Þjóðviljinn - 01.09.1981, Síða 16
DWDVIUINN
Þriðjudagur 1. september 1981
Kartöflur
í soðið
Jóhann Löve vann aukaverð-
laun i áskrifendaþrautinni i sið-
ustu viku.
Verðlaunin voru nýjar kartöfl-
ur i soðið og vonum við að honum
verði þær að góðu.
Athygli er vakin á aö septem-
berverðlaunin i áskrifendaþraut-
inni (sem birtist um siðast liöna
helgi) verða ferð til Edinborgar.
Dregið veröur 11. sept. n.k.
Aðalverðlaunin, hljómflutn-
ingstæki, verða dregin út 25. sept.
Búvöruverðið
ekki tilbúið:
Kemur
varla í
þessari
viku
segir ritari sex
manna
nefndarinnar
Enn bólar ekkert á nýju bú-
vöruverði, sem taka á gildi I dag
1. september. Sex manna nefndin
var á fundi i gærkvöldi, en ritari
hennar, Guðmundur Sigþórsson
sagðist ekki eiga von á nýja verð-
inu fyrr en eftir næstu helgi.
Astæðan er sú aðútreikningar eru
skammt á veg komnir og á
fimmtudag verður fundahlé hjá
nefndinni vegna stéttarsam-
bandsfundar, sem þá hefst.
Guömundur sagöi það oft hafa
dregist fram yfir tilskilinn tima
að búvöruverð lægi fyrir. Helstu
ástæðumar nú sagði hann þær að
framtöl bænda og bUreikningar
hefðu legið seinna fyrir vegna
nýrra skattalaga, en sex manna
nefndin styöst mjög viö þessi
gögn i Utreikningum sinum.
— AI
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga.
Utan þess tima er hægt að ná i blaöamenn og aðra starfsmenn
blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot
81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aö
ná i áfgreiöslu blaösins 1 sima 81663. Blaöaprent hefur slma 81348
og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld.
Aðalsími Kvöldsími
81333 81348
Helgarsími
afgreiðslu
81663
Geir Haarde
formaður SUS
Geirs
menn
eflast
En stjórnarliðar
telja sig eiga
lítið erindi á
flokkssamkomur
„Geir verður næsti formaður
Sjálfstæðisflokksins. Það er af-
greitt mál”, þetta var sá boð-
skapur sem fulltrúar á þingi
Sambands ungra Sjálfstæöis-
manna fengu frá þeim meirihluta
sem þegar I upphafi þingsins á
tsafirði um helgina lét i það skfna
að niöurstaöa þess væri einnig af-
greitt mál. Hinsvegar var engin
stuðningsyfirlýsing samþykkt við
formanninn og kröfur itrekaðar
um nauösyn breytinga á forystu
flokksins. óhemju srnölun átti sér
stað fyrirfundinn og lá ljöst fyrir
aðneyttyrði aflsmunar gagnvart
stuðningsmönnum rikisstjórnar-
innar ef þeir hefði sig I frammi á
þinginu, að þvi er Gunnarsmaður
i SUS tjáði blaðinu.
1 stjórnmálaályktun SUS-þings
er lögð áhersla á andstöðu við nú-
verandi rikisstjórn og þeir þing-
menn Sjálfstæðisflokksins sem að
henni standa hvattir til þess að
binda enda d stjórnarsamstarfið.
Jón Magnússon fráfarandi for-
maður gagnrýndi það i ræðu á
fundinum að Samband ungra
Sjálfstæðismanna skyldi nú kú-
venda frá þeirri stefnu sinni
um árabil að framboðsmál og
samstarf á vegum flokksins væru
isem frjálsustu formi. Þráttfyrir
mótmæli fráfarandi formanns
var samþykkt tillaga til lands-
fundar Sjálfstæöisflokksins, þar
sem mælst er til þess að gerðar
verði breytingar á skipulagsregl-
um flokksins, þannig að þing-
menn séu ótvirætt bundnir af
vilja þingflokksins, og brot á
samstarfsákvörðunum hans verði
skoðaö sem úrsögn viðkomandi
úr f lokknum. Enn fremur að þeir
Sjálfstæðismenn sem byðu sig
fram á móti listum flokksins,
teldust sjálfkrafa gengnir úr hon-
Jóhann Löve, Bræðratungu 16, Kópavogi, fékk kartöflur i verðlaun i áskrifendaþrautinni.
Uppeldismálaþing í Reykjavík:
Framkvæmd grunnskóla-
laganna gengur of hægt
Gtír H. Haarde hagfræðingur
var sjálfkjörinn formaður en all-
margir þingfulltrúar munu hafa
fariö óánægðir frá samkomunni
og veriö í þeim uppgjafartónn.
