Þjóðviljinn - 17.01.1981, Síða 29
um helgína
Kontra-kvartettinn í
Norræna húsinu
Mánudaginn 19. janúar kl. 20:30
heldur Kontra-kvartettinn frá
Danmörku tónleika i Norræna
húsinu. Á efnisskrá eru strok-
kvartettar eftir Mozart (G-dúr.
KV. 387), Carl Nielsen (g-inoil,
op. 13) og Dvorák (Bandariski
kvartettinn).
Kontra-kvartettinn var stofn-
aður 1973 af fiðluleikaranum
Anton Kontra, sem fæddur er i
Ungverjalandi, en verið hefur
konsertmeistari Sinfóniuhljóm-
sveitar Sjálands frá 1965. Anton
Kontra starfar einnig sem ein-
leikari og hafa ýmis norræn tón-
skáld samið verk fyrir hann; nú
siðast samdi Vagn Holmboe fiðlu-
konsert fyrir hann.
Aðrir meðlimir i Kontra-
kvartettinum starfa með Dönsku
útva r psh 1 jó m s vei ti nn i og
Sinfóniuhljómsveit Sjálands.
Kvartettinn hefur lagt mikla
áherslu á flutning aiístur-
evrópskrar tónlistar (Dvorák,
Bartok, Tjajkovskij) og nýrri
norrænnar tónlistar auk hinnar
sigildu efnisskrár.
Kontra-kvartettinn heldur
tvenna tónleika i Norræna húsinu,
en aðeins fyrri tónleikarnir
eru opnir fyrir almenning.
Miðar verða seldir i kaffistofu
Norræna hússins og við inngang-
inn.
Ralf
Gothoni
í heim-
sókn
Hinn þekkti finnski pianóleikari
Ralf Gothoni heldur tónieika i
Norræna húsinu n.k. þriðjudags-
kvöld kl. 20.30. Leikur hann þar
m.a. sónötu eftir landa sinn
EinojuhaniRautavaara, „Myndir
á sýningu” eftir Músorgski og
svitu cftir Leos Janacek.
Ralf Gothoni hefur komið hing-
að til lands nokkrum sinnum áður
m.a. kom hann fram ásamt
finnska barintónsöngvaranum
Jorma Hynninen á Norrænu
menningarvikunni haustið 1979.
Hann er fæddur árið 1946 og
stundaði tónlistarnám i Helsinki,
Þýskalandi og Sviss. Undanfarin
3 ár hefur hann verið listrænn
stjórnandi tónlistarhátiðarinnar i
Einar
Olgeirsson
gestur
Rauðsokka
Einar Olgeirsson verður gestur
i morgunkaffi Rauðsokkahreyf-
ingarinnar i dag kl. 12. Þaö þárf
ekki að segja lesendum Þjóðvilj-
ans hver Einar er, en til siðustu
afreka hans má nefna bókina um
tsland undir áhrifum heims-
Finnski pianóieikarinn Ralf Got-
honi.
Savonlinna. Hann starfar sem
prófessori pianóleik við tónlistar-
skólann i Munchen.
Gothoni er þekktur einleikari
og hefur ferðast og haldið tón-
leika viða um lönd, en einnig hef-
ur hann getið sér góðan orðstir
sem undirleikari, m.a. hjá landa
sinum óperugöngvaranum Martti
Talvela.
Miðar á tónleikana verða seldir
i kaffistofu Norræna hússins og
við innganginn.
valdastefnunnar sem útkom fyrir
jólin.
Það eru þó ekki heimsmálin
sem Einar ætlar að ræða heldur
mæðraveldið. Þeir sem kynnt
hafa sér sögu mannkynsins hafa
að öllum likindum rekist á þær
kenningar að eitt sinn hafi konur
ráðið rikjum i hinu svokallaða
mæðraveldi. Friedrich Engels
fjallaði um fyrirbærið i bók sinni
Uppruni fjölskyldunnar, einka-
eignarinnar og rikisins m.a. með
tilliti til þess að konur ættu að öðl-
ast jafnan rétt á við karlmenn.
Siðan hefur margt verið ritað og
rætt um mæðraveldið með og á
móti Engels. Morgunkaffið er i
Sokkholti, Skólavörðustig 12 og
hefst kl. 12 á hádegi.
—ká
Námskeið i klipp-
ingu kvikmynda
Kl. 14 i dag hefst i Alftainýrar-
skóla námskeið i kiippingu kvik-
mynda á vegum Samtaka áhuga-
manna um kvikmy ndagerð
(SÁK)
Aðalleiðbeinandi verður Þor-
steinn Jónsson kvikmyndastjóri.
Tæki og filmur verða á staönum
fyrir þá sem vilja spreyta sig á
mjófilmu (8mm),Þátttöku má til-
kynna i sfma 31164 eða 40056.
