Þjóðviljinn - 31.07.1981, Síða 3
Föstudagur 31. júll 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Húsaröðin við Aðalstræti. Ef vilji hiiseigenda nær fram að ganga
hverfa öll húsin nema Morgunblaðshöllin og þeirra i stað risa bygging-
ar, jafnháar henni. Ljósm. — gei.
Aðalstrætið:
Nýtt lóðamat
er væntanlegt
Seðlabankinn eykur bindiskyldu
Aukníng útlána 60%,
aukning innlána 75%
Þótt innlán hafi aukist um 75% þykir Seðiabankanum ástæða til aO
auka bindiskylduna, til að halda aftur af verðbólgunni. Þvi má reikna
með að erfiðara verði að ná aurum út fyrir afgreiðsluborð bankanna.
Á næstu vikum má búast við að
nýttlóða-og fasteignamat á eign-
um við Aðalstræti verði tilbiiiö, en
Fasteignamat rikisins er nú að
endurskoða matið á þessum stað,
svo og i Kvosinni og Grjótaþorpi,
að kröfu Reykjavi'lkurborgar.
Hvergi á landinu mun lóðaverð
vera hærra en við vestanvert
Aðalstrætið, þar sem húseig-
endur. aðrir en eigendur Morgun-
blaðshaiiarinnar, knýja nú á um
niðurrif og stórfellda uppbygg-
ingu á lóðunum.
Sævar Geirsson hjá Fasteigna-
mati ríkisins sagðist i gær vonast
til þess að nýja matið yrði tilbúið
á næstu vikum. Á þessu svæði var
siðast metið árið 1970 og frá þvi
1976 hefur það mat verið hækkað
árlega meðeinföldum framreikn-
ingi sem byggist á verðbreyting-
um á fasteignamarkaðinum.
Sá munur sem er innbyrðis á
lóðamati við Aðalstræti vekur at-
ÍKvenna- I
j listinn j
• með meiri-j
| hluta?
* Akureyrarblaðið brá á leik I J
Isiðustu viku og innti 50 Akur-
eyringa eftir afstöðu þeirra
til væntanlegra frambjóð- '
' enda i bæjarstjórnarkosn- !
ingum á næsta ári. Tilefnið
var auðvitað hinn nýi
> kvennalisti sem væntanlega
mun bjóða fram þegar þar !
að kemur.
Niðurstöður þessarar I
■ könnunar sem að visu er of
I’ smá til að vera marktæk,
leiddi i ljós að kvennalistinn
myndi fá hvorki meira né I
minna en 6 fulltrúa af 11 i
J bæjarstjórninni. Alþýðu- J
[ flokkurinn fengi engan,
| Framsóknarflokkurinn fengi |
* 1, Alþýðubandalagið 1 og
I* Sjálfstæðisflokkurinn 3.
Aðeins 26 af þeim 50 sem
spurðir voru tóku afstöðu, 15
sögðust óákveðnir, sex neit-
J uðu aö svara og 3 sögðust
| ekki myndu kjósa.
Þessi niðurstaða þýðir að
■ kvennalistinn myndi fá
I* meirihluta í bæjarstjórninni,
en þar sem aðeins 0.66%
kjósenda létu áht sitt i ljós
verður að taka útkomunni
J varlega. Þó kann að vera að
| kvennalistinn eigi meira
| fylgi að fagna en margan
I grunar?
hygli. Þannig er t.d. hver fer-
metri undir Morgunblaðshöllinni
metinn á 4.135 krónur á meðan
hver fermetri undir Fjalakett-
inum er metinn á 4.321 krónu og
undir Aðalstræti 10, Silla og Valda
versluninni gömlu, er hver fer-
metri talinn jafnvirði 5.074 króna.
