Þjóðviljinn - 09.03.1982, Side 3
Þriöjudagur 9. mars. 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Frædsluráö samþykkti:
Rekstri Vosaskólans
verður
Tillaga fræöslustjóra
og skólastjóra Vogaskóla
um skólahald þar næsta
vetur var í gær samþykkt
á fundi í Fræðsluráði
Reykjavíkur með sex at-
kvæðum. Bragi Jóseps-
son greiddi einn atkvæði
gegn tillögunni og lagði
fram svohljóðandi bók-
un:
„Ég tel mikilvægt aö ibúar
einstakra borgarhverfa fái aö
ráöa miklu um þróun og skipu-
lag viðkomandi skóla. Ég er
mótfallinn þvi aö nemendum i
grunnskólum Reykjavikur sé
stokkað upp vegna fjölgunar
eða fækkunar i hverfunum en tel
aftur á móti að eölilegt sé aö
gera nauðsynlegar breytingar á
rekstri einstakra skóla án þess
að færa nemendur milli hverfa
áfiram
eða með þvi að leggja niður
heila bekki, eða jafnvel heila
skóla. Ég tel þvi ekki rétt að
samþykkja þá breytingu sem
lögð er til. Ég tel aö kostur A sé
aðgengilegri.”
Allir aðrir fulltrúar i ráðinu
samþykktu siðan svohljóðandi
bókun:
„Vegna bókunar Braga Jós-
epssonar viljum við taka fram
að með þeirri samþykkt sem við
höfum gert um skipulagningu
skólastarfs i Vogaskóla fyrir
næsta skólaár er ekki gert ráð
fyrir aö „færa nemendur milli
hverfa” og þvi siður „— að
leggja niður — heila skóla”.
Meginefni samþykktarinnar er
að Vogaskóli starfi áfram meö
öllum aldursárgöngum með
skipan sem gerir unnt að reka
hann innan ramma núgildandi
laga og reglugerða um skóla-
kostnað.
Við viljum leggja áherslu á að
þær reglur gera eríitt aö skipu-
leggja skólastarf i grunnskólum
i Reykjavik þannig að æskilegur
nemendafjöldi verði i bekkjum.
Brýnast er i þvi sambandi að
unnið verði að fækkun i fjöl-
mennum deildum. Reglurnar
þyrfti að endurskoða þannig að
hver skóli verði gerður sjálfstæð
rekstrareining.”
Þá hefur borist yfirlýsing frá
Foreldra- og kennarafélagi
Vogaskóla og i gærkvöldi var
fundur með ibúum hverfisins i
heild um málið. I. yfirlýsingu
Foreldra- og kennarafélagsins
segir m.a. að þvi sé fagnað að
fræðsluráð hafi samþykkt fram-
hald grunnskólareksturs i
Vogahverfi en tekin afstaöa
gegn fyrirhugaöri lausn máls-
ins, og talið réttara að halda 17
bekkjardeildum en fækka ekki i
14 eins og ráð er fyrir gert i til-
lögunni sem samþykkt var
Fræðsluráði. — þs.
Lrekstri einstakra skóla án þess kostnað. logunni sem samþykkt var i i
að færa nemendur milli hverfa Við viljum leggja áherslu á að Fræðsluráði. — þs. I
Listi Alþýðubandalagsins á Selfossi:
Sigurjón, Kolbrún og
Dagný í efstu sætum
Úr sýningu Leikfélags M.R. „Ó
þetta er indælt strið”.
Leikfélag M.R.
sýnir á Herranótt:
„O, þetta
er indælt
stríð”
Leikfélag Menntaskólans i
Reykjavik frumsýnir i dag leikrit
Joan Littlewood „Ó, þetta er in-
dælt stríð”.
Sýningar leikfélagsins verða
alls 5 talsins og fara þær allar
fram i Félagsheimili Seltjarnar-
ness. Þýðandi leiksins er Indriði
G. Þorsteinsson en leikstjóri Þór-
hildur Þorleifsdóttir.
