Þjóðviljinn - 17.06.1981, Page 3
Miövikudagur 17. júnl 1981 ÞJÖÐVILJINN — StÐA 3
Það þarf ekki að spyrja að dugnaðinum hjá
trésmiðunum sem þessa dagana keppast við
að endurbyggja endahús Bernhöftstorfunnar
að Bankastræti 2. AAyndin til vinstri var tekin
síðasta föstudag þegar búið var að rífa utan af
öllu húsinu. — [ blíðunni í gær var langt komið
með að klæða húsið að utan og búið að setja
nýtt járn á þakið, svo óðum styttist i að húsið
fái sína upprunalegu mynd að utanverðu, en
ennþá er mikið verk fyrir höndum innandyra.
—Ig. AAyndir —eik.
Friðargangan mikla í Evrópu
"7
Islendingar
í Höfn einnig
meö aðgerðir
Vettvangskönnun fyrir sumarferð: i
j Sól og blíða i
j í Mörkinni
Nú styttist i sumarferð Alþýðubandalagsins i Reykjavik og um I
t siöustu helgi fór vaskur hópur austur i Þórsmörk til að kanna þar 1
allar aðstæöur. Vegna anna gat Jón Böövarsson skólameistari
sem verður aðalfararstjóri ekki farið með, en i hans stað stjórn-
aði Finnur Torfi Iljörleifsson leiðangrinum. Finnur og Jón gjör- I
þekkja Mörkina, enda voru þeir i eina tið þar skálaverðir um 1
sumur.
„Þessi ferð var eins og svo margar fyrri Merkurferðir,” sagði
Finnur Torfi i samtali viö blaöiö i gær. „Maður leggur af stað úr I
Reykjavik i rigningu og kalsa en þegar komið er upp á Kamba- ■
brúnsér maður bjarma fyrir sól i austri á milli jöklanna þar sem I
Þórsmörkin er. Og þegar þangaö kemur þá tekur hún á móti
manni með sól og bliðu. Þannig var þetta lika á laugardaginn.”
Finnur sagði að sér virtist gróður i Þórsmörk allvel á veg kom- 1
inn. Birkið væri orðið allvel laufgað en viðirinn væri eins og allt-
af heldur seinna á ferðinni.
„í:g vil minna fólk á að veðrið hér i Reykjavik ætti ekki að
aftra þvi að drifa sig i þessa ferð,” sagði Finnur Torfi, „og svo '
Ivil ég lika minna á að i Þórsmörkinni er viðkvæmt land sem þvi
miður hefur ekki alltaf veriö nægu sómi sýndur af þeim sem þar
hafa átt viðdvöl.”
Atvinna skólafólks:
AUKA-
FJÁRVEITING
Kaupmannahöfn veröur
upphafsstaður friöargöng-
unnar miklu um Evrópu 21.
júni. Þar hefst gangan með
fjöldafundi á Ráðhústorgi
þar sem reiknað er með að
fólk frá flestum löndum
V-Evrópu verði saman
komið. Stjórn náms-
mannafélags islendinga í
Kaupmannahöfn gengst
fyrir aðgerðum landa á
umgetnum fundi.
íslendingarnir hyggjast dreifa
fjölriti, þar sem vakin er athygli á
kröfunni um kjarnorkuvopna-
laust tsland, en frændur vorir á
Norðurlöndum hafa stundum
viljaö gleyma fslandi i upp-
talningu þeirra landa sem kref-
jast kjarnorkuvopnalauss
Norðurs.
„Til allrar hamingju
hefur ekki orðið vart við
fleiri tilfelli af þessari
matareitrun hér á Sauðár-
króki, og við því vongóðir
aðþessi eitrun sé yfirgeng-
in", sagði Óskar Jónsson
læknir á Sauðárkróki í
samtali í gær.
Óskar hefur aö undanförnu
safnaö sýnum úr verslunum á
Króknum og i nágrenni og einnig
af heimili barnanna þriggja sem
fengu eitrunina i siöustu viku.
Enn hefur ekkert komiö i ljós sem
skýrt getur orsök eitrunarinnar,
en að sögn Óskars veröa sýnin öll
send til frekari rannsóknar i
Bandarikjunum, og endanlega
niðurstöður munu þvi ekki liggja
Frá fjöldafundinum á Ráðhús-
torginu verður gengið um borgina
og staldrað á nokkrum stöðum og
fundað.
