Þjóðviljinn - 27.03.1981, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 27.03.1981, Qupperneq 15
Föstudagur 27. mars 1981 'ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15 Hringid i sima 81333 kl. 9-5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum Landverndarvísur „Vestri” sendi okkur eftir- farandi visur og baö um aö þær yrðu birtar meö baráttu- kveöjutil Páls á Höllustööum: Nú um húnvetnsk heiðarlönd hart er deilt og barist, allt frá dal og út að strönd er þar sótt og varist. Auragirnd er ekki smá upp hún mun þó spana. Húnvetningar hyggjast ná i hundrað miljarðana. Pálmi ötull aö þvi rær — óska hefur leiði — er i nöp við allt sem grær uppi á Kúluheiði. Bergljót hringdi: — Mig langar til að gera tvær athugasemdir við útvarpsdag- skrána. 1 fyrsta lagi er það hann Jónas Jónasson. Hann hefur þann leiöa sið að kynna lögin, sem hann spilar i þættinum sinum i miðdagsútvarpinu, alltaf á ensku. Við sem hlustum á hann erum alls ekki skyldug til að kunna ensku. Ég held hann hljóti að hafa nægan tima til að veljalögin og undirbúa þættina, og honum yrði áreiðanlega ekki Páll er vandi i vegi þar virðist ekki glaður. t sunnan-blöðum sagður var skelfing landsár maður. Þó að blási mjög á mót á manninn fær ei hrinið. Grær hér enn á gildri rót Guðlaugsstaða-kyniö. Uppistaðan ekki smá efst er nú við bauginn. Kraftaskáld þarf kalla á að kveöa niður drauginn. Grafin i djúp er Galtará, gremst henni vatnsins ok. „Kemur þá aldrei aftur sá sem orti Ferðalok?” skotaskuld úr þvi að þyða heitin á lögunum. Og svo er það Morgunpóstur- inn. Annaðhvort eru umsjónar- menn hans komnir i eitthvert timahrak eða þeir eru hættir að leggja sig fram, þvi að þeir eru farnir að tala alltof hratt og óskýrt. Ég þykist hafa sæmilega heyrn en ég missi oft úr hálfu og heilu setningarnar. Ég hef heyrt marga kvarta undan þessu sama. Mennirnir ættu þvi að taka sig á og fara að vanda sig. „Smávinir fagrir, foldar skart” finnast hér ekki meir, „brekkusóley við mættum margt” muna er landið deyr. Ef að Jónas ennþá hér ætti hlut að máli, hiklaust mynd’ann halla sér að Höllustaða-Páli. Vestri Neyðaróp Ellilifcyrisþegi hringdi: Hvar er allt þetta fólk sem búið er að tala og skrifa svo mikið um okkur gamla fólkið núna, þegar á aö fara að stytta dagskrá sjónvarpsins? Þetta er nú eina dægrastyttingin sem við höfum og sjónvarpiö er okkur mikils virði, sérstaklega þeim sem eru alein. Fólk sem er á faraldsfæti gerir sér alls ekki grein fyrir þvi hversu mikils virði þetta er. Hvar er t.d. hún Guðrún okkar Helgadóttir sem hefur unnið svo mikiðfyrir okkur gamla fólkið? Ég skora á hana að taka þetta baráttumál okkar upp. Ef fjárþröng er raunverulega skýringin, af hverju er þá ekki tekinn upp nefskattur á sjón- varpsgjöldum? Viða eru 3—4 fulloröniri'heimiliogþeir borga það sama og einn ellilifeyris- þegi fyrir sjónvarpið. Unga fólkið og fjölmenn heimili ættu að geta borgað meira en við. Athugasemdir við útvarpsdagskrána Barnahornid Hvað ft vantar? Á fleygiferð niður brekkuna i kassabiln- um... en myndirnar eru ekki alveg eins. Á þá neðri vantar nefni- lega fimm atriði, sem eru á þeirri efri. Geturðu fundið þau? Stjaman Reynið að fylgja eftir linunum sem mynda þessa stjörnu, án þess að fara tvisvar yfir sama staðinn. Þið getið byrjað hvar sem er, og dregið linu eftir braut- inni miðri með blý- anti — og gefist ekki upp fyrren þið