Þjóðviljinn - 31.07.1981, Síða 9
8 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. júll 1981
Föstudagur 31. júll 1981 ' ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Heyrist
hljóð úr
homi
þegar
vinsældlr
aukast
Þjóöviljinn haföi samband viö
Sól hf., en þaö er fyrirtæki i sam-
krulli viö Smjörliki hf. á vegum
Daviös Schevings Thorsteinsson-
ar. Þaö er sól hf. sem flytur inn og
framleiöir hiö nýja gosglundur
sem nú er aö ryöjast inn á gos-
drykkjamarkaöinn.
Þaö var Arni Ferdinandsson
sölumaöur sem var i fyrirsvari
fyrir Soda-Stream-drukkinn: —
Soda Stream er breskt aö upp-
runa en aöalumboö fyrir fram-
leiðsluna á Noröurlöndum er i
Danmörku og þaöan flytjum viö
inn hráefnin. Við sjóðum hér i
okkar verksmiöju sykurefni og
bragðefniö og töppum á flöskur.
Það er töluverð vinna viö þetta
fyrir nokkrar manneskjur. Syk-
urmagniö veröur hlutfallslega
þaö sama og i gosdrykkjum. Viö
völdum sjálfir bragöefni, — okkur
þóttu bragðefnin frá Soda Stream
i Danmörku ekki nógu góö. Ann-
ars stefnum viö á aö framleiöa
sykursnautt og meö fleiri bragð-
efnum.
Hvernig eru undirtektirnar á
markaðinum?
— Þær eru mjög góöar. Þetta
þýöir jú byltingu. Nú getur fólk
losnaö viö alls konar flöskustúss.
Veröiö er ekki meira en 1/3 hluti
verös á gosdrykkjum.
Eigiö þiö þá ekki von á aö gos-
drykk jaframleiöendur séu
óánægöir með þessa samkeppni?
— Ég býst viö að heyrist hljóð
úr horni þegar vinsældir Soda
Streams fara aö segja til sin. Viö
erum óneitanlega i samkeppni.
Þess má geta aö i Danmörku eru
um 35% heimila meö svona tæki
svo þaö gæti ýmislegt gerst hér.
Er ekki gifurlegur auglýsinga-
kostnaöur hjá ykkur og hver
borgar hann?
— Jibþað er mikill auglýsinga-
kostnaöur viö aö koma svona
nýrri framleiöslu á markaðinn.
Þær eru á okkar vegum og er-
lenda fyrirtækiö tekur engan þátt
i kostnaöi. Við erum til dæmis
með fjórtán stúlkur sem fara út i
búöirnar og gefa fólki aö smakka
og kynna gosdrykkinn. Þannig
náum við beinu sambandi viö
markaðinn. Ég hef engar tölur
um auglýsinga- og kynningar-
kostnaö^en hann er verulegur.
— óg
um
lögmæti
Þvi er ekki aö leyna aö ýmsar
efasemdir hafa gert vart viö sig
um lögmæti hins nýja innflutn-
ingsdrykkjar Daviös Schevings.
Heilbrigöiseftirlit rikisins
kannast ekki viö aö hafa fengið
nýja mjööinn til umsagnar, en I
regiugerð nr. 250 um tilbúning og
dreifingu matvæla og annarra
neyslu-og nauösynjavara stendur
þetta I þriöja kafla, 9. gr. 4. liö:
„Þegar um samsettar neyslu-
vörur er aö ræöa, sem seldar eru I
luktum umbúðum eða hylkjum,
ákveður Heilbrigöiseftirlit rikis-
ins að hve miklu teyti skýring
skuli fylgja á samsetningu
vörunnar áður en hún er seld.
Heilbrigðiseftirlit rikisins getur
einnig ákveöið að magn aðal-
efnanna sé gefið upp fyrir
einstakar vörutegundir.”
Við fáum ekki betur séð en Soda
Stream falli undir þetta ákvæði
reglugerðarinnar og heföi þvi átt
að fá umfjöllun Heilbrigðiseftir-
litsins.
