Þjóðviljinn - 17.06.1981, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 17.06.1981, Blaðsíða 19
MiOvikudagur 17. júni 1981 ÞJOÐVILJiNN — StÐA 19 Upp til skákskóla er skeiðað Það hefur dregist úr hömlu að gera skákstofnuninni austur á Kirkjubæjarklaustri skil hér i skákdálkum Þjóðviljans. Þeir, sem dunda við að setja saman greinar um þetta efni fvrir blöð, geta alls ekki látið það hjá liða, og i tilviki greinarhöfundar væri glæpurinn óvenjulega stór. þvi að svo átti að heita ab hann væri einn af kennurum þessa skóla, sem hófst sunnudaginn 17. mai og lauk viku siðar. Skákskólinn á Kirkjubæjar- klaustri er hreint ótrúlegt fyrir- bæri, kemur nánast fullmótaður eins og þruma úr heiðskiru lofti i skáklif landsmanna. Þegar skóla- skákmótin hófu innreið sina snemmaárs 1979 var keppt til úr- slita i yngri og eldri flokkum i heimavistarskólanum á Klaustri Nokkrum skólapiitum mun hafa liöst bærilega á allar aðstæður við skólann og stungu þvi að skólastjóranum, Jóni Hjartar- syni, hvort ekki mætti gera nokkurt framhald á. Ekki fer fleiri sögum af þeim viðræðum. Skólapiltarni r héldu til sins heima. en skólastjórinn lagðist undir feld. Þegar upp var staðið var gengið rösklega til verks. Hóað var i einn af betri skák- Umsjón Helgi Olafsson mönnum þjóðarínnar, Jóhann örn Sigurjónsson, sitthvað skegg- rætt, og brátt barst ungum skák- vinum, alls staðar annars staðar en úr Reykjavik, sú frétt að komið yrði á fót skákæfingabúð- um að Kirkjubæjarklaustri þetta sama vor. 1 ár var þessi skóli haldinn i þriðja sinn með allnokkuð breyttu formi, eins og vera ber. Kennur- um hefur verið fjölgað talsvert. Aðviðbættum Jóhanni, sem einn- ig var með i leiknum vorib 1980, þá leiðbeindu þarna auk greinar- höfundar þeir Guðmundur Sigur- jónsson stórmeistari og Bragi Kristjánsson. Það er vfst óhætt að mæla með Kirkjubæjarklaustri sem heppi- legum stað undir æfingabúðir af þessu tagi. Skólinn er snilldarlega i sveit settur með Skaftá i hlut- verki bæjarlækjarins, viða velli þar hjá, — sem sumir hverjir breyttust þvi miður i moldarflag vegna knattspyrnuiðkana. Þarna i námunda voru nunnur með klaustur hér fyrr á árum, og af þvi dregur bæði foss og stapi nafn, þ.e. Systrastapi og Systra- foss. Ekki lærði greinarhöfundur meira i landafræði þann alltof stutta ti'ma sem staðnæmst var, en ekki sakar að geta þess i fram- hjáhlaupi. að þarna gekk Erró um með mal og prik á æskuárum sinum og hefur það örugglega ekki reynst honum ónýtt vegar- nesi. Þáttur skáklistarinnar var með ýmsu mótiá Klaustri. Fjöltefliog fyrirlestra um hitt og þetta bar þar hæst. Undir lok skákvikunnar komu Guðmundur Arnlaugsson og frú á staðinn, og á sinn skemmtilega hátt leiddi Guð- mundur nemendur inn i leyndar- dóma skákþrauta og dæma af ýmsu tagi. Meðfram skákkennsl- unni var skotið inn iþróttatimum, sem Birgir Einarsson, iþrótta- kennari og þekktur knattspyrnu- maður, hafði umsjón ,með. Kenndi ýmissa grasa i