Þjóðviljinn - 17.09.1981, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. september 1981
KÆRLEIKSHEIMILIÐ VÍðtalÍð
Copynghf 1981
The Regnter <^nd Tribune
Syndicote, Inc
Pabbi segir að einn góðan veðurdag muni mér
finnast gott að kyssa stelpurnar en núna
finnst mér bara gaman að hárreyta þær.
Myndspilari
í stað vídeós?
Ekki voru menn fyrr búnir aö
fjárfesta í myndsegulbandi en
þaö apparat var oröið úrelt. Nú
er aö koma á markaöinn mynd-
plata sem spiluö er á mynd-
plötuspilara, sem hægt er aö
tengja viö hvaöa sjónvarpstæki
sem er.
Myndplötuspilarinn, sem
myndin sýnir, sem kemur frá
Siemens, vinnur þannig, að
laserpfpa fer yfir miljaröi
„púnkta”, sem skrá bæði mynd
og hljöö á plötuna. Þegar platan
snýst veröur til úr „punktun-
um” hárfint spor gert úr örsmá-
um myndum (hver mynd er 0.4
þúsundasti úr millimetra á
breidd). Leikin kvikmynd sem
tekur eina stund að spila er sett
saman úr 90.000 slikra einstakra
mynda. Þaö á aö vera hægt aö
snúa plötunni til baka og finna
þá staöi sem menn vilja ítreka.
Lasergeislinn sem sjónvarps-
myndina les, kemur ekki viö
plötuna, og skemmist hún þvi
ekki.
Þessi tæki eiga aö koma á
markaöi i Evrópu innan árs.
Rætt við Margréti
Guðjónsdóttur
húsfreyju
í Dalsmynni
T æknin
er þetta
betri í ár
Þjóðviljinn hafði
samband við Margréti
Guðjónsdóttur hús-
freyju í Dalsmynni á
Snæfellsnesi og spurði
hana tiðinda úr sveit-
um á sunnanverðu
nesinu.
— Hvernig hcfur heyskapur-
inn gengiö i sumar?
Heyskapur er nú að verða
búinn víöast hvar, menn eiga
eftireitthvaö smávegis. Það var
nú hræöilegt tiöarfar i ágúst,
miklar rigningar. Túnin voru
svo blaut, að ekki var hægt aö
komast um þau meö vélar þó
menn vildu heyja i vothey. Nú
siðustu dagana hefur þó veriö
skaplegra tiöarfar oghægt hefur
veriö að bjarga miklu inn i hús.
Viöa er fariö aö heyja mikiö i
vothey en þar sem treyst er á
þurrkun eru hey slæm og
hrakin.
— Eru hey þá ekki minni en i
fyrra?
Jú, þaö var nii mikið kal i
túnum hér um slóðir þannig aö
uppskeran varö minni lika fyrir
þá sök. Svo gerði mjög slæmt
veður hér um daginn, það fennti
niður i miöjar hli'ðar. Svo geröi
mikiö rok. þannig aö mikiö af
Dalsmynni
lausu hey fauk út i buskann.
Sum tún hreinsuðust alveg.
— Veröur þá ekki aö fækka fé,
eöa kaupa menn hey?
„Sjálfsagt veröur einhver
fækkun, en auövitaö veröur
reynt að bjarga málunum með
fóðurbæti”.
— Nú eru vegir á Snæfellsnesi
ekki þeir bestu er um getur i
landinu. Hefur cröiö einhver
breyting á þeim?
„Vegageröin hefur i sumar
veriö aö lagfæra verstu kaflana
hér um slóbir, þannig aö nú er
hægt að komast á milli bæja. Af-
leggjarinn að Laugargerðis-
skóla hefur t.d. lagast mikiö.
— Fer ekki aö líöa aö réttum?
„Réttirnar veröa núna á
mánudaginn. Þeir eru byrjaöir
á sumarslátrun hér i nágrenn-
inu. Ekki veit ég um þyngd á
sláturfénu”.
— Attu ekki i pokahorninu ný-
kveðnar visur, Margrét?
,,Þeir voru aö segja i blöö-
unum i fyrra, aö ólafur Ragnar
væri farinn aö gera gagn i
flokknum sinum. Þá setti ég
saman þessa:
Ólafs Ragnars ræöumagn
rekka hefur plagaö
Flokknum sinum gerir gagn
geti hann alveg þagaö.
Eftir að ég las grein eftir
Flosa Ólafsson um japanska
listamanninn i fyrra svo og
vegna frétta af nýlistamönnum
upp á siðkastið varö þessi til:
Nýlist vor er nýt og hittin
nokkuö betri en japanskt fár.
Nú þurfa þeir ekki traf um titt-
inn
tæknin er þetta betri i ár.
SvKr.
/
I rósagarðinum
Hin sanna fórnfýsi
Viö hinir ætlum aö halda
áfram að horfa á Dallas meðan
oss endist lif og heilsa.
óskar Magnússon i Visi
Sælir eru hógværir
Greinin er uppfull af alls kon-
ar sleggjudómum, fullyrðingum
og beinlinis fölsunum á stað-
reyndum svo engu er likara en
heilabúiö, sem að baki býr, sé
galtómt eða einn hrærigrautur.
Karvel Pálmason i Visi.
Nevtrónusprengjan eyöileggur
ekki mikið af fasteignum, hins-
vegar er ekki ráölegt aö hafa
mikiö af seðlum á sér þegar
maöur veröur fyrir henni.