Þjóðviljinn - 01.09.1981, Side 5
Þriðjudagur 1. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Indira Gandhi, forsætisráðherra Indlands, flytur eina af upphafs-
ræðum ráðstefnunnar. Hún mælti fyrir munn margra þróunarþjóða:
Áherslan á nýjar orkuleiðir er ekki afsökun fyrir að dreifa athyglinni
frá vandanum um jafna skiptingu hefðbundinnar orku.
Illuti islensku sendinefndarinnar. F. v. Jakob Björnsson, orkumálastjóri, Tómas Tómasson fastafull-
trúi hjá SÞ, Hjörleifur Guttormsson iðnaðar- og orkumáiaráðherra. Auk þeirra sátu á ráðstefnunni af
islands hálfu Guðmundur Pálmason forstöðumaður jarðhitadeildar Orkustofnunar og Andrés Svan-
björnsson frkv. stjóri Virkis h/f.
Norðurlandamenn reyndu sam-
ciginlega að miðla málum milli
iðnrikja og þróunarþjóða á Nai-
robi-ráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna um nýjarog endurnýjanleg-
ar orkulindir sem lauk fyrir hálf-
um mánuði tæpum. Þeir geta þvi
verið sæmilega ánægðir með nið-
urstöður ráðstefnunnar, þó að
kröfum þróunarþjóða um sér-
staka stofnun á vegum SÞ til að
sinna þcssum efnum væri hrundift
af fulltrúum iftnrlkja, er tryggt aft
eitthvert framhald verður á störf-
um ráðstefnunnar og sérstök.
skrifstofa settá stofn undirbeinnii
stjórn aðalframkvæmdastjóra
SÞ, Kurt Waldheim.
Starfsmönnum þessarar skrif-
stofu er ætlað að kanna mögu-
leika á samvinnu hinna ýmsu nú-
starfandi SÞ-stofnana um þessi
mál, en ágreiningsefni Nairobi-
ráðstefnunnar hefur verið komið
til sérstakrar nefndar sem á að
koma tillögum til allsherjarþings
SÞ árið 1982.
Þetta var meðal þess sem fram
kom á blaðamannafundi iðnaðar-
ráðherra um Nairobi-ráðstefnuna
og þátttöku islendinga i henni.
Þrátt fyrir að niðurstöður ráð-
stefnunnar séu mjög i lausu lofti
Niðurstöðurnar þunnur þrettándi, en
N air obi-ráðstefnan
var jákvætt skref
auknum mæli stöðu
Nýting jarðhita helsta skrautfjöður íslendinga
hafa fréttaskýrendur og stjórn-
málamenn talið það stórt skref
framávið að ráðstefnan skyldi
þó fara fram. Til þess varð þó
vegna mikillar viðkvæmni um
orkumál og endurnýjanlegar
orkulindir, sem þýðir meðal ann-
ars að ekkert var fjallað um
kjarnorku, kol og oh'u.
Á ráðstefnunni var fjallað um
aðrar orkuleiðir, sumar gamal-
kunnar islendingum, aðrar ný-
stárlegri.
Rætt var um leiðir til nýtingar
sólarorku, um vindmyllur, orku
úrhafi, en þar er um ýmsar leiðir
að velja: bylgjuorku, orku frá
sjávarföllum og orku vegna hita-
mismunar i sjó. Vatnsorka var til
umræðu, og kemur islendingum
varla spánskt fyrir sjóir, orka Ur
mó, og má geta þess, að nú er
jarðkönnunardeild Orkustofnun-
ar að kanna mómagn hér á landi
með framtiðarnýtingu I huga.
Enn aðrar leiðir má nefn, lifrænt
gas, metanolvinnslu, orkuvinnslu
úr tjörusandi og jafnvel orku úr
alkóhóh. Að ógleymdum jarðhita.
Hinar endurnýjanlegu orku-
lindir sem rætt var um i Nairobi
hafa allra áhuga á timum oliu-
kreppu og auðlindaþurrðar. En
að auki er framþróun þeirra sér-
stakt áhugamál þriðjaheims-
rikja. Þau ráða ekki við þær orku-
leiðir sem krefjast kostnaðar-
sams tæknibúnaðar og mikillar
þekkingar, og neita þessutan i' si-
Úr ræðu Hjörleifs
Her fer á eftir sá kafli
úr ræðu iðnaðarmáia-
ráðherra
stefnunni i
lýtur að
íslendinga
á orkuráð-
Nairobi sem
orkubúskap
og stjórnar-
stefnu i orkumálum.
Herra forseti. Sú aðlögun að
breyttum aðstæðum i orkumálum
sem nauösynleg er og sem þessari
ráðstefnu er ætlað að létta undir,
verðurað gerast með átaki innan
hvers lands, svæðisbundnu sam-
starfi og alþjóðasamvinnu. Þar
skiptir upplýsing og ör miðlun á
reynslu milli landa afar miklu
máli. Leyfiðmér þviaðgreina frá
örfáum atriðum, er varða mark-
mið og þróun orkumála i heima-
landi minu, Islandi.
