Þjóðviljinn - 27.03.1981, Qupperneq 13
Æskulýðsfélag sósíalisfa
vegna hinna viötæku aögerða Samtaka herstöövaandstæöinga I kring-
um 30. mars. veröur ráöstefnu Æ.s. um utanrlkismál frestaö til laugar-
dagsins 25. april. Nánar sföar.
Stjórnin
erlendar
bækur
The Works of Lionel
Trilling: The Opposing
Self,
Nine Essays in Criticism. A
Gathering of Fugitives. Oxford
University Press 1980.
„The Opposing Self” er safn niu
meiriháttar ritgerða um skáld og
rithöfunda og þær breytingar sem
marka má i ritum þeirra um
sjálfsvitundina og tengsl þeirra
viö menningu sinna tima. Þessir
höfundar eru: Keats, Jane
Austin, Wordsworth, Tolstoj,
Dickens Flaubert Howells, Henry
James og Orwell. Trilling segir i
formála, að „sjálfsvitund hafi
verið mönnum eiginleg, að
minnsta kosti frá þvi að véfréttin
i Delfi réð mönnum að þekkja
sjálfa sig”, en sú sjálfsvitund,
sem Trilling telur að komi fram
sem sterkt einkenni seint á 18. öld
i bókmenntum og ljóðum, er að
hans mati annars eðlis og magn-
aðri en áöur var merkjanlegt i
verkum skálda og höfunda. Trill-
ing telur að aðaleinkenni þess-
arar nýju sjálfsvitundar, sé
„næmleiki og einnig viss fjörrun
frá menningu eigin tima og
sjálfsrannsókn og imyndunar-
afl...” Skáldin gerast sjálfhverf-
ari en áður. Bók þessi kom fyrst
út 1955 og er nú gefin út sem eitt
bindi ritverka Trillins, af Oxford
útgáfunni.
Lionel Trilling lést 1975 og var
þá talinn meðal merkustu gagn-
rýnenda og ritgerðahöfunda sem
rituðu á enska tungu. Hann fædd-
ist i Boston 1905. Stundaði nám
við Columbia háskólann og varö
siðan prófessor og hlaut margvis-
lega viðurkenningu fyrir störf sin
aö bókmenntarannsóknum bæði i
Bandarikjunum og viðar. Ýmsar
ritgerðir hans varðandi menn-
ingarmál og stefnur eru með þvi
betrasem ritað hefur verið um og
eftir miðja þessa öld.
Siðara bindið ,,A Gathering of
Fugitives” er safn tækifæris-
greina, sem ritaðar voru flest-
allar fyrir timaritið The Griffin.
Þær fjalla um tuttugustu aldar
rithöfunda, svo sem Santayana,
Freud, Robert Graves, C.P.Snow
ofl. ásamt viðfangsefnum þeirra
og Trillings. Þessar greinar voru
fyrst gefnar út i heild 1956 og eru
heimild um það sem Trilling þótti
athyglisverðast i boðskap þess-
ara höfunda og eru jafnframt
tjáning þess, sem þá var efst á
baugi.
Vikings.
Magnus Magnusson. The Bodley
Head 1980.
Höfundurinn er vel kunnur rit-
höfundur og sjónvarpsmaður hjá
BBC. Hann hefur skrifað rit um
ferðir vikinga og um fornleifa-
fræöi ásamt fjölmörgum þáttum
fyrir sjónvarp. Auk þessa hefur
hann þýtt nokkrar Islendinga-
sögur á ensku svo og skáldsögur
eftir Halldór Laxness.
Höfundurinn hefur til að bera
forsendur til þess að nálgast þessi
efni, fremur öðrum, vegna ætt-
ernis, enda gerir hann það. Hann
notar nýjustu heimildir um at-
hafnir vikinga sem voru engu
siður harðdrægir kaupmenn en
vikingar og ránsmenn. Kaup-
mennska og rán fóru oft saman á
þeim timum þegar hin fornu sam-
félög voru að gliðna og ummynd-
ast til nýrra hátta. Höfundur
leggur talsverða áherslu á þetta
atriði. Vikingaöldin svonefnda
stóð i tæpar þrjár aldir og þessir
raufarar ollu skelfingu og hryll-
ingi með þeim þjóðum, sem þeir
lögðust á og rændu og rupiuðu;
e.t.v. hafa þeir einnig verið at-
hafnamestu þrælaveiðarar og
þrælasalar á timabilinu 793—1066.
Þaö voru einkum Sviar sem
stunduðu þræiasöluna með mest-
um árangri austur i Garðariki og
til Araba og Konstantinópel.
