Þjóðviljinn - 18.07.1981, Page 5

Þjóðviljinn - 18.07.1981, Page 5
Helgin 18.—19. jii» 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 Hallmundur Kjistmundsson: Vist, bridge og bingó í bœinn Ég hef fengið mjög snjalla hug- mynd, og finn mig knúinn til að koma henni á framfæri. HUn beinist að þvi göfuga markmiði að auðga lifið i miðbænum og skapa hinum almenna borgara fleiri valkosti til heilbrigðra at- hafna á góðviðrisdögum. Þótt ástundun skáklistar sé flestum Islendingum unun þykir mörgum skemmtilegra að gripa i spil. Þvi legg ég til að komið verði upp i miðbænum útispilaborði. Spila- borð hafa það fram yfir taflborð að vera gjarnan græn, og vegna þess að gras er einnig grænt og ekki er of mikiö af þvi i gamla bænum, þá hugsa ég mér útispila- borðið upphækkaða grasflöt, fer- kantaða og hola að innan svo hægt væri að geyma þar spilin þegar ekki væri veriö að spila. Við hverja hlið borðsins væri komið fyrir fallegum og listrænum lik- ingum handa, sem þannig væru hannaðar að i þær mætti stinga spilunum þegar verið væri að spila. Spilin mættu vera úr þykk- um álplötum, fagurlega máluð- um. Ég hef einnig hugsað um stað fyrir þetta skemmtilega mann- virki. Akjósanlegasti staðurinn hefði verið fyrir framan Bern- höftstorfuna, en þar sem sá stað- ur er upptekinn væri tilvalið að koma útispilaborðinu fyrir hinu megin við Bakarabrekkuna, þ.e. fyrir framan stjórnarráöið. Þar standa að vísu nú tveir steingerð- ir menn, en eflaust mætti flytja a.m.k. annanþeirra eitthvað til. 1 leiðinni mætti huga að og jafnvel skióta til iafnréttisráðs hvort ekki væri rétt að fjarlægja annan þeirra og setja konu i hans stað. Mér er til efs að þessir steinmenn hefðu fengiö þessar heiðursstööur hefðu þeir veriö konur. Þá er að huga að áhorfenda- pöllum vegna spilaborðsins. Plássins vegna væri áreiðanlega hentugast að breyta þaki stjórn- arráösins litillega, þannig að þar væri hægt að sitja. Það þyrfti áreiðanlega ekki að skaða útlit byggingarinnar. Tröppur mætti setja við horn hússins upp á þak og braut aftanvert svo hægt væri að trilla hjólastólum upp. Þarna væri svo hægt að halda bridgemót á góðviðrisdögum og spila framsóknarvist eða jafnvel lönguvitleysu þegar ekki rignir. Nú,og komist lifið i miðbænum eirúiverntima þráttfyrir allt i al- gjört lágmark gæti sá sem fyrir þvi f inndi þó alltaf stytt sér stund- ir og lifgað upp á tilveruna með þvi aö leggja útikapal. Að lokum vil ég geta þess, að ég hef i undir- búningi að fá hugmynd að Uti- bingóaöstöðu. Er liklegt að Aust- urvöllur gæti hentað undir þá að- stöðu meö litilsháttar lagfæring- Styrkveitingar úr Storrsjóðnum Nýlega hefur verið úthlutað styrkjum úr Menningar og fram- farasjóði Ludvig Storr. Þetta er i fyrsta sinn, sem úthlutað er styrkjum úr sjóðnum, en hann var stofnaður árið 1979. Tilgangur hans er eins og stendur i skipulagsskrá, ,,aö stuðla að framförum á sviöi jarð- efnafræði, byggingariðnaöar og skipasmiða með þvi að styrkja visindamenn á sviði jaröefna- fræða, verkfræðinga, arkitekta, tæknifræðinga og iðnaðarmenn til framhaldsnáms, svo og aö veita styrki til rannsókna á hagnýtum úrlausnarefnum i þessum grein- um”. Að þessu sinni var úthlutað tveim styrkjum úr sjóðnum. Verkfræðistofnun Háskóla ts- lands fékk styrk að upphæð kr. 60.000.-, til kaupa á skráningar- búnaði fyrir vindtæknilegar mæl- ingar og Gunnar Birgisson, verk- fræðingur styrk að upphæð kr. 40.000.-, til rannsókna á islensk- um hraunjarðvegi til undirstööu- gerðar, en þær rannsóknir eru liö- ur i doktorsnámi hans viö háskól- ann i Missouri i Bandarikjunum. Pípulagnir Nýlagnir/ breyting- an hitaveituteng- ingar. Simi 36929 (milli kl. ( 112 og l ogeftir kl. 7á kvöldin). _ , Siouxsie and the Banshees: JUJU Siouxsie and the Banshees með nýja plötu, sem vakið hefur verulega athygli i Bretlandi, og reyndar viðar, á undanförnum vikum. Ju Ju er 4. Lp plata Siouxsie and the Banshees og er hún góður vitnisburður um markvissa þróun hljómsveitarinnar, tónlistarlega. Siouxsie and the Banshees er fyrir mörgum einhver besta rokkhljómsveit, sem starfandi er úti í heimi um þessar mundir og Ju Ju ætti ekki að valda neinum að- dáanda, sem öðrum vonbrigðum. Einnig fáanlegar meö Siouxsie and the Banshees: — Kaleidoscope (3. 1p) — Join Hands (2. 1p) — Spellbound (12" single) — Spellbound (7" single) — Israel (12" single) — Israel (7" single) — Playground Twist (7" single) — Hong Kong Garden (7" single) FÁLKINN: SUÐURLANDSBRAUT 8, sími 84670 LAUGAVEG 24, sími 18670 AUSTURVERI, sími 33360

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.