Fjölmargir rithöfundar og
listamenn hafa sent frá sér á-
skoranir til þjóðar sinnar um að
styðja þessa friöargöngu en
stuðningur við friðaraðgerðirnar
nær langt inn i raðir borgaralegra
afla. Meðal ræðumanna er þing-
maður socialdemokrata og
danskir Framsóknarmenn (Radi-
kale Venstre) eru meðal
dyggustu stuðningsmanna.
fslendingar i Kaupmannahöfn
ætla einnig að vekja athygli á
friðargöngunni frá Keflavik til
Reykjavikur 20. júni (daginn
áður) sem framlagi þjóðarinnar
til baráttunar fyrir kjarnorku-
vopnalausri Evrópu, frá Póllandi
til Portúgal.
Ó.G./ká
fyrir, fyrr en siöar i sumar.
Börnin þrjú sem sýktust, liggja
enn á Landakotsspitala og eru á
batavegi, að visu hægum, en
Óskar sagði að einkenni þessarar
miklu eitrunar væri mikill hiti og
siðan hægur bati sem gæti tekið
jafnvel nokkrar vikur en yrði sið-
an algjör.
Þessarar tegundar eitrunar
hefur aldrei verið vart hér á landi
áður en hún nefnist boutulismus,
og sagöi Óskar að heilbrigðisyfir-
völd hér stæðu alveg tóm fyrir þvi
hvar eitrunarinnar væri að leita,
en hún er einnig nær óþekkt á
Norðurlöndum.
1 Bandarikjunum hefur eitrunin
hins vegar oft verið rakin til
bakteriunnar clostridium opulini,
en hún myndar eitur i niðurlögð-
um matvælum úr heimahúsum.
-lg.
Borgarráð samþykkti i gær
nýja viðbótarfjárveitingu vegna
atvinnu skólafólks að upphæð kr.
450 þúsund nýkrónur. Dugir sú
fjárveiting fyrir atvinnu fyrir 20
unglinga i átta vikur en nýlega
var veitt tifaldri þeirri upphæð til
viðbótar við það sem áður hafði
verið samþykkt. Hagur atvinnu-
lausra skólakrakka á þvi að fara
að vænkast, enda ekki seinna
vænna þegar komið er fram i
miðjan júni.
— AI
Með
nesti
og
góða
skó
Nú eru aðeins þrir dagar þar til
Friðargangan 1381 frá Keflavik
til Keykjavikur hefst. Það er eins
gott að fara að huga að undirbún-
ingi, einkum og sér i lagi skófatn-
aði, klæðnaði og nesti.
Það helur margur brennt sig á
þvi að kaupa nýja skó fyrir
göngulerðir og enda meö hæl- og
tásæri, haltir, sárir og gráti nær.
Þaulæfðir herstöðvaandstæðing-
ar brenna sig ekki á sliku, annað
hvort er að ganga skóna til nú
strax eða draga fram góða og
gilda gönguskó. Það sakar ekki
að fara i göngulerðir til aö liðka
sig aðeins, áður en kemur aö
lokaátakinu.
t Friðargöngunni verða læknar
með i för og verða þeir auðkennd-
ir sérstaklega.
Nestið skiptir miklu máli, þvi
eins og menn vita er fátt
skemmtilegra en að snæða úti i
náttúrunni i góöum hópi. Bilar
verða meö sem selja drykkjar-
föng og i Kúageröi veröur hituð
súpa, til að auka kraft og þor.
Óþarfi ætti að vera að minna á
góða umgengni alls staðar þar
sem farið er um; hafiö ruslapoka
meðferðis, skiljið ekkert eftir og
hlifiö viökvæmum gróðri.
Klæðnaður þarf að miðast við
að allra veðra sé von, léttur hlifö-
arfatnaður, góðar buxur og hlý
peysa. Það verður hægt að koma
fötunum fyrir i rútunum ef sólin
tekur upp á þvi að skina.
200 lóðir undir
verka-
mannabústaði
1 gær var i borgarráði sam-
þykkt fyrirheit til stjórnar Verka-
mannabústaða i Reykjavik um
lóðir undir 200 ibúðir á bygginga-
svæðum næsta árs. Ennfremur
var samþykkt að fulltrúi stjórn-
arinnar tæki þátt i skipulagsvinnu
á viðkomandi svæðum. _
Börnin frá Sauðárkróki á batavegi
Ekkert fundið sem
skýrir eitrunina
Friðargangan 20. júní
Skráning í símum: 17966 og 19656