Þá stendur einnig i þessari
reglugerð (2. kafli, 8. gr. 2. liður):
„Ef boðin er til sölu aukaefna-
blanda skal telja fram efni á
umbúðum i lækkandi röð eftir
magni meö þeim merkingum,
sem notaðar eru á aukaefnalista,
sem i gildi er hverju sinni. Ef
hámarksákvæöi gilda um einstök
efni blöndunnar, samkv. auka-
efnalistum, skal þaö auökennt i
hundraðshlutum af heildarþyngd
vörunnar.” En utan á Soda
Stream flöskunum stendur ein-
göngu þetta: „Innihald Bragð- og
rotvarnarefni, sitrónusýra, sykur
og vatn. Geymsluþol: Minnst 3
mánuöir viö stofuhita. Þolir ekki
sólarljós”. Þá er spurning hvort
ekki eigi lögum samkvæmt aö
geta pökkunardags og siöasta
söludags.
— óg.
Ekkert
eftirlit
Með innflutningi
á matvælum
„Þaö er ekkert eftirlit meö inn-
flutningi á matvælum”, sagöi
Oddur R. Hjartarson hjá
Heilbrigöiseftirliti rlkisins,
þegar Þjóöviljinn haföi samband
viö hann I gær, út af Soda Stream
málinu.
— Þvi miöur er ekki krafist
umsagnar heilbrigöiseftirlits viö
innflutning matvæla. Þaö er ein-
göngu krafist umsagnar
heilbrigöiseftirlits viökomandi
sveitastjórna, þegar framleiösla
á matvælum hefst á hverjum
staö. Það er fyrst eftir aö varan
er komin á markaö, aö viö getum
rannsakaö og fjallaö um hana og
þá eftir aö eitthvert tilefni hefur
gefist til þess, kæra eða efasemd-
ir, sagöi Oddur Rúnar.
Aö lokum sagöi Oddur að fram-
leiöendum og seljendum matvæla
bæri að fara eftir reglugerö nr.
250 frá 1976 meö breytingu um
tilbúning og dreifingu matvæla og
annarra neyslu- og nauösynja-
vara.
— óg.
Núna
hrópa
þeir
úlfur,
úlfur!
— segir forstjóri
Sanitas
„Mér finnst hlægilegt þegar
þeir tala um einokun. Þeir hafa
sjálfir haft algjöra einokun á
markaöinum” sagöi Ragnar
Birgisson framkvæmdastjóri
Sanitas, þegar blaöiö innti hann
eftir áliti á kæru Vlfiifells og ÖI-
gerðarinnar vegna samninga
þjóöhátiöarnefndar og Sanitas.
„Þegar litla fyrirtækiö sem
alltaf hefur veriö hornreka á
markaðinum reynir aö ná hlut-
deild I honum hrópa þeir úlfur,
úlfur! Svona er ekki frjáls sam-
keppni. Kók hefur veriö meö ein-
okunaraöstööu á kóladrykkjum
fram að þessu og ölgerö Egils
Skallagrimssonar meö ein-
okunaraöstööu á sölu maltsins.
Kók og ölgeröin hafa skipt mark-
aöinum á milli sin. Nú er þetta aö
breytast fyrir okkar tilverknaö”.
Ertu ekkert smeykur viö nýja
samkeppnisdrykkinn frá Daviö
|Scheving?
i ,,Ég er óhræddur viö frjálsa
samkeppni. Ef þetta gengur vel
hjá Daviö, þá sættum viö okkur
viö þaö og bjóöum hann velkom-
inn i samkeppnina”.
En heldur þú aö Soda Stream
taki ekkert frá gosdrykkjaselj-
endum þannig aö þiö þurfiö aö
draga saman seglin?
„Nei, það held ég ekki. Þeir
geta ekki náð sömu gæðum og viö.
Kostnaöurinn við þetta er lika
mikill og gosdrykkir eru hræ-
ódýrir á Islandi”.
Nú hefur verið minnst á þaö I
Frjálsri verslun aö Pepsi Cola
sem Sanitas hefur umboö fyrir og
Coc Cola (Vifilfell) standi i sam-
keppni viös vegar um heiminn og
átökin hér séu angi af þvi
markaösstriði?
