Þjóðviljinn - 10.09.1981, Síða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 10. september 1981
Slöngubátarnir komnir á fiotog nú erbara aö gefa I,
Með slysavamafélögum á æfingu
Ljósmyndari og blaðamaður
Þjóðviijans skruppu út i Viðey um
s.l. helgi og fengu að fylgjast með
æfingum slysavarnadeilda af
Vestur- og Suðvesturlandi, frá
Grundarfirði til Stokkseyrar.
Slysavarnafélag fslands stóð
fyrir æfingunum, sem stóðu alla
helgina. Jafnframt voru haldnir
fyrirlestrar um björgunarmál og
sitthvað annað var á döfinni til
skemmtunarog fróðleiks. Hannes
Hafstein hjá Slysavarnafélaginu
sagði blaðamanni, að svona æf-
ingar hefðu verið haldnar nokkr-
um sinnum áður. Markmið með
þeim væri að gefa félögum deild-
anna tækifæri til aö kynnast inn-
byrðis, svo og að samhæfa starfs-
hætti þeirra. Það væri mikilvægt.
enda væru gjarnan margar deild
ir kailaðar út til leitar i einu.
Leit f fjöru af sjó var iika æfö.
Blaöasnápar fengu aö sitja f hjá þessum tveim Göflurum meöan á æf-
ingu stóö. Hér eru þeir Kaili og Bjössi aö ieggja f hann á ný, eftir aö
hafa skilaö þeim I land. Myndir: — eik.
Djúpköfun var meðal þess sem æft var. Kafarar köfuöu aö skipsflaki á
rúmlega 30 metra dýpi. Hér eru kafarar að tina tilútbúnaösinn.
Hér er verið aö gera einn slöngubátinn kláran og þaö er Hannes Hafstein, framkvæmdastjóri Sí, sem
stjórnar verkinu.