Sem eyja i Norður-Atlantshaíi
fast upp við heimsskautsbaug
hefur Island um margt sérstöðu i
orkumálum. Ibúar eru tæplega
fjórðungur úr miljón (230 þúsund)
og byggð aðallega við ströndina
og i dölum upp frá henni, landið
annars með fjöllum og jöklum og
yfir 100 virkum eldstöðvum. Gos-
belti Mið-Atlantshafshryggjarins,
sem eyjan er vaxin upp af,
iiggja um landið þvert frá suð-
vestri til norðurs og á þeim er áð
finna 20—30 háhitasvæði og til
hliðar við þau fjölda lághita-
svæða. Landið er þannig rikt af
jarðvarma, og innan við 1% af
áætluðu magni hans hefur verið
hagnýtt, fyrst og fremst til hús-
hitunar, en i nokkrum mæli i
gróðurhúsaræktun og iðnaði og
smávegis til raforkuframleiðslu.
Til viðbótar við jarðvarmann er
vatnsafl verðmæt orkulind á
lslandi með áætlaða framleiðslu-
getu á bilinu 30-60 kWh/ári og þar
af hafa aðeins 5—10% þegar verið
hagnýtt. Raforkunotkun á ibúa er
þegar með þvi mesta sem gerist i
heiminum, þ.e. 13712 kWh/ári
(1980),ognæröli heimiliálandinu
hafa verið tengd landskerfi sem
sér þeim fyrir rafmagni, aö lang-
mestu leyti f rá vatnsaflsstöðvum.
Ört vaxandi hlutur
innlendrar orku
Þrátt fyrir þessar rikulegu inn-
lendu og endurnýjanlegu orkulind
er lsland enn mjög háð innflutn-
ingi á orku i formi oliu. Fyrir 10
árum voru rúmlega 60% af orku-
notkun landsmanna innflutt i
formi oliuafurða, en siðan hefur
tekist að lækka hlutfall inn-
fluttrar orku niður i um 40% af
heildarorkunotkun með þvi að
taka innlendaorkugjafa i gagnið i
stað oliu og með orkusparnaði hin
siðustu ár. Þetta hefur einkum
gerst með þvi að minnka hlut oliu
i húshitun, sem vegur hlutfalls-
lega langþyngst i orkunotkun i
okkar norðlæga landi meö um
45% af heildarorkunotkuninni, en
næst kemur iðnaður með um 28%
að orkufrekum iðnaði með-
töldum. Mikið átak stendur yfir
til að koma innlendri orku i
gagnið i húshitun og innan 5 ára
verður olia að mestu úr sögunni á
þessu sviði. Þá njóta um 80%
landsmanna upphitunar með
jarðvarma (um 70% 1980) og um
20% með beinni rafhitun.
Með nýtingu innlendra orku-
gjafa i staö oliu i iðnaöi, og með
oliusparnaði i iðnaði, fiskveiðum
og samgöngum, er þess vænst, að
unnt verði að halda oliunotkun
landsmanna nokkurn veginn
óbreyttri til aldamóta. Þetta
táknar, að öll auking i orkunotkun
þjóðarinnar á þessu timahili
kemur frá endurnýjanlegum
orkulindum. Þetta er taiinn mjög
mikilvægur árangur, og sjald-
gæfur i alþjóðlegu samhengi. En
jafnvel er hugsanlegt að draga
beinlinis úr notkun á innfluttu
endsneyti frá þvi sem hún er nú,
eftir 10—20 ár, með framleiðslu
innanlands á tilbúnu eldsneyti.
Þar hafa menn i huga methanol
eða tilbúið bensin unnið úr vetni
með rafgreiningu og mó eöa út-
blæstri kolefnisoxiða írá iðnaði
sem kolefnisgjafa. Hagkvæmni
slikrar framleiðslu er enn óvissu
háð, en öryggi og gjaldeyris-
sparnaður koma einnig með inn i
myndina.
Jafnvægi i
orkubúskap
Islenska rikisstjórnin litur á
það sem fremsta markmiö innan-
lands i orkumálum að draga úr
oliunotkun og lækka oliureikning-
inn, sem undaniarin tvör ár hefur
tekið nær 20% af gjaldeyris-
tekjum þjóðarinnar, sem er mjög
háð utanrikisviðskiptum. Öháð
þvi hvað verður um framleiðslu á
tilbúnu eldsneyti hafa islensk
stjórnvöld sett sér það markmið
að jafna orkureining landsmanna
fyrir árið 2000, þ.e. að flytja út
orkufrekar afurðir frá innlendum
orkugjöfum a.m.k. til jafns við
innflutta oliu. Þetta markmið
ásamt þvi átaki sem nú stendur
yfir i húshilun kaiiar á mikla
áframhaldandi fjárl'estingu til að
beisla og nýta innlendar orku-
lindir. 1 það er nú varið um 6% af
vergri þjóðarframleiðslu og yíir
20% af fjármunamyndun i land-
inu. Af fjárveitingum til rann-
sókna er einnig varið liltölulega
mestu til orkumála og nauðsyn-
legt er að verja mjög auknu fjár-
magni til rannsókna i orkunýt-
ingu á næstu árum og til orku-
sparandi aðgerða.
