Þjóðviljinn - 17.09.1981, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 17. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Móbirin og börnin I Sterkari en Superman, sem frumsýndur verður f Alþýöuleikhúsinu f Hafnarbfói
á laugardag. A myndinni eru þau Margrét ólafsdóttir, Sigfús Már Pétursson og Guðlaug Maria
Bjarnadóttir i hlutverkum sínum. Ljósm.:eik.
Alþýduleikhúsid frumsýnir á laugardag:
Leikstjórar og leikamr
fastráðmr ífyrsta sinn
Alþýðuleikhúsið hefur nú á ný
sest að i Hafnarbiói og um helg-
ina hefst vetrarstarfið með
frumsýningu á ieikritinu
„Sterkari en Superman” eftir
Roy Kift. Ensk leikrit munu
setja svip á veturinn, þvi auk
Supermans verður sett á svið
„Illur fengur” eftir Roy Orton
og Don Quijote eftir James
Saunders sem báðir eru frá
Englandi. Af öðrum verkefnum
má nefna „Elskaðu mig” eftir
dönsku skáldkonuna Vita
Andersen, „Hvorki fugl né fisk-
ur” eftir Kroetz hinn þýska,
„Þjóðhátið” eftir Guðmund
Steinsson og nýtt verk eftir Ólaf
Hauk Simonarson.
Alþýðuleikarar bobuöu blaöa-
menn á sinn fund i gær til að
kynna starfið i vetur. Nokkrar
endurbætur hafa verið gerðar á
Hafnarbiói, og nú ganga leik-
húsgestir á rauðum teppum inn
i salinn og búiö er að fjarlægja
tvær sætaraðir i miðjum salnum
þar sem hægt er að koma fyrir
10 hjólastólum. Alþýðuleikhúsið
býöur nú upp á sérstök afslátt-
arkort sem gilda eitt ár i senn,
er fyrir tvo og veitir 50% afslátt,
en gildir þó ekki á barna- og
unglingasýningar, sem eru niö-
urgreiddar.
1 vetur verða i fyrsta sinn
fastráðnir leikarar og leikstjór-
ar, auk þess sem nokkrir eru
lausráðnir i sérstök verkefni.
Leikstjórarnir Þórhildur Þor-
leifsdóttir og Thomas Ahrens
verða fastráöin svo og leikar-
arnir Arnar Jónsson, Bjarni
Ingvarsson, Borgar Garöars-
son, Guðmundur Ólafsson, Guð-
laug Maria Bjarnadóttir, Helga
Jónsdóttir, Margrét ólafsdóttir,
Sigfús Már Pétursson og Tinna
Gunnlaugsdóttir. Lausráöin eru
Viöar Eggertsson, Björn Karls-
son, Jórunn Sigurðardóttir, og
Sigrún Valbergsdóttir en þær
tvær slðast töldu eru leikhús-
stjórar hússins. Þá verða leik-
myndagerðarmennirnir Grétar
Reynisson og Messiana Tómas-
dóttir lausráöin.
Leikararnir skipta sér i tvo
hópa, annar mun aö mestu sjá
um leikrit fyrir börn og ung-
linga, en hinn fyrir fulloröna.
Svo betur sé vikiö aö verkefn-
um vetrarins þá verður „Sterk-
ari en Superman” frumsýnt á
laugardag kl. 17. Eins og les-
endum Þjóðviljans er eflaust
kunnugt fjallar leikurinn um
fjölskyldu, konu með tvö börn,
annað lamað og I hjólastól. Þau
eru nýflutt og verkið segir frá
þvi hvernig þeim er tekið i nýju
umhverfi. Strákurinn sem er i
hjólastól á sér hetju, sjálfan
Supermann og vill verða eins og
hann, enþegar allt kemur til alls
er það móðirin, sú sem heldur
öllu saman, sem er sterkari en
figúran Superman. Það eru þau
Thomas Ahrens og Jórunn Sig-
urðardóttir sem leikstýra, en
leikarar eru Björn Karlsson,
Guðlaug Maria Bjarnadóttir,
Margrét ólafsdóttir, Sigfús Már
Pétursson, Thomas Ahrens og
Viðar Eggertsson. Grétar
Reynisson gerir leikmynd og
Ólafur Haukur Simonarson
semur tónlist.