Finnskar og norskar
nútímabókmenntir
Kai Laitinen pröfessor við
háskólann i Helsinki flytur opin-
beran fyrirlestur um finnskar
nútimabókmenntir i boði heim-
spekideildarinnar Háskóla
tslands miðvikudaginn 21. janúai
1981 kl. 17:15 i stofu 422 i Arna-
garði.
Fyrirlesturinn nefnist: Frán
skogen til staden” og verður flutt-
ur á sænsku.
Þá flytur Leif Mæhle prófessor
við háskólann i Osló opinberan
fyrirlestur um norska nútima-
ljóðlist í boði heimspekideildar
fimmtudaginn 22. jandar n.k. kl.
20:30 i stofu 422 i Arnagarði.
Fyrirlesturinn nefnist: ,,0pp-
blomstring eller litterær
inflasion? Giimt fra nyarc norsk
lyrikk” og verður fluttur á
norsku.
öllum er heimill aðgangur.
' Helgin 17.—18. janúár 1981 ÞJóÐVllljrívN — 'stÐÁ 29
Kalda-
lóns-
tónleikar í
Grindavík
Ein af teikningum Carls Fredriks Hills.
Fjórar sýningar
á Kjarvalsstöðum
Fjórar sýningar verða opnaðar
á Kjarvalsstöðum i dag, laugar-
dag, hver annarri áhugaverðari
einsog fram kom i frétt Þjóðvilj-
ans i gær.
Mikill fengur hlýtur að teljast
að fá hingað sýningu á verkum
sænska málarans Carls Frede-
riks Hill, mjög sérstæðs lista-
manns, sem haldinn var kleyf-
hugasýki siðari hluta ævi sinnar,
og hafa myndir hans frá þvi tima-
bili verið rannsóknarefni sál-
könnuða og listfræðinga.
Tvær sýningar koma frá Hol-
landi, Grafik frá landi Mon-
drians, með 36 myndum nútima-
listamanna, og skartgripasýning
með munum -eftir 19 listamenn.
unnum úr ýmsu efni svosem áli,
silfri, kopar og plasti.
Loks sýnir hópurinn Vetrar-
mynd i þriðja sinn saman, en
hann hefur áður verið i Norræna
húsinu. Verk hópsins nú eru 91
talsins, frá siðustu tveim árum,
bæði oliumyndir, skúlptúr,
kritarmyndir, teikningar og vefn-
aður auk mynda með blandaðri
tækni.
1 hópnum Vetrarmynd eru þau
Baltasar, Bragi Hannesson,
Einar Þorláksson, Haukur Dór,
Hringur Jóhannesson, Leiiur
Breiðfjörð, Magnús Tómasson,
Niels Hafstein, Sigriður Jóhanns-
dóttir, Sigurður örlygsson og Þór
Vigfússon.
1 tilefni þess, aö hundraö ár eru
nú liðin frá fæðingu Sigvalda
Kaldalóns tónskálds stendur
Bókasafn Grindavikur fyrir
Kalda lónstónleikum i Félags-
heimilinu á laugardaginn nk. kl.
14.
Garðar Cortes, Olöf Harðar-
dóttir, Sólveig Björling, og
Halldór Vilhelmsson flytja lög
eftir Sigvalda Kaldalóns. Einnig
koma fram Bamakór Grindavik-
ur undir stjórn Ey jólfs Ólafssonar
og blandaður kór undir stjórn Sig-
valda S. Kaldalóns.
Sigvaldi Kaldalóns tónskáld
fæddist i Reykjavik 13. janúar
1881. Hann lauk læknisprófi árið
1908 og hélt utan til framhalds-
■ náms i Kaupmannahöfn sama ár.
Árið 1910 er honum veitt Nauteyr-
arlæknishérað við Isafjarðardjúp
og sat hann að Armúla, skammt
frá Kaldalóni, sem hann kenndi
sig siðar við. Hann var héraðs-
læknir i Flateyrarlæknishéraði
um tima en var veitt héraðs-
læknisstaða i Keflavikurlæknis-
héraði með setu i Grindavik árið
1929 og sat hann fram til ársins
1945. Kaldalóns andaðist árið
1946.
Kaldalóns hefur löngum verið
kallaður Schubert Islands. Hann
samdi margaraf fallegustu söng-
perlum, sem við eigum s.s. Ave
Maria, Erla góða Erla, Fjallið
eina, svo dæmi séu tekin.
2ja ára ábyrgð
Við höfum margar gerðir verðmerkivéla — en mælum
sérstaklega með HALLO 1-Y — því að við teljum hana þá
bestu af þeim vélum sem við höfum reynt
Þlastpokar
<UÍ 82655
Nii.sl.os lil 9E0
PLASTPOKAR|
82655
PLASTPOKAVERKSMIÐJA 0DDS SIGURÐSSONAR, BÍLDSHÖFÐA 10 REYKJAVIK
BYGGINGAPLAST * PLASTPRENTUN * MERKIMIÐAR OG VÉLAR
^ 9 japanskra verðmerkivéla
Léttar — Sterkar — Fljótvirkar
ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERÐ
uðir blekpúðar og miðar
rir nýkrónur