Þjóðviljinn - 22.07.1981, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 22.07.1981, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN MiOvikudagur 22. júll 1981 UOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýds- hreyfingar og þjóðfrelsis btgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann. Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Olafsson. Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir Umsjónarmaöur sunnudagsblaös: Þórunn Sigurðardóttir Afgreiðslustjóri: Valþór Hlöðversson Blaöamenn: Alfheiður Ingadóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Kristin Astgeirsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórs- son.Jón Guöni Kristjánsson. iþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Útlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Björn Br. Björnsson . I.jósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Eliasson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Auglýsingar: Unnur Kristjánsdóttir Skrifstofa: Guörún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Afgreiðsla: Kristin Pétursdóttir, Bára Sigurðardóttir. Sfmavarsla: Olöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Bárðardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns- dóttir. Útkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: Siðumúia 6, Reykjavik, simi 8 13 33. Prentun: Blaöaprent hf.. Pólitísk afglöp • Enn einu sinni hefur Geirsarmurinn i Sjálfstæðis- flokknum gert hrikalega skyssu. Samþykkt þingflokks Sjálfstæðisflokksins sl. mánudag, sem gerð var að f jar- stöddum Albert Guðmundssyni, og eftir að ráðherrar Sjálfstæðismanna höfðu vikið af fundi, er hryggilegt dæmi um hvernig allt verður stundum íslands óham- ingju að vopni. • Alusuisse hef ur nú eignast þann „hauk i horni" sem Vísir varaði svo sterklega við um síðustu helgi. Augljós má vera á því hvernig Geir Hallgrímsson og blað hans, Morgunblaðið, fylgja eftir ályktun hluta þingflokksins, að pólitísk samstaða verður varla í bráð , um kröfur á hendur Svisslendingum. Kominn er upp sú óskastaða fyrir fjölþjóðafyrirtækið, að framundan virðast innan- landsþrætur um aukaatriði, í stað íslenskrar samstöðu um kröfugerð og málsókn. • Látum vera þó Geirsarmurinn á þingflokki Sjálf- stæðisf lokksins ráðist á iðnaðarráðherra og ríkisstjórn- ina. Það hefði vel mátt gera án þess að þjappa sér upp að auðhringum og erlendum hagsmunum. I stað þess að standa fast á íslenskum hagsmunum og þjóðarsamstöðu í málinu, gerir hluti Sjálfstæðisflokksins sig beran að undirlægjuhætti, undanslætti og útúrsnúningum. • Enn einu sinn hefur Geirsarmurinn í Sjálfstæðis- f lokknum framið afdrifarfk pólitísk afglöp. Menn minn- ast nú fyrri afglapa, kaupránslaganna í febrúar 1978, stuðnings Sjálfstæðisf lokksins við minnihlutastjórn krata haustið 1979, leiftursóknarinnar sem rann út í sandinn og annarrar flónsku, sem sett hefur svip sértrú- armennsku og glópsku á hinn stóra Sjálfstæðisflokk. • íslendingum likar það illa að láta svindla á sér. Lika Sjálfstæðismönnum. Fyrir liggur að samkvæmt niður- stöðum virts bresksendurskoðunarfyrirtækis og breskra lögf ræðinga, þá hefur Alusuisse gerst brotlegt við samn- inga þá er svissneski auðhringurinn gerði við íslenska ríkið. Hér er ekki um áróður pólitískra aðila að ræða heldur hlutlægt mat virtra erlendra sérfræðinga. Haldið er áfram rannsókn á fleiri þáttum en súrálsmálinu og vísbendingar hafa komiðfram um að þar hafi íslending- ar einnig verið snuðaðir. • Enda þótt það vaki greinilega fyrir Geirsarminum í Sjálfstæðisf lokknum að ganga erinda Alusuisse, hlýtur ríkisstjórn Islands að halda ótrauð áf ram