Þjóðviljinn - 17.01.1981, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 17.01.1981, Blaðsíða 11
ar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 Kaldalóns • 100 ára Einn afkastamesti og dáðasti sönglagasmiður þjdðarinnar, Sigvaldi Kaldalóns.átti hundrað ára afmæli á þriðjudaginn var. Hann var fæddur i Reykjavik 13. janúar 1881 og dó þar 28. júli 1946. Hann var lengst af héraðs- læknir, i Keflavikurhéraði, með búsetu i Grindavik og öðrum smærri héröðum. Hann átti oft við vanheilsu að striða og varð þá að taka sér frl frá læknis- störfunum, en tónsmfðum sinnti hann þó hvernig sem viðraði og liggja eftir hann ógrynni gull- fallegra sönglaga. Sérstaklega er fjöldi einsöngslaga mikill og njóta m örg þeirra mikilla vinsælda enn i dag. Þekkjum við ekki öll og syngjum annað slag- ið Suðurnesjamenn, Mamma ætlar að sofna og Svanasöng á heiði? Og varla er Island ögrum skorið komiðúrtisku, eða hvað? Opnir og lokaðir gluggar Spjallað við Pál Pampichler Pálsson tónskáld og hljómsveitarstjóra Það er aðeins einn hljómsveitarstjóri sem eitthvað kveður að bú- settur hér i bænum. Hann heitir Páll Pampichler Pálsson og hefur stjórnað allskonar tónleikum á þrjátiu ára löngum ferli, nú síðast fernum sinf óníutónleikum. Á fimmtudaginn var stjórnaði hann frum- f lutningi á eigin tónverki, því hann er líka afkasta- mikið tónskáld, en auk þess voru á efnisskránni verk eftir Haydn og Schu- bert. A sunnudeginum fyrir tón- leikana rakst ég inn hjá Páli, eða öllu heldur flýði inn úr frost- inu og fannst upplagt að yfir- heyra hann i leiðinni. Þau Páll ogkona hans Monika Abendroth eru nýflutt i eitt af gömlu fall- egu hverfunum, þar sem sifellt er verið að gera upp gamlar ibúðir. Þessi gömlu hús eru ekki alltaf strax dús við endurbæt- urnar og það tekur tima fyrir nýjar hurðir og glugga að venj- ast aðstæðum og falla inn i um- hverfið. Vandvirkni ogkunnátta iðnaðarmanna segir lika sitt og stundum dugir hún helst til skammt. (Var ekki Gervasoni annars spesialisti i svonalög- uðu? Það er of seint að tala um það). Ég sæki að Páli i eldhúsinu þar sem hann er að pæla i sjöttu sinfóniu Schuberts: „Maður varð að flýja fyrir kuldanum i stofunni. Glugg- arnir eru svo óþéttir að hitaveit- an hefur alls ekki við norðanátt- inni. Samt kyndi ég einsog hægt er. Dugir bara ekki til. Það er nú viða kaldara I hús- um en þetta. Já, já, og maður hefur gott af að vera minntur á að maður býr þrátt fyrir allt á Islandi”. Hvernig stóð annars á þvi að þú fórst að koma hingað? ,,Æ það er nú svo langt siðan að það er varla hægt að rifja það upp. Og þó... ég var tuttugu og eins þegar ég koma hingað i nóvember 1949 Þá var ég bú- innað vera trompetleikari i fjögur ár i filharmóniuhljóm- sveitinni i Graz. þar sem ég er fæddur og uppalinn. Ég byrjaði semsé sautján ára, að loknu námi i konservatoriinu þar. Franz Mixa, sem starfaði hér i Reykjavik við Tónlistar- skólann, i nokkur ár fyrir strið, var einn af kennurunum minum og i gegnum hann vissi ég svo- litið um ísland. Svo var það að Björn gamli Jónsson þú manst, kaupmaður og framkvæmdastjóri Tón- listarfélagsins kom til Graz. Hann hafði verið sendur út af örkinni að finna hæfa hljóðfæra- leikara og kennara, m.a. stjórn- anda fyrir Lúðrasveit Reykja- vikur. Hann hafði strax sam- band við Mixa, sem benti á mig sem upplagðan stjórnanda: Þarna er Páll Pampichler, ungur og áhugasamur. Bless- aður taktu hann. En ekki held ég að Birni hafi litist alltof vel á mig, svo litinn og með barns- andlit og eiga að koma i staðinn fyrir Prússann Albert Klahn. En hann lét til leiðast. Ég fékk árs fri úr hljómsveit- inni og fór til tslands með eins- árs reynsluráðningu uppá vas- ann. Og ég hef aldrei séð eftir þvi”. Enn rómantík A næstu sinfóníutónleikum, fimmtudagskvöldið kemur, verður einleikari frá Bandarikj- unum. Þetta er Lawrence W.eeler, vióluieikari, sem raunar er íslendingur I móður- ætt. Hann mun leika einíeikshlut- verkið I Harold á Italiu, sem Berlioz samdi á sínum tima fyr- ir Paganini. Þetta er heljarmik- il og rómantisk sinfónia sem er byggð á efni úr kvæði eftir Byron „Child Harold”. Er þar mikið um dramatiskar dyrðir og tilfinningaspennu og fleyti- fullt af fallegum melódium að hugga sig við. „Satt að segja fannst mér ég strax eiga heima hér. Mér hefur aldrei fundist ég vera útlend- ingur hérna. Þú trúir þvi kannski ekki, en það er satt. Og ég hef aldrei fengið heimþrá til Graz. Jú það er alveg satt sem þú segir, að það er fallegt i Graz og þar eru sæmileg hljómsveit og ágæt ópera. En