Þjóðviljinn - 12.03.1981, Side 13
Fimmtudagur 12. mars 1981. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Lífið í litum
Loksins, loksins getur blaöa-
maöurinn —ká fullvissaö lesend-
ur Þjóöviljans um aö hljómplatan
Lifið i litum sem gerö er af Dia-
bolus in Musica er komin á
markað.
t siöustu viku boðuðu þeir
Diabolusar sem staddir eru á
landinu blaðamenn á sinn fund og
sungu kynningu á plötunni með
ljúfum tilþrifum. Undirrituö gat
þar með varpað öndinni léttar
eftir að hafa skrifaö minnst fjórar
fréttir um það að platan væri að
koma (frá þvi i október) án þess
að fréttirnar hefðu viö rök að
styðjast. A myndinni getur aö lita
þau Aagot óskarsdóttur viö
pianóiö, Tómas Einarsson með
bassann, Jóhönnu Þórhallsdóttur
sem syngur, og Sveinbjörn Bald-
vinsson sem leikur á gitarinn.
Ljósm.: Ella.
— ká.
erlendar
bækur
Kinder- und Hausm’árchen
gesammelt durch die
BrUder Grimm
mit den Zeichnungen von Otto
Ubbelohde und einem Vorwort
von Ingeborg Weber-Kellermann
I-III. Insel-Veriag 1979.
Það voru þeir mágar Achim
von Arnim og Clemens Brentano
sem vöktu áhuga þeirra góðu
bræðra, Jakobs og Wilhelms
Grimm á þjóðsögunum og
þjóðkvæðum. Þeir fengu þá sér til
aðstoðar við söfnun þjóökvæða
sem birtust i „Knaben Wunder-
horn”. Kveikjan að þessum
áhuga var rómantiska stefnan,
þeir mágar voru fulltrúar heidel-
bergska skáldahópsins, sem var
altekinn rómantiskum hugmynd-
um. Grimms-bræðurnir fetuðu
dyggilega i fótspor þeirra og hófu
söfnun þjóðsagna. Þjóðsögur
höfðu að visu áður veriö skráðar
og inægir að visa til ævintýra
Perraults, sem komu út 1697:
Contes de Fées... Arni Magnússon
hóf uppskrift fabúla og ævintýra
1689 og 1699 skrifar hann Birni
Þorleifssyni frá Odda, um að
safna fyrir sig sögum af Sæmundi
fróða. Grimms ævintýrin ollu
þáttaskilum i söfnun þjóðsagna,
og með auknum áhrifum
rómantisku stefnunnar, jókst
áhuginn fyrir þessum sögum úr
þjóödjúpinu. Þeir bræður létu
ekki staðar numið við þjóðsagna-
söfnun, þeir hófu söfnun i
„Deutschen Wörterbuch”, sem
tók að koma út 1852 og var þeirri
útgáfu ekki lokið fyrr en 1961.
Fyrsta bindi ævintýra þeirra
bræðra kom út 1812 og siðan kom
hvert bindið af öðru og alls er tal-
ið að safnið hafi verið endur-
prentað 17 sinnum meðan þeir
lifðu. 1907 kom út mjög glæsileg
útgáfa af ævintýrunum, sem var
myndskreytt af Otto Ubbelohde.
Fyrsta myndin i hverju bindi var
hugmynd um þá konu, sem
margar kunnustu sögurnar eru
hafðar eftir, sem hét Viehmann-
in, en hún var af Hugenotta ætt-
um eins og fleiri, sem sögur eru
haföar eftir i þessum söfnun.
Þessi útgáfa frá 1907 er hér
endurprentuð að mestu óbreytt og
fylgja allar myndirnar, alls um
450. Þessi útgáfa er smekkleg og
hæfir vel Insel útgáfunni.
Johannes Praetorius:
Hexen- Zauber- und Spuk-
geschichten aus der
Blocksberg.
Mit Holzschnitten des 15.—17.
Jahrhunderts. Herausgegeben
von Wolfgang Möhrig. Insel Ver-
lag 1979.
Bók þessi kom fyrst út 1668 og
var ætluð lesandi alþýðu til fróð-
leiks og viðvörunar um galdra-
nornir og aðrar ókindur. Höfuð
efni'ritsins er lýsing á Blokks-
fjalli, þeim fræga samkomustað
djöfulsins og hjálparkinda hans,
galdranornanna. Höfundurinn
var öruggur i vissu sinni um vald
Satans og um tengsl hans við að-
stoðarkonur sinar, normrnar.
Heimildir höfundar um Blokks-
fjall eru fjölskrúðugar, bæði frá
siðari hluta miðalda og frá 16. og
17. öld. Hann hefur dregið saman
i þetta rit sitt flestallar þær heim-
ildir, sem finna má um þennan
fræga stað og lýsir þvi sem þar
fór fram. Höfundurinn dvaldi
lengst af i Leipzig og var mjög iö-
inn við skriftir, um 40 rit stór og
smá eru til eftir hann. Þetta rit
varð það langlifasta og i það hafa
ýms skáld sótt heimildir um
aldaranda 16. og 17. aldar varð-
andi galdratrú og reyndar margt
fleira. Lýsingar Goethes á norn-
unum i Faust eru að nokkru
sóttar i þetta rit, svo og á Val-
borgarmessunótt. Grimms
bræður notuðu rit Praetoriusar i
sambandi við samantektir sagna
og þjóðsagna.
