Þjóðviljinn - 27.03.1981, Blaðsíða 3
Föstudagur 27. mars 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Engin niðurstada
í prófessorsmáinu
Á fundi Jafnréttisráös i gær var
m.a. fjallað um skipan i prófess-
orsstöðu i læknadeiid og þau
frumvörp sem fram hafa komið á
alþingi um breytingar á Jafn-
réttislögunum.
Guðriður Þorsteinsdóttir, for-
maður ráðsins, sagði i gær að
niðurstaða hefði fengist i hvorugu
málinu. Enn er beðið eftir gögn-
um varðandi prófessorsskipunina
og sagðist hún vonast til þess að
það mál yrði afgreitt á næsta
fundi ráðsins eftir hálfan mánuð.
A alþingi hefur Jóhanna Sig-
urðardóttir lagt fram írumvarp
um timabundin forréttindi
kvenna og i gær lagði Guðrún
Helgadóttir fram breytingar-
tillögu við það. Guðriður sagði að
um þetta mál yrði Jafnréttisráð
aðræða á fleirum en einum fundi.
Ráðið mun trúlega fá frumvörpin
til umsagnar eftir að þau eru
komin i nefnd i þinginu, sagði
hún, en þeim var dreift á fundin-
um i gær. Ekki vildi Guðriður
úttala sig neitt um efni þeirra eða
undirtektir ráðamanna á þessu
stigi. —AI.
Klrkjan snýst gegn
austrænum hópum
Fœr frœgan danskan prófessor i lið með sér
Tilþrifamikið atriði úr sýningu Leiklistarfélags MH á „Vatzlav” eftir Slawomir Mrozek. — Ljósm.:
— Ella.
Vatzlav í Hamrahlíð
t dag kemur hingað til lands á
vcgum þjóðkirkjunar dr. Johs.
Aagaard prófessor i Árósum, sem
talinn er með iitrikustu
guðfræðingum Norðurlanda og
hefur gert yfirgripsmiklar
rannsóknir á hinum ýmsu trúar-
hreyfingum af austrænum toga
scm nú flæða yfir Vesturlönd.
Dr. Aagaard er nýkominn úr
langri könnunarferð til Indlands
sem hann fór á vegum Lútherska
heimssambandsins og mun hann
dveljast hér fram i næstu viku i
boði þjóðkirkjunnar, flytja fyrir-
lestra og svara fyrirspurnum.
Sjálfur hefur hann haft forgöngu
um stofnun endurhæfingarstöðv-
ar fyrir ungt fólk sem „lent” hef-
ur i samtökum Moonista, Guðs-
barna, TM eða Ananda Marga og
telur þjóðkirkjan mikinn feng i
komu hans hingað, enda hafi
margir óskað eftir fræðslu um
þessa hópa og starf þeirra og
samanburð við kristna trú, segir i
fréttatilkynningu hennar.
Sumir þessara hópa hafa verið
sakaðir um að hafa ekki alltaf
Herstöðvaandstæðingar á Suð-
urlandi efna til baráttusamkomu
i Hótei Hveragerði annað kvöld
kl. 21.00. Verður þar margt til
skemmtunar og væntanlega
baráttuhugur I fólki.
uppi eigið flagg og reyna að kom-
ast bakdyramegin að fólki, sem
ánet jist hreyfingunum án þess að
gera sér ljóst, einsog ma. hefur
komið fram i þáttum sjónvarps-
ins um starfsaðferðir Moonista og
Guðsbarna. Ýmsir aðrir hópar af
austurlenskum toga starfa hér-
lendis, svo sem Ananda Marga,
Innhverf ihugun o.fl. Einn rekur
barnaheimili i Reykjavik og
ýmiskonar útbreiðslustarfsemi
fer fram.
A morgun verður opið hús i
Hallgrimskirkju þar sem dr.
Aaagaard ræðir ma. orsakir fyrir
framgangi austurlenskra trúar-
hreyfinga á Vesturlöndum og
kynni sin af ungu fólki úr hópnum
og endurhæfingarstarfi i Dan-
mörku.
A mánudag, 30. mars kl. 17,
flytur hann fyrirlestur um Tantra
og Yoga og á þriðjudag, 31. mars
kl. 10 fyrirlestur sem nefnist: Den
nye gnosis som teologisk udfor-
dring, báða i V. stofu Guðfræði-
deildar Háskólans.