málatilbúnaði. Það þjónar engum tilgangi að efna til illdeilna um vífilengjur og málaflækjur Geirsmanna. Samþykkt þeirra f rá því á mánudag ber að líta þeim augum að þeir hafi f raun sagt sig frá málinu, og kjósi að standa utan þess sem einangraður málsvari erlendra hagsmuna. • Slíkt er aðeins hægt að harma eins og á stendur. Oft var þörf, en nú var nauðsyn samstöðu. Geirsmenn í Sjálfstæðisflokki kusu að spilla góðum horfum á pólitískri samstöðu. Það býður betri tíma að skýra ástæður þess. — ekh Rafskautaverksmiðja Framkvæmdastjórn álversins í Straumsvík hefur sent áróðursplagg til starfsmanna. Þar er látið að þvi liggja að álverið sé nánast á vonarvöl, og ekkert megi gera til þess að styggja Alusuisse vegna hættu á að Sviss- lendingarnir losi sig við ómagann. • Þessi lýsing er dæmalaus. Ljóst er að stórgróði hef ur veriðá álverinu frá upphafi þótt Alusuisse hafi ekki talið hann fram á islandi eins og áskilið er í samningum. Ál- verið í Straumsvík er eitt best rekna álver í heiminum, með frábært starfsfólk og úrvalsframleiðslu. • Eins og ástandið er á álmörkuðum í dag væri mjög vænlegt fyrir íslenska ríkið að kaupa álverið af Sviss- lendingum og láta starfsmennina reka það. Það er þvi lúalegt bragð af framkvæmdastjórn iSAL að láta lita svo út að atvinna starfsmanna sé í hættu vegna deilna ís- lenska ríkisins og Alusuisse. Þvert á móti. Fátt virðist geta komið í veg fyrir vöxt og viðgang álversins standi íslendingar fast á sinum hagsmunum. Rafskautaverk- smiðja með atvinnu fyrir 60 manns er t.d. sjálfsögð krafa sem bera verður fram af fulium þunga. — ekh klippt t fýlu bað er auðvitað fagnaðarefni að Alþýðuflokkurinn hefur borið gæfu til að hlýöa rödd skynsem- innar i súrálinu. bar hafa þeir tekið undir kröfur rikisstjórnar- innar um endurskoðun samn- inga við Alusuisse. Hún lekur hins vegar af þeim fýlan yfir þvi að hafa ekki getaö tekið Hjörleif Guttormsson i karphúsið, eins og vonir þeirra höfðu staðið til, allt frá i desember, þegar málið var gert opinbert, bannig er fýlutónn i Kjartani Jóhannssyni, formanni flokksins þegar Alþýðublaöið spyr hann um samráð rikis- stjórnar og stjórnarandstöðu: „Það hefur ckkcrt samráð verið haft við okkur,” svaraði Kjartan. „Að visu fengum viö fréttatilkynningu iðnaðarráðu- neytisins senda og leyni- samþykkt rikisstjórnarinnar sem cr um fimm linur eða svo”. Mikil eru látalætin. Auðvitað hefur Kjartan fengið miklu fleiri gögn i hendur, t.d. sjálfa skýrslu Coopers & Lybrand, ásamt fleiri plöggum. Enda væri ályktun Alþýðuflokksins um málið algjörlega út i hött ef hún væri ekki byggö á merki- legri grunni en fréttatilkynn- ingu iðnaðarráðher,ra. Liklegra er hitt að menn hafi fengið svo mikil gögn i hendur að eingöngu fáir hafi nennt að lesa þau i gegn enda eru skýrsl- ur sérfræðinganna miklar að vöxtum. Passar ekki Framkvæmdastjórn álversins i Straumsvik hefur látiö frá sér fara greinargerö til starfs- manna verksmiðjunnar, en i innskoti má þess geta að i fram- kvæmdastjórn eru Ragnar Halldórsson, forstjóri og tækni- legur framkvæmdastjóri fyrir- tækisins. Þessi greinargerö er hið fróð- legasta plagg, en ekki verður gerð nein úttekt á henni hér að sinni. Þó verður ekki hjá þvi komist að benda á aö þar er aö finna skringilegheit, sem eru af þvi tagi að engu er likara, en aö reiknaö hafi veriö með þvi að starfsmenn læsu ekki blöð né hlýddu á útvarp. Þannig segir t.d. i niöurstöö- um þeirra framkvæmdastjór- anna: „Af skýrslu Coopers & Lybrand má ráða eftirfarandi. — A árunum 1975—80 hefur tsal greitt eðlilegt Evrópumarkaðs- verð fyrir súrál.” Hvernig þetta getur farið saraan viö þá skjalfestu yfirlýs- ingu