Þjóðviljinn - 17.06.1981, Qupperneq 19
MiOvikudagur 17. júni 1981 ÞJOÐVILJiNN — StÐA 19
Upp til
skákskóla
er skeiðað
Það hefur dregist úr hömlu að
gera skákstofnuninni austur á
Kirkjubæjarklaustri skil hér i
skákdálkum Þjóðviljans. Þeir,
sem dunda við að setja saman
greinar um þetta efni fvrir blöð,
geta alls ekki látið það hjá liða, og
i tilviki greinarhöfundar væri
glæpurinn óvenjulega stór. þvi að
svo átti að heita ab hann væri einn
af kennurum þessa skóla, sem
hófst sunnudaginn 17. mai og lauk
viku siðar.
Skákskólinn á Kirkjubæjar-
klaustri er hreint ótrúlegt fyrir-
bæri, kemur nánast fullmótaður
eins og þruma úr heiðskiru lofti i
skáklif landsmanna. Þegar skóla-
skákmótin hófu innreið sina
snemmaárs 1979 var keppt til úr-
slita i yngri og eldri flokkum i
heimavistarskólanum á Klaustri
Nokkrum skólapiitum mun hafa
liöst bærilega á allar aðstæður
við skólann og stungu þvi að
skólastjóranum, Jóni Hjartar-
syni, hvort ekki mætti gera
nokkurt framhald á. Ekki fer
fleiri sögum af þeim viðræðum.
Skólapiltarni r héldu til sins
heima. en skólastjórinn lagðist
undir feld. Þegar upp var staðið
var gengið rösklega til verks.
Hóað var i einn af betri skák-
Umsjón
Helgi
Olafsson
mönnum þjóðarínnar, Jóhann
örn Sigurjónsson, sitthvað skegg-
rætt, og brátt barst ungum skák-
vinum, alls staðar annars staðar
en úr Reykjavik, sú frétt að
komið yrði á fót skákæfingabúð-
um að Kirkjubæjarklaustri þetta
sama vor.
1 ár var þessi skóli haldinn i
þriðja sinn með allnokkuð breyttu
formi, eins og vera ber. Kennur-
um hefur verið fjölgað talsvert.
Aðviðbættum Jóhanni, sem einn-
ig var með i leiknum vorib 1980,
þá leiðbeindu þarna auk greinar-
höfundar þeir Guðmundur Sigur-
jónsson stórmeistari og Bragi
Kristjánsson.
Það er vfst óhætt að mæla með
Kirkjubæjarklaustri sem heppi-
legum stað undir æfingabúðir af
þessu tagi. Skólinn er snilldarlega
i sveit settur með Skaftá i hlut-
verki bæjarlækjarins, viða velli
þar hjá, — sem sumir hverjir
breyttust þvi miður i moldarflag
vegna knattspyrnuiðkana. Þarna
i námunda voru nunnur með
klaustur hér fyrr á árum, og af
þvi dregur bæði foss og stapi
nafn, þ.e. Systrastapi og Systra-
foss. Ekki lærði greinarhöfundur
meira i landafræði þann alltof
stutta ti'ma sem staðnæmst var,
en ekki sakar að geta þess i fram-
hjáhlaupi. að þarna gekk Erró
um með mal og prik á æskuárum
sinum og hefur það örugglega
ekki reynst honum ónýtt vegar-
nesi.
Þáttur skáklistarinnar var með
ýmsu mótiá Klaustri. Fjöltefliog
fyrirlestra um hitt og þetta bar
þar hæst. Undir lok skákvikunnar
komu Guðmundur Arnlaugsson
og frú á staðinn, og á sinn
skemmtilega hátt leiddi Guð-
mundur nemendur inn i leyndar-
dóma skákþrauta og dæma af
ýmsu tagi. Meðfram skákkennsl-
unni var skotið inn iþróttatimum,
sem Birgir Einarsson, iþrótta-
kennari og þekktur knattspyrnu-
maður, hafði umsjón ,með.
Kenndi ýmissa grasa i meðhöndl-
un hans á þeim flokki mála.
