Þjóðviljinn - 17.01.1981, Blaðsíða 29

Þjóðviljinn - 17.01.1981, Blaðsíða 29
um helgína Kontra-kvartettinn í Norræna húsinu Mánudaginn 19. janúar kl. 20:30 heldur Kontra-kvartettinn frá Danmörku tónleika i Norræna húsinu. Á efnisskrá eru strok- kvartettar eftir Mozart (G-dúr. KV. 387), Carl Nielsen (g-inoil, op. 13) og Dvorák (Bandariski kvartettinn). Kontra-kvartettinn var stofn- aður 1973 af fiðluleikaranum Anton Kontra, sem fæddur er i Ungverjalandi, en verið hefur konsertmeistari Sinfóniuhljóm- sveitar Sjálands frá 1965. Anton Kontra starfar einnig sem ein- leikari og hafa ýmis norræn tón- skáld samið verk fyrir hann; nú siðast samdi Vagn Holmboe fiðlu- konsert fyrir hann. Aðrir meðlimir i Kontra- kvartettinum starfa með Dönsku útva r psh 1 jó m s vei ti nn i og Sinfóniuhljómsveit Sjálands. Kvartettinn hefur lagt mikla áherslu á flutning aiístur- evrópskrar tónlistar (Dvorák, Bartok, Tjajkovskij) og nýrri norrænnar tónlistar auk hinnar sigildu efnisskrár. Kontra-kvartettinn heldur tvenna tónleika i Norræna húsinu, en aðeins fyrri tónleikarnir eru opnir fyrir almenning. Miðar verða seldir i kaffistofu Norræna hússins og við inngang- inn. Ralf Gothoni í heim- sókn Hinn þekkti finnski pianóleikari Ralf Gothoni heldur tónieika i Norræna húsinu n.k. þriðjudags- kvöld kl. 20.30. Leikur hann þar m.a. sónötu eftir landa sinn EinojuhaniRautavaara, „Myndir á sýningu” eftir Músorgski og svitu cftir Leos Janacek. Ralf Gothoni hefur komið hing- að til lands nokkrum sinnum áður m.a. kom hann fram ásamt finnska barintónsöngvaranum Jorma Hynninen á Norrænu menningarvikunni haustið 1979. Hann er fæddur árið 1946 og stundaði tónlistarnám i Helsinki, Þýskalandi og Sviss. Undanfarin 3 ár hefur hann verið listrænn stjórnandi tónlistarhátiðarinnar i Einar Olgeirsson gestur Rauðsokka Einar Olgeirsson verður gestur i morgunkaffi Rauðsokkahreyf- ingarinnar i dag kl. 12. Þaö þárf ekki að segja lesendum Þjóðvilj- ans hver Einar er, en til siðustu afreka hans má nefna bókina um tsland undir áhrifum heims- Finnski pianóieikarinn Ralf Got- honi. Savonlinna. Hann starfar sem prófessori pianóleik við tónlistar- skólann i Munchen. Gothoni er þekktur einleikari og hefur ferðast og haldið tón- leika viða um lönd, en einnig hef- ur hann getið sér góðan orðstir sem undirleikari, m.a. hjá landa sinum óperugöngvaranum Martti Talvela. Miðar á tónleikana verða seldir i kaffistofu Norræna hússins og við innganginn. valdastefnunnar sem útkom fyrir jólin. Það eru þó ekki heimsmálin sem Einar ætlar að ræða heldur mæðraveldið. Þeir sem kynnt hafa sér sögu mannkynsins hafa að öllum likindum rekist á þær kenningar að eitt sinn hafi konur ráðið rikjum i hinu svokallaða mæðraveldi. Friedrich Engels fjallaði um fyrirbærið i bók sinni Uppruni fjölskyldunnar, einka- eignarinnar og rikisins m.a. með tilliti til þess að konur ættu að öðl- ast jafnan rétt á við karlmenn. Siðan hefur margt verið ritað og rætt um mæðraveldið með og á móti Engels. Morgunkaffið er i Sokkholti, Skólavörðustig 12 og hefst kl. 12 á hádegi. —ká Námskeið i klipp- ingu kvikmynda Kl. 14 i dag hefst i Alftainýrar- skóla námskeið i kiippingu kvik- mynda á vegum Samtaka áhuga- manna um kvikmy ndagerð (SÁK) Aðalleiðbeinandi verður Þor- steinn Jónsson kvikmyndastjóri. Tæki og filmur verða á staönum fyrir þá sem vilja spreyta sig á mjófilmu (8mm),Þátttöku má til- kynna i sfma 31164 eða 40056. Finnskar og norskar nútímabókmenntir Kai Laitinen pröfessor við háskólann i Helsinki flytur opin- beran