Þjóðviljinn - 09.03.1982, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 9. mars. 1982.
Leiklistarskóli
/
Islands
auglýsir inntöku nýrra nemenda sem
hefja nám haustið 1982.
Umsóknareyðublöð ásamt upplýsingum
um inntökuna og námið i skólanum liggja
frammi á skrifstofu skólans að Lækjar-
götu 14 b, simi 25020. Skrifstofan er opin
kl. 9—15 alla virka daga. Hægt er að fá öll
gögn send i pósti ef óskað er. Umsóknir
verða að hafa borist skrifstofu skólans i
ábyrgðarpósti eða skilist þangað fyrir 22.
april n.k.
Skólastjóri
Orlofshús
Bandalag háskólamanna minnir félags-
menn sina á, að frestur til að sækja um or-
lofsdvöl næsta sumar i orlofshúsum
bandalagsins aö Brekku i Biskupstungum
rennur út 20. mars.
Frestur til að sækja um orlofshús um
páskana er til 15. mars.
Frestir til að sækja um dvöl i orlofshúsum
Hins islenska kennarafélags i sumar eða
um páskana eru hinir sömu og hjá BHM.
Skrifstofur BHM og HÍK eru að Lágmúla
7. Simar hjá BHM eru 82112 og 82090 og hjá
HÍK 31117.
Bandalag háskólamanna.
Hið islenska kennarafélag.
Styrkir til háskólanáms í Kina
Stjórnvöld A'þyöulýöveldisins Kina bjóöa fram tvo styrki
handa tslendingum til háskólanáms i Kina háskólaárið
1982—83. Eru styrkirnir ætlaöir stúdentum til náms i bók-
menntum, sögu, heimspeki, raunvisindagreinum eða
kandidötum til framhaldsnáms i kinversku. Námsmenn i
raunvisindum geta búist viö að þurfa að gangast undir
sérstakt próf hérlendis i stæröfræði, efnafræði og eðlis-
fræði. — Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðu-
neytinu, Hverfisgötu tí, 101 Reykjavik, fyrir 6. april n.k.
Umsóknareyðublöð l'ást i ráðuneytinu.
Menntaniálaráðuneytið,
1. mars 1982
ÚTBOÐ
Byggingarnefnd lögreglustöðvar, hrepps-
skrifstofu og húsnæðis fyrir Rauðakross-
deild Rangárvallasýslu, óskar eftir til-
boðum i byggingu hreppshúss á Hvols-
velli.
Húsið er 2300 rúmm og skal skila þvi til-
búnu undir tréverk, en lokið er við grunn-
plötu hússins. Raflögn er undanskilin i út-
boði þessu.
Verkinu skal lokið 1. júni 1983.
Útboðsgögn veröa afhent á skrifstofu
Hvolhrepps, Hvolsvelli, Rangárvalla-
sýslu, og á Teiknistofu Gylfa Guðjóns-
sonar, Skólavörðustig 3, Reykjavik, gegn
1000 kr. skilatryggingu, frá og með 9.
mars n.k.
Tilboð verða opnuð i skrifstofu Hvol-
hrepps, þann 30. mars n.k. kl. 14.00.
ÍSSKAPA- OG FRYSTIKISTU
VIÐGERÐIR
Breytum gömlum ísskápum
í frystiskápa.
Góð þjónusta.
aslvBrk
ÍEa
REYKJAVÍKURVEGI 25 Hafnarfirði simi 50473
Utþenslu
Hæstaréttar
irestað
1 gær mælti Jón Helgason
fyrir meirihlutaáiiti alls-
herjarnefndar efiri deildar
um Ilæstarétt.
Þar er m.a. lagt til að
dómurum verði fjölgað i átta
og aukadómarar verði ráðn-
ir um stundarsakir. Meiri-
hluti nefndarinnar telur að
ekki sé unnt að flýta af-
greiðslu mála með öðrum
hætti. Stefán Jónsson og Eið-
ur Guönason skrifa undir
með fyrirvara og Eiður legg-
ur til að ákvæði um fjölgun
dómara verði lagt niður,
Ólafur Ragnar Grimsson fór
fram á frestun afgreiðslu
málsins þar til skriflegt álit
lægi fyrir um lögmæti frum-
varpsins. Margir lögmcnn
hafa talið frumvarpið brjóta
i bága við stjórnarskrána.