Leikritið f jallar um heimsstyrj-
öldina fyrri. Með söngvum og
farsakenndum atriðum er fárán-
leiki striösins dreginn fram.
Leikararnir eru allir nemendur i
Menntaskólanum i Reykjavik alls
18 talsins.
Frostmerkíng-
ar hrossa
Stjórn Búnaðarfélags tslands
hefur nú ákveðið að senda Pétur
Hjálmsson, ráðunaut til Amerfku
til þess að kynna sér frostmerk-
ingar á hrossum, samkvæmt al-
þjóðlegu kerfi, sem Kryo Kinetics
i Pullman, Washingtonriki hefur
einkaleyfi á.
Að undanförnu hefur sérstök
nefnd haft með höndum könnun á
merkingu stórgripa, einkum
hrossa. Niðurstaöan hefur oröið
sú, að þær frostmerkingar, sem
reyndar hafa verið hér að þessu,
henti vel við merkingu nautgripa,
en eigi slöur við hross, þar sem
þær þyki til lýta. För Péturs
Hjálmssonar er farin til að leita
þarna nýrra leiöa.
Búnaðarþing mælir með að
Búnaðarfélag Islands „kynni not-
kun frostmerkingartækja og ann-
ist innkaup á þeim fyrir búnaðar-
sambönd eða einstök nautgripa-
ræktarfélög”.
— mhg
Sigurjón Erlingsson
Sigurjón Erlingsson múrari,
Kolbrún Guðnadóttir kennari og
Dagný Jónsdóttir verkamaður
skipa þrjú efstu sæti framboðs-
lista Alþýðubandaiagsins á Sel-
fossi til bæjarstjórnarkosninga i
vor. Listinn var samþykktur á
félagsfundi sl. laugardag.
önnur sæti á listanum skipa
eftirtalin: 4. Þorvarður Hjaltason
Kolbrún Guðnadóttir
kennari. 5. Hansina Stefánsdóttir
skrifstofumaður. 6. Magnús Aðal-
bjarnarson skrifstofumaður. 7.
Iðunn Gisladóltir fóstra. 8. Gunn-
ar Þórðarson mjólkuríræðingur.
9. Jóna Ingvarsdóttir þroska-
þjálfari. 10. Rakel Móna Bjarna-
dóttir fóstra. 11. Hreggviður
Daviðsson iðnverkamaður. 12.
Hólmgeir Óskarsson húsasmiður.
Dagný Jónsdóttir
13. Helga Guðjónsdóttir húsmóð-
ir. 14. Hjörtur Hjartarson verka-
maður. 15. Kristjana Ragnars-
dóttir hjúkrunarforstjóri. 16. örn
Óskarsson liffræðingur. 17.
Sigurður Einarsson verkamaöur.
18. Hafsteinn Stefánsson skipa-
smiður.
—ekh
á vegum BSRB:
Verk Jónasar
*
Arnasonar
kynnt
Á morgun, miðvikudaginn 10.
mars kl. 20.30 heimsækir Jónas
Arnason, rithöfundur opinbera
starfsmenn, að Grettisgötu 89.
llelgi Seljan alþingismaður taiar
um rithöfundinn og Baldvin Hall-
dórsson leikari les uppúr verkum
Jónasar. Siðan munu þeir Jónas
og Valur óskarsson syngja Ijóð
eftir Jónas.
Laugardaginn 13. mars kl. 14
h'eimsækir svo lndriöi G. Þor-
steinsson opinbera starísmenn á
Akureyri að Hótel Varöborg.
Hjörtur Pálsson kynnir höl'undinn
og Jóhann Pálsson leikari mun
lesa úr verkum hans. Opinberir
starísmenn og gestir þeirra eru
velkomnir til þessara bók-
menntakynninga.
