Þjóðviljinn - 18.07.1981, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 18.07.1981, Blaðsíða 21
ÞJÓÐVILJINN — StÐA 21 daegurtónlíst ' li\ : Ásgeir, Jón Arnar, Baldvin, Þór og Árni Athyglisveröasta hljómsveit Akureyrar þessa dagana er BARA-Flokkurinn. Þrátt fyrir háan aldur hefur hljómsveitin verið þögul lengi og þaö er ekki fyrr en nýverið sem oröstír hennar hefur breiðst út. Áður en langt um líður mun fyrsta breiðskífa Flokksins (12 tommu, 6 laga og 45 snúninga) líta dagsins Ijós. Ég náöi tali af Flokknum þegar hann var aö hljóörita hljómplötu sina i Hljóörita i byrjun siöasta mánaöar. Flokk- inn skipa þeir. Asgeir Jónsson söngur, Þór Freysson gitar, Jón Arnar Freysson hljómborö, Arni Henriksson trommur og Baldvin H. Sigurösson bassi. Formenn Flokksins og jafn- framt umboösmenn hans eru þeir Ólafur Kristjánsson og Jó- hannes Jóhannesson, yfir-ritari og rótari er G. Ómar Pétursson. Fimmti flokkurinn Sp. Hvenær var Flokkurinn stofnaöur? Sv. Dagblaöiö segir aö þaö hafi veriö fyrir fjórum árum og er óþarfi aö rengja þann frétta- flutning! Sannleikurinn er sá aö fyrsti Flokkurinn var stofnaöur fyrir tæpum fimm árum. Asgeir er einn eftirlifandi af þeirri út- gáfu. Alls hafa fjórir Flokkar runniö sitt skeiö á enda og er þetta fimmti Flokkurinn. Meöalaldur Flokksmanna er 19 ár. Aldursforsetinn er 23 ára en yngsti meölimurinn rétt ný fermdur, eöa 17 ára. Þaö þarf ekki aö taka þaö fram aö viö erum bæöi ungir og efnilegir tónlistamenn. Sp. Er grundvöllur fyrir tón- list ykkar á Akureyri? Sv. „NEI” „NEI”. Viö höfum gert töluvert af þvi aö kynna okkur en höfum erjaö sjóinn i þeim efnum. Þaö er ekki fyrr en viö veröum umtalsefni hér syöra sem Akureyringar ranka viö sér og gefa okkur einhvern gaum. Þeir neituöu þvi hreinlega aö önnur tónlist en Sjallatónlist gæti þrifist, þ.e. hliöar saman hliöar tónlist. Annars er Flokkurinn aö hug- leiöa aö flytjast til Grenivikur. Þarer i fyrsta lagi mjög fallegt. I ööru lagi yröum viö „heims- frægir” þar og ættum þess .vegna auövelt meö aö smala þessum fáu hræöum sem búa þar á tónleika. Svo framarlega sem ekki er heyskapur. Góðir stuðningsmenn Sp. Hvernig hefur gengiö aö þrauka? Sv. Þaö er mjög góöur og samstæöur hópur sem stendur i kringum BARA-Flokkinn, sem við eigum mikiö aö þakka. Ekki sist þegar illa hefur áraö og þaö er þessi hópur sem hefur hvatt okkur til dáöa. Sp.Þiö hafiö þá ekki auögast á þessum ósköpum? Sv. Jú þaö höfum viö gert, ef Jón Viðar Sigurðsson skrifar marka má tiöarandann þvi viö skuldum svo mikið? Sp.Er hægt aö segja aö Utan- garösmenn hafi „uppgötvaö” ykkur? Sv. Aö vissu leyti já. Koma Sp. Hvaða lög veröa á plötu ykkar? Sv.Þaö eru lög sem hafa verið á prógrammi okkar aö undan- förnu og þvi óþarfi aö nefna þau hér. Þaö kemur i ljós. Sp. Veröur þessi plata eitt- hvaö frábrugöin þvi sem þiö hafiö veriö aö gera undanfariö? Sv. Viö hvikum i engu frá stefnu okkar og efnum öll þau loforö sem gefin hafa veriö á tónleikum. Sp. Hver semur tónlistina fyrir Flokkinn? Sv.Viö semjum hana allir en Asgeir þó mest. Okkar tónlist Sp.A hverslags tónlist hlustið þiö? Sv. Arni trommari er báru- járnsrokkari og á ekki nema 700 plötur meö þessum ólátum. Viö hlustum annars á þetta nýjasta, viö eigum engar eftirlætis hljómsveitir eöa listamenn. Viö hlustum á kappa eins og David Bowie, Peter Gabriel, Bill Nelson, Talking Heads, Joy Division, Cure, Kraftwerk ofl. ofl. Svona búum viö á Akureyri. þeirra til Akureyrar á slnum tima markar nokkur timamót fyrir okkur. Þeir sýndu okkur mikinn áhuga og áttu þátt I aö kynna Flokkinn hér syðra. Viö vorum meö vangaveltur áöur en Utangarðsmenn komu til Akur- eyrar aö setja okkur I samband viö einhvern útgefanda og gera strandhögg hér fyrir sunnan. Þannig aö umtal Utangarös- manna gaf okkur aukinn byr I seglin. Sp.Hafa þessar hljómsveitir og listamenn áhrif á ykkur? Sv. ViÖ höfum aldrei getaö flokkað tónlist okkar I neinn sér- stakan bás. Og ekki stelum við frösum frá hljómsveitum. Fyrirmyndireru engar, þetta er okkar tónlist sem viö skil- greinum ekkert nánar en köll- um hana montrokk til aö kalla hana eitthvaö. Þaöersvo djöfull fyndiö og viö erum sko ánægöir meö okkur! Sp. Nú var Tómas Tómasson upptökustjóri