Þjóðviljinn - 19.12.1980, Qupperneq 19
frá
ISI
Hringið í sima 81333 kl. 9-5 alla virka
daga, eða skrifið Þjóðviljanum
lesendum
Ungfrú Fiskverkun, ungfrú Graðfinnur, ungfrú Iðnaður og fleiri
mættu i fegurðarsamkeppni á Torfunni.
„Pissudúkkur” til
að auglýsa landið?
,Ein þreytt á vitleysunni”
skrifar:
„íslensku fulltrúarnir á
Þekktirdu þau?
Jack Lemmon. Strax 4ra ára
var hann ákveðinn að veröa
leikari, en nam reyndar við
Harvardháskóla áður en hann
sneri sér að leiklistinni fyrir al-
vöru.
blaðamannafundinum voru
sammála um að verulegur
akkur væri i þvi að fá keppn-
ina Miss Universe til landsins
og sögðu, að hún gæti haft
auglýsingalegt gildi”!
Má ég spyrja: Á kostnaö
hverra?
Ég get sagt ykkur það, herrar
minir, sem standið að þessu,
að tsland og náttúran standa
vel fyrir sinu. Við þurfum
ekki að fá hjálp frá 80 „pissu-
dúkkum” og fylgdarliði til að
auglýsa landið.
Ef þetta verður samþykkt af
hérlendum aðilum og Há-
skölabió þykirekki of „púkó”
fyrir slika gripasýningu
verður tekið stórt skref aftur-
ábak i jafnréttisbaráttunni.
Sýnist mér, að ósamræmi
verði þá milli heimsfrétta
héðan, þ.e. með tilvisun til
Kvennafridagsins og kjörs
Vigdisar til forseta nú siðast.
Konur, verum á varðbergi.
Látum ekki bjóða okkur þvi-
lika miðaldauppákomu þar
sem konan gengurkaupum og
sölum.
EKKI
„NÝTT”
UNDIR
NÁLINNÍ
ÍÁ föstudagskvöldum er
i útvarpinu þáttur sem
heitir ,,Nýtt undir nál-
inni'' og er þar kynnt það
nýjasta í poppinu að því
að sagt er. En rangt var
með farið hjá umsjónar-
manni þáttarins þegar
hann sagði í blaðaviðtöl-
um um daginn, að hann
myndi ,,f rumf lytja" nýja
lagið með John Lennon í
þessum þætti sínum, því
nokkrum dögum áður
voru þeir félagar í þætt-
inum ,,Áfangar" og f leiri
búnir að spila þetta lag.
Eins hafa margra
mánaða gömul lög allt í
einu orðið ný þegar þau
voru spiluð i þessum
þætti.
Annað var það sem ég vildi
tala um, en það er, að ég dvelst
oft úti á landi þar sem hlust-
unarskilyrði eru ekki sem best
og þá er slæmt hvað kynnir
þáttarins er linmæltur og oft
ógjörningur að heyra hvað hann
er aö tuldra.
Með von um skýrari framburð
Sigurður Guömundssoi
Grímur
og
sálfræð-
ingurinn
Framhaldssaga — 4
Um síðir komu þau að
fornfálegri sælgætisbúð.
Mósi, einsog þau kölluðu
hann, stóð i gættinni í
hvíta sloppnum sínum.
Venjulega var þetta allra
glaðlegasti náungi, en í
dag var einhver deyfð
yfir honum. Börnin gengu
nær, hálfskömmustuleg á
svipinn.
„Jæja, þið eruð komin
til að versla fyrir vasa-
peningana ykkar", sagði
hann kumpánlega.
„Nei-ei", svaraði
Grímur.
,, Við erum búin að eyða
þeim", sagði Hinrik.
„Hjá Möllu", bætti
Dabbi við.
„Þar er allt 25 aurum
ódýrara", sagði Hanna.
Barnahomid
Umsjón: Magnúsog Stefán
„Ekki ætla ég að ásaka
ykkur", sagði kaup-
maðurinn. „Það skuluð
þið ekki halda. Auðvitað
verslið þið þar sem kaup-
in gerast best. Það væri
heimskulegt af ykkur að
gera það ekki, en það er
ranglátt, hvað sjálfum
mér viðvíkur. Þau hafa
stórt félag á bak við sig,
stóran sælgætishring með
verslunum í hverri borg,
en það hef ég ekki. Þeir
hafa fjármagn, en ég
ekki. Þeir hafa ráð á að
gefa fólki, en það hef ég
ekki. Ég hef ávallt reynt
að selja eins ódýrt og
mögulegt er, og ég get
ekki lækkað verðið. Þar
stendur hnífurinn í kúnni.