„Elskaðu mig” eftir Vitu
Andersen verður frumsýnt 18.
október. Það er Sigrún Val-
bergsdóttir sem leikstýrir en
þau Arnar Jónsson og Tinna
Gunnlaugsdóttir eru i hlutverk-
um karlsins og konunnar sem
leikritið fjallar um. Þarna er á
ferðinni ungt fólk i leit aö ham-
ingju, ást og lifsfyllingu, en for-
saga þeirra skiptir miklu i verk-
inu.
„Illur Fengur” eftir Joe Ort-
on, er þeirrar tegundar sem
kölluö hefur verið svört kóme-
dia, napurt verk og fyndið, sem
segir frá hrikalegum atburðum
sem gerast i venjulegu ensku
miöstéttarumhverfi. Frumsýn-
ing veröur i nóv.
„Don Quijote” eftir James
Saunders verður sett upp af
Þórhildi Þorleifsdóttur og er
áætlaö að frumsýna i janúar.
önnur verk eru á samninga-
stigi, eða rétt að streyma úr
penna höfundar og veröur sagt
frá þeim siðar.
Þvi er svo við að bæta að i
október hefjast miðnætursýn-
ingar á „Stjórnleysingi ferst af
slysförum”, þar sem Þráinn
Karlsson er i stóru og miklu
hlutverki, en leikurinn er að
sjálfsögðu eftir Dario Fo.
Alþýðuleikararnir sem tóku
sér stutta hvild frá æfingum og
tiltektum meðan blaðamenn
stöldruðu við, lögðu áherslu á að
nú fyrst sköpuðust aðstæöur til
þess að skapa leikhúsinu stil,
þegar fastráöið fólk getur unnið
saman og hefur til þess húsnæöi,
sem uppfyllir þær kröfur sem
gerðar eru til leikhúss. — ká
Laxveiðar í sjó:
Ognun við
laxarækt?
Vmsir hafa látið í Ijós
áhyggjur yfir auknum lax-
veiðum í sjó að undanförnu
og ekki að ástæðulausu.
óttast bændur að með
þessum veiðum kunni að
vera höggvið nærri hags-
munum þeirra. Nú hefur
landbúnaðarráðherra
skipað nefnd/ undir
forystu Þorsteins Þor-
steinssonar, formanns
Landsambands veiði-
félaga, og er henni ætlað
að athuga, svo sem f rekast
er kostur, í hve miklum
mæli íslenska laxastofns-
ins gætir. i þessum veiðum.
I ályktun, sem aðalfundur
Stéttarsambandsins samþykkti
um þessi mál segir að fundurinn
lýsi „þungum áhyggjum yfir
auknum laxveiðum i sjó I land-
helgi nálægra landa og á út-
hafinu á norðaustanverðu
Atlantshafi. Enginn veit hvort
eða hve mikið þessar veiðar
kunna að skaða hagsmuni
islenskra bænda, en mögulegt er
að þær eyðileggi laxarækt sem
búgrein i vissum landshlutum.
Fundurinn skorar þvi á land-
búnaðarráðherra og rikisstjórn
íslands að gera allt sem mögulegt
er til að vernda þá islensku hags-
muni, sem hér kunna að vera i
hættu.
Jafnframt fagnar fundurinn þvi
að landbúnaðarráðherra hefur nú
skipað nefnd undir forystu
Þorsteins Þorsteinssonar, form.
Landsamb. veiðifélaga, til að
„leita færra leiöa til könnunar á
hlutdeild islenska laxastofnsins i
afla þeirra þjóöa, sem laxveiðar
stunda á norðaustanveröu Atl-
antshafi.” —mhg
j Fötluðbörnj
i heimsækja j
■ Hornaf jörð •
Næstkomandi sunnudag I
mun Kristinn Guðmundsson, J
. sem vinnur i Þjóbleikhúsinu, .
fara með hóp fatlaöra barna I
austur að Höfn i Hornafirði. I
| Hópurinn leggur af stað frá [
Reykjavfk kl: 10 og er dvaliö ■
þar i 5 tima. Veröur börn- I
unum boðib i rútuferð upp að I
* jökli og siðan i mat i Fisk- *
1 vinnslustöðinni. Kaupfélagið !
