Þjóðviljinn - 03.07.1981, Síða 10
10 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Föstudagur 3. júli 1981
Aðalfundur
Lifeyrissjóðs Tæknifræðingafélags Islands
verður haldinn i hinum nýju húsakynnum
sjóðsins að Lágmúla 7, 3. hæð, mánudag-
inn 6. júli 1981, kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. önnur mál.
Stjórnin
Húsnæði óskast
Óska eftir góðri stofu með eldhúsi eða eld-
unaraðstöðu. Vinsamlega hringið i sima
25124.
Garðabær —
lóðaúthlutun
Úthlutað verður um 30 einbýlishúsalóðum
á svæðinu austan Silfurtúns.
Umsóknarfrestur er til 15. júli n.k.
Umsóknareyðublöð afhent á bæjarskrif-
stofunni.
Eldri umsóknir þarf að endurnýja.
Upplýsingar gefur byggingarfulltrúi i
sima 42311.
Bæjarritari.
Eflum
framfarir
fatlaðra
Gíróreikningur 506000-1
Áskrift-
kynning
tsssft
vió bjóóum nýjum lesenóum okkar
ÓKEYPIS ÁSKRIFT til næstu mánaóamóta.
Kynnist blaóinu af eigin raun, látió ekki
aóra segja ykkur hvaó stenóur í
Þjóóviljanum.
sími 81333
PIOOVIIIINN
Minning
Jón Lárusson
loftskeytamaður
Það grunaði engan, þegar
Donni kom til vinnu á Veðurstof-
unni að morgni hvitasunnudags,
að hans siðasta vakt væri hafin.
Og hún varð reyndar ekki löng.
Rúmum hálftima siðar var hann
kominn á sjúkrahús, og lif hans
hékk á bláþræði. Hann komst
aldrei til meðvitundar og lést
hálfum mánuði seinna, þann 20.
júni. Rúmlega 35 ára starfi á f jar-
skiptadeild Veðurstofunnar var
lokið.
Jón Lárusson var fæddur i
Reykjavik 12. júli 1912, og var þvi
tæplega 69áraerhann lést. Hann
var loftskeytamaður að mennt,
og til þeirra starfa réðist hann á
Veðurstofunni árið 1946. Starfs-
semi Veðurstofunnar óx mjög um
þessar mundir og var að komast i
það horf, sem hún hefur verið i
siðan: Á fjarskiptadeiid er safnað
veðurskeytum viðsvegar að úr
heiminum og þau færð veður-
spádeild til úrvinnslu. Reyndar
hafa orðið örar framfarir i fjar-
skiptatækni á þessum tima, i stað
heyrnartóla og morse-lykils
komu fjarritarar og loks tölvu-
búnaður, og störfin á fjarskipta-
deildinni hafa breyst i samræmi
við þær. Starfsmenn deildarinnar
hafa þvi oft orðið að tileinka sér
ný vinnubrögð. Donni var
reyndar ekki sérlega nýjunga-
gjarn i starfi, honum var efst i
huga að vinna sin störf eins vel og
kostur var, og þvi kunni hann best
þeim aðferðum, sem hann þekkti
til hlitar. En engu að siður lagði
hann sig allan fram við að ná sem
fyrst fullu valdi á þeim nýju
vinnubrögðum, sem tæknin
krafðist, og varð jafnan vel
ágengt.
. Starf eftirlitsmanns fjarskipta,
eins og staða hans hét nú siðustu
árin, er vandasamt ábyrgðar-
starf. Við minnsta andvaraleysi
geta mikilvægar upplýsingar
farið forgörðum, starfið krefst
þvi mikillar árvekni og sam-
viskusemi, og þá eiginleika átti
Donni i óvenju rikum mæli. Það
má fullyrða, að við fráfall hans
sér Veðurstofan á bak einum
sinna allra bestu starfsmanna.
Sagt er að maður komi i manns
stað. En það rúm, sem Donni átti
i hugum samstarfsmanna sinna
er stórt og vandfyllt. Hann var
einstakt ljúfmenni, öllum sem
kynntust honum, þótti vænt um
hann. Hann var hógvær og litil-
látur, vildi öllum vel og aldrei
heyrðist hann hallmæla nokkrum
manni. Hann var léttur i skapi og
gamansamur, en gamanið varð
aldrei grátt. Þessir ágætu eigin-
leikar hans höfðu góö áhrif á
vinnufélagana, og á vöktunum
með Donna rikti sérstaklega
notalegt andrúmsloft.
Hann var viðræðugóður, en var
þó aldrei margmáll um sig og
sina. Við, sem kynntust honum
eingöngu á vinnustað, vissum þvi
raunar litið um fjölskyldu hans.
Þó duldist engum, að samband
hans við fjölskylduna var ákaf-
lega hlýlegt, og hann og hans
ágæta eiginkona, Helga Guðjóns-
dóttir, voru mjög samhent. Það
var auðfundið, að hann hlakkaði
til að setjast i helgan stein og
njóta samvista við fjölskyldu sina
á næsta ári, eftir langt ævistarf i
erilsamri vaktavinnu. En margt
fer öðruvisi en ætlað er.
Ég vil, fyrir hönd starfsfélaga
hans á Veðurstofunni, votta ást-
vinum hans, eiginkonu, börnum
og barnabörnum, samúð okkar.
Þó sorgin sé þungbær við svo
skyndilegt og óvænt fráfall þess.
á Neskaupstað
1 sl. viku hófust framkvæmdir
við byggingu safnaðarheimilis á
Neskaupsstað og er áætlað að
koma þvi undir þak á þessu sumri
og ganga frá húsinu að utan.
Safnaðarheimilið verður reist á
lóð vestan og norðan við Norð-
fjarðarkirkju 0g tengist henni
með gangi. Það verður um 200
ferm að grunnfleti á einni hæð,
byggt úr steinsteypu og timbur-
einingum frá Húseiningum,
Siglufiröi. 1 húsinu veröur sam-
komusalur, skrifstofa sóknar-
prests og sóknarnefndar, eldhús,
snyrting og geymslur.
sem manni er kær, er það vist að
timinn læknar öll sár, og þá er
hollt að rifja upp ljúfar minningar
frá liðnum samverustundum. Ég
þykist vita, að þar sé af nógu að
taka.
Þá viljum við að lokum þakka
Donna fyrir samveruna. Það
hlýtur að bæta hvern mann að fá
að kynnast slikum öðlingi, og við,
sem áttum þvi láni að fagna að
vinna með honum, lengur eða
skemur, munum minnast hans
með innilegu þakklæti.
Fyrir hönd samstarfsmanna á
Veðurstofunni.
Guðmundur Hafsteinsson.
Arkitektastofan sf. Ormar Þ.
Guðmundsson og örnólfur Hall,
hafa teiknað húsið, verkfræði-
vinnu annast Verkfræðisstofa
Sigurðar Thoroddsen og verktaki
er Valmi hf. Neskaupsstað.
Hraði framkvæmda ræðst að
mestu af frjálsum framlögum
sóknarmanna og hefur sóknar-
nefnd heitið á Norðfirðinga að
sýna samstööu og leggja málinu
lið með sjálfboðavinnu eða fjár-
framlagi. Byggingarstjóri er
Þórir Sigurbjörnsson og geta þeir
sem vilja styðja verkið snúið sér
til hans eða sóknarprestsins,
Svavars Stefánssonar.
L I
Safnaðarheimili
Kaffiboö á Mokka
Aukaverðlaun i áskrifendaþraut Þjóðviljans
sem dregin verða út mánudaginn 6. júli