Þegar itroðslunni var sleppt og
piltarnir (i skólanum var ein
stúlka) höfðu úðaö i sig kvöld-
verðinum, með þvi sem þeir
lömdu hraðskák, var tekið til við
alvörunnar mál, skákmótið þar
sem keppt var um glæsileg verð-
laun, far til New York (og til
baka) þar sem Collins-krakkar
verða heimsóttir. Allir nemendur
skólans tóku þátt i keppninni, og
voru tefldar 7 umferðir eftir Mon-
rad-kerfi og umhugsunartiminn
með sama hætti og tiðkast hefur i
helgarmótunum.
Eftir geysiharða keppni stóð
Amór Björnsson frá Iteykjavik
uppi sem sigurvegari. Hann var
ásamt Halldóri G. Einarssyni frá
Bolungarvik sigurstranglegastur,
en hættan kom þó úr annarri átt.
Þar var á ferðinni tsfirðingurinn
Guðmundur Gislason sem i raun
og veru hefði ekki siður átt sigur-
inn skilið. Greinarhöfundur sá
marga bráðefnilega skákmenn i
þessum hópi, aðeins misjafnlega
á veg komna á sviði þekkingar-
innar, og þvi er það e.t.v. ekki
sanngjarnt að taka einn út fyrir
aðra. Hins vegar hafði þessi pilt-
ur skemmtilegt blik i augum, og
sókndjarfari ungur skákmaður er
vandfundinn. Hann kom heldur
ekki beint Ur skóla eins og allir
hinir, heldur hafði staðið upp á
rönd í einu af frystihúsum fsfirð-
inga til þess að geta haft náðuga
daga í Menntaskólanum vestra
næsta vetur!
1 lok skákskólans voru veitt
verðlaun fyrir góða frammistöðu
á fjölmörgum sviðum skákar og
iþrótta. t lokin dró svo Guðmund-
ur Amlaugsson út nafn nafna sins
Gislasonarog kemst hann til New
York á sömu kjörum og Arnór.
Hanná lokaorðiö i þessum þætti i
einni af Urslitaskákum mótsins á
Klaustri. Skákin vitnar vel um
hina miklu sókndirfsku Guð-
Kennarastöður
Lausar eru til umsóknar tvær stöður
kennara við grunnskólann i Búðardal.
Kennslugreinar: Almenn kennsla i grunn-
skóla, kennsla i raungreinum efri bekkja
grunnskóla, iþróttir og tónmennt.
Umsóknarfrestur rennur út 22. júni n.k..
Upplýsingar gefa Jóhannes Benediktsson
og Marteinn Valdimarsson i simum 95-
4229 Og 95-4132.
Grunnskólinn Búðardal
mundar þó ekki séu fetaðar
troðnar slóðir. Hann er nefnilega
einn þeirra sem láta sig litlu
varða hámóðins teóriur. Hvort
það stafar af hreinu og beinu
þekkingarleysi skal ósagt látið.
E.t.v. veit hann sem er, að
dægurfluga er dauð að kvöldi.
llvftt: Guðmundur S. Gislason
(isafirði)
Svart: Halldór G. Einarsson
(Bolungarvik)
Kóngsindversk vörn.
1. d 4 Rf6 11. Rfl 1) c 7
2. Rf3 g*> 15. R e3 Hb8
3*g3 Bg7. 16. h l h5
4.BS2 0-0 17. c4 bxc4
5. (M) d6 18.R xc4 Re6
6.c3 Rbd7 19. dxe5 dxe5
7. Hel e5 20. b3 Rd4
8. 04 He8 21.R xd4 exd4
9. Bg5 h6 22. f4 Bgl
10.B xf6 Bxf6 23. Hcl Hbc8
11. Rbd2 Bg7 24. e5 Bf8
12. I)c2 13. Iladl Rf8 C(> 25. Rd2 Bbt
(Það er hér sem skákin fer að
hafa verulegt gildi. Það má auð-
vitað segja sem svo, að biskupinn
hefði betur heima setið og gætt
hins veiklundaða kóngs sins. En
það er ekki málið. Við hefjumst
handa einmitt á þessum punkti,
þvi það sem á eftir fer er sýni-
kennsla i vel útfærðri sókn.)