Johannes Praetorius hét réttu
nafni Hans Schultze, Praetorius
var höfundanafn, fæddist 1630 og
lést úr pest i Leipzig 1680.
Bók þessi var talsvert lesin á
17. öld, önnur útgáfa kom út 1669.
Ritiö er nú endurprentað með tré-
skuröarmyndum og eftirmála.
Auk fróðleiks um Blokksfjall eru
nokkrir þættir um ýmsa undar-
lega viðburði og ritinu lýkur á
frásögn af skynugum dýrum.
Alþýðubandalagið í Reykjavik
Fundaröð um starf og stefnu Alþýðubanda-
lagsins
Ríkisstj órnarþátttaka
Aiþýðubandalagsins
1971-74, 1978-79 og í
núverandi ríkisstjórn
Fundur um ofanskráð efni
verður i kVöld, fimmtudags-
kvöld, kl. 20.30 að Grettisgötu 3
(athugið breyttan fundarstað).
Frummælendur verða Svavar
Gestsson og Þröstur Ölafsson.
Félagar fjölmennið.
Stjórn ABR
Herstödvaandstædingar
Opið hús i kvöld. Þórarinn Hjartarson mætir og tekur nokkur lög á
gitarinn. Komiö og ræðið málin yfir kaffibolla. — Húsiö opnað kl. 8.
Samtök herstöðvaandstæðinga
Skólavöröustig 1A
ALÞVÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Hafnarfirði.
Fundur verður haldinn i Skálanum fimmtudaginn
12. mars kl. 20.30. — Kjartan Ölafsson ritstjóri fjall-
ar um Þjóðviljann og svarar fyrirspurnum. —
Félagar fjölmennið og takið þátt i umræðu um blað-
iðokkar,— Stjórnin.
Alþýðubandalagið i Suðurlandskjördæmi
Kjördæmisráðsfundur Alþýðu-
bandalagsins i Suðurlandskjör-
dæmi verður haldinn laugardag-
inn 14. mars kl. 14 i Verkalýðs-
húsinu á Hellu.
Fundarefni: Atvinnumál.
Framsöguerindi flytja Guðrún
Hallgrimsdóttir og Sigurjón Er-
lingsson.
Stjórnin
Sigurjón
Guðrún
Alþýðubandalagið Grundarfirði
Almennur félagsfundur verður haldinn i húsi Verkalýðsfélagsins
fimmtudaginn 12. mars kl. 20.30.
Fundarefni: Blaðaútgáfa félagsins. — Stjórnin.
Alþýðubandalagið i Kópavogi
Félagsfundur.
Fundur verður haldinn i Þinghó'H,
Hamraborg 11, laugardaginn 14.
mars n.k. kl. 13.30. Fundarefni er
húsnæðisvandi framhaldsskólans
i Kópavogi.
Dagskrá:
1. Framsögur um
a) hvort nýta eigi hluta af núver-
andi húsnæði grunnskólans fyrir
framhaldsskólann.Gisli ólafur
Pétursson.
b> Hvort byggja eigi nýjan skóla
fyrir framhaldsskólann i Kópa-
vogi. Arni Stefánsson.
2. Frjálsar umræður
3. Starfshópar
Kaffihlé
Gisli
4. Inntaka nýrra félaga
5. Starfshópar skila áliti
Fundarlok verða kl. 18.30
Mætið stundvislega.
Stjórn ABK.
Alþýðubandalagið á Akranesi
Opið hús i Rein.
Mánudaginn 16. mars frá kl. 20.30
hefur Alþýðubandalagið á Akra-
nesi opið hús I Rein. Guðrún
Helgadóttir og Skúli Alexander-
son alþingismenn koma og spjalla
við gesti um stjórnmálaviðhorfið.
Kaffiveitingar. — Félagar fjöl-
mennið og takið með ykkur gesti.
— Alþýðubandalagið á Akranesi. skúli
Guðrún
Herstöðvaandstæðingar —
Alþýðubandalag Héraðsmanna
Opinn fundur um herstöðvamálið i Menntaskól-
anum á Egilsstöðum laugardaginn 21. mars kl. 2
e.h.
Bragi Guðbrandsson menntaskólakennari
heldur framsöguerindi.
Umræður.
Bragi Guð-
brandssou
Alþýðubandalagið Akureyri:
Fjölskylda i nútima samfélagi
Opinn fundur að Eiðsvallagötu 18 sunnudaginn 15. mars kl. 14.00.
Framsögumenn:
Inngangur: Sigriður Stefánsdóttir kennari
Fjölskyldupólitik: Jón Björnsson félagsmálastjóri
Barn — fjölskylda — samfélag: Askell Kárason sálfræðingur
Bæjarstjórn og málefni fjölskyldunnar: Soffia Guðmundsdóttir bæjar-
fulltrúi
Fundarstjóri: Helgi Guðmundsson bæjarfulltrúi
Umræðuhópar starfa Allir eru velkomnir!
A Bílbeltin
/r hafa bjargað
IUMFEROAR
RÁO
Blikkiðjan
Asgarðí 7, Garðabæ
Ónnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötilboö
SÍMI53468