RUnar Armann Arthúrsson
stjórnar uppákomu, sönghópur
herstöðvaandstæðinga á Suður-
landi skemmtir og leynigestur
kyrjar baráttusöngva.
Happdrætti verður á staðnum.
i kvöld frumsýnir Lciklistar-
félag Menntaskólans við Hamra-
hlið annað verkefni sitt á þessum
vetri: leikritið „Vatzlav” eftir
Pólverjann Slawomir Mrozek.
Um 40 manns standa að sýning-
unni, þar af 27 sem leikarar.
Mrozek er ekki með öllu
Loks mun hljómsveitin Lands-
hornamenn leika fyrir dansi til kl.
2 um nóttina.
Sætaferðir verða með sérleyfis-
bilum Selfoss kl. 8.30 frá Árnesi
og Kirkjuvegi 7, Selfossi.
óþekktur hér á landi, þvi áður
hafa þrjú leikrit hans verið sýnd
hér: Tangó, A rúmsjó og Með-
göngutimi. A siðari árum hefur
Mrozek starfað i V-Evrópu, eink-
um i Frakklandi og V-Þýska-
landi. Karl Agúst Clfsson hefur
þýtt Vatzlav.
1 leikritinu segir frá þræli sem
kemst lifs af úr skipsstrandi, og
reynir að hefja nýtt lif i ókunnu
landi. Leikritið gerist ekki i
ákveðnu landi á ákveðnum tima,
heldur rikir þar timaleysa, og
einsog krakkarnir i Leiklistar-
félaginu sögðu: þetta eru aðal-
lega pælingar um hugtök einsog
vald, réttlæti og frelsi.
Leikstjóri er Andrés Sigurvins-
son. Lárus Björnsson hannaði
ljósin, en búninga og leikmynd
gerðu nemendur sjálfir. Með
helstu hlutverkin fara: Magnús
Ragnarson, Tryggvi Þórhallsson,
Guðný Björk Hauksdóttir,
Magnús Hákonarson, Margrét
Gunnlaugsdóttir, Sigriður
Guðmundsdóttir, Asráður
Haraldsson og Fahad Jabaly.
Sem fyrr segir verður frumsýn-
ingin i kvöld kl. 20.30 i hátiöasal
skólans. önnur sýning verður á
sunnudag, þriðja á mánudag og
sú fjórða á miðvikudag. Miðar
eru seldir i anddyri skólans, og
einnig er hægt að panta miða i
sima 39010 milli kl. 5 og 7 alla
daga.
Baráttusamkoma í Hveragerði
i Fjárhagsáætlun Akureyrarbœjar kominfram
1
Svigrúm til nýframkvæmda stöðugt minnkandi
Rætt við Soffiu Guðmundsdóttur bœjarfulltrúa á Akureyri
„Það ástand sem nú rlkir
varðandi kostnaðar. og verka-
skiptingu rikis og sveitarfélaga
er orðið óþolandi fyrir sveitar-
félögin. Tckjustofnar sveitar-
félaganna fara stöðugt minnk-
andi og þar meö svigrúmið til
nýframkvæmda. Þannig er það
alltaf minna og minna sem tek-
ist er á um við gerð fjárhags-
áætlana hjá sveitarfélögunum.
Það er ymis konar þjónusta sein
rikið hefur ýtt til sveitarfélag-
anna sem þau siöan hafa ekki
fjármagn til aö byggja upp. Þá
vilég sérstaklega nefna tilþjón-
ustu við börn og aldraða og
ýmsar nauðsynlegar nýfram-
kvæmdir. Ég er mjög undrandi
á að ekki skuli heyrast mót-
mælaraddir frá sveitarfélögun-
um vcgna þessa ástands”.
Þetta sagði Soffia Guðmunds-
dóttir bæjarfulltrúi á Akureyri
þegar Þjóöviljinn hafði sam-
band við hana i gær. Fjárhags-
áætlun Akureyrarbæjar var til
fyrri umræðu á þriöjudaginn
var og er óvenjulega seint fram
komin. Deildar meiningar voru
innan meirihlutans i bæjar-
stjórn og hefur fjárhagsáætlun-
in verið lengi i burðarliðnum.
Niðurstöðutölur eru rúmlega
hundrað og ein milljðn króna og
var meirihlutinn sammála um
að nýta heimildir til útsvars-
álagningar til fullnustu. Sjálf-
stæöismenn lögðust gegn þessu
og töldu of langt gengið i þess-
um efnum.