Þegar þessari hryðju lauk, hófst
annaö timabil, þar sem afkom-
enda þessara ránsmanna gætti
mjög sem skipuleggjenda og
stofnenda rikja með nýju sniði.
Sem kaupmenn stofnuðu þeir til
nýrra borga og mikilla markaða
og þar að auki voru þeir mestir
landkönnuðir i Evrópu sam-
timans. Ný riki og þjóðir myndast
á vikingatimabilinu, jaðar Ev-
rópu tekur að byggjast og byggð
Vikinga eða afkomenda þeirra
náði til landa handan Dumbhafs.
Frásagnir múnka um aðgerðir
vikinga eru allar i eina átt, en það
voru afkomendur þeirra sjálfra
sem skráðu skilmerkilegast sögu
forfeðranna og með svo miklum
glæsibrag að vekur furðu. Þeir
settu sjálfum sér óbrotgjarnan
bautastein með þeirri iðju. Þótt
margir hafi lagt hönd að rann-
sóknum á arfleifö vikinganna, þá
ermargtóunnið og verður áfram,
t.d. samanburður á áhrifum vik-
inga i hinum ýmsu löndum, þar
sem mest gætti áhrifa þeirra.
íþróttir
Framhald af bls. 11.
tslenska liðið lék stórvel i
byrjun og lok leiksins, en greini-
legt er að leikmenn þess eru
þreyttir eftir erfiðar æfingar
undanfarna daga. Pétur átti
frábæran leik, jafnt i vörn sem
sókn. Finnarnir brugðu á það
ráö aö setja 2 menn á hann i
seinni hálfleik. Það segir vist
ansi mikiö. Þa var Torfi traust-
ur og Kristinn og Jón börðust
eins og ljón.
Stig tslands skoruðu: Pétur
28, Torfi 10, Simon 9, Jón 6,
Kristinn 4, Kristján 4, Valur 2 og
AgUst 2.
Stigahæstir Finna voru:
Saaristo 16, Kasko 12 og Lignell
12.
Liðin leika i Keflavik i kvöld
og hefst viöureignin kl. 20.
— IngH
Enginn samningur
Framhald af bls. 1
þvi hefði Benedikt Gröndal ekki
bundið tslendinga aö einu eða
neinu leyti i sinni ráöherratiö. Ef
til byggingar flugstöðvarinnar
kæmi þá þyrfti aö gera samning
við Bandarikjamenn m.a. hvað
varöaði not af flugstööinni á
neyöartima.
Það var Jón Baldvin Hanni-
baisson sem hóf umræðu um
málið á Alþingien hann situr þar I
forfölkim Benedikts Gröndals.
Oskaði hann eftir þvi að utan-
rikisráðherra gæfi yfirlýsingu um
málið svo hreinsa mætti Benedikt
Gröndal af þeim áburði að hann
hefði farið á bak við Alþingi og
rikisstjórn meö þvi að undirrita
samkomulag i júli 1979.
Ólafur Ragnar Grimsson sagð-
ist fagna þvi að áburður Morgun-
blaðsins á hendur Benedikt Grön-
dal I forystugrein heföi reynst til-
hæfulaus. Albert Guðmundsson
lýsti þeirri skoöun sinni að hann
teldi óeðlilegt að einhverjir aðilar
heföu neitunarvald um byggingu
flugstöðvarinnar á Keflavikur-
velli eins og væri i stjórnarsátt-
málanum. Sagðist hann telja
meirihluta vera fyrir þvi á Al-
þingi aö hafist yröi handa um
framkvæmdir við flugstöövar-
bygginguna.
I samtali við fréttamann út-
varps I gærkveldi lýsti utanrikis-
ráðherra þvi yfir að jafnvel þó að
þingið samþykkti að veita fjár-
magni til flugstöövarbyggingar á
lánsfjárlögum þá þyrfti að koma
til samþykki allra aðila rikis-
stjórnarinnar áöur en hafist yröi
handa um framkvæmdir, þ.e.
samþykki allrar rikisstjórnar-
innar myndi þurfa til þess að nota
hugsanlega heimild I lánsfjár-
lögum
— Þ
Föstudagur 27. mars 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Alþýðubandalagið á Akranesi — Árshátið
Laugardaginn ll.april verður haldin siðbúinn Góu-fagnaður i Rein og
liefst samkoman með borðhaldi kl. 19.30. Hátiðin er að þessu sinni hald-
in til heiðurs Jónasi Árnasyni fyrrv. alþingismanni, og konu hans Guð-
rúnu Jónsdóttur,og jafníramthelguðþviað20áreru núliðin frá opnun
félagsheimilis sósialista i Rein. Dagskráin nánar auglýst siðar. —
Skemmtinefndin.