Coopers & Lybrand að „ásakanir um yfirverð á súráli eru réttlættar”. (accusations of over-pricing of alumina are justified”), það er ofar skilningi klippara. Fundarstjórinn Verslunarmannafélag Reykjavikur hélt blaðamanna- fund i fyrradag til aö skýra sjónarmið félagsins i sambandi við opnunartima verslana. A þann fund kom Vilmundur Gylfason, alþingismaöur og sumarblaðamaður á Alþýðu- blaðinu. Og auövitað er sá merki maður ekkert á þvi að láta fundarboðendur ráöa þvi hvert fundarefnið er. Varö þvi fundurinn mjög sérstæður, ef marka má frásagnir blaða. bannig segist t.d. Timanum frá hinum makalausa fundi: „Telur þú að lýðræði riki i verkalýðsféiaginu Dagsbrún?” var fyrsta spurning Vilmundar * Islenzka álverið í Straumsvík: i Morgunblaðinu, sem stillt hefur sér við hliö Alusuisse gegn tslcnd- ingum, er aö finna kynningu á tslenska álverinu, eins og þeir kalla það. Rétt er að álverið er á tslandi, meö islenskum starfsmönnum, en islendingar eiga ekki hætishót i álverinu. Rikisstjórnin hefuri ákveðið að stefna að þvi að tslendingar eignist álveriö, og geri þaö þar með að „islensku” áiveri. Ekki er Kjartan kátur Gylfasonar, blaðamanns Alþýðublaðsins til Magnúsar L. Sveinssonar formanns VR á blaöamannafundi þeim, er VR hélt i gær til að útskýra sjónar- miö sin I máli þvi, sem hefur komið upp vegna opnunar nokk- urra verslana á laugardögum i sumar. Magnús og fleiri fundarmenn uröu hálfundrandi á þessari spurningu, og Magnús benti Vil- mundi á að spyrja einhvern úr Dagsbrún þessarar spurningar. „Eins og Alþýðublaðiö hefur bent á þá vinna skrifstofustúlk- ur á Dagblaðinu mikla yfir- vinnu, svara þar i sima allar helgar. Hvers vegna farið þið ekki upp á skrifstofur DB og rif- ið af þeim simann?” spurði Vil- mundur næst. Magnús byrjaði aö svara þessari spurningu og var búinn meö 2—3 setningar af svarinu er Vilmundur greip fram i fyrir honum og sagði: ,,Ég veit að það er af þvi að sessunautur þinn hefur gefið þér vink”, sessunautur Magnúsar á blaða- mannafundinum var Björn bór- hallsson, stjórnarformaður Dagblaðsins”. „Undir lokin bað Vilmundur um nánari útlistun á þvi af- hverju simastúlkurnar á DB væru ekki stöðvaöar. Magnús kom með nokkuð langt og flókið svar við þvi og þá sagði Vil- mundur: ,,Ég skildi ekki orð af þvi sem þú sagðir og tel mig þó vera nokkuð góðan blaða- mann”. „Það er þin skoðun en ekki min”, sagði Magnús þá.” Blaðamaður Alþýðublaösins V.G. er hins vegar hinn hróöug- asti yfir frammistööu sinni á þessum fundi, sem klippara þykir fjandi súrt að hafa misst af. Þannig segist honum t.d. frá fundinum i fyrirsögnum i Alþýðublaöinu. „Hallærisleg- asti blaðamannafundur sem ■ haldinn hefur veriö norðan | Alpafjalla”, er fyrirsögnin, og undirfyrirsagnir: Magnús L. Sveinsson er mótfallinn vinnu- þrælkun I verslunum en með- mæltur vinnuþrælkun á DB.” Góð blaðamennska Það er skemmtileg tilviljun að sama dag og Timinn segir frá hinum mjög svo málefnalega blaðamannafundi, er i hinu sama blaði grein um fjölmiðlun eftir ólaf Ragnarsson, fyrrum Visisritstjóra. Ekki er allt sem af þess manns munni fer oss heilagur sannleikur, en þar sem tittnefndur Vilmundurog Ólafur eru báðir af þvi fjölmiðlunar- tagi, sem kennt er stundum við Watergate, er fróðlegt að sjá hvað Ólafur hefur um. góða blaðamennsku að segja: „Próf- steinn á það hvort blaðamaöur er óhlutdrægur getur til dæmis verið, hvort honum tekst aö skrifa sanna frétt um pólitisk átök i ákveðnum flokki eöa flokkum án þess að persónuleg afstaða hans sjálf til málsins eða pólitiskar skoðanir hans skini nokkurs staðar i gegn”. eng. * •a skoriðJ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.