Þjóðviljinn - 25.07.1981, Blaðsíða 15
Helgin 25.- 26. júli 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
Námskeið í
kenningum
W. Reich
Breski geðiæknirinn David
Boadella mun halda 7 daga nám-
skeið i' liforkulækningum (Bioen-
ergetic Therapy) i Reykjavlk
vikuna 3.—9. ágúst n.k. Boadella
hefur að baki tuttugu ára revnslu
I geðlækningaaðferðum Wilhelm
Reich og byggir uámskeið þetta á
kenningum hans og geðlækninga-
kerfi.
Námskeiðið er einkum ætlað
geðlæknum, sálfræöingum,
hjúkrunarfólki og öllum þeim er
áhuga hafa á sálarfræði og geð-
verndarmálum almennt. Skilyröi
erað þátttakendur hafináð 18ára
aldri og fólki sem á við alvarleg
geöræn vandamál að striöa eða er
undir umsjón geðlæknis eða sál-
fræðings, er ráðið frá þvi að taka
þátt i námskeiðinu nema með
skriflegu samþykki læknis sins.
Námskeiði er samtals 40 klst. og
stendur yfirfrá kl. 17—22. Þá mun
Boadella halda fyrirlestur i
Norræna hUsinu þann 5. ágUst, og
er hann opinn almenningi.
1 námskeiðinu mun David Boa-
della gera helstu aðferðum
úr geðlækningakerfi Wilhelm
Reich skil, sem notaðar eru til að
losa spennta vöðva, leiðrétta
röskun á hrynbundinni öndun,
bæta tjáningaraðferðir og auka
almenna likamlega velliðaT).
Jafnframt verður fjallað um
hvernig greina má skapgerðina
Ut frá stellingum og hreyfingum
likamans og spennu eða slapp-
leika i vöðvum. Farið verður yfir
æfingakerfi sem Alexander
Lowen, einn af nemendum Reich,
þróaði til að losa um vöðva-
spennu, auka næmi iðkenda fyrir
tilfinningastraumum innan lik-
ama sinna og hvernig megi stuöla
að Utrás innbyrgðra tilfinninga.
Námskeiðiðættiað geta stuulaS
að næmi fyrir eigin likama og
tilfinningum, en slik þekking
veitir innsýn i' liðan annars fólks
og er mikilvægt fyrir fólk i heil-
brigisstéttunum. Þó hentar nám-
skeiðið ekki einungis geðlæknum
og sálfræðingum, heldur öllum
sem áhuga hafa á bættri likam-
legri og andlegri velliðan.
Dr. Wilhelm Reich var einn
helsti frömuður nútimasálfræði á
þessari öld, en á sinum yngri
árum var hann samstarfsmaður
Sigmund Freud. Þeir sem hafa
áhuga á frekari upplýsingum um
námskeiðið eru beðnir að hafa
samband i si'ma 75495 frá kl.
20—23 virka daga.
Styrkir til
framhalds-
náms fyrir
Vestfirðinga
1 ágiist verða veittir styrkir úr
mcnningarsjóöi vestfirskrar
æsku, til vestfirskra ungmenna.
Styrkimir eru ætlaðir til fram-
haldsnáms sem ekki er hægt aö
stunda i' heimabyggö.
Forgang hafa þeir sem misst
hafa fyrirvinnu sína, fööur eða
móður og einstæðar mæður, einn-
ig konur, meðan ekki rlkir fullt
launajafnrétti segir I frétt frá
Vestfirðingafélaginu.
Berist ekki umsóknir frá Vest-
firðingum hafa aðrir rétt til
styrks. Umsóknir þurfa aö berast
fyrir lok jUlí og skulu meömæli
fylgja með. Umsóknir skal senda
til Menningarsjóðs vestfirskrar
æsku c/o Sigríöur Valdemars-
dóttir, Birkimel 8B, Reykjavik.
Ásíðasta ári voru veittar 750 þús.
kr. Ur sjóðnum. í stjórn og vara-
stjórn Vestfirðingafélagsins eru
Sigríöur Valdemarsdóttir, Aðal-
steinn Eiríksson, Þorlákur Jóns-
son, Þóröur Kristjánsson, Guðrún
Jónsdóttir, Matthildur
Guðmundsdóttir, Haukur Hanni-
balsson, Ami örnólfsson, Salvör
Veturliðadóttir og Þórunn
Sigurðardóttir.
eildsöludreifing. Símar 85742 og 85055.
sfcoin or hf
Ekki er nema taept ár síðan Bubbi Morthens ruddi
sér leiö inn í íslenskan tónlistarheim ásamt
Utangarðsmönnum. Áhrifin og framhaldiö þekkja
allir, enda ummerkin víöast enn sjáanleg.
Plágan, önnur sólóplata Bubba Morthens, er nú
loksins komin út og víst er, aö hún á eftir aö valda
umtali, undrun og ánægju á næstu vikum og
mánuðum. Jafnframt leyfum viö okkur aö fullyrða,
aö er fram líöa tímar veröur „Plágan“ talin ein af
merkustu og bestu plötum íslenskrar hljómplötu-
útgáfu.
KYNNING Á
.... tiskufatnaði (tískusýning), skartgripum
og listmunum úr leir.
„ VEISLUBORÐ
í Fiskréttir og fiöldi rétta úr islenskum
! landbúnaðarafurðum. Úrval osta.
1 DANSAÐ TIL KL. 3
o Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar og diskótek
< - þægileg tónlist fyrir alla.
VERIÐ MEÐ Á NÓTUNUM
Bjóðið islenskum sem erlendum vinum ykkar
á Sögunótt i Súlnasal.
Kynningaraðilar eru:
Samband islenskra samvinnufélaga
Stéttarsamband bænda
Sláturfélag Suðurlands Rammagerðin
Glit hf. Jens Guðjónsson
Mjólkursamsalan Osta og smjörsalan
Álafoss
§ SÖGUNÆTUR í SÚLNASAL ALLA FÖSTUDAGA, í JÚLl OG ÁGÚST, FRÁ KL. 20-03.