Alþýðubandalagsfélag Selfoss og
nágrennis
Opinn fundur með Svavari Gestssyni, félags-
málaráðherra, verður að Kirkjuvegi 7, Selfossi,
sunnudaginn 29. marskl. 14e.h. Allir velkomnir.
— Stjórnin.
Svavar
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Almennur fundur um skipulagsmál verður haldinn i Skálanum mánu-
daginn 30. mars kl. 20.30
Sigurður Gislason og Páll Bjarnason arkitektar kynna aðalskipulag og
ibúðabyggingar i Hafnarfirði.
Félagar fjölmennið. — Bæjarmálaráö.
Alþýðubandalagið Akranesi
Félagsfundur
Mánudaginn 30. mars verður haldinn almennur félagsfundur i Rein kl.
20.30.
Fundarefni:
1. Fréttir af för bæjarfulltrúa til Norðurlanda.
2. Forvalsreglur AB
3. önnur mál. Stjórnin
Fundaröö Alþvöubandalagsins i Reykjavik um starf og stefnu flokks-
ins.
Niðurstöður fundaraðarinnar.
Siðasti fundurinn i fundaröð ABR um starf og stefnu flokksins verður
miövikudaginn 1. april á Grettisgötu 3. Fundurinn hefstkl. 20:30.
Á þessum fúndi verður reynt að taka saman hvað hafi tekist vel og hvað
illa Istarfi flokksins meö tilliti tilþess sem rætt var á fyrri fundum.
Félagar fjölmennið.
Einkum eru frummælendur og þátttakendur fyrri funda hvattir til aö
mæta.
Rauðsokkahreyfingin boðar til árs-
fjórðungsfundar laugardaginn 28. mars
kl. 14 i Sokkholti, Skólavörðustig 12.
Á dagskrá er m.a.: umræður um starfið
það sem af er vetri og það sem framundan
er, 1. mai, Forvitin Rauð, framtið mið-
stöðvar o.fl..
Fundurinn er öllum opinn en aðeins
félagar hafa atkvæðisrétt.
Rauðsokkahreyfingin
Föstudagur: Opið frá kl. 10—03.
Hljómsveitin Glæsir og diskó.
Laugardagur: Opið frá kl.
19—03. Hljómsveitin Glæsir og
diskó.
Sunnudagur: Opið frá kl. 19—01.
Gömlu dansarnir. Bragi Hlið-
berg og hljómsveit leika undir
af alkunnu fjöri.
SjnWiurinn
Borgartúni 32
Símj. 35355.
Föstudagur: Opiö frá kl.
22.30—03. Hljómsveitin Hver og
diskótek.
Laugardagur: Opið frá kl.
22.30—03. Hljómsveitin Hver og
diskótek.
Sunnudagur: Opið frá kl. 21—01.
Dúndrandi diskótek.
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
Simi 22322
BLÓMASALUR: Opið alla daga
vikunnar kl. 12—14.30 og
19—23.30.
VINLANDSBAR: Opiö alla daga
vikunnar, 19—23.30, nema um
helgar, en þá er opið til kl. 01.
Opið i hádeginu kl. 12—14.30 á
laugardögum og sunnudögum.
VEITINGABUÐIN : Opið alla
daga vikunnar kl. 05.00—21.00.
#HOTEL#
TSkálafeU 'simi 82200
FÖSTUDAGUR: Opið kl. 19—01.
Organleikur.
LAUGARDAGUR: Opiö kl.
12—14.30 og 19—23.30. Organleik-
ur.
SUNNUDAGUR: Opið kl.
12—14.30 og kl. 19—01. Organleik-
ur. Tiskusýningar alla fimmtu-
daga.
ESJUBERG: Opið alla daga kl.
8—22.
Sigtún
FÖSTUD AGUR: Opið frá kl.
22—03. Hljómsveitin Brimkló
diskótek og „Video-show”.
Grillbarinn opinn.
LAUGARDAGUR: Opið frá kl.
22—03. Hljómsveitin Brimkló,
diskótek og „Video-show”.
Grillbarinn opinn.
Bingó kl. 14.30 laugardag.
FöSTUDAGUR: Opið frá kl.
21—03. Hljómplötutónlist við allra
hæfi.
LAUGARDAGUR: Opið frá kl.
21—03. Meira fjör, komið
snemma og foröist biðraðirnar.
SUNNUDAGUR: Gömlu dans-
arnir frá kl. 21—01. Hljómsveit
Jóns Sigurðssonar svikur
engann!