26. Re4! Bxel
27. Rf6+ KhS( ?)
(Nákvæmara var 27. — Kg7, þvi
hvitur á hvort eð er alltaf kost á
þvi að hirða skiptamuninn til
baka. Af kóngsleiknum hlýst leik-
tap og einn letkur til eða frá getur
hæglega skipt sköpum.)
28. Hxel!
(Hviturkærir sig ekki um að ná i
skiptamuninn, enda er riddarinn
á f6 geysiöflugt verkfæri sóknar-
aðgerða. Nú hefði svartur átt að
leika 28. — Dal sem skapar hon-
um mótspilsmöguleika.)
28. ... Bf 5
29. Dd2 HdX
30. íí4! (Sóknin er tekin að rúlla.)
30. ... Bd7
31. f 5! Kg7
(Svartur virðist enn eiga mögu-
leika á að verjast. þvi hér má
spyrja: Hvernig skal sókninni
haldið áfram? — Guðmundur
finnur afar sannfærandi svar við
þeirri spurningu.)
32. fxg6 fxg6
33. li5:
(Mergurinn málsins er sá aö 33.
— g5 er svarað með 34. Dd3 og
svartur er glataður.)
33. ... Be6
(Guðmundur hugðist svara 33. —
Be8 með 34. g5! o.s.frv.)
34. hxg6 Hf8
(Mér er tif efs að betri vörn finn-
ist.)
35. Rh5+ KxgO 39.BÍ5! I)d8
36. Be4 + Kf7 40. Rf6+ Hxf6
37.1)xh6 Ke7 41.exf6 Bxf5
38. Dg5+ Kd7 42 Dxf5+ Kc7
(Og hver er nú stysta leiðin aö
settu marki?)
43. Da5+! Kh8
(Eða 43. — Kd6 44. De5+ Kd7 45.
Dxd4+ Kc7 46. Dxa7+ Kd6 47.
Hdl+ og drottningin fellur.)
44. Dxd8 Hxd8
45. f7 !
— Hér lagði Halldór niður vopnin!
Hann hefur sýnilega eignast
keppinaut á Vestfjarðakjálk-
anum.
® ÚTBOÐ^
Innkaupastofnun Reykjavikurborgar óskar eftir tilboð-
um i jarðvinnu vegna nýbyggingar viö Sundlaugar
Reykjavikur i Laugardal.
Tilboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frikirkjuvegi
3, gegn 1500 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 25. júni
kl. 11. f.hád.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVíKURBORGAR
Fnkirk|uvegi 3 — Sími 25800
ÚTBOÐ
Vegagerð rikisins óskar eftir tilboði i
lagningu siitlags á Suðurlandsveg.
Leggja skal oliumöl og finjafna burðarlag
á um 6 km kafla frá Strandarsiki að
Hvolsvelli. Breidd akbrautar 6,5 m.
Útboðsgögn verða afhent hjá aðalgjald-
kera Vegagerðar rikisins, Borgartúni 5,
frá og með föstudeginum 19. júni, gegn 500
kr. skilatryggingu.
Fyrirspurnir ásamt óskum um upp-
lýsingar og breytingar skulu berast til
Vegagerðar rikisins skriflega, eigi siðar
en 25. júni.
Gera skal tilboð i samræmi við útboðs-
gögn og skila i lokuðu umslagi merktu
nafni útboðs til Vegagerðar rikisins,
Borgartúni 7,105 Reykjavik, fyrir kl. 14:00
hinn 29. júni 1981,og kl. 14:15 sama dag
verða tilboðin opnuð þar að viðstöddum
þeim bjóðendum er þess óska.
Reykjavík, i júni 1981.
Vegamálastjóri.
REYKJAVÍK, í JÚNí 1981,
VEGAMÁLASTJÓRI.
Á þjóðhátíðar-
daginn
sendum við félagsmönnum og öðrum
viðskiptavinum kveðjur og árnaðaróskir.
Treystum samvinnustarf — verslum i
kaupfélaginu.
KAUPFELAG
HAFNFIRÐINGA
Samvinnumenn
Þeir sem versla i kaupfélaginu efla eigin
hag og byggðarlagsins. Sendum félags-
mönnum og landsmönnum öllum bestu
kveðjur i tilefni þjóðhátiðar 17. júni.
Kaupfélag
Langnesinga,
Þórshöfn