fyrirlestur um finnskar nútimabókmenntir i boði heim- spekideildarinnar Háskóla tslands miðvikudaginn 21. janúai 1981 kl. 17:15 i stofu 422 i Arna- garði. Fyrirlesturinn nefnist: Frán skogen til staden” og verður flutt- ur á sænsku. Þá flytur Leif Mæhle prófessor við háskólann i Osló opinberan fyrirlestur um norska nútima- ljóðlist í boði heimspekideildar fimmtudaginn 22. jandar n.k. kl. 20:30 i stofu 422 i Arnagarði. Fyrirlesturinn nefnist: ,,0pp- blomstring eller litterær inflasion? Giimt fra nyarc norsk lyrikk” og verður fluttur á norsku. öllum er heimill aðgangur. ' Helgin 17.—18. janúár 1981 ÞJóÐVllljrívN — 'stÐÁ 29 Kalda- lóns- tónleikar í Grindavík Ein af teikningum Carls Fredriks Hills. Fjórar sýningar á Kjarvalsstöðum Fjórar sýningar verða opnaðar á Kjarvalsstöðum i dag, laugar- dag, hver annarri áhugaverðari einsog fram kom i frétt Þjóðvilj- ans i gær. Mikill fengur hlýtur að teljast að fá hingað sýningu á verkum sænska málarans Carls Frede- riks Hill, mjög sérstæðs lista- manns, sem haldinn var kleyf- hugasýki siðari hluta ævi sinnar, og hafa myndir hans frá þvi tima- bili verið rannsóknarefni sál- könnuða og listfræðinga. Tvær sýningar koma frá Hol- landi, Grafik frá landi Mon- drians, með 36 myndum nútima- listamanna, og skartgripasýning með munum -eftir 19 listamenn. unnum úr ýmsu efni svosem áli, silfri, kopar og plasti. Loks sýnir hópurinn Vetrar- mynd i þriðja sinn saman, en hann hefur áður verið i Norræna húsinu. Verk hópsins nú eru 91 talsins, frá siðustu tveim árum, bæði oliumyndir, skúlptúr, kritarmyndir, teikningar og vefn- aður auk mynda með blandaðri tækni. 1 hópnum Vetrarmynd eru þau Baltasar, Bragi Hannesson, Einar Þorláksson, Haukur Dór, Hringur Jóhannesson, Leiiur Breiðfjörð, Magnús Tómasson, Niels Hafstein, Sigriður Jóhanns- dóttir, Sigurður örlygsson og Þór Vigfússon. 1 tilefni þess, aö hundraö ár eru nú liðin frá fæðingu Sigvalda Kaldalóns tónskálds stendur Bókasafn Grindavikur fyrir Kalda lónstónleikum i Félags- heimilinu á laugardaginn nk. kl. 14. Garðar Cortes, Olöf Harðar- dóttir, Sólveig Björling, og Halldór Vilhelmsson flytja lög eftir Sigvalda Kaldalóns. Einnig koma fram Bamakór Grindavik- ur undir stjórn Ey jólfs Ólafssonar og blandaður kór undir stjórn Sig- valda S. Kaldalóns. Sigvaldi Kaldalóns tónskáld fæddist i Reykjavik 13. janúar 1881. Hann lauk læknisprófi árið 1908 og hélt utan til framhalds- ■ náms i Kaupmannahöfn sama ár. Árið 1910 er honum veitt Nauteyr- arlæknishérað við Isafjarðardjúp og sat hann að Armúla, skammt frá Kaldalóni, sem hann kenndi sig siðar við. Hann var héraðs- læknir i Flateyrarlæknishéraði um tima en var veitt héraðs- læknisstaða i Keflavikurlæknis- héraði með setu i Grindavik árið 1929 og sat hann fram til ársins 1945. Kaldalóns andaðist árið 1946. Kaldalóns hefur löngum verið kallaður Schubert Islands. Hann samdi margaraf fallegustu söng- perlum, sem við eigum s.s. Ave Maria, Erla góða Erla, Fjallið eina, svo dæmi séu tekin. 2ja ára ábyrgð Við höfum margar gerðir verðmerkivéla — en mælum sérstaklega með HALLO 1-Y — því að við teljum hana þá bestu af þeim vélum sem við höfum reynt Þlastpokar <UÍ 82655 Nii.sl.os lil 9E0 PLASTPOKAR| 82655 PLASTPOKAVERKSMIÐJA 0DDS SIGURÐSSONAR, BÍLDSHÖFÐA 10 REYKJAVIK BYGGINGAPLAST * PLASTPRENTUN * MERKIMIÐAR OG VÉLAR ^ 9 japanskra verðmerkivéla Léttar — Sterkar — Fljótvirkar ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERÐ uðir blekpúðar og miðar rir nýkrónur

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.