Ástæða er til að nefna, að oliu-
verðhækkanir á siðasta áratug
snerta mjög afkomu fiskveiða
sem undirstöðuatvinnugreinar á
Islandi. Fiskveiðiflotinn er alger-
lega háður innflutningi orku, og
olia er orðinn verulegur hluti út-
gerðarkostnaðar. Islensk stjórn-
völd munu þvi leggja sérstaka
áherslu á orkusparnað á þessu
sviði, með upplýsingum og áróðri
og með hvetjandi aðgerðum til að
valdar séu hagkvæmustu véla-
stærðir, gerðir veiðiskipa og
veiðiaðferðir og að skipulag veið-
anna sé eins hagkvæmt og vió
verður komið.
Lögð er einni aukin áhersla á
hagkvæma orkunýtingu og orku-
sparnað á öðrum sviöum, ekki
sist i húshitun og iðnaði, og i þeim
efnum bera Norðurlönd saman
reynsiu, hvort frá sinu landi, með
skipulegum hætti. Skynsamlegur
og markviss orkusparnaöur á
sem flestum sviðum, hvort sem
um er að ræða iifrænt eldsneyti
eða endurnýjnlegar orkulindir, er
að mati islensku rikisstjórnar-
innar mikilvægur liður i orku-
sparnaði nú og i framtiðinni.
auknum mæli stöðu þiggjenda i
þessum efnum og vilja veröa
sjálfráð i orkumálum. En brýn-
asti vandinn liggur þó ef til vill I
sivaxandieyðingu skógiendis í
heiminum. t mörgum þriöja-
heimslöndum er um og yfir 90%
orkuneyslu fólgin i eldiviðar-
brennslu,og rányrkju á skóglendi
hefur leitttil að þessi orkulind er i
hættu. Það er þvi mörgu brýnna
að tryggja nýjar orkuleiðir þeim
fjölda sem enn eldar mat sinn og
yljar sér við skógareld.
tslensku sendinefndarmennirn-
ir töldu að ráðstefnan hefði verið
mjög gagnleg, sérstaklega sú
upplýsingamiðlun sem þar fór
fram, en sendinefndir rikjanna
lögðu allar fram gögn um fram-
lag þjóða sinna til þessara mála.
tslendingar höfðu þar ýmislegt til
að leggja, og einkum um nýtingu,
og má minna á jarðhitadeild há-
skóla SÞ, sem hér er rekin. Is-
lendingar áttu sæti i þeirri undir-
búningsnefnd ráðstefnunnar sem
fjallaði um jarðhitamál, og fólst
hið islenska framlag ma. iyfirliti
um nýtingu lághitajarðvarma i
heiminum, sem Orkustofnun tók
saman að beiðni þessarar nefnd-
ar. Orkustofnun sá einnig um
ljósmyndasýningu frá nýtingu
jarðvarma á Islandi, sem settvar
upp í ráðstefnubyggingunni.
Á ráðstefnunni var ma. leitað
til islendinganna af hálfu Bur-
undistjórnar um þekkingarmiðl-
un og aðra hjálp á þessu sviði, en
islendingar hafa áður komið við
jarðhitasögu erlendis, ma. f Ken-
ya og í Mið-Ameriku.
I tengslum við ráðstefnuna i
Narobi var haldin mikil Utisýning
þarsem framfarir i nýtingu end-
urnýjanlegra orkulinda voru
kynntar á vegum rikjanna og ein-
stakra fyrirtækja. Höfðu sumir
gagnrýnni athugenda á orði, að
ráðstefnan væri öðrum þræði
hugsuð sem kaupstefna af hálfu
iðnrikjanna, þau væru reiðubúin
að vinna sér markað i þróunar-
rikjunum fyrir tækninýjungar á
þessu sviði, en allnokkurrar
tregðu gætti af þeirra hálfu að
veita þróunarþjóðum færi á að
þróa með sér þá tækni sem leitt
gæti til sjálfsþurftarbúskapar i
orkumálum. Þessar gagnrýnis-
raddir komu ma. fram á hliðar-
ráðstefnu aðila ótengdra rikis-
stjórnum, en slikar hliðarráö-
stefnur eru nánast orðin hefð við
ráðstefnuhald á vegum SÞ.
A þessari hliðarráðstefnu var
auk annars rædd nauðsyn þess að
verð á vatnsorku yrði hækkað
verulega, og það taliö eitt bjarg-
ráða þróunarþjóða i viðskiftum
þeirra við erlend stórfyrirtæki.
. Framhald á bls. 14.