meðhöndl- un hans á þeim flokki mála. Þegar itroðslunni var sleppt og piltarnir (i skólanum var ein stúlka) höfðu úðaö i sig kvöld- verðinum, með þvi sem þeir lömdu hraðskák, var tekið til við alvörunnar mál, skákmótið þar sem keppt var um glæsileg verð- laun, far til New York (og til baka) þar sem Collins-krakkar verða heimsóttir. Allir nemendur skólans tóku þátt i keppninni, og voru tefldar 7 umferðir eftir Mon- rad-kerfi og umhugsunartiminn með sama hætti og tiðkast hefur i helgarmótunum. Eftir geysiharða keppni stóð Amór Björnsson frá Iteykjavik uppi sem sigurvegari. Hann var ásamt Halldóri G. Einarssyni frá Bolungarvik sigurstranglegastur, en hættan kom þó úr annarri átt. Þar var á ferðinni tsfirðingurinn Guðmundur Gislason sem i raun og veru hefði ekki siður átt sigur- inn skilið. Greinarhöfundur sá marga bráðefnilega skákmenn i þessum hópi, aðeins misjafnlega á veg komna á sviði þekkingar- innar, og þvi er það e.t.v. ekki sanngjarnt að taka einn út fyrir aðra. Hins vegar hafði þessi pilt- ur skemmtilegt blik i augum, og sókndjarfari ungur skákmaður er vandfundinn. Hann kom heldur ekki beint Ur skóla eins og allir hinir, heldur hafði staðið upp á rönd í einu af frystihúsum fsfirð- inga til þess að geta haft náðuga daga í Menntaskólanum vestra næsta vetur! 1 lok skákskólans voru veitt verðlaun fyrir góða frammistöðu á fjölmörgum sviðum skákar og iþrótta. t lokin dró svo Guðmund- ur Amlaugsson út nafn nafna sins Gislasonarog kemst hann til New York á sömu kjörum og Arnór. Hanná lokaorðiö i þessum þætti i einni af Urslitaskákum mótsins á Klaustri. Skákin vitnar vel um hina miklu sókndirfsku Guð- Kennarastöður Lausar eru til umsóknar tvær stöður kennara við grunnskólann i Búðardal. Kennslugreinar: Almenn kennsla i grunn- skóla, kennsla i raungreinum efri bekkja grunnskóla, iþróttir og tónmennt. Umsóknarfrestur rennur út 22. júni n.k.. Upplýsingar gefa Jóhannes Benediktsson og Marteinn Valdimarsson i simum 95- 4229 Og 95-4132. Grunnskólinn Búðardal mundar þó ekki séu fetaðar troðnar slóðir. Hann er nefnilega einn þeirra sem láta sig litlu varða hámóðins teóriur. Hvort það stafar af hreinu og beinu þekkingarleysi skal ósagt látið. E.t.v. veit hann sem er, að dægurfluga er dauð að kvöldi. llvftt: Guðmundur S. Gislason (isafirði) Svart: Halldór G. Einarsson (Bolungarvik) Kóngsindversk vörn. 1. d 4 Rf6 11. Rfl 1) c 7 2. Rf3 g*> 15. R e3 Hb8 3*g3 Bg7. 16. h l h5 4.BS2 0-0 17. c4 bxc4 5. (M) d6 18.R xc4 Re6 6.c3 Rbd7 19. dxe5 dxe5 7. Hel e5 20. b3 Rd4 8. 04 He8 21.R xd4 exd4 9. Bg5 h6 22. f4 Bgl 10.B xf6 Bxf6 23. Hcl Hbc8 11. Rbd2 Bg7 24. e5 Bf8 12. I)c2 13. Iladl Rf8 C(> 25. Rd2 Bbt (Það er hér sem skákin fer að hafa verulegt gildi. Það má auð- vitað segja sem svo, að biskupinn hefði betur heima setið og gætt hins veiklundaða kóngs sins. En það er ekki málið. Við hefjumst handa einmitt á þessum punkti, þvi það sem á eftir fer er sýni- kennsla i vel útfærðri sókn.) 26. Re4! Bxel 27. Rf6+ KhS( ?) (Nákvæmara var 27. — Kg7, þvi hvitur á hvort eð er alltaf kost á þvi að hirða skiptamuninn til baka. Af kóngsleiknum hlýst leik- tap og einn letkur til eða frá getur hæglega skipt sköpum.) 