Þjóðviljinn - 31.07.1981, Qupperneq 10
10 StÐÁ — ÞJÓDVILJINN Föstuíáagur 31. júli 1981
A
Heimilishjálp
Okkur vantar strax fólk til aðstoðar á
heimilum, hálfan eða allan daginn.
Upplýsingar á félagsmálastofnun Kópa-
vogs, Digranesvegi 12, simi 41570.
Félagsmálastofnun Kópavogs
Hjúkrunarfræðmgar
Sjúkrahúsið i Húsavik óskar að ráða,
hjúkrunardeildarstjóra og hjúkrunar-
fræðinga, i fastar stöður nú þegar eða eftir
samkomulagi.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri, i
sima 96 - 41333 heimasimi 96 - 41774.
Sjúkrahúsið i Húsavik s.f.
AUGLÝSING samkvæmt 1. mgr. 98 gr.
laga nr. 40 18. mai 1978 um tekjuskatt og
eignarskatt með siðari breytingum, um að
álagningu opinberra gjalda á árinu 1981 sé
lokið á þá menn sem skattskyldir eru hér á
landi samkvæmt 1. gr. greindra laga, þó
ekki 2. tl. þeirrar greinar, og á börn sem
skattlögð eru samkvæmt 6. gr. þeirra.
Tilkynningar (álagningarseðlar) er sýna
þau opinberu gjöld sem skattstjóra ber að
leggja á á árinu 1981 á þessa skattaðila
hafa verið póstlagðar.
Kærur vegna allra álagðra opinberra
gjalda, að sóknargjöldum undanskildum,
sem þessum skattaðilum hefur verið til-
kynnt um með álagningarseðli 1981 þurfa
að hafa borist skattstjóra eða umboðs-
manni hans innan 30 daga frá og með dag-
setningu þessarar auglýsingar.
31. júli 1981
Skattstjórinni i Reykjavik,
Gestur Steinþórsson.
Skattstjóri Vesturlandsumdæmis,
Jón Eiriksson.
Skattstjórinn i Vestfjarðaumdæmi,
Hreinn Sveinsson.
Skattstjórinn i
Norðurlandsumdæmi vestra,
Bogi Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn i
Norðurlandsumdæmi eystra,
Hallur Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn i Austurlandsumdæmi,
Bjarni G. Björgvinsson.
Skattstjórinn i Vestmannaeyjum,
IngiT. Björnsson.
Skattstjórinn i Reykjanesumdæmi,
Sveinn Þórðarson.
BORGARNESHREPPUR
Auglýsing um íbúðir í
verkamannabústöðum
í Borgarnesi
Til sölu eru tvær ibúðir i verkamanna-
bústöðum við Kveldúlfsgötu 18 i Borgar-
nesi.
Umsóknir um ibúðimar þurfa að berast
skrifstofu Borgarneshrepps fyrir 15. ágúst
n.k.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu
hreppsins.
Borgarnesi 28. júli 1981
Stjórn verkamannabústaða i Borgarnesi.
Minning
Gfsli skipstjóri
Guðmundsson
Súgandafírði
Fæddur 14. janúar 1901 -
dáinn 22. júli 1981
Gisli skipstjóri Guðmundsson,
hefur lokið lifi og störfum,
áttræður að aldri. Hann var
Breiðfirðingur að ættog uppruna,
fæddur 14. janúar 1901 að Vatna-
búðum i Grundarfirði, sonur
hjónanna Sesselju Sigurrósar
Gisladóttur og Guðmundar
Aþanfussonar. Hann byrjaöi
ungur sjómennsku við Breiða-
fjörð, en fluttist rúmlega tvitugur
að aldri til Suðureyrar i Súganda-
firði, sem þá var vaxandi veiði-
stöð með tuttugu vélbátum fyrir
landi. Gi'sli Ilentist á Suðureyri og
dvaldist þar til æviloka, nær
sextiu ár. Ævi hans var viðburða-
rik og stórbrotin. Hann stundaöi
sjóinn þar vestra i rúmlega þrjá-
tiu ár, fyrst sem háseti, en siðan
skipstjórnarmaöur.
A yngri árum sinum syðra lenti
Gislifimm sinnum i sjávarháska
eða féll i sjóinn, og bjargaðist
stundum naumlega. Á Suðureyri
tók hann fljótlega formennsku á
vélbátum .Og árið 1930 tók hann á
Isafirði 60tonna skipstjómarpróf.