hérna voru og eru svo mörg spennandi verk- efni. Hérna hefur maður á til- finningunni að það sé þörf fyrir mann, að maður taki þátt i að byggja eitthvað upp”. Ég hef mest unnið við að stjórna hljómsveitum, mest lúðrasveitum, en stundum auð- vitað sinfóniunni lika. Það er að visu erfitt að kenna barna lúðrasveitum, já mikið starf, en það borgar sig. Maður sér svo fljótt árangur af þvi og af þvi er mikil gleði. Og ég var lengi með Lúðrasveit Reykjavikur og svo var ég i mörg ár fyrsti trompet- leikari i sinfóniuhljómsveitinni. Það var oft ekki mikill timi til að sinna tónsmiðum. Er það eiginlega ekki enn. Ég nota þá helst jóla- og sumarfri til þess. Nýja hljómsveitarverkið, Fléttuleik, samdi ég að stórum hluta nú um jólin. Að visu var ég búinn að ganga með það i koll- inum nokkuð lengi og búinn að gera ýmsar tilraunir við að koma þvi á pappir. En það komst enginn skriður á það fyrren i friinu, enda ekki um annað að ræða en að duga eða drepast. Þetta var jú komið á prógramm”. Þú hefur samið þónokkur hljómsveitarverk og fiest þeirra hafa verið frumflutt hér i Reykjavik. „Já, ég h.eld að ég hafi samið fimm tónverk fyrir sinfóniu- hljómsveit nú á siðustu tiu ár- Weeier, vióluleikari af fslensk- um ættum. Manucla Wiesicr Rómantík hjá Tónlistar- félaginu Fjórðu tónleikar Tónlistar- félagsins á þcssu starfsári, verða i Austurbæjarblói i dag, laugardag, kl. 14.30. Manuela Wiesler flautuleikari ætlar þá að leika ásamt Claus Cristian Schuster pianóleikara frá Vín, efnisskrá sem er i rauninni býsna óvenjuleg i það minnsta fyrir Manuelu sem oftast heyrist hér annaðhvort leika spánýja tónlist eða barrokk- tónlist. Þetta er semsé rómantiskt prógramm. Þar eru verk eftir Busoni, sem var einn af arftök- um Liszts i pianóspili og tónsmiðagöldrum, Reinecke, eitt af þessum hálfgleymdu stórmerku smásénium úr kunningjahópi Mendelsohns og Schumanns, Martinu, sem samdi þrátt fyrir að vera tuttugustualdarmaður, tónlist i rómantiskum anda. Og svo er þarna verk eftir Schubert bless- aðan, tilbrigði við stef úr Mala ra stúlkunni fögru, kammertónverk frá árinu 1824, þegar Schubert var i „stóra stuðinu” og samdi td. oktettinn og sellóvkintettinn. Það þarf svo sannarlega ekki að kynna Manuelu fyrir reykviskum áheyrendum, þeir þekkja hana orðið ansi vel og vita að frá henni er ekkiað búast við nema þvi besta. Nýjustu fréttir af henni eru annars að hún lék um daginn með Radió- hljómsveitinni i Vin, á tónleik- um I Musikvereinsalnum, og gerðistormandi lukku. Schuster er hinsvegar litt þekktur hér, en áreiðanlegar heimildir herma að hann sé einn af bestu pianó- leikurum Austurrikis, af yngri kynslóðinni. um. Fram að þvi samdi ég nær eingöngu kammertónverk þ.e.a.s. ef ég tel ekki með nokkur bernskubrek, fagottkon- sertinn, sem ég samdi fyrir Hans vin minn Ploder, að ég held 1950 og fleira i þeim dúr”. Hvar lærðir þú að stjórna, Páll? „Mest af reynslunni held ég. En maður var i timum i þessu i gamla daga og svo hef ég seinna sótt námskeið hjá t.d. Schmidt- Isserstedt i Hamborg og auðvit- að haft gott af þvi. En mest er þetta sjálfsnám. Einsog raunar allt tónlistarnám”. Fléttuleikur var fyrsta verkið á sinfóniutónleikunum i fyrra- kvöld og hann hljómaði afar ljúflega, svona við fyrstu kynni. Kannski einum of ljúflega. Þetta eru tilbrigði yfir stef sem hefur að manni finnst heyrst all- oft áður, hvar hvenær og af- hverju, veit maður eiginlega ekki. Verkið hangir einsog i lausu lofti. Auðvitað fyrst og fremst vegna þess að það er af ásetningi tónskáldsins látið vera i einni og sömu tóntegund allan timann. Einhverskonar plat-cdúr. Það semsé vantar i það botninn. En geðugt er það samt og áreiðanlega þess virði að heyra það aftur. Svolitið skrýtið smá- ferðalag, með viðkomu i gamal- dags dansmúsik og sálmasöng og jafnvel jassi, þar sem þeir Karl Möller, Arni Scheving. Jón bassi og Alfreð Alfreðsson svinguðu á hvitunótunum eitt augnablik. Eða einsog tón- skáldið sagði sjálfur: „Likt og opnaðir séu gluggar ókunnugra húsa, hver af öðrum, eitt augnablik, og lokað”. Og úti stendur þú. Stjórnandi verður Paul Zukofski, sem er orðinn islensk- um áheyrendum mikill aufúsu- gestur, bæði sem stjórnandi og þó ekki siður kennari og þjálfari ungra tónlistarmanna, sem ætla sér stórt, sbr. námskeið á veg- um Tónlistarskólans undanfarin sumur. A efnisskrá þessara Sinfóniu- tónleika verður einnig fyrsta sinfónia Schumanns, svo ekki ætti að skorta á rómantisku vakninguna i Háskólabió að þessu sinni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.