Alþýðubandalagið
á Fáskrúðsfirði:
Nær 100%
þátttaka
Eitt hundrað fimmtiu og átta
manns tóku þátt i fyrri umferð
lorvals Alþýðubandalagsins á
Fáskrúðsfirði, en I kosningunum
1978 fékk flokkurinn rúmlega 160
atkvæði af 385, sem kusu. Snorri
Slyrkársson sagði i samtali við
blaðið að sú leið hefði verið farin
að dreifa kjörseðium til
stuðningsmanna Alþýðubanda-
lagsins og hefðu þeir innheimst
nær 100%.
Sjötiu og niu hlutu tilnefningu
til siðari umferðar, og þaraf 23
konur. Verið er að kanna vilja
manna til þátttöku i siðari umferð
og fer hún fram um næstu eða
þarnæstu helgi. Aðrir flokkar á
staðnum höfðu stungið upp á
sameiginlegu prófkjöri en Al-
þýðubandalagið hafnaði þvi nema
að sú aðferð væri höfð að senda
kjörseðla á hvert heimili. Niður-
staðan verður þvi sú að Alþýðu-
bandalagið veröur sér með forval
sitt á Fáskrúðsfirði.
—ekh
Sameiginlegur norrænn vinnumarkaður
Samningur undirritað-
ur í Kaupmannahöín
Samningur um sam-
eiginlegan norrænan
vinnumarkað var undir-
ritaður í Kaupmannahöfn
s.l. laugardag. Svavar
Gestsson# félagsmálaráð-
herr^, undirritaði samning-
inn fyrir hönd ríkis-
stjórnarinnar með fyrir-
vara um samþykki al-
þingis.
1 hinum nýja samningi er um að
ræða lagfæringar við framkvæmd
samningsins sem reynslan frá
1954 — þegar samningurinn var
fyrst gerður — hefur sýnt að eru
nauðsynlegar. Þá er ísland nú
aðili að samningi þessum i fyrsta
sinn, að visu með þeim fyrirvara
að unnt verður að krefjast at-
vinnuleyfa fyrir ibúa annarra
Norðurlanda hér, ef um verður að
ræða meiriháttar tilflutninga
fólks. Mun félagsmálaráðuneytið
hafa samráð við verkalýðs-
hreyfinguna um framkvæmd
slikra takmarkana, svo sem verið
hefur við útgáfu atvinnuleyfa.
Á fundi vinnumálaráðherranna
var fjallað um atvinnuhorfur á
Norðurlöndunum, en þar er alls-
staðar — nema á Islandi — um að
ræða vaxandi atvinnuleysi. Alls
voru nú, 1. 3. s.1., um 650.000
skráðir atvinnulausir á Noröur-
löndunum fjórum. Norrænu
Svavar Gestsson félagsmálaráð-
herra undirritar samninginn i
Kaupmannahöfn. Fyrir aftan
hann er llallgrimur Dalberg,
ráðuncytisstjóri.
verkalýössamtökin spá þvi nú að
fjöldi atvinnuleysingja verði i lok
næsta árs ein miljón manna i
þessum fjórum löndum. Var
ákveðið að kaila saman sérstakan
fund vinnumálaráðherra Norður-
ianda til þess að fjalla um þær
alvarlegu horfur sem um er að
ræöa i atvinnumálum Noröur-
landanna fjögurra.
Það vakti mikla athygli á ráð-
herrafundinum og á fundi
Norðurlandaráðs i Helsingfors að
á tslandi er ekkert atvinnuleysi.
Akvaö ráðherrafundurinn i Kaup-
mannahöfn að láta taka saman
sérstaka skýrslu fyrir vinnu-
málaráðherra Norðurlanda um
atvinnuástandið á tslandi.
Hallgrimur Dalberg, ráðu-
neytisstjóri félagsmálaráðu-
neytisins sat ráöherrafundinn i
Kaupmannahöfn ásamt félags-
málaráðherra.