Þjóðviljinn - 01.09.1981, Blaðsíða 15
Hringið í sima 81333 kl. 9-5 alla virka
daga, eða skrifið Þjóðviljanum
fra
lesendum
Skólahljómsveit Kópavogs
Þrætumál lúðrasveitarmanna:
Hver var að segja að hver
hefði spilað hvar og hvenær?
Föstudaginn 21. ágústsl. birt-
ist i lesendadálki Þjóðviljans
grein frá „reiðum lúðrasveitar-
manni”.
Er þar rætt um Skólahljóm-
sveit Kópavogs, að hún hafi allt
að þvi tranað sér fram á afmæl-
isdegi Reykjavikurborgar með
þvi að spila við Pylsuvagninn i
Austurstræti. Eitthvað hefur
„lúðrasveitarmaðurinn” látið
reiðina hlaupa með sig i gönur
þvi Skólahljómsveit Kópavogs
spilaði þvergi þennan dag. Aftur
á móti spiiaöi Hornaflokkur
Kópavogs við Pylsuvagninn i
Austurstræti umræddan dag,
alls ekki á vegum Reykjavikur-
borgar heldur á vegum Asgeirs
H. Eirikssonar verslunar-
manns. Forráðamenn Reykja-
vikurborgar hafa liklega gleymt
lúðrasveitum borgarinnar
þennan dag og reiðu lúörasveit-
amennirnir gleymt deginum.
Varla hafa þeir boðið sig fram
og verið afþakkaðir.
Sem Reykvikingi og lúðra-
blásara i Reykjavik þykir mér
þetta léleg frammistaöa hjá
báðum aðilum. Hvaðan skyldi
hann annars vera þessi „reiði
lúðrasveitarmaður”: tlr
Reykjavik getur hann varla
verið — hann veit ekkki einu
sinni hvað margar lúðrasveitir
eru i Reykjavik. Vonandi er
maðurinn ekki úr Kópavogi.
Vil ég þvi hér með upplysa um
fjölda Lúðrasveita i Reykjavik
en þær eru:
Lúörasveit Reykjavikur,
stjórnandi Oddur Björnsson,
LúðrasveitinSvanur, stjórnandi
Sæbjörn Jónsson, Lúðrasveit
Verkalýðsins, stjórnandi Ellert
Karlsson, Skólalúðrasveit
Melaskóla, stjórnandi Páll P.
Pálsson, Skólalúðrasveit Mela-
skóla, stjórnandi Stefán Þ. Step-
hensen, Skólalúðrasveit Árbæj-
ar og Breiðholts, stjórnandi
Ólafur L. Kristjánsson, Lúðra-
sveit Tónmenntaskólans,
stjórnandi Sæbjörn Jónsson.
Sá „reiði” segir að Lúðrasveit
Reykjavikur, Svanurinn og
Lúðrasveit Verkalýösins fái
hver kr. 12.000 i styrk frá borg-
inni þetta árið. Fá þær ekki lika
rikisstyrk?
Skólalúðrasveitirnar fá kr.
460.000 frá Reykjavikurborg.
Við skulum ekki gleyma þvi.
Hornaflokkur Kópavogs fær
kr. 10.000 i styrk frá Kópavogs-
bæ, ekkert frá rikinu.
Hornaflokkur Kópavogs og
Skólahljómsveit Kópavogs hafa
aldrei spilað ókeypis á iþrótta-
vellinum, en vegna undirboðá
einnar ákveðinnar lúðrasveitar
i Reykjavik hafa greiðslurnar
alltaf verið i lægra lagi.
Svona i lokin legg ég til að
þessi „reiði lúðrasveitarmað-
ur” hói saman hinum reiðu
lúðrasveitarmönnum og spili á
einhverjum góðum stað i borg-
inni. Það getur vel verið að ein-
hverjir komi til að hlusta.
Bestu kveðjur,
Björn Guðjónsson.
Barnahornid
Þessa fallegu mynd af löxum, sem stökkva í fossi teiknaði Maria Birna fyrir
Barnahornið. Maria Birna er 7 ára.
Þriðjudagur 1. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
Útvarp
kl. 23.00
Andbýl-
ingarnir
eftir
Christian
Hostrup
Björn Th. Björnsson
upplýsti Þjóðviljann um for-
sögu og tilurð þessa danska
gleðileiks, sem notið hefur
mikilla vinsælda bæði i
Danmörku og á lslandi um
hartnær 140 ára skeið.
Þannig var málum háttað á
árunum kringum 1840 aö á
Gamlagarði i Kaupmanna-
höfn, þar sem bjuggu bæði
danskirstúdentar og islenskir,
riktu erjur nokkrar og skipuð-
ust menn i tvennar fylkingar,
tvenns konar stúdentafélög.
Annað þótti vel róttækt en hitt
skrambi Ihaldssamt og
kaliaöist „Studenter Foren-
ingen”.