Þeir geta boðið lægra án
þess að bíða eftir gróðan-
um, og það er það, sem
fer með mig. Þeir segja,
að hér sé nóg að gera
handa okkur báðum, en
síðan þeir opnuðu hafa tíu
manns komið að kaupa
hjá mér, segi og skrifa tiu
manns!" Hann þagnaði
til að ná andanum.
Áheyrendurnir stóðu í
hnapp við dyrnar og
störðu á hann með áhuga.
Grímur tók fyrstur til
máls.
„Við ætlum ekki að
kaupa þetta rusl þeirra
oftar, get ég sagt þér".
Útlagarnir f lýttu sér að
taka undir þessa yfirlýs-
ingu, en Mósi bandaði
hendinni í mótmælaskyni.
„Nei, þið eigið að fara
þangað sem ódýrast er að
versla. Ég er ekki að
ásaka ykkur.
(framhald)
Föstudagur 19. desember 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 1?;
Furðuferðin
Þeir sem unna skrýtileg-
heitum og hryllingi fá sinn
skammt i kvöld i myndinni
Furðuferðin, sem byggð er á
visindaskáldsögu og segir frá
ferðalagi um mannslikamann
— innanverðan. Sérlega geðs-
legt fyrir þá sem hafa litsjón -
varp! en svosem sársauka-
Sjónvarp
kl. 22.40
laust. Þarna er Raquel Welch
(i miðju) ásamt félögum á
ferðalaginu.
Ríkis-
geiri,
lífs-
stíll o.fl.
1 kvöld er á dagskrá út-
varpsins erindi eftir Skúla
Guðjónsson á Ljótunnar-
stöðum-, það er Pétur Sumar-
liðason sem les. Skúli kallar
erindið Rikisgeiri, lifsstill,
búmark og kröflumynt, og
gefur heitið til kynna að þar sé
komið viða við i þjóðlifinu.
Skúli hefur oftsinnis látið frá
sér heyra i útvarpinu og sagt
sinar skoðanir á þjóðmálum.
Þá skrifaði hann fyrir
nokkrum árum um útvarps-
dagskrána i Þjóðviljann.
Erindi og skrif Skúla hafa
verið gefin út i bókunum Bréf
úr myrkri, Þaö sem ég hef
Skúli Guðjónsson frá Ljót-
unnarstöðum
•Útvarp
kl. 21.55
skrifaö.Heyrt en ekki séö, Svo
hleypur æskan unga og Vér
vitum ei hvers biðja ber.
Erindiö hefst kl. 21.55.
Hver er staðan eftir 50daga þing og 315 daga rikisstjórnarinnar?
Hvaö hefur ríkis-
stjórnin gert?
Nú liður aö jólaleyfi þing-
manna og enn á eftir að af-
greiða ýmis stórmál. Þing-
sjá sjónvarpsins i kvöld kl.
21.40 fjallar um það hver
staðan er nú.
Ingvi Hrafn Jónsson sagði
að i þættinum yrði gengið út
frá þvi að stjórnin hefði ein-
sett sér að framkvæma að-
gerðir i efnahagsmálunum,
en þær hefðu enn ekki séð
dagsins ljós. Hvers vegna?
Hver er staðan nú og hvað
er framundan, það eru þær
spurningar sem leitað
verður svara við.
Ingvi ræðir við ritstjóra
morgunblaðanna, þá Styrmi
Gunnarsson, Kjartan Ólafs-
son, Jón Baldvin Hannibals-
son og Þórarin Þórarinsson.
Þá verða þeir Þorsteinn
Sjónvarp
kl. 21.40
Pálsson framkvæmdastjóri
VSI og Asmundur Stefáns-
son forseti ASI spurðir álits
á efnahagsmálunum.
Einnig verður farið út á göt-
urnar og vegfarendur inntir
eftir skoðunum á störfum
rikisstjórnarinnar. Viðtal
verður við Gunnar Thorodd-
sen forsætisráðherra og að
lokum verður bein útsend-
ing úr sjónvarpssal þar sem
fulltrúar stjórnmálaflokk-
anna leiða saman hesta sina
og ræða stöðuna eftir 50
daga þing og 315 daga setu
rikisstjórnarinnar. _ká