Þjóðviljinn - 09.03.1982, Blaðsíða 15
Þriöjudagur 9. mars. 1982. ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 15
X Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla
r ^ virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum
lescndum
Missti af Skodasýningu
Bálreiöur Skoda-ei ga n di
hringdi:
Ég er einn þeirra manna sem
hef þokka á þægilegu og ein-
földu lífsmunstri. Lifsviöhorf
mitt birtist m.a. i þvi að ég vil
aka á ódýrri og sparneytinni
bif reið — og ég vil komast i tæri
við allt sem fjölmiðlar geta
boðið uppá i gegnum blaðið
mitt, Þjóðviljann. Eg er einnig
náttúruverndarmaður — og þvi
get ég i prinsippinu ekki leyít
mér að kaupa moggann — fyrir-
núutan allt annað i sambandi
við gagnið það. Við lifum heldur
ekkilengur á dögum kamranna.
Til að gera langa sögu stutta,
þá hef ég um áraraðir ekið um á
Skodabilum af augljósum
ástæðum. Eg hef skipt um á
nokkurra ára fresti og endur-
nýjað bilaeignina. Þvi hef ég
vendilega fýlgst með nýjungum
og möguleikum á kaupum á
Skoda hjá umboðinu. Um dag-
inn varð ég fyrir þeirri dapur-
legu reynslu að frænka min
gömul kom iheimsókn um helgi
og hafði meðferðis þann áður-
nefnda fornaldargrip, Morgun-
blaðið. Þar i rekst ég á auglýs-
ingu um bifreiöasýningu hjá
Skodaumboðinu, sem var að
ljíika, Eg varð fyrir miklum
vonbrigðum, að ég ekki segi að
ég haf i orðiö grútspældur, þv i ég
hefði haft mikinn hug á þessari
sýningu. Hvers konar fordild er
það hjá umboðinu að auglýsa
ekki i Þjóðviljanum . Þetta gerði
mér svogramtigeði að ég er nú
alvarlega að velta fyrir mér að
skipta um bifreiðategund — og
kaupa aldrei Skoda framar.
Bálreiöur Skoda-eigandi utan
borgarmar kanna.
Barnahorniö
Kalli og Kata
og fleira fólk
Sesselja Lind AAagnúsdóttir, 7 ára,
sendi okkur eftirfarandi bréf:
„Halló Barnahorn.
Ég er sjö ára og heiti Sesselja Lind
AAagnúsdóttir og á heima á Vífilsmýr-
um í önundarfirði. Hér eru þrjár
myndir sem mig langar til að senda í
hornið. Fyrsta myndin er af Kalla og
Kötu. Prinsessan er prinsessan á
bauninni og prinsinn er fyrir framan
höllina sína.
Bless, Barnahorn.
Og hér koma svo myndirnar.
Við vonum, að þær prentist vel.
Carl Sagan er stjórnandi þáttanna um Atheiminn.
Alheimurinn:
Mannsheilinn
Sérstök ástæöa er til aö
vekja athygli á hinum marg-
slungna þætti Bandarikja-
mannsins, Carl Sagan, sem er
á dagskrá i kvöld kl. 20.55.
Þáttur Sagan „Alheimur-
inn” fjallar um allt milli
himinsog jarðarog gottbetur.
1 þessum þætti sem nefnist
„Þrálátt minni” fjallar Sagan
um mannsheilann og
miðtaugakerfið. Þátturinn
tekur 65 minútur i sýningu.
Þvöandi er Jón 0. Edwald.
*£\ Sjónvarp
'yff kl. 20.55
Sjónvarp
ff kl. 22.00
Eddi
þvengur
kemst í tæri
við pönk-
hljómsveit
t sjónvarpinu i k vöid er Eddi
þvengur á dagskrá og er þetta
9. þátturinn um Edda. Eddi er
eins og þeir sem fylgst hafa
meö þættinum vita, viösjár-
veröur gripur sem hefur þaö
fyrir starfa að flytja efni tengt
sakamálum i (Jtvarpið.
Venjulega er hann í hringiöu
atburöanna og leggur sig einn-
ig f mðda iifshættu til aö rétt-
lætiö nái fram að ganga.
Þessi þáttur gengur út á að
stúlka i pönkhljóms veit
Sjónvarp
TF kl. 22.50
Hljómplötu-
útgáfa og
Helguvík í
Fréttaspegli
Fréttaspegill sem hefst kl.
22.50 i kvöid er aö þessu sinni I
umsjá ólafs Sigurðssonar,
fréttamanns. Aö öllu óbreyttu
mun Óiafur taka tvö efni fyrir f
þættinum. t fyrsta lagi hljóm-
plötuiitgáfu á tslandi, þær stór-
stigu breytingar sem orðiö hafa
hér á landi i þeim efnum. Taiaö
veröur viö stUdiófólk og rætt
veröur um hljómplötuútgáfuna i
þeirri mynd sem hún er i dag.
Hitt efniö varöar umdeildar
framkvæmdirá Keflavikurflug-
velli, Helguvikurmálið o.s.frv.
hringir i Edda þveng 'og biður
hann aö gramsa i máli sem
viðkemur pönkhl jómsveit
þeirri semhúnstarfar i. Fyrr-
verandi meöiimur hljóm-
sveitarinnar heldur þvi fram,
að eigandi skemmtistaðarins
þar sem hljómsveitin spilar,
hafi drepið unnustu sina. Bæði
eigandinn og meðlimurinn
fyrrverandi höfðu átt náin
kynni viö stúlkuna. Þátturinn
um Edda þveng tekur 50
minútur. Þýðandi er Dóra
Hafsteinsdóttir.
Ólafur Sigurösson er stjórn
andi Fréttaspegils i kvöld.
Að sögn Ólafs Sigurðssonar,
stjórnanda þáttarins , þá mun
hann sneiða hjá þvi pólftiska
þrætuepli sem málið er orðið og
leiöa fyrir sjónir manna Helgu-
vfkina eins og hún litur út og
fleira nátengt Kefiavikurflug-
vellinum.