Svo kom þó að flestum
stúdentanna þótti klofningur-
inn meinlegur og vildu sam-
eina armana tvo. Þeirra vilji
varð svo ofaná og á nýársdag
árið 1844 var félögunum
tveimur slegið saman og ný
stjórn kosin.
Stúdentum þótti við hæfi að
gera eitthvað vitlegt til þess
að fagna þessum áfanga og
ákváðu að setja upp leikrit i
þessu tilefni. Christian Host-
rup, sem þá var 26 ára Garð-
buiogstúdent var fenginn til
þess áö skrifa gleðileik stúd-
Poul Reumert, sem leikur eitt
af aðalhlutverkunum I
Andbýlingunum.
enta. Leikritiö skyldi frum-
sýnt á öskudaginn.
Er ritsmiðinni var lokiö
þótti stúdentum svo mikið til
hennar koma, að þeir fóru
nþess á leit við kóngafólkið i
Amalieborg að fá að setja það
á svið hirðleikhússins i
Kristiansborgarhöllinni og
var þeim Ieyft það.
öllum á óvart var
gleðileiknum feikna vel tekið
af áhorfendum og hefur siðan
farið ótal sigurfarir um hinn
danska heim.
Þá fræddi Bjöm Th. Þjóð-
viljann á þvi, að Genboerne er
þrunginn stúdentarómantik.
Þar segir frá kynnum fátæka
koparsmiösins og fina stú-
dentsins.
Þessi hljóðritun af leikritinu
er einnig hin merkasta. Poul
Reumert leikur þarna eitt af
sinum siðustu stórhlutverk-
um. t tilefni af 75 ára afmæli
hans var honum boðið að velja
sér hlutverk i einhverju leik-
riti, sem siðan skyldi upp sett.
Reumfft kaus Genboerne sem
við fáum nú að heyra I
útvarpinu i kvöld.
iO- Sjónvarp
kl. 20.45
Þjóðskör-
ungar
20. aldar
David Ben-Gurion (1886 -
1973) var af pólsku bergi brot-
inn. Hann fæddist I borginni
Plonsk, þar sem hann ólst upp
og var settur til náms i rétt-
trúnaðar (orthodox) skóla
gyðinga.
Ben-Gurion fór til Palestinu
árið 1906 en þar riktu Tyrkir á
þeim árum. Hann gekk i pal-
estinska Verkamannaflokkinn
og ritstýrði málgagni hans frá
1910.
Þegar fyrri heimsstyrjöldin
braust út varð Ben-Gurion
landflótta og leitaði hælis I
Bandarikjunum þar sem hann
stofnaði ameriskt Landsam-
band gyðinga ásamt Isack
Ben-Zyi og félagar úr þeim
samtökum tóku virkan þátt i
bardögum styrjaldarinnar i
Palestinu við hlið Breta.
Við striðslok urðu þessir
tveir Zionistaleiðtogar eftir i
Palestinu og stofnuðu nýjan
verkamannaflokk, Hisdarut
og varð Ben-Gurion formaður
hans árið 1921. Arið 1933 lét
hann af þeim störfum til þess
aö helga sig málstaö og ár-
róðri fyrir landnámi gyðinga i
Landinu Helga.
Þeim störfum gegndi hann
allt til 14. mai 1948, er tsrael
var lýst frjálst og fullvalda
riki og hann var gerður að for-
sætis- og varnarmálaráðherra
hins nýja rikis. Einnig gegndi
Ben-Gurion stöðu formanns
Verkamannaflokksins Mapai
um margra ára skeið.
Efalausthafa áhrif þessa ól-
seiga baráttumanns á stofnun
David Ben-Gurion.
ísraelrikis og á heimsút-
breiöslu Zionisma um ára-
tugaskeiö skipaö honum á
bekk með ,,stórmennum” 20.
aldarinnar, en um leiö verður
aö telja hann meðal þeirra,
sem mesta ábyrgð bera á
þeim ógnum og eilifðar striöi
sem hrjáö hafa um langan
aldurog hrjá enn saklaust fólk
i löndunum fyrir botni Mið-
jarðarhafs.
Sjónvarp
kl. 21.15
Ovænt endalok
Siobhan McKenna tekur þátt i
vitahring Óvæntra endaloka.
Andleg ummyndun
1 stað umræöuþáttar um
skólamál,sem vera átti á dag-
skrá sjónvarpsins I kvöld
verður sýndur þátturinn
„Andleg ummyndun” frá
BBC. 1 þættinum er greint frá
hópi fólks sem fer á skyndi-
námskeið I andlegri ummynd-
un til þess að losna viö streitu
nútima lifnaðarhátta og reyna
að finna lifi si'nu nýjan farveg.
Þýöandi er Jón O. Edvald.
Sjónvarp
kl. 21.45