Þjóðviljinn - 08.04.1982, Qupperneq 1
SUNNUDAGS
BLADID
DJÓDVIIIINN
32
SÍÐUR
Fimmtudagur
8. april
1982 — 81. tbl.
47. árg.
Fjölbreytt
lesefni
um
helgar
Verð kr. 10.00
„Gagnrýni hefur
-ekki haldið fyrir
mér vöku'
ophuviðtal við
Hjörleif
Guttormsson
Viðtal við Guðrúnu
r
Agústsdóttur:
Reykjavík má ekki
lenda aftur i
höndum
andfé/ags
legra afla
Viðtal við Magnús
Hallgrimsson um
vetrarferð
inn á hálendið
„Ég hreinlega varð
að byrja á þessu ”
rœtt við
Harald Sigurðsson
Ljósm. Leifur.
Allir í Bláfjöll
Skálinn opnaður í dag!
Samkvæmt veðurspánni
á ekkert að vera því til fyr-
irstöðu, að borgarbúar og
nágrannar geti notið hinn-
ar góðu aðstöðu til skíða-
og útivistar, sem Blá-
fjaliasvæðið býður uppá.
AAunu því margir draga
fram skíðin og skunda á
f jöll um helgina.
Við slógum á þráðinn i gær,
miövikudag, upp i Bláfjöll og
ræddum stuttlega við Helga Má
Jónsson, einn „fólkvangsvarða”
Bláfjalla. Hann sagði okkur, að
skiðalyftur yrðu opnar frá 10 - 6
yfir páskana, eins og jafnan á
helgidögum. Hvað kvað góða færð
á vegum og skiðafærið aldeilis
frábært. Þá sagðist hann eiga von
á góðri aðsókn — reynslan væri
sú, aö væri veður skaplegt fylltist
allt i Bláfjöllum um helgar og á
fridögum.
Skiðalandsmót verður haldið i
Bláfjöllum um páskana, og
kvaðst Helgi Már fremur eiga von
á þvi að heldur fjölmennara yrði
en vanalega út af þvi. Lyfturnar
myndu hins vegar ganga ótrufl-
aðar að mestu þrátt fyrir mótið
og þaö ætti ekki að raska neinu
um opnunartima.
Þá sagði Helgi Már, að skálinn
yrði opinn i Bláfjöllum i dag meö
sjoppu þar sem seldar yrðu sam-
lokur og góð aðstaöa yrði fyrir
gesti að tylla sér niður. Þessi
skáli myndi einnig bæta aðstöðu
starfsfólksins verulega, en hún
væri vægast sagt ekki til að hrósa
sér af nú. Hann verður þó ekki
vigöur fyrr en eftir páskana.
— Að lokum, Helgi: Hvernig er
að vinna þarna?
„Það fer auðvitað allt eftir að-
stæðum,” sagöi Helgi. „Þegar
sólin skin og aðsókn er góð, þá er
þetta auðvitað mjög skemmtileg
vinna. En hins vegar er vinnan
erfið þegar veður eru vond.”
Viö þökkum Helga Má kærlega
fyrir upplýsingarnar og óskum
lesendum gleöilegra páska, og
skiöafólki biðjum við góðrar
færðar.
ast
Spáin um páskaveðrið:
Heldur gott
veðurútlit
Landsmenn allir mega
vænta heldur góðs veðurs
um páskana, a.m.k. eru
ekki miklar líkur á stór-
kostlegu páskahreti. Þó
gæti snjóað eitthvað víðast
hvar, en sú snjókoma mun
ekki standa lengi. Veður
mun heldur fara kólnandi
frá því sem nú er (á mið-
vikudegi), en litlu mun það
skipta f yrir gróðurfar.
Veðurstofan lét okkur i té þess-
ar upplýsingar og bætti við, að
sennilega yrði oftast gott veður.
Þó færu yfir tvær litlar lægðir, sú
fyrri i nótt en hin á laugardegin-
um.
Eins og lesa má eru hér slegnir
miklir varnaglar og ekkert full-
yrt. Astæöan er tvöföld: veður-
fræðingurinn, Trausti Jónsson,
var ekki aldeilis á þvi að fullyrða
nema með varnöglum, og svo
voru bilanir á tækjabúnaði i út-
löndum, þannig að Veöurstofan
haföi ekki fengið nægilegar upp-
lýsingar til að geta gert miklar
langtlmaspár. En málið er semsé
það, að við þurfum ekki að vænta
óveðurs, þótt óliklegt sé aö bliða
siðustu viku haldist.
ast