Lægst er lóðamatið á Aðalstræti
14—16 3.446 krónur pr. fermetra
og hæst á auðu lóðinni við Aðal-
stræti 12, 5.274 krónur. Sævar
sagði að þegar mat hefði siðast
verið framkvæmt, árið 1970 hefði
verið tekið tillit til ýmissa þátta,
sem gerðu lóðirnar misverð-
mætar, m.a. mögulega nýtingu
(hæðafjölda) samkvæmt þágild-
andi aðalskipulagi, lögunar lóð-
anna og hvernig þær lágu við við-
skiptum.
Frá 1970 hefur hins vegar
margt breyst í henni Reykjavik.
Grunni aðalskipulagsins hefur
verið breytteinkum gatnakerfinu
i gamla bænum, aldrei var gert
deiliskipulag að Grjótaþorpinu I
samræmi við aðalskipulagið og
þungamiðja viðskipta og versl-
unar, sem skiptir miklu varðandi
verðgildi lóðanna, hefur flust frá
Aðalstræti, Austurstræti og
Lækjargötu inn eftir Laugavegi
og Suðurlandsbraut f Siðumiíla og
Ármúla. A þessum nýju við-
skiptasvæðum hefur fasteigna-
mat verið hækkað verulega en
matiðá Aðalstrætinu miðast enn-
þá við að þar sé þungamiðja við-
skipta i borginni.
Sævar Geirsson viðurkenndi að
matið í miðbænum væri i hnút.
Borgin óskaði s.l. vetur eftir
endurskoðun á þvi og það gerði
einnig einn lóðareigandi, Þorkell
Valdiarsson sem á Fjalaköttinn.
Þorkeli hefur verið synjað um
leyfi til að rifa Köttinn og i fram-
haldi af þvi höfðaði hann skaða-
bótamál á hendur borginni.
Krafðist Þorkell þess að sér yrðu
greiddar bætur fyrir að mega
ekki nýta lóðina til nýbyggingar
og miðaði kröfu sina við að á
henni stæði hús jafnhátt Morgun-
blaðshöllinni. Þetta mál er nú
fyrir hæstarétti en krafa Þorkels
var ekki tekin til greina i undir-
rétti.
Þegar aðrir húseigendur við
vestanvert Aðalstræti taka sig nú
saman og óska eftir leyfi til að
rifa er trúlegt að þeir séu að
renna stoðum undir skaðabóta-
kröfur á hendur borginni en þessi
krafa endurspeglar einnig óá-
nægju þeirra með nýja deiliskipu-
lagstillögu að Grjótaþorpi sem nú
er í umfjöllun I borgarkerfinu.
Tillagan gerir ráð fyrir þvi að
framangreind hús standi eða að
ekki verði heimilað að byggja
stærri hús á lóðunum, verði þau
látin víkja.
1 skipulagsnefnd hefur meiri-
hlutinn lagt fram bókun, þar sem
skipulagstiliagan er í aðalat-
riðum samþykkt en borgarstjórn
mun ekki taka afstöðu til hennar
fyrr en eftir miðjan september.
— AI
Seölabankinn hefur
ákveðið aö auka bindi-
skyldu bankakerfisins úr
3% í 5% frá og með 10.
ágúst. Hér er ekki um hina
hefðbundnu bindingu að
ræða/ þá sem m.a. stendur
undir endurkaupum Seðla-
bankans á afurðalánum
atvinnuveganna, heldur
bindingu sem ætluð er til
að stýra að nokkru
almennum útlánum banka,
sparisjóða og annarra
innlánastofnana.
Þessi binding er nokkuð ný af
nálinni, og er heimiluð með
lögum frá i april á þessu ári, en
samkvæmt þeim getur
Seðlabankinn ákveðið hærri og
sveigjanlegri bindiskyldu
innlánastofnana, þó að fengnu
samþykki rikisstjórnarinnar.
Fyrsta skrefið i þessa veru var
2% binding i júni, sem siðan var
hækkuð upp i 3% i júli. Nú er sem-
sagt ákveðið að hækka þetta upp i
5% i ágústmánuði.
