Þjóðviljinn - 17.06.1981, Page 7
Mi&vikudagur 17. jlini 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Rajai forsætisráöherra og Khomeini — smám saman þrengdist hringurinn.
Er borgarastyrjöld
yfirvofandi í íran?
Forsetinn fer halloka fyrir klerkaveldinu
Banisadr forseti írans
viröist hafa beðið afdrifa-
ríkan ósigur fyrir veldi
heittrúarklerka i iran í
átökum um framvindu
irönsku by Itingarinnar.
Hann er nú flestum völd-
um sviptur, hefur tak-
markaðan aðgang að fjöl-
miölum, fer að sögn huldu
höfði í landi sínu af ótta við
banatilræði — og reyndar
sprakk sprengja í forseta-
höllinni í Teheran í fyrri-
nótt. Khomeini trúarleið-
togi hefur að visu ekki
tekið undir kröfur um að
forsetinn verði settur af,
en hann hefur gert honum
að iðrast „misgjörða"
sinna.
1 janúar í fyrra var Banisadr
kosinn forseti með miklum meiri-
hluta atkvæða, eða um 70%. Val
hans var mjög i óþökk eins helsta
forvigismanns klerkaveldisins,
Ajatolla Beheshti, sem hafði náð
sterkri stöðu i byltingarráðinu og
hefði sjálfur boðið sig fram til for-
Banisadr á vigvellinum. — Þegar
i fyrrahaust haf&i hann skrifað
Khomeini og varað hann viö
þeirri stjórn sem klerkarnir skip-
uöu.
seta ef að Khomeini erkiklerkur
hefði ekki haft þá stefnu þá, að
geistlegrar stéttar menn skyldu
ekki i framboð til forseta.
Beheshti tók þá að sauma að
Banisadr með öðrum hætti. Hann
fékk sig skipaðan forseta hæsta-
réttar landsins og hann skipu-
lagði Islamska lýðveldisflokkinn
til sigurs i þingkosningunum.
Islamski flokkurinn hlaut meiri-
hluta á þingi, og hafði Beheshti nú
forræði bæði yfir löggjafarvald-
inu og dómsvaldinu. Meö þvi að fá
Khomeini til að leyfa Banisadr
ckki að skipa bráðabirgðastjórn
og með þvi að koma einum af sin-
um liðsmönnum, Rajai, i for-
sætisráðherrastól, færði klerka-
veldið enn Ut yfirráð sin.
„Toppfigúra"
Banisadr var á góðri leið með
að verða valdalaus „toppfigúra”.
Hann hafði engan flokk að styðj-
ast við að heitið gæti, vald hans
takmarkaðist mest við neitunar-
vald gegn ýmsum samþykktum
þingsins.
Staða forsetans, sem yfirmanns
herafla landsins, styrktist svo
þegar trak fór meö hernaði á
hendur Iran i fyrrahaust. Bani-
sadr notaði heimsóknir sinar til
vigstöðvanna óspart til að hressa
upp á imynd sina og veik völd. Að
visu hefur transher ekki vegnað
sérlega vel i striðinu — ekki illa
heldur, þvi að trökum hefur ekki
tekist að vinna neina þá sigra sem
úrslitum ráða.
Og valdagliman milli Beheshti
og Banisadr hefur haldið áfram.
Forsetinn hefur sakað klerkana
og stjórnina um ráðleysi i glimu
við atvinnuleysi, verðbólgu og
utanrikismál. tslamski lýðveldis-
flokkurinn- hefur svarað með
ásökunum um að Banisadr bryti
gegn stjórnarskránni — m.a. með
þvi að neita að staöfesta skipan
nýrra ráðherra. Stuðningsmenn
klerka og forseta hafa átt i blóð-
ugum útistöðum, m.a. á útifundi i
Teheran i mars, sem kostuðu
nokkra menn lifið.
Klerkaalræði?
Khomeini hefur verið tregur til
að taka ákveðna afstöðu i þessum
deilum þar til i fyrri viku, að hann
snerist með ótviræðum hætti gegn
forsetanum og svipti hann forræði
yfir hernum. Enn fyrr höfðu ýmis
blöð sem teljast frjálslynd á ir-
anskan mælikvarða verið bönnuð,
m.a. málgagn forsetans, sem hef-
ur lika mátt sjá á eftir yfirráðum
yfir útvarpi og sjónvarpi i hendur
klerkavaldsins.
Margt gæti bent til þess að
klerkaveldið léti nú kné fylgja
kviði og setti fyrsta þjóðkjörna
forseta Irans frá völdum og tæki
þá við eins konar klerkaalræði.
Sjálfur hefur Banisadr spáð þvi i
viðtali við erlenda fréttastofu nú
um helgina, að afsetning hans
mundi kosta borgarastyrjöld.
áb tók saman.
Tveir IRA-menn á þing i Dublin:
Pí ittstað: a er
nú í írsk um
stj jórnmá ilum
Undarleg pattstaða er
komin upp í írskum stjórn-
málum eftir þingkosningar
i fyrri viku: afstaða nokk-
urra óháðra þingmanna
ræður því, hverjum tekst
að mynda stjórn eftir að
þingið, Dail, kemur saman
um næstu mánaðamót.