„Ég er hættur þessu”, var viö-
kvæöið sem stjórnarliði kvaðst
hafa heyrt æði oft i þinglok. Þó
munu einhverjir andstæðingar
núverandi flokksforystu hafa náð
kosningu i Sambandsstjórn.
Margir ,,stjórnarliðar” i Sjálf-
stæðisftokknum munu vera hættir
aö sækja ftokssamkomur, og telja
sig eiga þar lltið erindi, þvi öllu sé
fyrirfram stýrt af flokksskrif-
stofu Geirs-armsins i Sjálfstæöis-
flokknum.
— ekh
Uppeldismálaþing var
haldiö í Reykjavík dagana
28.—29. ágúst eins og fram
hefur komiö hér á síöum
Þjóðviljans.
Höfuöviöfangsefni
þingsins var að safna sam-
an upplýsingum og fræðast'
um þau vandamál, sem
tengd eru blöndun í
bekk jardeildir eins og
Grunnskólalögin mæla
fyrir. Á þinginu héldu ófáir
sérfræðingar á sviöi skóla-
mála ræður og erindi og
svöruöu spurningum þing-
gesta um framkvæmdir
Grunnskólalaganna.
Rósa Þorbjarnardóttir endur-
menntunarstjóri hélt erindi og
ræddi meðal annars um mennt-
unarmál kennara viö Kennarahá-
skóla Islands, Ingvar Sigurgeirs-
son námsstjóri kynnti bók sína
Skólastofuna og Sigurður Helga-
son deildarstjóri i Menntamála-
ráöuneytinu ræddi um fram-
kvæmdir Grunnskólalaganna.
Þjóðviljinn hafði samband viö
Kristinu H. Tryggvadóttur, sem
var stjórnandi þingsins, og spuröi
hana hvernig til hefði tekist.
Kristin sagði að ráöstefnan heföi
tekist mjög vel og áhugi manna
hefði veriö mikill. Þátttökugestir
voru 10-sinnum fjölmennari en
siöast er svipuð ráðstefna var
haldin. Kristin sagði ennfremur:
„Flestir þátttakendur þingsins
voru sammála um, að fram-
kvæmd Grunnskólalaganna hefði
aö mörgu leyti brugðist. Þar ræð-
ur mestu, aö breytingin frá gamla
fyrirkomulaginu til hins nýja hef-
ur gengiö of hægt fyrir sig. Það
kom greinilega fram i máli.
Wolfgangs Edelstein, sérstaks
ráðunautar Skólarannsóknar-'
deildar. Aöalvandamálin eru
skortur á námsgögnum, sem
henta blönduöum bekkjardeild-
um, of margir nemendur i hverri
bekkjardeild og endurbætur á
kennslunni, sem fram fer við
Kennaraháskólann.”
Hanna Kristin Stefánsdóttir,
sem einnig vann aö undirbúningi
og framkvæmdum Uppeldis-
málaþingsins ásamt Kristinu og
Sylviu Guömundsdóttur, sagði i
viötali við Þjóðviðjann, að hug-
myndin að baki þess hefði verið
sú, aö kominn hefði verið timi til
þess að safna saman upplýsing-
um um hvernig kennarar bregð-
ast við nýjum kröfum vegna
blöndunar I bekki. Markmiðið var
að safna saman upplýsingum og
fá fræðimenn til þess aö skýra
stöðuna.
Hanna Kristin sagði ennfrem-
ur, að vonir stæöu til þess að hægt
yrði að dreifa þeim upplýsingum,
sem fram komu á þinginu, prenta
eða dreifa i einu eða öðru, formi
þeim ræðum sem haldnar voru
þannig að þær geti komið kennur-
um að notum I hagnýtu starfi.
Hanna Kristin benti lika á aö
Námsgagnastofnun er haldið i
þviliku fjársvelti að i óefni er
komið. Það mun vera óhemju
kostnaðarsamt og timafrekt fyrir
kennara á Grunnskólastiginu að
búa til sjálfir þau námsgögn, sem
verða að teljast ómissandi.
Hanna Kristin taldi að lokum aö
Uppeldismálaþingið hefði verið
mjög gagnlegt og hefði hvetjandi
áhrif á umræðu um og frekari
framkvæmdir á Grunnskólalög-
unum. hst
Skólameistari
Framhalds-
skólans í
Neskaupstað
Gerður G. óskarsdóttir hefur
verið sett skólameistari Fram-
haldsskólans i Neskaupstað.
Geröur tekur við starfinu um ára-
mót en hún stundar nú nám viö
námsiráðgjöf við háskóla i Boston
i Bandarikjunum.
1 fjarveru Gerðar mun Ólafur
Sigurðsson fyrrum skólastjóri
Gagnfræðaskólans I Neskaupstað
I gegna starfi skólameistara.