óg
Fóðurverk-
smiðjur
ríkisins til
1. umræðu
Eyðilegging kjörseðla eftir
hreppsnefndarkosningar var
samþykkt i gær i efri deild sem
lög frá alþingi. Pálmi Jónsson
landbúnaðarráðhcrra mælti þar
fyrir frumvarpi til laga um fóöur-
verksmiöjur rikisins. Helgi Selj-
an og Jón Helgason tóku einnig til
máls um þennan lið.
Helgi sagöi m.a. aö hann hefði
fyrirvara um samþykki við ein-
staka greinar frumvarpsins. T.d.
teldi hann ab félög og félagasam-
tök heimafólks ætti að geta eign-
ast þessar verksmiðjur og rekið
þær. Eins taldi hann að vel kæmi
til greina að skipa yfirstjórn
verksmiðjanna með öðrum hætti
en gert er ráð fyrir i írumvarpinu
(einyfirstjórn). Jón Helgasontók
i sama streng og Pálmi Jónsson
taldi ýmsar breytingar hugsan-
legar i meðförum nefndar. — óg
Þingmenn úr
öllum flokkum
Miðstöð
fyrir fjöl-
skyldu-
raðgjof
I.agt hefur verið fram
frumvarp til laga frá Guð-
rúnu Ilclgadóttur, Jóhönnu
Sigurðardóttur, Matthiasi
Bjarnasyni og Niels A Lund
um breytingu á barnalögum.
Þar er gert ráð fyrir að for-
eldrar eigi kost á fjölskyldu-
ráðgjöf er taki til hinna ýmsu
fjölskylduvandamála. Fjöl-
skylduráðgjöfin skal starf-
rækt af félagsmálaráðuneyt-
inu, sem setji einnig rcglu-
gerð fyrir miðstöð scm hefði
fjölskylduráðgjöf á sinni
könnu.
1 greinargerð með frum-
varpinu segir m.a. að slik
fjölskylduráðgjöf hafi verið
starfrækt að hluta frá árinu
1979 á vegum Barna-
verndarráðs Islands. A þeim
tveim árum sem fjölskyldu-
ráðgjöfin hefur starfað hefur
verið leitað til hennar vegna
137 barna. Reynslan hefur
ieitt i ljós að ekki er vanþörf
á að gera slika ráðgjöf að
fullu starfi og veita henni
lagalega vernd og fjárhags-
lega tryggingu. 1 raun væri
hérum sparnað að ræða, þvi
slik ráðgjöf vinnur að veru-
legu leyti fyrirbyggjandi
starf. — ög
Frá Djúpuvfk i Arneshreppi. Gamla sildarverksmiðjan frá gullöld
þeirra Strandamanna.
Efla byggð í
Árneshreppi
Hafnarframkvæmdir á Ströndum
Málefni Vestfiröinga
voru mjög til umræöu á
fundi sameinaðs alþingis í
gær. Þorvaldur Garðar
mælti fyrir þingsálykt-
unartillögu um surtar-
brandsvinnslu og Matthias
Bjarnason mælti fyrir til-
lögu um aögeröir til þess
aö tryggja eðlilega
byggöarþróun í Arnes-
hreppi í Strandasýslu. i til-
lögunni er gert ráö fyrir að
ríkisstjórninni verði faliö
að láta framkvæma undir-
búning og hönnun aö
haf narf ramkvæmdum í
Árneshreppi. Þetta verði
fyrstu aðgerðir af hálfu
ríkisvaldsins til að treysta
og efla byggð þar nyrðra.
Með tillögunni, sem þingmenn
Vestfirðinga flytja, fylgir ýtarleg
greinargerð. Þar segir m.a.
„Ibúar Arneshrepps hafa frá
aldaöðli lifað jöfnum höndum af
gæðum lands og sjávar. Jafnan
hefur verið harðbýlt og strjálbýlt
i þessum hreppi, gróðursælasta
og búsældarlegasta sveitin er
Trékyllisvik. í hreppnum eru
allmikil hlunnindi af selveiði og
dúntekju, þar veiðist mikið af
grásleppu og reki er nokkur.
