Þjóðviljinn - 18.02.1981, Síða 5
Miövikudagur 18. febrúar 1981. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Tilboð í heimsmeistaraeinvigið i skák
Sigrlður Pétursdóttir og Guöjón Petersen I stjórnstöö Almannavarna rikisins. —Ljósm. Ella.
Guöjón Petersen, framkvœmdastjóri Almannavarna:
Brýnt að samræma
björgunarstarfið
Mjög œskilegt að úvarpa beint frá
stjórnstöð Almannavarna
Það virðist eins og fár-
viðrið í fyrrakvöld hafi
komið ýmsum í opna
skjöldu. Það er til að
mynda fyrst kl. 18.55 að til-
kynning berst til stjórn-
stöðvar Almannavarna um
að hættuástand geti
skapast vegna veðurs. Þá
virðist ennfremur hafa
tekið nokkurn tíma að
koma á samræmdum
viðbrögðum hinna ýmsu
aðila sem komu til
aðstoðar og hjálpar.
Af þessu tilefni leitaði Þjóðvilj-
inn til Guðjóns Petersen, fram-
kvæmdastjóra Almannavarna
rikisins og spurðist fyrst fyrir um
hvort ekki væri til staðar sérstök
óveðursáætlun hjá Almanna-
vörnum.
„Jú, einn kaflinn i neyðaráætl-
unum almannavarnarnefnda
byggðarlaganna fjallar um það
hvernig bregðast skuli við óveðri.
Þar eru sérstakir vinnulistar og
það var farið eftir þeim t.d. hér i
Reykjavik.”
— Af hverju var ekki brugöist
við fyrr?
„Veðurstofan tilkynnti þetta
fyrst til okkar kl. 18.55 og við
brugðumst við strax.”
— Er ekki nauðsynlegt aö rjúfa
auglýsta dagskrá útvarpsins og
útvarpa beint héöan úr stjórninni
aðvörunum og ábendingum til
fólks hvernig bregöast skuli viö,
svo og fréttum af ástandinu?
„Jú, ég teldi það mjög æskilegt.
Við fórum fram á það fyrir nokkr-
um árum að koma á fastri teng-
ingu hér, svo hægt væri að út-
varpa beint. Otvarpsráð sá hins
vegar ekki ástæðu til þess. Við
höfum að visu beina linu til
fréttastofu, það var eins konar
málamiðlun, en auðvitað væri
mikils virði ef hægt væri að hafa
sérstaka útvarpsdagskrá héðan
og koma tilkynningum og upplýs-
ingum viðstöðulaust á framfæri,
þegar svona ástand skapast um
nær allt land.”
— Hafa Almannavarnir ekki
vald til að aflýsa samkomuhaldi á
sina ábyrgð?
„Lögreglustjórar hafa það hver
á sinum staö en ég tel mjög
nauðsynlegt að samræma
aðgerðir betur en nú er. Það eru
mjög margir aöilar sem um þessi
mál fjalla, t.d. koma hin ýmsu
lögsagnarumdæmi á framfæri
upplýsingum um hálku og ástand
vega, lögregla, slökkvilið og
björgunarsveitir eru að störfum,
og ég teldi mjög til bóta aö einn
aðili væri með heildarstjórn þess-
ara mála, og kæmi orðsendingum
beint á framfæri í útvarpið, llkt
og gert er á miklum umferða-
helgum. Hitt er svo annaö mál, að
það er ávallt erfitt aö meta hve-
nær neyðarástand skapast vegna
veöurs og við megum ekki hræða
fólk að óþörfu.
Þaö er áberandi að fólk hér
tekur viðvaranir um óveður
ekki mjög hátiölega. Við áttum
t.d. erfitt með að ná björgunar-
sveitum út i gær, menn voru ekki
beint trúaðir á þetta fárviðri. En
eftir um þaö bil tvo tima var
komið mjög gott skipulag á
hjálparstarf og viö gátum sinnt
öllum hjálparbeiðnum hér i
Reykjavik eftir klukkan ellefu.”
— Þið hafið ekki sent út
aðvörunarflaut ykkar um að
hlusta á útvarp?