Hann var i' fyrstu tólf árin á út-
vegi Friðberts Guðmundssonar
skipstjóra og stýröi Gamminum
12 lesta bát i þrjú ár, siðan
Freyju, um 30 lesta skipi i niu ár.
Eftir að Gisli sleppti Freyju, var
hann skipstjóri á Geir, 58 tonna
skipi frá Siglufirði, bæði á vetrar-
vertið og sild, siðan á Erni og
Fram frá Háfnarfirði. Seinast var
hann skipstjóri á Súgfirðingi, 40
tonna skipi, sem gert var út frá
Suöureyri. Gísli reyndist góður og
farsæll sjómaöur. Hann var sjó-
sóknarmaður mikill og aflasæll
og vareinkar viss og ábyggilegur
stjórnandi.
Hinn 12. janúar 1955, er Súgfirð-
ingur var að veiðum út af Vest-
fjörðum, sigldi enskur togari á
fullri ferð á hann. Veður var ekki
slæmt, en hörkufrost. Súgfirð-
ingur sökk á svipstundu og
skipsverjarnirfimm fóru i sjóinn.
Drukknuðu tveir þeirra, en
þremur var bjargað. Gisli slasað-
ist við þetta áfall, fór úr axlarlið
og brákaðist, og þurfti skömmu
siðar að fara til Reykjavikur til
lækninga. Hann varð aldreisami
maður eftir þetta slys og fór ekki
aftur á sjó. Þetta gerðist tveimur
dögum fyrirfimmtiu og fimm ára
afmælisdag Gfsla.
Eftir þetta vann Gisli i landi,
einkum við smíðar, svo sem aö
viðgerðum húsa.
— Með fótinn annan fór ég á
burt, fáirmunu eftir leika, er sagt
I orðastað hellismannsins, sem
fór á handahlaupum undan
byggðamönnum og komst á
jökulinn.
Gisli gekk ekki heill til skógar
eftir slysið, en fáir munu eftir
leika þau störf, sem hann innti af
hendi eftir þetta.
Hann gerðist vigtarmaður alls
afla, sem kom til verkunar á land
á Suðureyri. Þetta var mikið starf
i hinni kunnu veiðistöð, þar sem
fjöldi báta var fyrir landi. Hann
hafði yfirlit með öllum aflabrögð-
um I veiðistöðinni, skrifaði fisk-
t'ígundir og aflamagn hvers
skips. Siðan reiknaði hann út
verðmæti þess, sem hver bátur
bar að landi. Og enn var það að
hann reiknaði út hlutskipverja og
var þá á undan útgerðinni. Var
hann svo nákvæmur i þessu hlut-
verki að engu munaði við skipti
útgerðar eða þá mjög litlu.
Eftirað hann fékk talstöð, hafði
hann lifandi samband við skip á
hafi úti.Gat hann tíðum látið fólk
i landi fá fregnir af skipum i sjó-
ferðum. Þetta var mikilsvert,
þegar sjóveður voru vond og tvi-
sýnt þótti um skip. Fregnir af
þessu starfi Gísla bárust viða og
fólk i nálægum plássum leitaði
tiðum til hans og bað hann að
grennslast eftir bátum á hafi úti.
Vinnudagur Gisla við þessi
störfvar langur, en hann hugsaði
hvorki um nótt né dag i þessu
sambandi. Þettu var að mestu
áhugastarf, sem hélt honum
árvökum og glöðum.
Jafnframt þessum störfum
varð hann þjóökunnur, eftir að
hann gerðist fréttamaður Þjóð-
viljans. Hann skrifaði á annan
áratug fregnir úr héraðinu og ná-
grenni og var svo greinargóður,
að margir aðrir viöa um land
vildu gera slikthið sama. Það var
fljött auðfundið að þetta gerði
enginn meðalmaður i hugsun og
starfi.
Hinn 20. nóvember 1927 kvænt-
ist GIsli Þorbjörgu, dóttur Elínar
Þorbjamardóttur og Friðberts
Guðmundssonar útgerðarmanns.
Þorbjörg er elst sex systkina.
Hún er mikilhæf kona, stjómsöm
og forsjál. Þau hjón eignuðust
fimm börn:
1. Friðbert Eli, er varð skip-
stjóri, kvæntur Lilju Eiriks-
dóttur. Hanu er látinn.