I býöur. Þá mun sr. Gylfi I
Jónsson boða til messu I
I ferðalangana, en siðan verö- *
■ ur flogiö aftur heim til j
| Reykjavikur.
Kristinn Guðmundsson
I sagði að þetta væri sjötta J
J ferðin sem hann skipulegöi ]
| og stýrði fyrir fötluö börn.
Þátttakendur i þessari ferð I
eru Ur sérdeildinni i Hliða- J
skóla og greiða foreldrar ■
fararkostnaðinn. Svkr. I
Álagningu á
að ljúka
félög
Stefnt er að þvi að álagningu
opinberra gjalda á félög ljúki
fyrir októberbyrjun að þvi er
Gestur Steinþórsson, skattstjóri i
Reykjavik tjáði Þjóðviljanum I
gær. Er álagningin mánuði siöar
á ferðinni en i fyrra, en þess ber
að gæta að lögin sem skattframtöl
og álagning byggir á, komu
þremur vikum siöar frá aiþingi i
vor en i fyrra.
Meðan ekki hefur verið lagt á
félög, ber þeim aðeins aö greiöa
sama hlutfall mánaðarlega og
þau gerðu á siðasta ári. Sagði
Guðmundur Vignir Jósepsson,
gjaldheimtustjóri, aö af þessum
sökum væri ekki hægt að bera
saman gang innheimtu opinberra
gjalda t.d. viö siöasta ár. Það
veröur I fyrsta lagi hægt i októ-
berlok ef álagning á félög kemur i
lok þessa mánaöar. Innheimta
fasteignagjalda er hins vegar
skráð sér og sagði Guðmundur
Vignir aö útlit væri fyrir að inn-
heimta á þeim væri ekki minni en
ásamatimaifyrra. —AI
Kynning Kennarasambandsins:
Hvemlg er
vinmi staður
bamanna?
Kennarasamband islands er nú
aö hefja herferð til kynningar á
skólastarfinu I landinu og þeim
aðbúnaði sem nemendur búa viö.
Ætlunin er að koma af stað um-
ræðum um skólamál með það
markmið I huga aö bæta vinnu-
stað barna.
Nýlega var kynnt könnun sem
Félag skólastjóra og yfirkennara
lét gera á aðbúnaði í skólum.
Könnunin leiddi I ljós aö viöa eru
þrengsli mikil, aðstööu vantar til
verkmennta- og listakennslu,
bókasöfn eru af skornum
skammti, það gilda lög um
grunnskólann sem ekki er hægt
að framfylgja vegna aðstöðuleys-
is.
Kennarasamtökin benda eink-
um á það hver mörg börn eru i
bekkjunum og telja aö ekki sé
hægt að beita nútima kennsluaö-
feröum i svo stórum bekkjum, og
ekki hægt að ná fullnægjandi
árangri i blönduðum bekkjum.
Herferð Kennarasamtakanna
veröur meö þeim hætti aö bækl-
ingi veröur dreift til foreldra 6 og
7 ára skólabarna. 1 ritlingnum er
spurt 12 spurninga, sem eiga aö
vekja foreldra til umhugsunar.
Spurt er að þvi m.a. hvort reynt
sé aö skapa jákvætt viöhorf til
skólans á heimilinu, hvort börnin
fái aö standa fyrir máli sinu,
hvort foreldrar viti hvernig börn-
unum liöur á þeirra vinnustaö
(skólanum), hvort börnunum sé
sinnt sem einstaklingum i skólan-
um og um samfelldan skóladag
svo dæmi séu nefnd. Þá verður
næst dreift plakati þar sem vakin
er athygli á þvi hve bekkjardeild-
ir eru f jölmennar og spurt, veröur
þitt barn útundan? A næstunni
beita kennarar sér fyrir greinar-
skrifum i blöö, auglýsingar veröa
i sjónvarpinu og samtökin hafa
framhald á slðu 14