„Nei, það var heldur ekki talin
ástæða til þess árið 1973 þegar
Ellen gekk yfir.”
Bætir viðlagatrygging tjón af
völdum þessa veðurs?
„Nei þvi miður ekki. Ég tel
lögin um viðlagatryggingu mjög
götótta. Þar eru engin mannvirki
bætt, sem ekki eru bætt af öörum
aöilum. Nú hefur t.d. orðiö veru-
legt tjón á hafnargarði á
Akranesi, sem viðlagatrygging
bætir ekki. 1 slikum veðrum
veröa oft miklir og tilfinnanlegir
skaöar, ekki sist hjá sveitar-
félögum. Slikt þyrfti að vera hægt
að bæta.” Bó
ísland
Spánn
1 fyrradag voru opnuð 3 tilboð,
sem bárust FIDE um að halda
heimsmeistaraeinvigiö i skák
næsta sumar. Tilboðin voru opnuö
I aðalstöðvuum FIDE I Amster-
dam i Hollandi og varð útkoman
sú að Spánverjar og tslendingar
buöu jafn háa upphæð, 1 miljón
svissneskra franka eða sem
svarar tii 3,3 miljón isl. nkr.
italska tilboðið hljóðaöi uppá 800
þúsund sv. franka.
Islenska tilboðið var sent seint
á sunnudagskvöld, eftir að rikis-
stjórnin hafði lofaö að útvega fé
til keppnishaldsins. Jafnframt
fékkst loforð um aö einvigið færi
fram i Þjóðleikhúsinu.
Spánverjar bjóða Las Palmas á
Kanarieyjum sem keppnisstað en
menn þar i borg hafa orðið góða
æfingu i að halda stórmót i skák,
ekki siður en tslendingar.
Nú kemur það i hlut þeirra
Karpovs heimsmeistara og
Kortsnoj áskoranda að velja
keppnisstað úr þessum þremur
tilboðum. Verði þeir ekki sam-
mála um keppnisstaö, kemur þaö
i hlut Friðriks ólafssonar forseta
FIDE að taka ákvörðun um stað-
í vikunni?
Mér er ekki kunnugt um þeirra
feröir, en á hinn bóginn hafa þeir
fallist á að skila skýrslu meö
skýringum sinum varöandi hækk-
un i hafi nú um miðjan mánuðinn.
Ég á von á skýrslu þeirra i vik-
unni, sagði Hjörleifur Guttorms-
son, iðnaöarráðherra i samtali
viö Þjóöviljann i gær þegar hann
Og
hæst
inn og verður hans úrskurði ekki
áfrýjaö. —S.dór
Head Effects
til heiðurs
fullu tungii
Tónleikar á
Borginni i kvöld
Hljdmsveitin Head-Effects
heldur i kvöld tónleika á
Hótei Borg og hefjast þeir
kl. 21. Head-Effects er skip-
uð fjórum mönnum sem
spila framúrstefnurokk og
blöndu af friösæld og út-
hverfaógn (!) — Progressive
hard rock group, combining
urban angst and tranquiiity.
Head-Effects lék I siöustu
viku r StUdentakjallaranum
og hlaut mjög góðar viötök-
ur. Hljómsveitin er nýstofn-
uðog tdnleikarnir i kvöld eru
til heiðurs fullu tungli.
var spurður hvort fulltrúar
Alusuisse væru væntanlegir hing-
að til lands á næstunni.
Hjörleifur sagði að ekki hefði
verið ákveðiö neitt um viöræður
að öðru leyti en þvi að ráöuneytið
geröi ráð fyrir þeim i framhaldi
af skýrslu Alusuisse þ.e. I næsta
mánuði. —AI
Alvarlegar ásakanir á
F æðingardeildina
Landlæknisembættinu berast
árlega um 20 kvartanir sem
sinnt er sérstaklega og leiða þær
I sumum tilvikum til þess að
læknir verður uppvis að vangá
eða mistökum i starfi eins og
lesa má um i dómum. Flest eru
þó málin leyst utan dómstóla
enda byggjast þau á misskiln-
ingi annað hvort sjúklings eða
læknis en i öllum tilvikum er
leitað álits óháðra sérfræöinga,
læknaráðs eöa jafnvel Alþjóða
heilbrigðismálastofnunarinnar
um ágreiningsmálið, sagði
Ólafur ólafsson, landlæknir, i
samtali við Þjóðviljann i gær.
