Þjóðviljinn - 17.09.1981, Page 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. september 1981
Sjáfboðaliðar
Okkur bráðvantar sjálfboðaliða til
ýmissa starfa. Þeir sem mögulega geta
séð af tima hafi samband við okkur i sima
17966 milli 8 og 16 eða liti við á Skólavörðu-
stig 1 A 2. hæð.
Samtök herstöðvaandstæðinga.
Auglýst
er eftir þátttöku
í Skólamót Knattspyrnusambands ís-
lands. Þátttökutilkynningar sendist
Knattspyrnusambandi Islands, tþrótta-
miðstöðinni Laugardal, box 1011 124
Reykjavik, fyrir 25. september, merkt
„Skólamót”.
Þátttökugjald kr. 500.- sendist með til-
kynningunni.
K.S.Í.
Laus staða
Staða kennslustjóra í félagsráðgjöf við félagsvisindadeild
Háskóla lslands er laus til umsóknar. Um er aö ræða
timabundna ráðningu til allt aö eins árs.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega
skýrslu um visindastörf sin, ritsmiðar og rannsóknir svo
og námsferil sinn og störf. Umsóknir skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik,
fyrir 29. september nk.
Menntamálaráðuneytið 14. september
1981.
HÚSGÖGN
Tilboð óskast i eftirtalin húsgögn fyrir
Siglingamálastofnun rikisins:
Skrifborð — Vélritunarborð
Skrifborðsstóla — Fundarstóla
Lágborð (sófa) — Gestastóla
Kaffistofuborð — Kaffistofustóla
Skermveggi — Blómagrindur
Skápa — Hillur
Heimilt er að bjóða i einstaka liði.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Borgartúni 7, Reykjavik, gegn kr. 500,-
skilatryggingu, föstudaginn 18. sept. n.k.
og siðar.
Tilboð verða opnuð á sama stað mánudag-
inn 28. sept. n.k., kl. 11:00 f.h.
• Blikkiðjan
Asgarði 7. Garöabæ
önnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötilboö.
SIMI 53468
isafjörður. Þar er miðstöð Fjóröungssambands Vestfirðinga.
Fjórðungsþing Vestfirðinga:
Aðkeypt vinna er
Vestfirðingum dýr
A Fjórðungsþingi Vestfirðinga,
sem haldið var að Laugarhóli i
Strandasýslu dagana 29. og 30.
ágúst flutti Jóhann T. Bjarnason
framkvæmdastjóri Fjórðungs-
sambandsins athyglisvert erindi
er nefndist Atvinnusköpun á
Vestfjörðum. Þar fjallaði hann
um könnun, sem stjórn Fjórö-
ungssambandsins hefur látið
gera samkvæmt samþykkt frá
1979. Könnunin náði til tekna far-
andverkafólks úr öðrum kjör-
dæmum, svo og greiöslna til
verktaka utan Vestfjarða frá
sveitarstjórnum og opinberum
stofnunum ásamt sérfræðiþjón-
ustu. Þessi athugun Fjórðungs-
sambandsins var miðuð við árið
1979 og þvl allar upphæðir i göml-
um krónum.
Reynt var að ná upplýsingum
frá sem flestum þéttbýlisstöðum,
en það tókst ekki, svo að töflur
eru miðaðar við 6 stærstu staðina.
Mikill fjöldi talna og taflna fylgir
með erindinu og skal bent á örfá-
ar þeirra.
A þessum 6 stöðum nam að-
keypt vinnuafl 273 mannárum
1979. Þar af voru 46,5 mannár
unnin af Vestfirðingum búsettum
utan þessara tilteknu staða, 159,5
Nokkrar athuganir hafa farið
fram á þvi hvort möguleikar
muni vera á sölu dilkakjöts á
Bandarikjamarkað. Er það
engan veginn talið dtilokað. En
Bandarikjamenn kligjar ekkert
viö fitunni. Þeir vilja hafa
skrokkana stóra og feita, þetta
frá 16—25 kg.
Otflutningur dilkakjöts hefur
heldur minnkað. Arið 1979 nam
hann 5046 tonnum en á sl. ári 4261
tonni. Mest af kjötinu er ftutt til
Noregs en horfur eru nú á þvi, að
útflutningurinn þangað muni
minnka og liggja til þess ýmsar
ástæður. Svo kynni auk þess aö
fara, að kjötmarkaður okkar i
EBE-löndunum lokaðist vegna
krafna um, aö haus sláturfjár
verði fleginn meö skrokk kindar-
innar áður en kjötið er metið og
stimplaö heilbrigðisstimpli.