„Pepsi Cola hefur meö hug-
myndaauögi sinni náð undir sig
ýmsum markaðssvæðum, —
annarser Kók viða sterkari. Þið á
Þjóðviljanum eruð jú á móti al-
þjóðlegum auðhringjum. En ég
get fullvissað ykkur um þaö, að sú
samkeppni sem við stöndum i hér
á Islandi stendur i engu sambandi
við þaö sem er að gerast er-
lendis”, sagöi Ragnar Birgisson
hjá Sanitas að lokum. — óg
Björn í Iðju:
✓ ^«1
stuðningur
við
iðnaðinn
Björn Bjarnason hjá Iöju félagi
erksmiöjufólks hló við, þegar
'jv. leitaöi álits hans á hinni nýju
-amleiöslu Daviös Schevings á
osglundri. Þaö mætti spyrja,
agöi Björn, hvort þetta ætti að
era stuðningur viö gosdrykkja-
Inaöinn i landinu? — ói
Davíð
keypti
ölið í
Daviö keypti mjöðinn i
Danmörku. Þaöan höfum við séð
umfjöllun dansks neytendablaðs
(R5d og resultater) um Soda
Stream. Blaðið bendir á að
„sparnaðurinn” er dáli'tið tvi-
eggjaður, þvi.staðreyndin sé sú
að fólk drekki mun meir af gos-
glundri en það ella hefði gert ef
það slysist til að kaupa
maskinuna.
Ségluggað nákvæmlega i málið
þá sé næringargildið ekkertog of-
notkun bæri dýr og heilsunni
skaðleg. Sitrónusýran i drykkn-
um sé skaðleg glerjungi tanna, en
á umbúðum Soda Stream i
Danmörku upplýsi neytendur á
merkimiöum að sterkar blöndur
geti verð hættulegar tönnum.
Slikar upplýsingar eru ekki á
merkimiðanum hér. Blaöið segir
einnig aö Soda Stream i
Danmörku gefi upp „benzeo-
sýru”sem rotvarnarefni, en þess
er heldur ekki getiö á íslensku
söluvörunni. Þess má og geta aö
verö maskínunnar I Danmörku er
250 til 300 krónur, á meöan hún
kostar úr búð á Islandi 895
krónur. Varaö er sérstaklega við
aö smábörn drekki mikiö af
þessu; þannig mega börn 4—5 ára
ekki drekka meira en 4 dl. á dag
og eldri börn mega ekki drekka
meira en 3/4 litra á dae. —óg.
ÖLSTRÍÐIÐ í ALGLEYMINGI
Hvergi
banginn
segir Örn hjá Agli
örn Hjaltalin framkvæmda-
stjóri ölgeröarinnar Egill Skalla-
grimsson, sagöist hvergi vera
banginn viö þessa samkeppni frá
Daviö Scheving.
Sagöi örn „aö samkeppni væri
alltaf góö”. örn taldi að þessi
framleiðsla þýddi ekki minnkaða
framleiöslu hjá gosdrykkjafram-
leiðendum. „Enn fremur”, bætti
hann við „eigum viö til ávaxta-
safa, sem við getum selt fólki i
þessi appiröt”. Þá taldi örn, að
hátt verð á blöndunartækinu fældi
fólk frá kaupum á þvi. Loks gat
örn þess, aö meöan heilbrigð
samkeppni réði ferðinni i þessu
máli, væri annaö upp á
teningnum i málinu gegn Sanitas,
þar sem einokunarsamningar
giltu milli Þjóöhátiöarnefndar i
Vestmannaeyjum og Sanitas.
„Við sendum ekki tilboð til
Þjóðhátiðarnefndar, þvi við
viljum ekki taka þátt i einokunar-
samningum”, sagði örn Hjaltalin
að lokum.
— óg.
AUtof dýrt
segir Kristján í Kók
Kristján G. Kjartansson for-
stjóri Vifilfells hefur ekki trú á
þessu nýja tæki frá Davlð.
„Þetta er alltof dýrt tæki til aö
geta orðið einhver samkeppni viö
okkur. Þetta gæti orðiö eitthvert
leikfang smá tima, en svo fer
nýjabrumið af þvi”.
Aöspuröur um þaö hvort hann
teldi aö Daviö færi út i svona
framleiöslu og auglýsingaherferö
án þess að hann ætti einhverja
markaðsvon, sagöi Kristján að
hann reiknaði meö þvi aö Daviö
Scheving heföi „businessvit”. —
Hins vegar heföi ég aidrei fariö út
á þennan markaö, sagöi Kristján.
Um einkaleyfi Sanitas á sölu
gosdrykkja á þjóöhátiöinni i Eyj-
um sagði Kristján: „Ef Sanitas
getur gefið betri þjónustu en við
— verðum við aö sætta okkur viö
þaö. Hins vegar efast ég um aö
þeir geti þaö”.
— óg.