eruð komin alla leið! Þolin- mæðin þrautir vinnur allar, einsog kerlingin sagði. I spegli fréttaima — Af erlendum vettvangi veröa þrjú efni i þættinum, sagöi ögmundur Jónasson, sem ásamt Helga E. Helga- syni annast Fréttaspegil i kvöld. — Þaö er þá fyrst Pól- land, og veröur fjallaö um ástandiö þar i ljósi vaxandi spennu siöustu daga, og um verkalýöshreyfinguna Sam- stööu scm ýmsir ætla aö ekki standi undir nafni um þessar mundir. Ég mun ræð.a viö tvo menn, sem báðir eru nýkomnir frá Póllandi og áttu viðtöl við framámenn Samstöðu, en þeir eru Hans Kristján Arnason og Haukur Már Haraldsson. I þættinum verður einnig gerð stuttleg grein fyrir nýstofnuðum jafnaðarmanna- flokki Bretlands, sem reyndar er formlega stofnaður i dag, og loks verður Suður-Afrika á dagskrá. Ég mun ræða við tvo menn sem dvalist hafa i Suður-Afriku, þá Hilmar Kristjánsson og Berharð Guðmundsson. Af innlendum vettvangi verður aðallega fjallað um vetrarrikið hér á landi, að sögn Helga E. Helgasonar. — Við skruppum norður, og tylltum fyrst niður fæti á isi- lagðan Kollafjörð og Barða- strönd, flugum siðan til Eyja- fjarðar, stöldruðum við á Ölafsfirði, ræddum við menn og reynum að bregða upp mynd af þessu mikla vetrar- riki sem enn er við völd. Þá verður rætt við Jónas Jónsson búnaðarmálastjóra um áhrif þessa vetrar á landbúnaðinn. Loks verða svo teknar til umræðu þær sveiflur sem orðið hafa á fisksölumálum tslendinga að undanförnu. Rætt verður við fulltrúa fryst- ingar, saltfisks og skreiðar og leitað svara við ýmsum spurn- ingum i sambandi við sölu- málin. Sjónvarp TT kl. 21,15 Bing Crosby leikur f föstudagsmyndinni. Garöur dr. Cook Föstudagsmynd sjónvarps- ins er ckki æltuö börnum. Hún lieitir „Garöur læknisins" (Dr. Cooks’s Gardcn) og er bandarisk byggö á leikriti eft- ir Ira Levin. Bing Crosby leikur aðalhlut- -verkið i myndinni. Aðrir leik- endur eru Frank Converse, Blythe Danner og Bethel Laslie. Myndin gerist i sveitaþorp- inu Greenfield, þar sem Cook 4Jj. Sjónvarp fý kl. 22,25 læknirhefurstarfað áratugum saman. Nýr læknir kemur til sögunnar og vill starfa með gamla lækninum, en sá gamli er tregur til. Eitthvað óhreint i pokahorninu hjá honum, ef aö likum lætur. — ib Allt í gamni Þótt ótrúlegt kunni aö viröast voru atriði einsog þetta tekin án þess aö öryggisnet væru notuð. ýC )a Sjónvarp Ty kl. 20,50 og fólk hefði ekki áhuga á þeim. Sjálfur átti hann nóg af peningum og þurfti ekki að lifa af gamalli frægð. En svo dó karlinn árið 1971 og siðan hafa margir upp- götvað han á nýjan leik, og myndir hans hafa fengið betri dreifingu. Mesjta aðdáun vek- ur Harold Lloyd fyrir fifldjörf uppátæki einsog það sem sjá má hér á myndinni og er i einni þekktustu mynd hans: Safety at Last, sem gerð var árið 1923. — ih Ilarold Lloyd kemur á skjáinn I kvöld, væntanlega öllum til ánægju og upplyft- ingar á þessum vctri, sem aldrei virðist að taka enda. Syrpan sem verið er að sýna er unnin úr gömlum myndum Lloyds. Á þriðja áratugnum var Lloyd talinn einn af þrem- ur bestu gamanleikurum Bandarikjanna — hinir tveir voru auðvitað Chaplin og Buster Keaton. En Lloyd var um árabil næstum alveg gleýmdur, og er sagt aö það hafi að mestu verið honum sjálfum að kenna. Hann sá nefnilega sjálfur um dreifingu mynda sinna og hafði fengið þá flugu i kollinn að þessar myndir væru orðnar úreltar

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.