2. Jóhannes húsgagnasmiður,
kvæntur Guðrúnu Erlu Skúla-
dóttur.
3. Gisli Páll, var sjómaður,
ókvæntur. Hann dmkknaði.
4. Karl Helgi skipstjóri,
kvæntur Erlu Kristjánsdóttur
Hann er látinn.
5. Sesselja Sigurrós. Hún er
gift Viggó Vilbogasyni rafeinda-
fræðingi.
Það er ánægjulegt að geta kvatt
þennan merka samtiðarmann
meö þakklátum huga fyrir störf
hans i hvivetna.
Gunnar M.Magnúss.
Þjóðviljamenn minnast dug-
mikils og skemmtilegs fréttarit-
ara með þakklæti og senda að-
standendum innilegar samúðar-
kveðjur.
Ritstj.
Leikárí L.R. lokið
Aldrei fleiri sýn-
ingar á einu ári
Ofvitinn og Rommí áfram 3. leikárið í haust
Leikári Leikfélags Reykja-
víkur lauk I júnflok, en sumar-
Ieikferö meö leikritiö ROMMt
lykur um næstu mánaöamót.
Sýningar á vegum félagsins
uröu alls 315 á leikárinu og hafa
aldrei oröiö fleiri á einu leikári.
Áhorfendafjöldinn var einnig
meiri en áöur, en alls sáu 71,100
manns sýningar L.R. I Iönó,
Austurbæjarbiói, skólum og á
leikferö um landiö. 211 sýning-
anna voru I Iönó, en 40%
áhorfenda sóttu sýningar
félagsins annarsstaöar.
Atta leikrit voru sýnd á leik-
árinu, þar af tvö frá fyrra leik-
ari, Ofvitinn eftir Þórberg Þórö-
arson og Kjartan Ragnarsson
og Rommi eftir D.L. Coburn.
Bæöi þessi leikrit voru sýnd i
Iðnó I allan vetur og fram á
sumar, og Rommi einnig á leik-
ferð um Norðurland. Þau veröa
bæöi sýnd áfram I Iönó næsta
haust.
Barnaleikrit var sýnt I fýrsta
skipti i nokkur ár, Hlynur og
svanurinn á Heljarfljóti eftir
Christina Andersson. Leikritið
var sýnt 45 sinnum i grunnskól-
um á höfuðborgarsvæðinu fyrir
rúmlega sjö þúsund áhorfendur.
Þá kynnti leikfélagið tvo er-
lenda nútimahöfunda þýska
leikritaskáldið Franz Xaver
Kroetz með verkinu Að sjá til
þin, maður! og bandariska leik-
ritahöfundinn Sam Shepard
með leikritinu Barn i garðinum,
sem verður sýnt áfram i haust.
Jólasýning leikhússins var
Ötemjan eftir William
Shakespeare I nýrri þýöingu
Helga Hálfdanarsonar, en sú
sýning var frumflutningur
verksins á islensku leiksviði.
Tvö ný islensk verk voru frum-
flutt á leikárinu, söngleikurinn
Grettir eftir Egil ólafsson, Olaf
Hauk Simonarson og Þórarinn
Eldjárn og revian Skornir
skammtar eftir Jón Hjartarson
og Þórarinn Eldjárn. Söngleik-
urinn var sýndur I útibúi Leik-
félagsins i Austurbæjarbiói, og
var viðamesta sýning, sem
félagið hefur ráöist i um árabil,
sýningar urðu 28 og áhorfendur
14,500. Revian var sýnd 30 sinn-
um I vor fyrir fullu húsi, og
komust færri að en vildu. Verð-
ur hún þvi flutt inn i Austurbæj-
arbió I haust, aukin og endur-
bætt.
I lok leikársins voru tvær for-
sýningar á nýju leikriti eftir
Kjartan Ragnarsson, sem
nefnist Jói. Höfundurinn er leik-
stjóri, Steinþór Sigurðsson gerir
leikmyndina, og með stærstu
hlutverk fara þau Hanna Maria
Karlsdóttir, Sigurður Karlsson
og Jóhann Sigurðsson. Jói verð-
ur fyrsta verkefni Leikfélagsins
á næsta leikári, sem verður 85.
starfsár félagsins.
Nýir leikhússtjórar tóku til
starfa hjá félaginu, þeir Stefán
Baldursson og Þorsteinn
Framhald á blaðsiöu 14.