Þjóðviljinn - 17.09.1981, Qupperneq 11
Fimmtudagur 17. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA íi
íþróttirg iþróttirfS íþróttir
Sigurmark Fram staöreynd.Guömundur Steinsson hefur spyrnt og boltinn siglir framhjá markveröi og varnarmanni Dunkalk. Ljósm. — gel.
UEFA keppnín: Fram vann Dundalk 2:1 í gærkvöldi
Góður síðari hálfleikur
gaf tvö mörk
Fram vann nokkuð
óvæntan en verðskuldaðan
sigur yfir irsku bikarhöf-
unum# Dunkalk. úrslit
leiksins urðu 2:1 eftir að
irarnir höfðu leitt leikinn í
hálfleik 1:0. Það var góður
leikur Fram í seinni hálf-
leik sem skóp sigurinn
fyrst og fremst. Fyrri
hálfleikur var hinsvegar
með eindæmum daufur,
jafnvel svo, að þegar menn
fengu sér hressingu í leik-
hléi var ekki þann mann að
fyrirfinna, sem spáði þvi
að Fram næði að jafna
metin, hvað þá að vinna
leikinn.
Þaö virtust vera tvö áþekk
knattspyrnufélög sem hófu þenn-
an leik á Laugardalsvellinum i
gær. Fátt geröist markvert i byrj-
un, hlaup og litil kaup var vöru-
merki leiksins fyrstu minúturnar
þó svo aö Framarar héldu iviö
meira i boltann. Tækifærin voru
sárafá og skotin að marki grút-
máttlaus. Hættulegasta tækifæriö
kom um miöjan fyrri hálfleik
þegar Halldóri Arasyni tókst meö
miklu haröfylgi aö brjótast i
gegnum vörn irska liösins, en
markvöröur tranna náöi aö
bjarga meö góöu úthlaupi.
Eftir þvi sem leiö á hálfleikinn
fóru Irarnir aö ná betri tökum á
leiknum og vörn Fram geröi sig
oft seka um herfilegar yfirsjónir.
A 37. min. kom fyrsta markiö.
Heilmikiö klúöur i vitateig Fram
og miöherjinn Fairlough slapp
laus og skoraöi örugglega, þó i
þröngu færi væri. Stuttu siöar
munaöi engu aö Marteinn Geirs-
son hreinlega gæfi Irum leikinn.
Hann sendi gáleysislega bolta á
Guömund markvörö einn tranna
komst á milli skaut framhjá og
þegar boltinn var á beinustu leiö i
netiö náöi Agúst Hauksson aö
hreinsa frá, bókstaflega alveg á
marklinunni. Þannig gaf fyrri
hálfleikur ekki góö fyrirheit.
En I þeim siöari brá þannig viö,
aö Framarar gáfu alit i botn
Leikur liösins var oft ljómandi
skemmtilegur og i staö lognmoll-
unnar sem rikti i fyrri hálfleik
var komin fersk spenna á pall-
ana. Jöfnunarmarkiö lét þó biöa
eftir sér i heilar 20 minútur. Pétur
Ormslev fékk boltann á vinstri
kantinum, sendi góöan vel fyrir
og Guömundur Torfason stökk
allra manna hæst og skallaöi
glæsilega i netiö, 1:1!
Orstuttu siöar fengu Irarnir sitt
besta tækifæri i hálfleiknum er
Guömundur Baldursson varöi
meitaralega þrumuskot. Sigur-
markiö kom þegar rúmar 10
minútur voru til leiksloka. Há
fyrirgjöf kom fyrir mark Iranna,
Viöar Þorkelsson skallaöi fast i
átt aö marki og Guömundur
Steinsson, nýkominn inná, potaöi
i netiö. Hann hefur ekki veriö sá
markheppnasti i sumar, en skor-
aöi nú eitt mikilvægasta mark
Fram á keppnistlmabilinu. Stuttu
siöar varö Marteinn aö fara út af
vegna meiösla, en ekki kom þaö
aö sök. Fram hélt fyllilega sinu f
þaö sem eftir liföi leiks.
