Þjóðviljinn - 19.05.1981, Side 1
DIOOVIUINN
Þriðjudagur 19. maí 1981 —111. tbl. 46. árg.
Björgvin
til BÚR?
Fékk 5 atkvæði i útgerðarráði 1 gær
e;
80 gráðu heitt va tn flæddi um Þingholtin:
Gömul
aðveitu-
æð brast
fjórir brenndust
á fótum
Um hálf eitt leytið i gærdag
brast ein þriggja aðveituæöa
Hitaveitu Reykjavikur á gatna-
mótum Njarðargötu og Laufás-
vegar. 80 gráðu heitt vatn fossaði
um götuna og niður á Sóleyjar-
götu og Hringbraut og brenndust
þrjú börn og einn fullorðinn mað-
ur á fótum. Bruninn var 1. og 2.
stigs og fengu allir nema ein lftil
stúlka að fara heim eftir að gert
hafði veriö að sárum þeirra.
Að sögn Gunnars Kristinsson-
ar, yfirverkfræðings Hitaveitunn-
ar er þessi æð frá 1943 og hefur
hún gefíð sig á nokkrum stöðum
undanfarin ár. Hlýnandi veður og
minni notkun heita vatnsins veld-
ur auknum þrýstingi i plpunum
og ef tæringarblettur er á þeim
gefa þær sig við slikar aðstæður.
bað vakti athygli að nokkuð
langan tima tók að stöðva vatns-
flauminn og sagði Gunnar ástæð-
una þá að skrúfa þyrfti fyrir á
mörgum stöðum auk þess sem
æðin væri lengi að tæmast.
Flóðið rénaði uppúr eitt en
fram að þeim tima var neðsti
hluti Þingholtanna austanverðra
hulinn gufumekki og slysahætta
mjög mikil. Lögreglan stöðvaði
umferð um nálægar götur þar
sem gufan var mest,enda sá vart
út úr augum. Þeir sem brenndust
fengu að fara heim nema ein
stúlka sem brenndist upp að
hnjám. Enginn hlaut þriðja stigs
bruna. — AI
Hörð átök
á þingi
Evrópuráðsins
FuUtrúar
jTyrk-
j lands
i reknir
1 sögulegri atkvæða-
greiöslu á þingi Evrópuráðs-
ins sl. fimmtudag var sam-
þykkt með mjög naumum
meirihluta, eða 51 atkvæði
gegn 48 að reka Tyrkland af
þingi ráðsins. Þennan meiri-
hluta mynduöu vinstri menn
og ýmsir frjálslyndir þing-
menn, sem meö þessum
hætti vildu mótmæla valda-
ráni hershöfðingja I Tyrk-
landi. 1 kjölfar valdatöku
herforingjastjórnarinnar
hafa þúsundir manna verið
fangelsaðir vegna stjórn-
málaskoðanna sinna, sumir
pyntaðir og aðrir myrtir.
Lýðræði og skoðanafrelsi
er fótum troðiö I landinu, en
greinilegt er að Nato metur
hernaðaritök sin i landinu
meir en lýðræðið. Sjá nánar
viðtal við Ólaf Ragnar
Grimsson á bls. 5.'
— Bó
Það var enginn leikur að komast yfir beljandi vatnið á Njaröargötunni og strigaskór veittu
litla hlif gegn 80 gráðu heitu vatninu Ljósm. -eik.
Á fundi útgerðarráðs í
gær voru lagðar fram 7
umsóknir um starf fram-
kvæmdastjóra Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur í stað
Marteins Jónassonar, sem
hættir 1. október n.k.
Björgvin Guðmundsson,
formaður útgerðarráðs
hlaut 5 atkvæði og Vigfús
Aða Istei nsson, skrifstofu-
stjóri BÚR 1 atkvæði. Einn
sat hjá.
Auk Björgvins og Vigfúsar
sóttuum starfið Jakob Helgason,
fulltrúi sýslumanns á Patreks-
firði og Hans Sigurjónsson, út-
gerðarstjóri ögurvlkur, en þrir
umsækjendur óskuðu nafnleynd-
ar. Björgvin hlaut fimm atkvæði,
fjögur frá meirihluta útgerðar-
ráðs og ennfremur atkvæöi Þor-
steins Glslasonar skipstjóra sem
er einn þriggja fulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins. Einar Thoroddsen,
annar fulltrúi flokksins sat hjá en
sá þriðji, Ragnar Júliusson
greiddi VigfUsi Aðalsteinssyni at-
kvæði sitt.
Björgvin Guðmundsson sagði I
samtali við Þjóðviljann i gær að
ekkert væri ákveðið um það
hvernig hann drægi sig Ut Ur
borgarstjórn en ljóst er að hann
verður ekki I kjöri þar næsta vor
ef borgarráð og borgarstjórn
samþykkja tillögu útgerðarráðs.
