Þjóðviljinn - 25.07.1981, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 25.07.1981, Blaðsíða 24
Helgin 25. — 26. júll 1981 Abalsfmi Þjóóviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tlma er hægt að ná 1 blaöamenn og aöra starfsmenn blaósins I þessum slmum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná 1 af- greiðslu blaðsins I sima 81663. Blaðaprent hefur stma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 nafn vikunnar FriðrikÓlafsson Þótt Friðrik Olafsson sé þekktur innan skákheimsins fyrir prUömannlé'ga og iþróttamannslega fram- göngu í hvívetna, hefur hann siöur en svo setið á friðar- stóli þau þrjU ár sem liðin eru síðan hann var kjörinn forseti Alþjóða skák- sambandsins i' Buenos Aires. Sökin telst þó varla hans, hann tók við starfinu á þeim tima þegar ekkert annað virtist blasa við hinni alþjóð- legu skákhreyfingu en end- anlegur klofningur vegna pólitiskra átaka. Kjör Friðriks átti sér stað nokkrum vikum eftir að hinu sögulega einvigi Karpovs og Kortsnojs lauk á Filippseyj- um. Einn hinna fyrstu sem óskuðu Friðrik til hamingju með kjörið var hinn nýbak- aðisigurvegari, heimsmeist- arinn Anatoly Karpov. En áskorandinn Ur eigviginu og hatursmaður Karpovs, Sovétmaöurinn landflótta, Viktor Kortsnoj, lýsti yfir við blöð að hann vonaðist eftir öflugum stuðningi Friðriks i baráttunni fyrir að heimta konu sína og son Ur þeim átt- hagafjötrum sem þau voru hneppt í austur i Sovét. Það var þvf ljóst að ófriðvænlegt varframundan og ekkibættu Ur skák, furðulegar deilur og klofningur innan Skáksam- bands tslands sem blossuðu upp i kringum kjör Friðriks. Alla tiö siðan hefur það verið l.ióst að Friðrik og Alþjóðaskáksambandiö sjálft myndi standa og falla með Urslitum i máli Korts- nojfjölskyldunnar. Friðrik hefurunnið sitt starf bak við tjöldin og i kyrrþey, en mátt þola stöðugar ásakanir and- stæðinga sinna innan Skák- sambands íslands fyrir að- gerðaleysi sitt og sjálfur Viktor Kortsnoj hefur á stundum tekið undir þann söng. Friðrik hefur ætíð tekið þann kostinn aö sitja undir þessum ásökunum án and- svara og litt látið uppiskátt um fyrirætlanir sinar, og munu flestir geta samþykkt eftir á að þar hafi verið hyggilega að málum staðið. Fyrir margra hluta sakir var Friðrik vel til þess fall- inn að fást við þetta að þvi er virtist óleysanlega vanda- mál. Hann gjörþekkir sovéska skákmenn og á marga persónulega vini i þeirra röðum. Hann nýtur mikilla vinsælda og virðing- ar i Sovétrikjunum og var þvi manna liklegastur til aö geta beitt áhrifum sinum þar, opinberlega, sem á bak við tjöldin. Oft hefur Friðrik ölafsson kynt undir þjóðarstolt landa sinna með sigrum sinum við skákborðið, en nii hefur hann unnið þann sigur sem e.t.v. á eftir að verða minnisstæö- astur allra. Mál Kortsnoj fjölskyldunnar mun leysast og F.I.DE. starfar áfram sem ein heild. Meira verður ekki krafist. Væntanlega verða margir til að senda Friörik i huganum ham- ingjuóskir vegna þessara málalykta. —j Stokksnesgangan 9. ágúst Helgina 8.