hjá ykkur, hvern- ig var samstarfiö viö hann? Sv. „MJÖG GOTT”. Hann er alveg frábær og ábyggilega einn besti upptökustjóri okkar i dag. Textavandamál Sp. Það hefur vakiö athygli margra að textar ykkar eru allir á ensku, hvers vegna? Sv.Okkur finnst enskir textar falla betur aö tónlist okkar en islenskir. „Mottó” hljóm- sveitarinnar er, llkt og italskan er móöurmál óperunnar, þá er enskan móöurmál rokksins. Þaö ber samt ekki aö lita svo á aö viö höfum ekki reynt aö semja á islensku, mikil ósköp. Viö erum búnir að berja hausnum viö steininn lengi en komust alltaf aö þeirri niöur- stööu aö enskir textar falli betur aö þessari tónlist en innlendir. Sp.Hvernig gengur ykkur að tjá hugmyndir og tilfinningar á erlendu máli? Sv. Jafnilla og tjá sig á móðurmálinu. Textagerö er hausverkar hjá okkur. Þeir veröa aö segja eitthvaö, mega ekki vera innantómt hjal. Sp. Um hvaö snúast textar ykkar? Sv.Hatur á ýmsum mönnum og fyrirbærum I þjóöfélaginu. Þjóöfélagskomplexa, heimilis- erjur, taugaveiklun svo nokkuö sé nefnt. Hugmyndirnar fáum viö úr ýmsum áttum og svo timaritinu Mad. Stefnum suður Sp. Er þaö á dagskrá hjá ykkur aö flytjast suöur, eöa veröur eingöngu um skyndi heimsóknir aö ræöa? Sv. Þaö er aö brjótast I okkur aö flytjast suöur en þaö er margt sem veröur aö athuga áöur. Ljóst er aö viö föllum og stöndum meö markaönum hér syöra en viö bindum ekki miklar vonir viö hann. Ennþá minni vonir bindum viö viö markaöinn fyrir noröan. Og ef Hótel Borg lokar þá er til litils aö koma hingaö suöur, hún er svo stór þáttur I þessu öllu. Annars vonum viö þaö besta, annaö er ekki hægt aö segja. Sp.Eruö þiö sáttir viö islenskt tónlistarlif I dag? Sv. Þaö hefur tekið miklum framförum og þá meö tilkomu þessara nýju hljómsveita. Þetta er byrjun á góöu skeiöi. Sp.Hverjum þakkiö þiö þessa breytingu á tónlistarlifi lands- manna? Sv.: Fræbblarnir eiga sinn stóra þátt I þessari breytingu. Utan- garösmenn tóku siöan viö merk- inu og báru þaö langleiðina til sigurs. Siöan er þaö hlutverk okkar og annarra hljómsveita aö halda striöinu áfram. Sp. Hafiö þið orðiö varir við svipaöa þróun á Akureyri og á sér staö hér syöra aö hljóm- sveitir spretti upp likt og gor- kúlur á haug? Sv. Já þaö er aö gerast en þessar hljómsveitir eru enn aö læra á hljóöfærin. Þær æfa sig þvi gjarnan á gömlum góöum lögum. Þó er innan um ein og ein hljómsveit sem leikur frum- samiö. Nýtt tónlistarskeiö er i upp- siglingu á Akureyri en hætt er við aö gerö verði tilraun til aö kæfa þaö i fæöingu. Þvi álfar eins og Bimbó og fleiri halda þvi fram aö þaö séu aöeins örfáir hæfir tónlistamenn i bænum og toppurinn sé Helena og Finnur Eydal!!! Leikum ekki á dansleikjum Sp. Hvað geriö þiö annaö en aö vera poppstjörnur á Akur- eyri? Sv. Poppstjörnur i Reykjavik núna vinur. Þaö eru fjórir skóflutöffarar, einn flösku- maöur, einn blaöamaöur og einn flugmaöur, þ.e. vinnur viö flug. Nú svo er annar umboös- maöurinn fiskmóttökutækni- fræöingur og hinn selur gömlum konum liftryggingu. Sp. Verður eitthvaö fyrir ykkur aö gera þegar þiö komiö noröur? Sv.Heldur er þaö nú litið. Viö leikum 16. og 17. júni og i Sjall- anum eitt fimmtudagskvöld. Annaö veröur þaö ekki en viö höldum þó aö eitthvaö rætist úr þegar viö komum noröur. Sp. En aö leika á dans- leikjum? Sv. KEMUR EKKI TIL GREINA.Þaö er svo leiðinlegt. „Kunniö þiö ekkert meö Bjögga Halldórs” spurningar af þessu tagi draga úr okkur alia löngun til aö leika á dansleikjum. BARA-Flokkurinn er ein- göngu tónleikahljómsveit og viö spilum fyrir okkur sjálfa svo getur fólk ráöiö hvort þaö hlustar á okkur. Sp. Stefna Flokksins veröur þá óbreytt enn um sinn? Sv. Já, við erurn ekki orönir neinir viöskiptamenn en hver veit hvaö skeöur ef platan geng- ur vel. Viö erum til i allt ef áhugi er fyrir hendi á tónlist okkar. Flokkurinn stendur og fellur meö þessari plötu og ef hún gerir þaö gott er aldrei aö vita nema viö kveljum landann meö ekta breiöskifu. Sp. Hvaö veröiö þiö lengi i tónlistinni i viöbót? Sv.Mjög lengi. Viö ætlum aö veröa elliheimilispönkarar á elliheimili þvi sem Tómas Tómasson ætlar aö veita for- stööu, D.A.P., Dvalarheimili aldraöra poppara. AMEN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.