28. Hxel! (Hviturkærir sig ekki um að ná i skiptamuninn, enda er riddarinn á f6 geysiöflugt verkfæri sóknar- aðgerða. Nú hefði svartur átt að leika 28. — Dal sem skapar hon- um mótspilsmöguleika.) 28. ... Bf 5 29. Dd2 HdX 30. íí4! (Sóknin er tekin að rúlla.) 30. ... Bd7 31. f 5! Kg7 (Svartur virðist enn eiga mögu- leika á að verjast. þvi hér má spyrja: Hvernig skal sókninni haldið áfram? — Guðmundur finnur afar sannfærandi svar við þeirri spurningu.) 32. fxg6 fxg6 33. li5: (Mergurinn málsins er sá aö 33. — g5 er svarað með 34. Dd3 og svartur er glataður.) 33. ... Be6 (Guðmundur hugðist svara 33. — Be8 með 34. g5! o.s.frv.) 34. hxg6 Hf8 (Mér er tif efs að betri vörn finn- ist.) 35. Rh5+ KxgO 39.BÍ5! I)d8 36. Be4 + Kf7 40. Rf6+ Hxf6 37.1)xh6 Ke7 41.exf6 Bxf5 38. Dg5+ Kd7 42 Dxf5+ Kc7 (Og hver er nú stysta leiðin aö settu marki?) 43. Da5+! Kh8 (Eða 43. — Kd6 44. De5+ Kd7 45. Dxd4+ Kc7 46. Dxa7+ Kd6 47. Hdl+ og drottningin fellur.) 44. Dxd8 Hxd8 45. f7 ! — Hér lagði Halldór niður vopnin! Hann hefur sýnilega eignast keppinaut á Vestfjarðakjálk- anum. ® ÚTBOÐ^ Innkaupastofnun Reykjavikurborgar óskar eftir tilboð- um i jarðvinnu vegna nýbyggingar viö Sundlaugar Reykjavikur i Laugardal. Tilboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frikirkjuvegi 3, gegn 1500 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 25. júni kl. 11. f.hád. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVíKURBORGAR Fnkirk|uvegi 3 — Sími 25800 ÚTBOÐ Vegagerð rikisins óskar eftir tilboði i lagningu siitlags á Suðurlandsveg. Leggja skal oliumöl og finjafna burðarlag á um 6 km kafla frá Strandarsiki að Hvolsvelli. Breidd akbrautar 6,5 m. Útboðsgögn verða afhent hjá aðalgjald- kera Vegagerðar rikisins, Borgartúni 5, frá og með föstudeginum 19. júni, gegn 500 kr. skilatryggingu. Fyrirspurnir ásamt óskum um upp- lýsingar og breytingar skulu berast til Vegagerðar rikisins skriflega, eigi siðar en 25. júni. Gera skal tilboð i samræmi við útboðs- gögn og skila i lokuðu umslagi merktu nafni útboðs til Vegagerðar rikisins, Borgartúni 7,105 Reykjavik, fyrir kl. 14:00 hinn 29. júni 1981,og kl. 14:15 sama dag verða tilboðin opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Reykjavík, i júni 1981. Vegamálastjóri. REYKJAVÍK, í JÚNí 1981, VEGAMÁLASTJÓRI. Á þjóðhátíðar- daginn sendum við félagsmönnum og öðrum viðskiptavinum kveðjur og árnaðaróskir. Treystum samvinnustarf — verslum i kaupfélaginu. KAUPFELAG HAFNFIRÐINGA Samvinnumenn Þeir sem versla i kaupfélaginu efla eigin hag og byggðarlagsins. Sendum félags- mönnum og landsmönnum öllum bestu kveðjur i tilefni þjóðhátiðar 17. júni. Kaupfélag Langnesinga, Þórshöfn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.