—9. ágúst n.k. munu . herstöðvaandstæð- ingar á Austurlandi hafa mikið umleikis. Þeir efna til fundar um vígbúnaðar- mál og um herstöðina á Stokksnesi á laugardags- kvöldið 8. ágúst og daginn eftir, sunnudaginn 9. fer fram Stokksnesganga, gengið verður frá Stokks- nesi til Hafnar sem er um 18 km. leið. Þau Geir Gunnlaugsson og Jónina Einarsdóttir hafa starfað ötullega með herstöðvaandstæð- ingum á Höfn að undanförnu. Þau voru á ferð i Reykjavik á dögun- um og við tókum þau tali um aö- gerðirnar og undirbúning þeirra. Friðargangan var kveikjan „Hugmyndin um aö ganga kviknaði eiginlega i tengslum við friðargönguna i Evrópu og við veljum einmitt sem göngudag 9. ágúst, sama dag og göngunni lýk- ur úti i Paris. En i leiðinni viljum við auðvitað vekja athygli á stöð- inni I Stokksnesi og hlutverki hennar. Okkur finnst að það sé i rauninni allt of litið um hana fjallað, það eru margir sem virð- ast ekki einu sinni vita að hún sé til. Lítil samskipti við stöðina Hvernig eru samskipti llafnar- búa og ibúa Stokksnesstöðvarinn- ar? Þau eru mjög litil. Hafnarbúar hafa náö nokkurri samstöðu um að takmarka þau sem allra mest. Hermenn taka ekki þátt i al- mennu félagslifi bæjarbúa. Þeir koma aldrei á samkomur og beiðni þeirra um aðgang að golf- vellinum og sundlauginni var al- gerlega hafnáö. Eina undantekn- ingin er jólaboð til barnanna i bænum fyrir hver jól, þá kemur rúta frá stöðinni og nær i börnin og þeim er boðiö upp á sælgæti og „skripó” i stöðinni. Þetta veldur alltaf nokkrum deilum og menn taka afstöðu að þvi ^er virðist án tillits til skoðana á herstöðvamál- um. Margir sem eru fylgjandi dvöl bandarisks hers hér á landi, telja þessi jólaboð ekki viðeigandi og vilja ekki að börn sin séu með- al boösgesta. En þóttdeilur vegna stöövarinnar komi oft rikir þó sæmilegur friöur meðal bæjar- búa. Við teljum aö þarna eigi her- stöðvaandstæðingar á Höfn góöan hlut að máli og aö þeir hafi unnið gott starf innan byggðarlagsins þótt það hafi ekki farið hátt út á við. Kvöldvaka og ganga Ilvernig munuð þið svo haga aðgerðum ykkar. Laugardaginn 8. ágúst veröum við meö kvöldvöku i Mánagarði i Nesjum. Þar verður fjaliaö um stöðina i Stokksnesi, tækjabúnað hennar og hlutverk. Þetta er auð- vitað þaö sem stendur okkur næst og það verður að viðurkennast að þaö setur oft að manni ugg viö til- hugsunina um nábýlið við þessa stöð sem gegnir stóru hlutverki i kjarnorkuvopnakerfi N.A.T.O. Einnig verður fjallað um vig- búnað og friðarmál. Daginn eftir verður svo gengið frá Stokksnesi til Hafnar. Sævar Kristinn Jónsson á Rauðabergi á Mýrum I Alftaveri flytur ávarp I upphafi göngu. Við Hellnanes verður áð og þar talar Siguröur Ó. Pálsson á Eiðum. A útifundi sem veröur haldinn við hinn fagra vatnstank við Fiskhól á Höfn aö göngu lokinni tala svo Torfi Stein- þórsson frá Hala i Suðursveit og Pétur Gunnarsson rithöfundur. —j Geir Gunnlaugsson og Jónina Einarsdóttir. — Ljósm: Ari BamastQllinn fráVol fyrir börn 6 ára og yngri Verð: 1077 kr. (með festingum) Stólarnir eru fyrir Volvo 140,240,340 Yfirgripsmiklar tilraunir hafa sýnt fram á að lítil börn eru best varin í barnastólnum sem snýr öfugt. SUÐURLANDSBRAUT 16. SIMI 35200 Bílbeltið, sem Volvo var fyrsta bíla- verksmiðjan til að nota sem fastan fylgihlut, hefursýnt notagildi sitt sem vörn fyrirfullorðna. En lítil börn hafa tiltölulega stórt höfuð, brothættan háls, lítinn brjóstkassa og óþroskaða mjaðmagrind, þau geta því ekki notfært sér þessa tegund af vörn. Börn á aldrinum níu mánaða til sex ára eru best varin í barnastól sem snýr öfugt, og barnastóllinn frá Volvo er eini barnastóllinn sem ver börn af stærðinni allt að 117 cm. Barnastólinn frá Volvo er hægt að staðsetja bæði í framsæti og aftursæti og hann er með þriggja punkta öryggisbelti með barna- læsingu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.