Þjóðviljinn - 31.07.1981, Page 7
i v’ V 't
’ ?t’i íi?i{ ít > vix. r« •»
Föstudagur 31. jdli 1981 ÞJÖÐVILJINN — SIDA 7
„Þetta er besta laugin i bænum,
það er enginn vafi á þvi”, sagöi
einn Breiðhyltingur þegar sund-
laugin þar efra barst i tal, og
greinilega eru margir á sama
máli því algengt er að fólk úr öðr-
um borgarhverfum leggi leið sina
i Breiðholtið til að fara I sund.
— En hvað er það sem gerir
laugina betri en hinar tvær, Sund-
laug Vesturbæjar og Laugardals-
laugina?
,,í fyrsta lagi eru báðir heitu
pottarnir stærri en i hinum laug-
unum,” sagði viðmælandi okkar,
,,og barnapotturinn er miklu
stærri, sem er mikill kostur. Hon-
um er lika vel fyrir komið viö
laugina þannig að maður getur
synt og séð til krakkanna á með-
an. Þá eru sturturnar sérlega
góðar og öll aöstaða þar rúmbetri
en i hinum laugunum. Fyrir nú
utan að laugin er sérlega falleg og
vel til hennar vandað.”
Eftir þessa einkunnagjöf lögð-
um við leið okkar i þessa rómuðu
laug; veðrið var gott og margt
fólk i lauginni þótt miður dagur
væri. Hallgrimur Jónsson sund-
laugarstjóri, sagði aösóknina
vissulega misjafna eftir veöri rétt
eins og á öðrum sundstöðum en á
góðum dögum kæmu 700 - 1000
manns. 1 sumar hefur verið
meira af fullorðnu fólki i lauginni
en börnum. Hallgrimur sagði að
fyrst eftir að laugin var opnuð
hefði barnaskarinn verið gifur-
lega mikill og margir hefðu kom-
ið langt aö. Nú væri éins og nýja-
brumið væri farið af og fullorðna
fólkið væri farið að átta sig á til-
vist laugarinnar. Hallgrimur
sagöist telja að allur þorri laug-
argesta væri ánægður meö að-
búnað i lauginni, hún þætti falleg
og þægileg. Um 15 manns vinna
við laugina en eru ekki allir i fullu
starfi.
— AI
Besta laugin í bænum
MW
Barnapotturinn vinsæli er i hring i kringum eftirlitsturninn og'þar flytja sóldýrkendur sig eftir sólarganginum. A hinum myndunum sjást
nokkrir laugargestir njóta lifsins. Ljósm. — gel.
Sýslufundur Norður-Múlasýslu
73 erindi afgreidd
Kaffiskemmdir
Ekki er óliklegt aö’ frostin, sem
gengið hafa yfir Brasiliu að und-
anförnu, komi til með að hafa
áhrif á kaffiuppskeruna þar, og
þá jafnframt kaffiverðið nú hin
næstu misseri.
Samkvæmt skeytum, sem Inn-
flutningsdeild SIS hefur fengið frá
Santos-skrifstofu NAF, hafa
skemmdir af völdum frosta orðið
verulegar. Er jafnvel talið að
eyðilagst hafi sem svarar 5-10
milj. sekkjum. Og ekki er enn fyr-
ir endann séð þvi ennþá eru frost i
Brasiliu.
Hins er svo að gæta, að offram-
leiðsla hefur verið á kaffi i Bras-
iliu undanfariö og þvi óvist að
skortur verði á kaffi af þessum
sökum.
— mhg
73 erindi voru afgreidd og fimm
nefndir störfuðu á sýslufundi
Norður-Múlasýslu, sem haldinn
var dagana 12. og 13 júni. Urðu
umræður bæði itarlegar og fjör-
ugar að þvi er segir i frétt frá
fundinum. Meðal mála sem af-
greidd voru eru þessi:
Fjárhagsáætlun fyrir sýslu-
vegasjóð að fjárhæð kr. 1.577.740
og f járhagsáætlun fyrir sýslusjóð
Norður-Múlasýslu að fjdrhæð kr.
264.000.
Þar af til menntamála er varið
kr. 72.500.- og er þar stærsti
gjaldaliður héraðsskjalasafn
Austfjarða kr. 53.000,- Til heil-
brigðismála er varið kr. 61.000.-
og þar af var varið til elliheimilis
að Egilsstöðum fyrir kr. 15.000.-
og til elliheimilis að Vopnafirði
kr. 14.000.-. Til atvinnumdla var
varið kr. 30.300,- og I önnur út-
gjöld kr. 60.000.-
Þá var samþykkt tillaga sýslu-
nefndar um nafngift á þéttbýlið
norðan LagarfljótsbrUar og skal
það heita Fellabær. Einnig var
skorað á vegagerð rikisins að láta
rannsaka framtiðarvegarstæði
milli Vopnafjarðar og Héraðs og
skorað á dómsmálaráðherra að
hann skipi bifreiðaeftirlitsmann
fyrir Norður-Múlasýslu og hafi
hann aösetur í Fellahreppi. Þá
kom til umræðu skipan sýslu-
marka á Austurlandi og var sam-
þykkt að fela oddvita sýslu-
nefndar aö senda öll gögn varð-
andi málið til sveitarstjórna I
sýslunni. Er þeim ætlað að fjalla
um máliö og skila áliti til næsta
aðalfundar.
Sigurður Helgason, sýslu-
máður, er oddviti sýslunefndar.