Hjá Fram áttu þeir Pétur
Ormslev og Halldór Arason góöan
dag. Halldör er e.t.v. ekki knatt-
leiknin uppmáluö og á stundum
viröist hann satt aö segja á góöri
leiö meö aö taka einu skrefi of
mikiö. Baráttukraft og seiglu hef-
ur hann hinsvegar i stórum
skömmtum og mættu margir
leikmenn taka hann sér til fyrir-
myndar i þeim efnum. Pétur var
léttur og lipur á miöjunni og i
framlinunni og geröi marga góöa
hluti. 1 markinu stóö Guömundur
Baldursson sig meö prýöi. Minna
hefur komiö út úr Marteini Geirs-
syni undanfariö, en oft áöur og
vist er aö margir Framarar óska
þess heitt þessa dagana, aö hann
láti af þeim leiöa siö aö leggja upp
nokkur af bestu marktækifærum
mótstööumannanna meö óná-
kvæmum sendingum á mark-
vöröinn.
Irarnir virtust ekki eiga neinn
leikmann umkominn til aö taka af
skariö þegar á lá. Þeir eiga
heimaleik ti) góöa og þar getur
allt gerst.
Ahorfendur voru alltof fáir,
eitthvaö innan viö 2 þúsund.
— hól
Evrópukeppni meistaraliða:
Aston Villa - Valur 5:0
V alsmenn
yflrspilaðir
Frá Lúövik Geirssyni i Birming-
ham:
Valsmenn áttu aldrei neina
möguleika i leik sinum viö ensku
meistarana, Aston Villa. Leikur-
inn fór fram á Villa Park i Birm-
ingham fyrir 20 þús. áhorfendum
og var frá fyrstu minútum um al-
gera einstefnu Englandsmeistar-
anna aö ræöa.. Hvaö eftir annaö
voru Valsmenn leiknir sundur og
saman á vellinum og raunar
mesta furöa aö mörkin skyldu
ekki hafa oröiö fleiri. Þaö var
helsti fyrri hálfleik, aö Valsmenn
náöu góöum skyndiupphlaupum,
en i þeim siöari voru þau skipti
teljandi er liöiö komst fram fyrir
miöju.
Leikmenn Villa byrjuöu meö
látum og eftir aöeins sex minútur
lá boltinn i netinu. Tony Morley
spyrnti úr óbeinni aukaspyrnu
rakleiöis I netiö framhjá Siguröi
Haraldssyni. Eftir markiö, náöu
Valsmenn sinum besta leikkafla
og áttu m.a. tvö hættuleg tæki-
færi. Þorvaldur Þorvaldsson
komst i gott færi en Rimmer
varöi vel. Stuttu siöar reif,
Guömundur Þorbjörnsson sig
lausan og þrumuskot hans varöi
Rimmer meistaralega.
Annaö mark Villa skoraöi svo
Peter Withe meö skalla frá mark-
teig og stuttu siöar bætti Donovan
viö þriöja markinu, hann fékk
boltann eftir aukaspyrnu og
skoraöi meö föstu skoti. Staöan i
hléi var 3:0.
Seinni hálfleikur byrjaöi
fremur rólega, en smátt og smátt
sigu leikmenn Villa á og voru
haldnar heilu ráöstefnurnar inni i
vitateig Vals. Á 68 minútu skoraöi
Withe eftir sendingu frá Bremner
og einni minútu siöar skorar
Donovan siöasta mark leiksins
eftir skemmtilega fyrirgjöf
Moriey. Lokatölur uröu þvi 5:0.
Valsmenn mættu algerum of
jörlum sinum i þessum leik og
máttu sin eölilega Htils.
Guömundur Þorbjörnsson var
langbesti maöur liösins og
Hilmar Sighvatsson átti einnig
góöan leik. Af liöi Aston Villa er
þaö aö segja aö leikur þess staö-
festi þaö djúp sem skilur á milli
heimsins bestu atvinnumanna og
áhugamanna I greininni.
Lg/hól.
V íkingur - Bordeaux
i dag kl. 17.30 hefst á
Laugardalsvellinum leik-
ur Víkings og franska
liðsins Bordeaux. Leikur-
inn er liður í
UEFA-keppninni í knatt-
spyrnu. Lið Brodeaux er
talið það sterkasta í
Frakklandi og víst er að
nýbakaðir islandsmeist-
arar fá verðuga andstæð-
inga. Meðfylgjandi mynd
tók gel., Ijósmyndari
Þjóðviljans á æfingu
Frakkanna i Laugardal í
gær. Sá til vinstri á
myndinni er frægasti
leikmaður Bordaeux,
Jean Tigana.