Þjóðviljinn - 17.01.1981, Síða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJIN'N Helgin 17.—18. jariúar 1981
AAargir fræðimenn eru
sannfærðir um að minn-
ingar sem fólk á sér úr
bernsku séu ekki annað en
hugsmíðar utan um sögur
sem foreldrar og vinir
hafa sagt. Dæmi: sálfræð-
ingurinn Jean Piaget
mundi mjög greinilega að
reynt var að ræna honum
veru. I þessari skáldskaparvið-
leitni hafa menn tilhneigingu til
að laga minni sitt að þeirri mynd
sem þeir sjálfir vilja helst gera
sér af heiminum.
Eitt dæmi: Mönnum er sýnd
mynd þar sem sést svertingi með
hatt og hvítur maður sem heldur
á rakhnif. Þegar rifjað er upp,
finnst mörgum endilega að svert-
inginn hafi haldið á rakhnifnum
(sem þýðir þá liklega að hvitir
úr barnavagni á götu 7
París og svo vel, að hann
sá fyrir sér skrámurnar á
andliti fóstru sinnar sem
bjargaði honum af sönnum
hetjuskap. Síðar kom í Ijós,
að fóstran hafði fundið
þessa sögu upp og að aldrei
var gerð tilraun til að ræna
Jean litlum.
Nú er fullorðnum sagt, að minni
þeirra sé nokkurnveginn eins
óáreiðanlegt og minni barna.
Endurminningar fólks eru svo
hlaðnar óskhyggju og tilgátum og
persónulegum viðhorfum og
reynsluforða, að þær eru oftar en
ekki likari skáldskap en veru-
leika.
Um þetta fjallar bandariskur
sálfræðingur Elizabeth Loftus i
bók sem út kom fyrir ári og nefn-
ist Eyewitness Testimony eða
Sjónarvottur. Þar bar hún fram
sterkar röksemdir gegn áreiðan-
leik vitnisburðar fyrir rétti. Siðan
hefur hún bætt við annarri bók
sem Memoryheitir og tekur minni
fólks til gagnrýninnar skoðunar.
Eftirtekt og uppspuni.
Elizabeth Loftus leggur i fyrsta
lagi áherslu á það að fólk hefur
blátt áfram ekki tekið nógu vel
eftir. Hún minnir á það að fólk
falli lygilega oft á einföldustu
eftirtektarprófum eins og þvi að
þekkja framhlið á algengri smá-
mynt (eins sents peningi) sem
fólk handleikur daglega. Þó
skiptir það meira máli, að fólk
gieymir vissum staðreyndum en
fyllir upp i eyðurnar á milli þeirra
atvika sem það man f raun og
Minni
manna
er
óáreiðanlegt
Reiðir fram
undarlega
blöndu stað-
reynda og
tilbúnings
Bandarikjamenn laga myndina
að hugmyndum sinum um ein-
hvern hugsanlegan háska sem
stafi af fólki sem hafa annan
litarhátt en þeir sjálfir).
Um þetta segir Elizabeth
Loftus: ,,Við fyllum upp i eyð-
urnar i minni okkar og notum þá
atburðarás, sem gæti verið rök-
rétt. Okkar samúð og andúð,
Elizabeth Loftus: við skáldum i
eyðurnar, en gerum okkur ekki
grein fyrir þvi sjálf.
vonir og fyrri þekking — allt þetta
er notað þegar við erum að fylla
upp i eyðurnar og þær afskræma
mjög það sem við munum”.
Dá leiðsla?
Höfundur bókarinnar Minnið
varar einnig við þvi að menn trúi
á að dáleiðsla eða „sannleikslyf”
geti leitt fram rétta mynd af þvi
sem gerðist. Það ástand sem fólk
kemst i undir slikum áhrifum fær
fólk til að einbeita sér en einnig til
aðvera samstarfsfúsara við þann
sem spyr. Og menn geta dáleiðst
til að finna upp atvik sem aldrei
gerðust og eftir að „sannleikslyf”
eru tekin getur fólk logið upp heil-
um sögum aðeins vegna þess að
það vill gera spyrjendum til geðs.
Meðal þess sem fram kemur i
bók Elizabeth Loftus er þetta:
— Heyrnarminni er bersýnilega
eitthvað magnaðra i mannfólki en
snertiminni, sjónminni eða
lyktarminni.
— Flestir eiga erfitt með að
leggja á minnið meira en sex eða
sjö atriði i röð (tölur t.d.). Ef
menn reyna að skrá i huga sér t.d.
lista yfir þær vörur sem nauðsyn-
legt er að kaupa, eiga menn að
setja það sem mestu riður á
annaðhvort fyrst eða siðast —
minnisatriði i miðri keðju þurrk-
ast fyrst út.
— Hæfilegt álag bætir minnið,
mikið álag þurrkar það út. Menn
sem eru i þann veginn að leggja
sig i háska eiga erfitt með að
leysa andlegar þrautir.
— Hvaða alvarlegt áfall
(„sjokk”) sem er getur valdið
minnisleysi. Rottur gleyma ýms-
um brögðum sem þær hafa lært
við rafmagnshögg. Minnisleysið,
sem getur verið afleiðinga and-
legs eða likamlegs áfalls, er oft
undarlega duttlungafullt. Dæmi
er tekið af konu, sem kenndi
ensku við háskóla: hún gleymdi
flestum atvikum og staðreyndum
eigin æfi, en mundi enska bók-
menntasögu nógu vel til að geta
haldið áfram að kenna.
Einstaka sinnum kemur það
fyrir (og þeir sem fyrir þvi verða
eru fáir) að kynmök leiða til
minnisleysis, sem varir I nokkrar
klukkustundir. Þessar uppákom-
ur eru samt ekki taldar háska-
samlegar á neinn hátt.
Er minnið blekking?
Margir hafa talið að ýmis
veigamikil atvik og uppákomur i
lifi manna setjist að i heila þeirra.
Freud taldi að þessi fyrirbæri
settust að i undirvitundinni.
Seinni tima taugalæknar hafa
komistað svipuðum niðurstöðum,
m.a. með þvi að kalla fram upp-
rifjun á liðnum atburðum með þvi
að örva heilann i vanheilu fólki
með rafmagni.
Elizabeth Loftus segir hins-
vegar, að rafmagnsörvun heilans
kalli fram svipaða blöndu af stað-
reyndum og tilbúningi og aðrar
tilraunir til upprifjunar á þvi sem
liðið er. Niðurstaða hennar er sú,
að áreiðanlegt minni sé ekki til,
þvi miður, segir hún, erum við
ekki þannig úr garði gerð.
áb endursagði
UTSALA ,5-23% afslánur UTSALA
SÓFASETT HORNSETT RAÐSTÓLAR
2ja manna svefnsófar — húsfreyju- og húsbóndastólar
Sýnine laugardag kl. 10-15
Klæði: ull — pluss — leður _ _________________
Model-húsgögn hf.
Staðgreiðsla — Afborganir
Dugguvogi 2, sími 36955.