Þjóðviljinn - 18.07.1981, Qupperneq 19

Þjóðviljinn - 18.07.1981, Qupperneq 19
Helgin 18,—19. júll 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19 Áttrœður: Böðvar Guðjónsson Attræöur er i dag Böövar Guö- jónsson Tungumúla á Baröa- strönd. Böövar fæddist á Auönum á Hjaröanesi i Baröastrandar- hreppi áriö 1901. Hann byrjaöi ungur aö sækja sjóinn. Einn fárra núlifandi Is- lendinga var Böövar á vorvertiö úr Bjarneyjum á Breiðafiröi. Siöan á skútum bæöi frá Patreks- firöi og Bildudal. A togara fór hann 1924, og var á þeim I rúmlega 20 ár. Hann hóf búskap 1942, meö konu sinni Björgu Þóröardóttur i Tungumúla og hefur lengst af búið þar siðan. Nú i vor hefur Böövar veriö a grásleppu, ásamt syni sinum Unnari Þór og Jónasi Arnasyni rithöfundi, og má gera ráð fyrir að Jónas hafi þar fengið margan fróðleik og góðar hugmyndir, þvi maður með slikan lifsferil sem Böðvar hefur frá mörgu að segja. Við óskum þér til hamingju með árin 80 Böðvar. Vinir. A grásleppunni I vor, Böövar Guöjónsson og Jónas Arnason á leiö I land eftir góðan róöur. Manstu hve veröldin við okkur brosti hjá vaðlinum, kenndum við Haukaberg, þar sem í hópum hressir fuglar hreiðruðu sig í gríð og erg, og bláar og tærar við bleikan sandinn bylgjurnar stigu glettin spor. Böðvar minn, ættum við ekki saman aftur að róa næsta vor? Manstu þær stundir á miðunum úti, er mátuleg austangolan blés, og öldurnar voru ,,ofnar gulli" alla leið suður á Snæfellsnes, og við sáum eyjar í tíbrá titra og takast á loft eins og flugnamor. Böðvar minn, ættum við ekki saman aftur að róa næsta vor? Manstu hvað við vorum kátir á kvöldin, er keyrðum við upp til lands á ný með brjóst okkar full af fiskarastolti og fimm tunnur rúmar bátnum í, og okkur til sóma sólin hellti sínum geislum inn með Skor. Böðvar minn, ættum við ekki saman aftur að róa næsta vor? Kópareykjum 16. júni 1981 Jónas Arnason Sextugur í dag: Jón Öskar Milli 18. júlí 1921 á þeim Skipa- skaga, sem nú er hversdagslega nefndur Akranes, og 18. þessa mánaðar á þvi herrans ári 1981 þar sem nú stöndum vér viö Ljós- vallagötu i' Reykjavik, liggja rétt- vegnirsex tugirára, hlaupadagar meöreiknaöir svo aö engu skeik- ar. Samt segja sumir menn, og kannski þeir vitrustu og læröustu, aö timinn sé ein af hinum stóru blekkingum heimsviskunnar. Hann sé i'rauninni ekki til, frekar en sannleikurinn og réttlætiö, sem viö eyöum ævi okkar til aö leita aö. En hvað sem þessu liöur teljum viö okkur trú um aö Jón Óskar skáld og rithöfundur Asmundsson sésextugurf dag. Hans sé dýröin, konu hans Kristfnar og dóttur, sem heitir Una Margrét, blóma- rós rétt af barnsaldri. Bestu heillaóskir til þeirra albra frá mér og mi'nu fólki, með þökk fyrir vin- áttu á liðnum árum. Eins og þeir vita, sem sóma- samlega eru aö sér f Islenskri bókmennta- og hugsunarsögu siöustu ártuga, hefur Jón Oskar ritað sex viöamiklar minninga- bækur um sitt tímabil, auk þess gefið út eitt bindi bókmenntarit- gerða. Leyfiég mér aö kalla þess- ar sjö bækur bestusamtimaheim- ild um þau efni, sem enn er til. örðugt mun veröa aö skáka þeim úr heiðurssæti. Er ég þó ekki aö segja, aö skoðanir Jóns á mönn- ■ um og málefnum hljóti að vera örugglega réttar. Um þær má deila. Jón er einn af brautryðjendum nýs skáldaskóla, þess sem kennd- ur er við atómiö, umdeildur eins og allir vita. Hann var og einn af Birtingsmönnunum ungu, sem með ritgeröum og ljóöaþyöing- um, auk frumsaminna ljóöa, höföu mikil og mótandi áhrif á yngstu og næstyngstu skáldakyn- slóðina í landinu. 