„Þetta er samdráttar-
áætlun”, sagði Soffia, ,,og hún
ber þess greinileg merki. Þaö
eru blikur á lofti i atvinnumál-
um hér,t.d. þarf að ráða fram úr
þeim vanda sem Skóverk-
smiðjan Iðunn er i. Bæjarstjórn
hefur lýst yfir vilja sinum til að
ráðið verði fram úr rekstrar-
örðugleikum fyrirtækisins og er
reiðubúin til viðræðna viö rikis-
valdið og forráðamenn i þvi
skyni”.
Soffia er formaður félags-
málaráðs Akureyrarbæjar og
þvi liggur beint við að spyrja
hvernig þeim málaflokkum sem
undir þaö heyra reiðir af i kom-
andi fjárhagsáætlun.
„Það er nú skemmst frá þvi
að segja aö þar er nú skoriö
niöur full duglega. Við fórum
fram á aö bæta við stööum i
heimilisþjónustu sem mest er
notuö af öldruðu fólki. Þetta
Soffía Guömundsdóttir.
fékkst ekki fram. Þetta er auð-
vitað mikið nauösynjamál þvi
að bætt heimilisþjónusta gerir
öldruðum kleift að búa lengur á
eigin heimilum og i þvi sam-
bandi má taka fram aö fleiri eru
á biðlista eftir plássi á elli-
heimili en nú búa þar.
Það stendur til að ljúka við
dagheimili, dagvistarstofnun, i
Siðuhverfi fyrir sumarið. Það
mátti nú ekki seinna vera þvi að
samkvæmt málefnasamningi
núv. meirihluta átti þvi að vera
lokið fyrir ári siðan. Þetta
fékkst bara ekki framkvæmt á
réttum tima þótt fjárveiting
væri fyrir hendi og peningarnir
til. Nú eru hugmyndir um nýja
dagvistarstofnun á mótum
Byggðavegar og Þórunnar-
strætis en það veldur vonbrigö-
um að eins og fjárhagsáætlunin
litur út núna er aðeins gert ráð
fyrir hönnunarframlagi upp á 50
Jhís. krónur. Þegar núv. meiri-
hluti var myndaður var lofað
átaki í dagvistarmálum. Allar
tillögur frá félagsmálaráði
varðandi þennan málaflokk
hafa verið skornar niður og
þetta þýöir að við verðum tveim
árum á eftir áætlun hvað dag-
vistunarmálin varðar. Nú eru á
fjórða hundrað börn hér á bið-
lista, en 300 börn hafa pláss á
dagvistarstofnunum i bænum.
Sama gerðist i sambandi viö
sundlaugina i Glerárhverfi. Þar
var aðeins ákveðið sama 50 þús-
und króna framlagið. Þetta er
mikið mál fyrir ibúana i hverf-
inu og ekki sistfyrir skólabörnin
að fá þessa sundlaug i gagnið.
Sama er að segja um menn-
ingarmálin að þar er reynt að
beita hnifnum, en þó eru aukin
framlög til myndlistarskólans,
það er bætt við húsnæði hans
svo að möguleiki verði á aö
starfrækja þar sýningarsal. Nú,
þá hefur verið séð vel fyrir þörf-
um tónlistarskólans og hann
hefur unnið sér fastan sess i
bænum”.
Hvað um menntamálin?
„Þar er nú fyrst til að taka að
við ákveðum að verja einni
milljón króna til nýs verk-
menntaskóla, það var orðið
brýnt að gera átak þar. Um
menntamál er það annars aö
segja að þar eru framlög mjög
bundin þótt ekki sé fyrir að
synja aö klóraö hafi verið i
bakkann með niöurskurð þar”.
Hvaða póstar standa þá eftir?
„Það er náttúrlega gatnagerð-
in sem er gifurlega fjárfrekur
liður og margir bæjarfulltrúar
telja nú gatnagerð og malbikun
vera mál nr. 1, 2 og 3. Það er
auðvitað i þennan lið sem hægt
er að sækja fé. Það er nú svo að
ef seinka þarf framkvæmdum,
þá sýnist eðlilegt að deila á lin-
una f staðinn fyrir að láta niður-
skurðinn mestmegnis bitna á
þeim málaflokkum sem ég hef
talað hér um. Það verður knúð á
um úrbætur, en það verður þá
auðvitað aðeins i formi til-
færslna-r niöurstöðutölum
verður ekki breytt”.
— í