Tilefni fyrirspurnarinnar er
grein sem birtist I Morgunblað-
inu I gær, þar sem rakin er sorg-
arsaga af barnsburöi ungrar
konu s.l. vetur á Fæðingardeild
Landspitalans. 1 greininni, sem
rituð er af tengdaföður viökom-
andi konu, eru raktar hörmu-
legar afleiðingar þess að ekki
var gripið til keisaraskuröar en
konan var flutt suöur i flugvél
eftir hálfs annars sólarhrings
dvöl á sjúkrahúsi nyðra. 1 bréfi
sem forstöðumönnum Fæð-
ingardeildarinnar var ritað s.l.
vor segir tengdafaðirinn m.a.,
aö við blasi „hræðilegar afleiö-
ingar þeirrar meöhöndlunar
sem konan hlaut; hún sjálf slös-
Harma þessi
skrif segir
Ólafur
Oiafsson
landlœknir
uð, barnið margbeinbrotiö, meö
löskuð innri Jiffæri, e.t.v. heila-
skemmdir vegna súrefnisskorts
og lömun i handlegg vegna
taugaskemmda”. Þá kemur
ennfremur fram i greininni að
samkvæmt rannsókn Fæöingar-
deildar og siðar Landlæknisem-
bættisins að fengnu áliti sér-
fræðinga hafa „engin læknis-
fræðileg mistök orðið” i þessu
tilviki.
Ólafur Ólafsson landlæknir
sagöi i gær aö væntanleg væri
greinargerð frá Fæöingardeild-
inni um mál þetta og vildi ekki
tjá sig um það fyrr en hún væri
komin fram. Hins vegar hlýt ég
að harma þessi skrif, sagöi
Ólafur, þvi eðlilegra heföi veriö
að fara með málið til dómstóla
ef viðkomandi sætta sig ekki við
þessa niðurstöðu, enda var þeim
boðið það og ennfremur aðgang-
ur að öllum málsgögnum eins og
venja er alfarið.
Þetta eru alvarlegar ásakanir
og ég vil segja rangur áburður
ekki aöeins á þá lækna sem við
sögu koma, heldur á heila stofn-
un? sem er sú fullkomnasta
sinnar tegundar hér á landi.og
skrif sem þessi skelfa menn. Þá
á ég ekki sist við þær konur sem
lagöar eru inn á Fæðingardeild-
ina i dag, — hvað eiga þær að
halda?
— 1 greininni er talað .um
samtryggingu læknastéttarinn-
ar og að enginn læknir muni
nokkru sinni væna annan um
mistök. Hvað segir þú um þær
ásakanir?
Ég neita þvi alfariö aö em-
bætti landlæknis sé hluti af sliku
„samtryggingarkerfi”. Ég leita
i tilvikum sem þessum eftir
greinargerð frá viökomandi
læknum en einnig eftir áliti ann-
arra óháðra sérfræðinga og lög-
fræðinga. Niðurstaðan er sú að
ekki var unnt að sjá fyrir erfið-
leika þá er urðu við fæðinguna
og þegar þeir komu I ljós var
brugöist rétt viö.
Að lokum sagði Olafur að við
tslendingar gætum verið
hreyknir af þvi að hafa lægsta
ungbarnadauða i heiminum en
ólafur Ólafsson landlæknir:
Ekkert „samtryggingarkerfi”.
þó svo væri gerðust ennþá at-
burðir sem ekki væri á mann-
legu valdi aö sjá fyrir. Þeir ein-
staklingar sem hér um ræðir
eiga mina dýpstu samúö, sagöi
hann, en rangur áburöur leysir
engan vanda.
—AI
Hœkkun i hafi og Alusuisse
Kemur skýrsla þeirra