1 þvi sambandi nefni ég og bók hans Ljóöa- þýðingar úr frönsku meö löngum formála, sem Menningarsjóður gaf út 1963. Sú bók hefur lengi verið ófáanleg, enda notuð viö kennslu i' æðri skólum. Skáldsaga Jóns frá 1968 Leikir i fjörunni er með vissum hætti minningabók, eins og ævibæk- umar og góö heimild um sinn Borgarbókasafn Reykjavíkur Eftirtaldar stöður eru lausar til umsókn- ar: Fulltrúi á skrifstofu safnsins. Bókavörður i fullt starf i aðalsafni, Þing- holtsstræti 29 A. Bókavörður i hálft starf i Sólheimasafni, Sólheimum 27. Launakjör skv. samningum við Starfs- mannafélag Reykjavikurborgar. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf sendist borgarbókaverði fyrir 9. ágúst 1981. Borgarbókavörður. Jón óskar tima. Smásögur hans Mitt andlit og þitt var fyrsta bók höfundar- ins, kom 1952, siðar meö viöauka. Þar er sumt af þvi listfengasta, er Jón hefur ritaö. Og nýjung voru þessar sögur á sinum tima og halda enn sinu fulla gildi. En auðvitað er það fyrst og fremst hinn ferski og persónulegi tónn ljóðanna hjá Jóni, sem tryggir honum viröingarsæti á skáldabekk. Fyrst kom Skrifað i vindinn 1953. Sá hljómur, sem þar er sleginn, ómar áfram i siöari ljóðabókum hans: Nóttin á herðum okkar 1958, Söngur i næsta húsi 1966, og Þú sem hlustar 1978. Öprentað er handrit nýrrar ljóðabókar. Ekki hef ég minnst á ferðabók Jóns né ótal þýddar bækur eftir úrvals höfunda, enda aldrei ætlun min að gera hér neina úttekt á verkum hans. Hitt hlýt ég að nefna að lokum, að það er min bjargfasta skoðun, aö enginn einn maöur af okkar kynslóö hafi með yngstu skáldakynslóðum landsins markað dýpri spor til aö beina ljóöageröinni til samræmis viö nútimalegt lif og lifsreynslu á miklum umbrotatimum hafandi þaö i huga aö gera miklar kröfur um listræna túlkun. Jón er ekki auglýsingamaöur, þessvegna er minna talaö um hlut hans en vert væri. En hann heldur ótrauöur þá braut, sem hann valdi sér ungur. Enn er hann i fullu starfi, glaöur og reifur sem betur fer. Jón úr Vör Útboð Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar óskar eftir tilboðum i smiði tveggja stál- geyma 2500 rúmmetra og 100 rúmmetra. útboðsgögn verða afhent á Verkfræði- skrifstofu Sigurðar Thoroddsen Ármúla 4, Reykjavik og Berugötu 12, Borgarnesi og Verkfræði- og teiknistofunni Heiðarbraut 40, Akranesi,gegn 1000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu hitaveit- unnar, Heiðarbraut 40, Akranesi, þriðjudaginn 28. júli kl. 11.30. VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN hf ÁRMÚLI 4 REYKJAVIK SlMI 84499 Sveitarstjóri óskast Hreppsnefnd Búðahrepps Fáskrúðsfirði óskar eftir að ráða sveitarstjóra til starfa frá 1. des. 1981 til 1. júli 1982. IJDolýsingar um starfið veita Þorsteinn Bjarnason oddviti i sima 97-5270 og Jón G. Sigurðsson sveitarstjóri i simum 97-5220 og 97-5221. Umsóknum sé skilaö á skrifstofu Búða- hrepps, Skólavegi 53, Fáskrúðsfirði, fyrir 15. ágúst n.k. Hreppsnefnd Búðahrepps Fáskrúðsfirði IS* FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Félagsmálastofnun — Þjónustuibúðir aldraðra, Dalbraut 27, auglýsir: Dagvistunardeild tekur til starfa 1. sept. n.k. Umsóknareyðublöð liggja frammi á Félagsmálastofnun og Þjónustuib. aldr- aðra, Dalbraut 27. Vistmönnum ber að greiða hluta af vist- unarkostnaði. Allar nánari upplýsingar um tilhögun dagdeildar eru gefnar i sima: 85798. Útboð Sjómannadagsráð óskar eftir tilboðum i miðstöðvarofna i byggingu hjúkrunar- heimilis Hrafnistu Hafnarfirði. Útboðsgagna má vitia á skrifstofu Sjómannadagsráðs að Hrafnistu Reykjavik, alla virka daga næstu viku, kl. 14.00—16.00 nema laugardag. Tilboðin verða opnuð fimmtudaginn 20. ágústkl. 16.00. STJÓRNIN Innkaupas t j óri Rafmagnsveitur rikisins óska að ráða i starf innkaupastjóra. Áskilin er viðskipta- fræði-, rafmagnsfræði- eða rafmagns- tæknif ræðimenntun. Laun samkvæmt launakerfi rikisstarfs- manna. Umsóknir með upplýsingum um menntun, aldur og fyrri störf, sendist fyrir 7. ágúst nk. til Rafmagnsveitna rikisins. Rafmagnsveitur rikisins, Laugavegi 118 105 Reykjavik.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.