Þjóðviljinn - 18.07.1981, Blaðsíða 27

Þjóðviljinn - 18.07.1981, Blaðsíða 27
Helgin 18.—19. júlf 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 27 Videólist Og gjörningar í Nýlistasafni Gjörningur, videólist, hljóölist og uppstillingar eru á dagskrá sýningar i Nýlistasafninu viB Vatnsstig, sem hófst i gærkvöld. Nú um helgina, laugardag og sunnudag veröa sýnd myndbönd kl. 3—10 og á mánudagskvöld kl. 9 sýnir Þór Elis Pálsson gjörning. Þátttakendur i þessari nýju sýningu Nýlistasafnsins sem stendur til föstudagsins 9. júli eru bæöi hollenskir og islenskir lista- menn, auk þess sem myndbönd eru sýnd eftir bandariska. kana- aiska, suðurameriska, júgó- slavneska og þýska listamenn. Myndin er tengd hljóðuppákomu Mario Ficks og Marinu Florijn. Námskeið í skyndihjálp Ketill sýnir Ketill Larsen hefur opnað mál- verkasýningu i Eden i Hvera- gerði. Myndirnar, sem eru mál- aöar meö oliu- og acryllitum sýna landslag og hugblæ, sem Ketill vill tjá meö myndum sinum, og þar af er nafn sýningarinnar dregiö. Þar sigla gullin undraskip um loft og lög og einnig eru margar blómamyndir. Rauöa-krossdeild Kópavogs gefur bæjarbúum og öðrum sem hafa áhuga kost á námskeiöi i al- mennri skyndihjálp. Námskeiöiö veröur i Vighóla- skóla og hefst mánudaginn 20.júli kl. 20. Þaö veröur 5 kvöld, sam- tals 12 timar. Þátttaku tilkynnist i sima 41382 kl. 14—18, þann 18. og 19. júli. Meöal þess sem kennt verður á námskeiðinu er endurlifgun, meðferö brunasára, stöðvun blæöinga úr sárum, meöhöndlun beinbrota og margt fleira. Eínu sinní o var hægt aó gista ágóðu hóteli í London fyrir £12 ásólahring ÞaÓ er hægt ennþá! Það eru ótrúlega margir hlutir, sem breytast alls ekki í London, þrátt fyrir verðbólgu og gengisbreytingar. APEX fargjaldið til London með Flugleiðum kostar aðeins kr. 2.465,- og þú getur valið um gistingu á fyrir- taks hótelum, sem kosta £ 12,- sterlingspundum á mann, sé miðað við tvo í herbergi. London Penta er eitt þeirra, - frábært hótel í miðju Knightsbridge verslun- arhverfinu, spölkorn frá Harrodds og Harvey Nicols verslunarhúsunum, stutt frá Hyde Park. Neðanjarðarlest- in frá flugvellinum stansar rétt hjá og heldur beint áfram niður í miðborg. London International er annað. Ágætt hótel á Cromwell Street í Kensington. Stratford court er líka gott, en aðeins dýrara, enda stendur það við Oxford Street í hjarta verslunar- og skemmtanahverfisins. Eitt geturðu bókað. Gamla, góða London breytist stöðugt með tíman- um, en hún heldur samt áfram að vera töfrandi borg, sem býður upp á góð hótel á hagstæðu verði. FLUGLEIDIR Traust fólk hjá góóu felagi íþróttastyrkur Sambandsins Um Iþróttastyrk Sambands isl. samvinnu- félaga fyrir árið 1982 ber að sækia fyrir júlilok 1981. Aðildarsambönd Í.S.l. og önnur lands- sambönd er starfa að iþróttamálum geta hlotið styrkinn. Umsóknir óskast vinsamlegast sendar Kjartani P. Kjartanssyni, framkvæmdar- stjóra, Sambandshúsinu, Reykjavik. ^ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA Fóstra Fóstra óskast að leikskóla við Skarðs- braut frá 1. september n.k. Skriflegar umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf sendist undirrituð- um fyrir 1. ágúst 1981. Æskilegter að meðmæli fylgi umsókninni. ‘Nánari upplýsingar veitir forstöðukona i sima 93-2663 eða heima i sima 93-1414. Félagsmálastjóri, Kirkjubraut 2, Akranesi Gjaldkeri Laus er staða gjaldkera á bæjarskrifstofum Kópavogs. Þarf að geta hafið störf um miðjan ágúst. Laun sam- kvæmt 14. launaflokki. Umsóknum skal skila á bæjar- skrifstofurnar á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur er til 5 ágúst. Bæjarritari SAMTÚK SmiíNSKRA SlfílTARftlAEA AUSTURVEGI 38 — 800 SELFOSSI-SÍMI99-1350 - 99-1905 Iðnþróunarráðunautur Samtök sunnlenskra sveitarfélaga óska eftir að ráða iðnþróunarráðunaut. Verksvið: Ráðgjöf og efling iðnaðar og iðnþróunar. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist fyrir 1. ágúst n.k. að Austurvegi 38, Selfossi, simi 99-1350. Réttur sjómanna til ellilífeyris Athygli skal vakin á þvi, að skv. nýjum lögum frá 26. mai s.l. eiga þeir, sem stundað hafa sjómennsku i 25 ár eða leng- ur, rétt á ellilifeyri frá og með 60 ára aldri. Starfsár sjómanna skulu i þessu sambandi miðast við að sjómaður hafi verið lög- skráður á islenskt skip eigi færri en 180 daga að meðaltali i 25 ár. Umsóknum skal skilað til lífeyrisdeildar Tryggingastofnunar rikisins i Reykjavik eða umboðsmanna hennar úti á landi. Veita þessir aðilar allar nánari upplýsing- ar. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.