
nær dró ófriðnum, og valdsmenn þar sendu hingað
einn af gæðingum sinum, SS-foringjann dr.
Gerlach, til að styrkja hér þýsk áhrif.
Prinsessan sem hljóp að heiman
Marijke Reesink
Francoise Trésy geröi myndirnar.
Þessi fallega og skemmtilega myndabók er eins
konar ævintýri um prinsessuna sem ekki gat fellt
sig viö hefðbundinn klæðnað, viðhorf og störf
prinsessu og ekki heldur við skipanir sins stranga
föður, konungsins. Þess vegna hljðp hún að
heiman.
Heiðmyrkur
ijóð — Steingrlmur Baldvinsson.
Steingrimur i Nesi var merkilegt skáld, og
móðurmálið lék honum á tungu. Hér er aö finna
afburðakvæði svo sem Heiðmyrkur, sem hann orti
er hann beið dauða sins i gjá i Aðaldalshrauni i
fimm dægur og var þá bjargað fyrir tilviljun.
Matur, sumar, vetur, vor og haust
Sigrón Davfösdóttir
Þetta er önnur matreiöslubókin sem Almenna
bókafélagið gefur út eftir Sigrúnu Daviðsdóttur, hin
fyrri heitir MATREIÐSLUBOK HANDA UNGU
FOLKl A ÖLLUM ALDRI, kom út 1978 og er nú
fáanleg i þriðju útgáfu. Flestum finnst ánægjulegt
að borða góðan mat, en færri hafa ánægju af þvl að
búa hann til. En hugleiðið þetta aöeins. Matreiðsla
er skapandi. Það er þvi ekki aöeins gaman að elda
sparimáltíð Ur rándýrum hráefnum, heldur einnig
aö nota ódyr og hversdagsleg hráefni á nyjan og
óvæntan hátt.
ALMENNA
BÓKAFÉLAGIÐ
Austurstraeti 18
Simi 25544.