Björgvin er sem fyrr segir for-
maður Utgerðarráðs og hlýtur
hann að láta af þeirri stöðu verði
hann ráðinn framkvæmdastjóri
fyrirtækisins. Þá er hann einnig
formaður hafnarstjórnar auk
þess sem hann situr i borgarráði.
Borgarráð f jallar um ráðningu
framkvæmdastjóra BÚR i dag,og
risi þar ágreiningur um málið fer
það til borgarst jórnar n.k.
fimmtudag.
- AI
Læknaþjónustan sf. kynnir taxta sína:
2520 kr. fyrir útkallið
Þreföld ráðherralaun fyrir 40 stunda dagvinnu
Þessu félagi er ætlað að
veita yfirlæknum og
stjórnendum spítalanna
fyrirgreiðslu þannig að
spítalarnir geti veitt þá
þjónustusem þörf er á eft-
ir að læknarnir eru hættir,
sagði Jóhann Heiðar Jó-
hannsson, læknir, for-
maður Læknaþjónust-
unnar sf — verktakafélags
lækna, sem stofnað var sl.
laugardag. I bréfi sem
Læknaþjónustan sf. sendi
yfirlæknum og stjórnend-
um ríkisspíta lanna,
Borgarspítalans og Landa-
kots í gærmorgun eru
gefnir upp taxtar félags-
manna en þeir eru
aðstoðarlæknar og sér-
fræðingar sem sagt hafa
upp störfum sínum á þess-
um sjúkrahúsum. Eitt
dag v in n uú tka 11 sér-
fræðings kostar 2.520 krón-
ur og dagvinnuútkall
aðstoðarlæknis 1.764
krónur.
Vart mun reyna á þjónustu
félagsins fyrr en undir mánaða-
mótin, þvi þangað til munu
læknarnir vera að tínast út nokkr-
ir á dag, en hvert útkall I dag-
vinnu reiknast 6 klukkustundir og
er timi sérfræðinga seldur á 420
krónur og aðstoðarlækna á 294
krónur. Útkall á gæsluvakt
reiknast sem 2 klukkustundir og
útkall utan dagvinnumarka sem
fjórar klukkustundir. Eftirvinnu-
tími sérfræðings kostar 630
krónur og aðstoðarlæknis 441
krónu. Hver timiá gæsluvakt (án
útkalls) reiknast sem þriðjungur
úr klukkustund þ.e. 140 kr. fyrir
sérfræðing og 98 kr. fyrir
aðstoðarlækni.
Samkvæmt þessum töxtum er
átta stunda vinnudagur sér-
fræðings I dagvinnu metinn á
3.360 krónur og aðstoðarlæknis á
2.352 krónur. An allrar yfirvinnu
kostar vinnuvika sérfræðings þvi
16.800 krónur og 11.760 hjá
aðstoðarlækni. Mánaðarlaun
yrðu þá 67.200 krónur og 47.040
krónur án nokkurrar yfirvinnu
eða gæsluvakta eða þreföld ráð-
herralaun!
Jóhann vildi ekki tjá sig um
þessa taxta sem blaðamaður
aflaði sér hjá framkvæmdastjóra
eins sjúkrahússins i gær og gerði
hvorki að neita né játa að þeir
væru réttir. Þó sagði hann að hér
væri ekki aðeins um laun að ræöa
heldur einnig rekstrarkostnað
fyrirtækisins, en ekki væri hægt
aö svara því á þessu stigi hver
rekstrarkostnaðurinn yrði.
Þá sagði Jóhann að ekki væri
hægt að framreikna taxtana eins
og um reglubundna vinnu yrði að
ræða. Reikna mætti með þvl að
vinna minnkaði á sjúkrahúsunum
og óvíst væri hvort menn yrðu
kallaðir Ut ednu sinni I viku eða
jafnvel sjaldnar.
1 bréfi Læknaþjónustunnar sf.
kemur fram að reikningar verða
sendir Ut vikulega og verður
greiðsla að berast innan viku frá
útsendingardegi. Sagði Jóhann að
leitaö yrði lögfræðilegrar
aðstoðar við innheimtu reikninga
ef þeir fengjust dcki greiddir.
— AI.
Getum ekkí gengið að þessu
segir Svavar Gestsson, heilbrigðisráðherra
Við munum gera allt sem við
getum til að koma I veg fyrir aö
fjöldauppsagnir læknanna komi
niður á starfsemi sjúkrahúsanna,
sagði Svavar Gestsson, heilbrigð-
isráðherra I gærdag en rlkis-
stjórnin mun I dag fjalla um þær
^afleiðingar sem uppsagnirnar
kunna aö hafa.
Svavar sagðist reikna með þvl
að yfirlæknar sjúkrahúsanna
myndu kalla inn lækna I einstök-
um tilvikum eftir þvl sem þörf
krefði en hins vegar gætu heil-
brigöisyfirvöld ekki gengiö að
einhverjum töxtum sem menn
settu úti i bæ. Kjarasamningur
ríkisins og Læknafélags Islands
er enn I gildL sagði Svavar, og I
þessu þjóðfélagi er venjan að
o o tv» in o A