A fjórða tug þessarar aldar var
reist sildarverksmiðja á Djúpu-
vik i Arneshreppi, og nokkru
siðar var reist önnur sildarverk-
smiðja á Eyri i Ingólfsfirði og var
þá mikið blómaskeið i þessum
hreppi. Þessar atvinnugreinar
hrundu þegar komið var fram á
fimmta áratug þessarar aldar, og
hafði það afdrifarikar afleiðingar
fyrir það fólk sem byggði þetta
svæði.
A árinu 1910 voru ibúar Arnes-
hrepps 431, en þeim fjölgaði um
11,1% á næsta áratug og voru 479
árið 1920. Þá verður nokkur
breyting næstu árin á eftir, þegar
ibúum hreppsins fækkar i 434 á
árinu 1930 eða um 9.4%. En með
hinni miklu atvinnuuppbyggingu,
sem varð á fjórða áratugnum,
fjölgar ibúum i hreppnum og á
árinu 1940 eru þeir 515, fjölgun um
18,7%. 1950 er farið að siga veru-
lega á ógæfuhliðina þvi þá er
ibúatalan orðin 413, og fækkun
verður á áratugnum 1950—1960
um 30.5% eða i 287 ibúa. A árinu
1970 heldur þessi þróun áfram og
fer ibúatalan niður i 216 á árinu
1960, en fæstir eru ibúar i Arnes-
hreppi á árinu 1978, aðeins 168.
Siðan hefur heldur fjölgað og
ibúar þar á siðastliðnu ári voru
175.”
Auk Matthiasar Bjarnasonar
tóku þeir Ólafur Þórðarson og
Skúli Alexandersson til máls og
mæltu með samþykkt til-
lögunnar.
— óg
Sjö mál afgreidd í neöri deild:
Mikfll kraftur
í þíngmöimum
Forðuðust málalengingar
Eftir einnar viku
hægagang á alþingi
vegna þings Norður-
landaráðs, tóku þing-
menn til höndunum í
báðum deildum þingsins
i gær. í neðri deild voru
þannig sjö mál afgreidd
og efri deild lét ekki sitt
eftir liggja fremur en
endranær.
Matthias Bjarnasonmælti fyrir
áliti trygginganefndar i neðri
deild um frumvarp til laga um
vátryggingagjald, sem félags-
málaráðherra hefur lagt fram.
Fulltsamkomulag var i nefndinni
um að ná þvi markmiði að auka
tekjur Tryggingaeftirlitsins.
Guðriín Hclgadóttirmælti fyrir
áliti nefndar um breytingu á
lögum um lifeyrisrétt sjómanna,’
þar sem gert er ráð fyrir að
sjómenn eldrien 60 ára fáinúelli-
lifeyrisrétt, þó þeir hafi verið á
bá»um, þar sem lögskráning hef-
ur ekki verið skylda. Það er á
opnum bátum og þilfarsskipum
undir 12 brl. Guðrún gat þess að
nefndin væriannars sammála um
að herða lögskráningu i fram-
tiðinni. Mælir nefndin þvi með
frumvarpi frá Pétri Sigurðssyni
sem nú liggur fyrir þinginu og
gengur i' þessa veru.
Karvel Pálmason mælti fyrir
frumvarpi um greiðslu orlofsf jár.
Þetta er i fjórða sinn sem frum-
varpið er flutt, þarsem gert er ráð
fyrir greiðslu orlofs alfarið i
heimahéraði istað póstgirókerfis.
Svavar Gestsson mælti fyrir
frumvarpi um lyfsölulög. Frum-
varpið er lagt fram til áréttingar
á sérstöðu lyfsöluveitingar til
Háskóla Islands. Svavar sagði
að einmittnú færu fram viðræður
við lyfsala um þetta mál og þvi
væri lagt til að um lyfsöluleyfi
yrði farið með á óbreyttan hátt
þartil núverandi lyfsali i
Reykjavi'kur-Apóteki hættir
stör fum.
Steingrimur Hermannsson
mælti fyrir frumvarpi um vöru-
flutninga á landi, en engin lög eða
reglugerð hefur verið i gilduum
þessa landflutninga.
Sighvatur Björgvinsson mælti
fyrir frumvarpi um Orlofssjóð
aldraðra, þarsem gert er ráð fyr-
ir aðstoð við orlofsstarfsemi og
við fáækt eldra fólk, sem ella gæti
ekki tekið sér orlof.
— óg.