Einn helsti tilgangur bindi-
skyldunnar er sem fyrr segir að
jafna lausafjárstöðu bankanna,
með þvi að halda i við þá i útlán-
um.
Fyrstu mánuði þessa árs var
þróun útlána frekar stöðug, en
með vori kom allverulegur kippur
i eftirspurn eftir lánum, en það
Viðskiptabankamir hafa þegar
ákveðið að draga verulega úr út-
lánum á næstu mánuðum. Þctta
er gert i" framhaldi af ákvörðun
Seðlabankans um aukningu á
bindiskyldu bankanna. Hafa við-
skiptabankarnir ákveðið að veita
ekki ný lán fyrst um sinn önnur en
reglubundin lán til atvinnurekstr-
ar og til einstaklinga sem eru I
viðskiptum við hlutaðegiandi
banka. Þetta kemur fram I frétta-
bendir til allverulegrar
framkdvæmdagetu hjá almenn-
ingi.
Af þessum sökum hafa útlán
hækkað um 39% frá áramótum,
en skv. venjubundinni árstiða-
sveiflu i eftirspurn eftir lánum
bendir þetta til að aukning útlána
stefni á 60% aukningu yfir árið,
að mati Seðlabankans.
A móti kemur að innlán hafa
tilkynningu, sem send var fjöl-
miðlum I gær.
Að auki hafa bankarnir ákveðið
að draga úr kaupum viðskipta-
vixla á næstu tveimur mánuðum.
Það mun m.a. hafa þau áhrif að
þrengra hlýtur að verða um af-
borgunarviðskipti, ef bankarnir
standa við þessa ákvörðun sina,
sem er auðvitað alls ekki vist. Áð-
ur hefur það nefnilega gerst að
aukist enn meira, en frá júni i
fyrra til júni i ár jukust innlán um
75%.
Af ótta við að aukin eftirspurn
hafi veruleg þensluáhrif og kyndi
á ný undir verðbólgubálinu, hefur
Seðlabankinn tekið þessa
ákvörðun. Reikna má þvi með að
heldur þrengra verði um vik að fá
lán hjá bönkunum á næstunni.
— eng.
bankarnir hafi tilkynnt um sam-
drátt i útlánum, m.a. kaupum
viðskiptavixla, án þess að nokkuð
hafi úr orðið.
1 fréttatilkynningu bankanna
kemur fram að eftir að hin sveigj-
anlega innlánsbinding hefurverið
hækkuð úr 3 i 5% er heildarbindi-
skyldan komin upp i 33% af öllum
innlánum i bönkum og sparisjóð-
um. eng.
Tilkynning
til eigenda tékkareikninga um
samdægurs bókun á tékkum
Frá og með 4. ágúst 1981 verða tekin upp svokölluð skjalalaus
greiðsluskipti á milli banka og sparisjóða. Þetta hefur í för með sér að allir tékkar,
sem Reiknistofa bankanna sér um bókun á og innleystir verða hjá
afgreiðslustöðum banka og sparisjóða, verða bókaðir sama dag og innlausn fer fram.
Bókun fer fram með tvennu móti:
1. Samkvæmt innlestri á tékkunum sjálfum í Reiknistofu
bankanna, þegar um er að ræða afgreiðslustaði, sem afhenda
tékka daglega til Reiknistofunnar. Er það óbreytt meðferð
frá því sem verið hefur.
2. Samkvæmt símsendum upplýsingum frá þeim
afgreiðslustöðum, sem eru símtengdir Reiknistofunni.
Þegar bókun fer fram símleiðis, verður tékkinn geymdur á
innlausnarstað. Þurfi reikningseigandi að fá upplýsingar um
slíkan tékka, mun reikningsbanki sjá um útvegun á þeim.
Reykjavík, 29. júlí 1981
BANKAR OG SPARISJÓÐIR
Viðskiptabankarnir bregðast við aukinni bindiskyldu
Dregið úr údánum