Atkvæðatalning er af ýmsum
sökum tafsöm á Irlandi. En eftir
þvi sem næst verður komist fær
stjórnarflokkur Haugheys, Fi-
anna Fail, 78 þingsæti af 166, Fine
Gael fær 65 og Verkamanna-
flokkurinn 15 og óháðir sex. bar
við bætast svo tveir IRA-fangar á
Norður-lrlandi, sem aö sönnu
geta ekki tekið sæti á þingi i
Dublin, en auðir stólar þeirra
verða vafalaust áhrifamikil
áminning fyrir hverja þá stjórn,
sem við tekur, um mál sem engin
irsk stjórn getur hjá sér leitt.
Haughey forsætisráðherra og
Garret Fitzgerald, leiðtogi Fine
Gael, hafa báðir lýst sig fúsa til
að mynda stjórn. Hvor þeirra
hreppir hnossið vita menn ekki
fyrr en uppvist verður hvaöa lof-
orð þeirra duga til að ná stuðningi
sex óháðra þingmanna. Garret
Fitzgerald telur sig sigurvegara
kosninganna, en flokkur hans hef- ■
ur ekki átt jafnmarga menn á
þingi áður.
21% verðbólga og 10% atvinnu-
leysi voru þau mál sem settu
einna mestan svip á kosninga-
baráttuna á Irlandi. En ástandið
á Norður-lrlandi kom þar og
mjög við sögu, eins og sést best á
þvi, að tveir fangar úr IRA voru
kosnir á irska þingið. (Stjórnar-
skrá Irska lýöveldisins gerir ráð
fyrir þvi að ibúar Norður-Irlands
geti boðið sig fram til þings i
suðurhlutanum). Stuðningsmenn
fanganna i Mazefangelsi buðu
'fram niu IRA-menn i kjördæmum
i námunda við landamæri
Norður-Irlands. Þeir fengu að
meðaltali 10% atkvæða sem var
miklu meira en menn höfðu gert
ráð fyrir. Þingmennirnir tveir úr
hópi fanganna heita Paddy
Agnew og Kieran Doherty, en sá
siðarnefndi hefur verið i nær
mánuð i hungurverkfalli.
DRIDFSFERÐ f/||
aunatolks
til Danmerkurl4.ágúst-4.september
Vegna mikillar aðsóknar og langs biðlista sem myndast hefur í júní-ferðina til Danmerkur
hafa Alþýðuorlof og Dansk Folke Ferie í samvinnu við Samvinnuferðir-Landsýn ákveðið
að efnatil annarargagnkvæmrarorlofsferðartil Danmerkur. Flogiðverðurísameiginlegu
leiguflugi og dvalist í orlofsbúðum verkalýðssamtakanna í hvoru landi.
Ferðatilhögun
Brottförer 14. ágústog heimkoma4. september. Fyrstu 10dagaferðarinnarverðurferðast
um Sjáland, Fjón og Jótland, auk þess sem farið verður í stuttar kynnisferðir til Þýska-
lands og Svíþjóðar. Gist verður í sumarhúsum dönsku verkalýðshreyfingarinnar
víðs vegar um landið.
Síðustu 11 daga ferðarinnar verður dvalist I hinum vinsælu sumarhúsum Dansk Folke
Ferie í Karrebæksminde. Skoðunarferðir verða skipulagðar til fjölmargra merkra staða
(Danmörku og að sjálfsögðu verður Kaupmannahöfn heimsótt að degi og kvöldi.
Þátttökuréttur
Rétt til þátttöku í þessari ferð eiga félagsmenn í verkalýðsfélögum sem eiga orlofshús
í ölfusborgum, Svignaskarði, Vatnsfirði, lllugastöðum eða Einarsstöðum. Hvertorlofs-
svæði á rétt til takmarkaðs fjölda þátttakenda.
Bókun fer fram á eftirtöldum stöðum og eru þar jafnframt veittar nánari upplýsingar:
Alþýðusamband íslands, Grensásvegi 16, sími 91-84033
Alþýðusamband Vestfjarða, Alþýðuhúsinu ísafirði, sími 94-3190
Alþýðusamband Norðurlands, Brekkugötu 4, Akureyri, sími 96-21881
Alþýðusamband Austurlands, Egilsbraut 25, Neskaupstað, sími 97-7610
Vinsamlegast athugið að þeir sem ekki komust í
júníferðina verða að endurnýja pantanir sínar
Verð kr. 4.900
Barnaafsláttur2-11 ára kr. 1.500
Innifalið í verði:
Flug, flutningur til og frá flugvelli í Kaupmannahöfn, gisting með fullu fæði og allar rútu-
ferðir ásamt íslenskri fararstjórn í fyrri hluta ferðarinnar. í Karrebæksminde er
gisting án fæðis og verðið miðað við fjóra íbúa í húsi.
Alþýðuorlof
Orlofssamtök launþega
Dansk folkeíene
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
r