Reynt hefur verið að fá undan-
unnin af öðrum Islendingum og 67
af útlendingum.
Ef reiknað er með, samkvæmt
upplýsingum frá Framkvæmda-
stofnun, að 2,21 íbúar séu bak við
hvert mannár á Vestfjörðum og
38 þjónustustörf bak við hver 100
störf i frumvinnslu og úrvinnslu-
greinum, þá myndi vera grund-
völlur fyrir umtalsverðri ibúa-
fjölgun. Ef hið aðkeypta vinnuafl
væri búsett á viðkomandi stöðum
myndi fjölgunin nema 826 ibúum.
I prósentum næmi það fjölgun frá
6 til 31,6 eftir stöðum.
Þá kemur fram i könnuninni, að
launagreiðslur til farandverka-
manna námu á þessum stöðum
gk. 1.182.950.077. Sé miðað við
12,1% álagningu útsvars hafa við-
komandi sveitarféiög á Vestfjörð-
um misst af útsvarstekjum, sem
nemur gkr. 143.137,080. Þessi
upphæð nemur að meðaltali 7,5%
af álögðum útsvörum i þessum
sveitarfélögum
I könnun þessari kemur einnig
mjög greiniiega fram, þegar
gluggaö er i töflur, að greiðslur
fyrir aðkeypta verktakaþjónustu
á Vestfjörðum reynast vera all-
miklu hærri en þær sem renna til
sams konar þjónustu I fjórðungn-
þágu frá þessu á þeirri forsendu
að sjúkdómur sá, sem veldur þvi
aö þessi skilyrði eru sett, er
óþekktur á tslandi. Ósennilegt er
þó talið að sú undanþága fáist og
þar með yrðum við af sviðunum.
Mundi margur Islendingurinn
sakna þar vinar i stað.
Af þessum sökum, m.a., er það
meira enæskilegtað takast mætti
að finna viðunandi markaö fyrir
dilkakjöt i Bandaríkjunum. En á
meðan dckur er sagt, að dýrafita
geti verið lifshættuleg og margir
Islendingar skilja fituna eftir á
diskabörmunum, liklega til þess
að lengja lifið, þá vilja Banda-
rikjamenn fá stærri skrokka og
feitari en algengaster að þeir séu
hér. Þeir vilja hafa skrokkana
16—25 kg. Þeir óttast nú fituna
ekki meira en það. Vænstu dilkar
okkar koma f sláturhúsin á
Hólmavik og Kópaskeri. Ef að
um sjálfum. Svo er einnig um að-
keypta verktakastarfsemi.
Fyrir aðkeypta fagþekkingu
greiða Vestfirðingar 50 sinnum
hærri upphæð en fyrir sama i hér-
aði. Þannig er augljóst aö Vest-
firöingar missa allstórar fúlgur
burt úr fjóröungnum á ári hverju.
Það er þvi ekki nema von að
sveitarstjórnarmenn þar vestra
reyni að finna leiðir til að rétta þá
slagsiöu, sem þarna greinilega
er.
Meðal annars i þvi skyni voru
þingmenn kjördæmisins fengnir
til að flytja þar ræöur, þar sem
þeir gerðu grein fyrir viðhorfum
- sinum til eflingar byggðarinnar á
Vestfjörðum. 1 máli þeirra kom
fram, að i flestum þeim þáttum,
sem mestu varða til tryggingar
vaxandi búsetu, er ástand lakara
vestra en viðast annars staðar á
landinu. Nefndu þeir þar til mála-
flokka eins og samgöngur, félags-
lega þjónustu og aðstööu, einhæft
atvinnulif, menntunaraöstööu og
heilbrigðismál, vöru- og raforku-
verð, húsnæðismál og kyndingar-
kostnað. Virtist þingmannasveit-
in mjög á einu máli um ástandið,
þó lausnarorðin væru nokkuö
mismunandi. — Svkr.
kjötsölu yrði til Bandarikjanna
þyrfti trúlega að gera þau slátur-
hús þannig úr garði, að þau gætu
verkað dilkakjöt fyrir þann
markað.
— mhg
Dilkakjöt til Bandaríkjanna:
Kanar óttast
ekki fituna